Fleiri fréttir

Art Buchwald látinn

Blaðamaðurinn og pistlahöfundurinn Art Buchwald er látinn, áttatíu og eins árs að aldri. Buchwald skrifaði gamansama pistla um allt milli himins og jarðar í meira en hálfa öld. Hann hlaut Pulitzer verðlaunin árið 1982 og skrifaði meira en þrjátíu bækur. Pistlar hans voru birtir í meira en 550 dagblöðum.

Ekki eitrað fyrir Napóleon

Napoleon Bonaparte dó úr magakrabba en ekki arsenikeitrun, samkvæmt nýrri rannsókn bandarískra vísindamanna. Sögusagnir um að keisarinn fyrrverandi hafi dáið úr eitrun hafa verið á kreiki síðan árið 1961 þegar rannsókn á hári hans leiddi í ljós óvenjumikið arsenik.

Mona Sahlin fyrsti kvenleiðtogi jafnaðarmanna

Mona Sahlin verður næsti formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð, fyrst kvenna. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Hún tekur við forystu í flokknum af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári.

Milliríkjadeila vegna raunveruleikaþáttar

Breski raunveruleikaþátturinn Big Brother hefur komið af stað milliríkjadeilum milli Indlands og Bretlands, og jafnvel Tony Blair, forsætisráðherra, hefur þurft að látta málið taka. Sömuleiðis Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem var svo óheppinn að vera í heimsókn í Indlandi þegar deilan kom upp.

Löggan var fiskifæla

Fjölmargir hringdu í norsku lögregluna í morgun til þess að tilkynna um mann sem lá hreyfingarlaus á ísnum á Bogstad vatni. Ekki var vitað hversu traustur ísinn var, og því var þyrla send á vettvang, ásamt sjúkrabíl og lögreglubíl. Þyrlan sveimaði yfir og lögreglumennirnir fikruðu sig varlega út á ísinn.

Búist við að Sahlin verði næsti leiðtogi sænskra jafnaðarmanna

Búist er við því að tilkynnt verði á blaðamannafundi síðar í dag að Mona Sahlin verði nýr leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Fram kemur á vef sænska ríkisútvarpsins að hún hafi samþykkt í símtali við valnefnd flokksins að taka við forystu af Göran Persson sem ákvað að halda ekki áfram eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum á síðasta ári.

ESB að endurskoða stjórnmálasamband við Líbíu

Evrópuþingið mælti í dag fyrir því að lönd Evrópusambandsins myndu endurskoða stjórnmálasamband sitt við Líbíu ef stjórnvöld þar myndu ekki frelsa fimm búlgarska hjúkrunarfræðinga og palestínskan lækni sem bíða dauðarefsingar þar í landi. Læknaliðið var dæmt fyrir að hafa vísvitandi smitað um 450 börn af HIV veirunni.

Fuglahald bannað í bakgörðum í Jakarta

Borgaryfirvöld í Jakarta í Indónesíu ætla að banna allt fuglahald í bakgörðum í höfuðborginni, til þess að hamla útbreiðslu fuglaflensuveirunnar. Fjórir Indónesar hafa þegar látist úr fuglaflensu á árinu, að sögn fréttavefs BBC. Bannið tekur gildi eftir tvær vikur.

Öryggisráðstafanir vegna krikketkeppni

Vegabréfsreglur hafa verið hertar á Karíbahafseyjum vegna heimsmeistarakeppninnar í krikketi sem fer fram á nokkrum eyjum í mars og apríl. Íslendingar sem ætla að fljúga til 10 Karíbahafsríkja, þeirra á meðal til Jamaíka, þurfa nú vegabréfsáritun.

Tugir ættflokka sem aldrei hafa kynnst umheiminum

Mun fleiri ættflokkar indíána búa í regnskógum Amasón en áður var haldið. Þeir eru einangraðir frá umheiminum. Með hraðri eyðingu regnskóga er hins vegar hætta á því að umheimurinn nái í skottið á þeim fljótlega og lífsviðurværi þeirra og bústaðir eyðileggist.

Heimsendir í nánd

Stjarneðlisfræðingurinn og hugsuðurinn Stephen Hawking segir jarðarbúum stafa meiri ógn af loftslagsbreytingum en hryðjuverkum og hvetur til stríðs gegn þeim. Mínútuvísir dómsdagsklukkunnar svokölluðu var færður fram um tvær mínútur í dag og lét Hawking þessi ummæli falla við það tækifæri.

Legígræðsla undirbúin

Hópur lækna í New York undirbýr nú það vandaverk að græða leg úr látinni konu í aðra lifandi. Tækist það gæti legþeginn mögulega alið barn.

Komst heim eftir rúm 30 ár í gíslingu

Tæplega sjötugur fiskimaður kom til síns heima í Suður-Kóreu í gær eftir rúmlega 30 ára gíslingu í Norður-Kóreu. Hann segir dvalarstað sinn þar hafa verið þröngt afmarkaðan og á stundum hafi hann einvörðungu haft gras til næringar.

Átök í Aþenu

Grískir víkingasveitarmenn börðust við mótmælendur í Aþenu í dag og hékk reykjarmökkur yfir miðbænum í eftirmiðdaginn. Mótmælendurnir fleygðu bensínsprengjum að lögreglumönnum, sem svöruðu með táragasi. Eldur læsti sig í fjóra bíla og eina verslun út frá sprengjunum.

Krafist afsagnar Olmerts og Peretz

Háværar kröfur eru nú meðal stjórnarandstæðinga í Ísrael um að Ehud Olmert, forsætisráðherra landsins, og Amir Peretz varnarmálaráðherra segi af sér eftir að yfirmaður Ísraelshers, Dan Halutz tilkynnti um afsögn sína vegna mistaka sem gerð hefðu verið í stíðinu gegn Hizbollah-samtökunum í Líbanon í sumar.

Mannskæð árás í Sadr-hverfinu í Bagdad

Sautján eru sagðir látnir og yfir þrjátíu slasaðir eftir að sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi bíl sinn í loft upp á markaði Sadr-hverfi sjía í Bagdad í dag. Er þetta önnur mannskæða árásin í dag en um tíu manns létust og yfir 40 særðust í sams konar árás við lögreglustöð í Kirkuk í Norður-Írak í morgun.

Flugstöð á Tenerife rýmd vegna elds

Flugstöðin á sunnanverðri Tenerife-eyju var rýmd í dag vegna elds sem upp kom í loftræstikerfi. Reykur barst fljótt um alla stöðina og þurftu þrjú þúsund manns að yfirgefa hana.

Ísrael: Yfirmaður hersins hættur

Yfirmaður ísraelska hersins hefur sagt af sér embætti vegna rannsóknar hersins á stríðinu gegn skæruliðum Hisbollah í Líbanon í fyrrasumar. Þrýst hefur verið á afsögn hans allt frá því átökum lauk.

ESB: Áhersla á stjórnarskrá

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, telur það söguleg mistök ef ekki takist að semja um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Um áramótin tóku Þjóðverjar við forystu í sambandinu til næstu sex mánaða og ætla sér að stuðla að því að ný stjórnarskrá verði samþykkt fyrir kosningar til Evrópuþingsins 2009.

10 létust og 42 særðust

10 manns létust og 42 særðust í Kirkuk í Írak morgun þegar sjálfsmorðssprengjumaður klessti bifreið sinni, sem var hlaðin sprengiefnum, á lögreglustöð. Þetta kom fram í yfirlýsingum frá sjúkrahúsum og lögreglu á svæðinu. Vitni sögðu að hús í nágrenninu hefðu hrunið og að margir væru enn fastir í rústunum.

Magnús Magnússon jarðsunginn í Skotlandi

Sjónvarpsmaðurinn Magnús Magnússon var jarðsunginn frá Baldernock-kirkju í heimabæ sínum Milngavie í Skotlandi nú skömmu fyrir hádegi. Magnús lést á heimili sínu sunnudaginn 7. janúar síðastliðinn, 77 ára að aldri.

Bandaríkjamenn gætu fjölgað í herliði sínu í Afganistan

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að Bandaríkjamenn gætu fjölgað í herliði sínu í Afganistan á næstunni. Hann var í Afganistan til þess að ræða við herforingja um stöðu baráttunnar þar í landi.

Sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Kirkuk

Sjálfsmorðsárásarmaður ók vörubíl hlöðnum sprengiefni inn í lögreglustöð í borginni Kirkuk í Írak í morgun og segja sjónarvottar að töluvert mannfall hafi orðið.

Aukinn viðbúnaður í Rússlandi

Lögreglumönnum í stærstu borgum Rússlands var í dag fjölgað um rúmlega fimm þúsund til þess að bregðast við aukinni hryðjuverkaógn í landinu. Í gær sendu yfirvöld í Rússlandi frá sér yfirlýsingu um að hryðjuverkamenn gætu gert árásir á samgöngukerfi stærstu borga Rússlands.

12 metrar horfnir af fjörunni

Eyrarsund ýfðist svo mikið upp í óveðrinu sem gekk yfir Svíþjóð og Danmörku um helgina að öldurnar brutu marga metra af strandlengju Skáns í Suður-Svíþjóð. Við Ysted í Suður-Svíþjóð eru að meðaltali níu metrar horfnir af fjörunni. Einn sumarbústaður er nú þremur metrum frá öldunum en stóð áður 15 metrum frá sjónum.

Yfirmaður Ísraelshers segir af sér

Yfirmaður ísraelska hersins hefur sagt af sér embætti vegna herrannsóknar á stríðinu gegn skæruliðum Hisbollah í Líbanon síðastliðið sumar. Dan Halutz greindi forsætisráðherranum Ehud Olmert og varnarmálaráðherranum Amir Peretz frá ákvörðun sinni fyrr í kvöld.

Rice kannski kölluð til vitnis

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verður hugsanlega kölluð til að bera vitni við réttarhöldin yfir fyrrverandi aðstoðarmanni varaforsetans Dicks Cheneys. Rice, forveri hennar Colin Powell, varaforsetinn Dick Cheney voru á löngum lista yfir hugsanleg vitni í málinu gegn Lewis "Scooter" Libby.

Hormónalaus Starbucks

Kaffikeðjan Starbucks stefnir á að nota eingöngu mjólkurvörur sem eru lausar við vaxtarhormón sem kúm eru gefin til að auka mjólkurframleiðslu. Forráðamenn fyrirtækisins tilkynntu þetta í dag. Keðjan varð fyrir barðinu á auglýsingaherferð neytendasamtaka sem gagnrýndu hormónagjöfina.

Chavez neitar alvarlegum veikindum Kastrós

Hugo Chavez, forseti Venesúela og góðvinur Kastrós, neitar orðrómi um að Kúbuforsetinn sé alvarlega sjúkur. Chavez ræðir reglulega við Kastró og segir hann vera hægt og bítandi að jafna sig eftir skurðaðgerðir, orðrómur um að hann liggi fyrir dauðanum sé uppspuni úr ranni Bandaríkjamanna.

Megrunartyggjó mögulega á markað

Án efa gleðjast margir jórtrarar yfir fréttum af því að megrunartyggjó sé væntanlegt á markað. Breskir vísindamenn þróa nú lyf hlaðið hormóni sem dregur úr svengdartilfinningu og hægt verður að nota í tyggjó eða jafnvel nefúða.

Þrír Íslandsvinir hrepptu verðlaun

Þrír Íslandsvinir hrepptu samtals fjórar styttur þegar Golden Globe verðlaunin voru afhent í Hollywood í gærnótt. Helen Mirren hlaut tvenn verðlaun fyrir leik sinn í tveimur myndum um Englandsdrottningar, Forest Whitaker ein fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin, og Clint Eastwood fyrir erlenda mynd. Það eru erlendir gagnrýnendur og blaðamenn í Hollywood sem veita Gullhnettina á hverju ári og eru þessi verðlaun sögð vísbending um hverjir hafa betur í baráttunni um Óskarsstytturnar í næsta mánuði. Í nótt var breska leikkonan Helen Mirren verðlaunuð fyrir að túlka tvær Elísabetur, það er Elísabetu fyrstu Englandsdrottningu í sjónvarpsþáttaröð um hana og Elísabetu aðra í myndinni "Drottningin" sem fjallar um dauða Díönu prinsessu af Wales og eftirmála hans. Whitaker mun að mati gagnrýnenda hafa unnið leiksigur með túlkun sinni á Idi Amin í myndinni Síðasti konungur Skotlands. Amin stjórnaði Austur-Afríkuríkinu Úganda með harðri hendi á áttunda áratug síðustu aldar. Besta drama-myndin var valin Babel með þeim Brad Pitt og Cate Blanchett í aðalhlutverkum. Á Golden Globe verðlaunahátíðinni eru gaman- eða söngvamyndir verðlaunaðar sérstaklega. Besta mynd úr þeim hópi var valin söngvamyndin um Draumastúlkunar. Grínarinn Eddie Murphy er þar í aukahlutverki og var verðlaunaður fyrir. Sacha Baron Cohen var valinn besti aðalleikari í gamanmynd fyrir túlkun sína á kasakska fréttamanninum Borat í samnefndri mynd. Í ræðu sinni þakkaði Cohen öllum þeim Bandaríkjamönnum sem hefðu ekki lögsótt hann vegna myndarinnar. Meryl Streep hreppti hnossið sem aðalleikona í gamanmynd fyrir myndina Djöfullinn klæðist Prada. Martin Scorsese var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina Departed og besta erlenda myndin var Letters from Iwo Jima eftir Clint Eastwood. Besti dramaþátturinn var Læknalíf, eða Greys Anatomy, og besti gamanþátturinn Ljóta Bettý.

SÞ: Tæplega 35 þúsund almennir borgarar fallið í Írak 2006

Sameinuðu þjóðirnar fullyrða að tæplega 35 þúsund almennir borgarar hafi fallið í átökum í Írak í fyrra. Það eru þrefalt fleiri en innanríkisráðuneytið íraska segir hafa fallið. Nærri því 100 manns hafa týnt lífi og rúmlega 200 særst í sprengjuárásum í og við Bagdad í dag.

Prodi samþykkir herstöðvarstækkun

Ítalir eru samþykkir því að Bandaríkjamenn stækki eina stærstu herstöð sína í Evrópu, sem er í Vicenza á Ítalíu. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti þetta í dag. Skiptar skoðanir hafa verið innan samsteypustjórnar vinstri- og miðjumanna um áætlanir Bandaríkjamanna.

Bið á að Blair hverfi frá

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að minnsta kosti að sitja í embætti fram yfir leiðtogafund Evrópusambandsins í júní. Blair hyggst hann láta af embætti forsætisráðherra á þessu ári en hefur ekki viljað segja neitt um hvenær hann yfirgefur Downingstræti.

Blökkumaður í forsetastól í Hvíta húsinu?

Barack Obama, öldungadeildarþingmaður demókrata í Illinois, tók í dag fyrstu skrefin að hugsanlegu framboði til forseta Bandaríkjanna þegar hann greindi frá því að hefði myndað sérstaka könnunarnefnd sem gerir honum kleift að safna fé og ráða til sín starfsfólk vegna framboðsins.

Hátt í hundrað látnir í árásum í Bagdad

Að minnsta kosti 85 eru látnir eftir fjölda árása í Bagdad í Írak í dag. Um 60 manns eru sagðir hafa látist í sjálfsmorðsárás tveggja manna við háskóla í austurhluta borgarinnar og þar særðust yfir hundrað manns.

Dvaldi mánuðum saman á hóteli án þess að greiða fyrir það

Karlmaður í Danmörku þarf væntanlega að sætta sig við ögn minni munað eftir að hann var dæmdur í 13 daga fangelsi fyrir fjársvik, en hann var ákærður fyrir að dvelja á tveimur hótelum í langan tíma án þess að greiða fyrir það.

Einn af talsmönnum Múllah Omars handtekinn

Afgönsk yfirvöld greindu frá því í dag að afganskar sveitir hefðu handtekið Mohammad Hanif, talsmann Múllah Mohammads Omars, leiðtoga talibana í landinu.

Þrettán talibanar felldir í Suður-Afganistan

Þrettán uppreisnarmenn úr röðum talibana eru sagðir hafa fallið í átökum við hermenn NATO og afgönsku stjórnarinnar í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans síðustu daga. Þá hafa tveir breskir hermenn fallið í átökunum.

Ný fréttastöð í Noregi

Norðmenn eignuðust sjónvarpsstöð helgaða fréttaflutningi í gær þegar Nyhetskanalen fór í loftið. Stöðin er á vegum TV 2 sjónvarpsstöðvarinnar og sendir út dagskrá allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Undirbúningur hófst fyrir fjórum mánuðum og stöðin fór svo í loftið á hádegi í gær.

Batahorfur ekki sagðar vera góðar

Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu, er veikari en nokkru sinni fyrr eftir þrjár misheppnaðar skurðaðgerðir. Spænskt dagblað fullyrðir þetta í dag.

Sjá næstu 50 fréttir