Fleiri
Þrír hröpuðu til bana 14.1.2007 14:09 Sarkozy í forsetaframboð í Frakklandi Hinn hægri sinnaði ríkisstjórnarflokkur Frakklands, UMP hefur valið Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra frambjóðanda sinn í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Hættulegasti andstæðingur Sarkozys í þeim kosningum verður frambjóðandi sósíalista Segolene Royal. 14.1.2007 14:02 Festist í kattalúgu Konu í Oregon í Bandaríkjunum brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún fann feitan kött fastann í kattalúgunni sinni. Kötturinn, sem er nokkuð feitur og kallaður Herkúles, ætlaði sér inn í húsið í leit af kattamat. 14.1.2007 14:00 Rice í Mið-Austurlöndum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Ramalla á Vesturbakkanum í morgun til viðræðna við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Fulltrúar Fataha og Hamas hafa síðustu vikur fundað stíft og reynt að mynda starfhæfa þjóðstjórn Palestínumanna. Þær viðræður munu hafa gengið vel og gerði Abbas grein fyrir gangi þeirra á fundi sínum með Rice í morgun. 14.1.2007 13:45 Hreinsunarstarfi haldið áfram Norskir sérfræðingar vinna nú við að hreinsa upp olíuna sem lak úr flutningaskipinu Server sem strandaði við vesturströnd Noregs í fyrrakvöld. Skipið brotnaði í tvennt og tæp 300 tonn af olíu fóru í sjóinn. Skipverjar voru 25 og öllum bjargað. 14.1.2007 13:30 Ræðir ekki við fjölmiðla fyrst um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. 14.1.2007 13:15 Ofsaveður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð Ofsaveður gengur nú yfir Norður-Jótland í Danmörku. Vindhraðinn mun á við fellibyl, ferjusiglingum hefur verið aflýst og fólk er hvatt til að halda sig heima. Einnig er varað við vondu veðri í Noregi og Svíþjóð. 14.1.2007 13:10 Hillary vill fækka hermönnum í Írak Hillary Clinton telur að hvorki Bandaríkjamenn né Írakar geti komið á friði í Írak. Hún kom þangað í dag í sína þriðju heimsókn og segir að það skeri sig í hjartað að sá að ástandið versni stöðugt. 13.1.2007 21:30 Blaðamenn fá kaldar kveðjur frá Pútin Vladimir Putin sendi blaðamönnum kaldar kveðjur í dag, í tilefni af því að haldið er upp á "Dag fjölmiðla". Þess er minnst að þá hófst útgáfa á fyrsta dagblaði Rússlands, Vedomosti, sem Pétur mikli hleypti af stokkunum. Níu blaðamenn og ritstjórar hafa verið myrtir í Rússlandi, á þessu ári, og margir fjölmiðlar hafa fundið heitan andardrátt Kremlar aftan á hnakkanum. 13.1.2007 20:37 Beckham undrandi á leikbanni David Beckham er undrandi á þeim orðum Fabios Capellos, þjálfara Real Madrid að hann muni ekki leika fleiri leiki með liðinu. Capello sagði á blaðamannafundi í dag að Beckham myndi æfa með Real Madrid, en ekki spila neina leiki. 13.1.2007 20:22 Miklar mótmælagöngur á Spáni Hundruð þúsunda Spánverja fóru í dag í þöglar friðargöngur í mörgum borgum landsins. Fólkið var að mótmæla því að aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, rufu níu mánaða vopnahlé sitt fyrir tveim vikum með gríðarlegri bílsprengju sem varð tveim mönnum að bana á flugvelli Madridar. 13.1.2007 20:00 Forsetaflugvél rekin úr lofthelgi Mexíkós Mexíkó rak flugvél forseta Tævans út úr lofthelgi sinni, fyrr í þessari viku, að beiðni stjórnvalda í Kína. Kínverjar líta á Tævan sem hluta af Kína og hafa hótað að endurheimta eyjuna með vopnavaldi, ef Tævanar selja sig ekki sjálfviljugir undir stjórn þeirra. 13.1.2007 19:38 Drengjum bjargað úr klóm mannræningja Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst í gær heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannrán. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 19:15 Herlög í Sómalíu Þing Sómalíu samþykkti í dag að herlög skyldu gilda í landinu næstu þrjá mánuðina til að tryggja öryggi sómalskra borgara. Óttast er að til átaka komi milli stríðsherra í landinu og því er gripið til þessa ráðs. Til harðra átaka hefur komið frá því að eþíópískar og sómalskar hersveitir hröktu íslamska uppreisnarmenn á flótta í síðasta mánuði. 13.1.2007 19:00 Um 300 tonn af olíu í sjóinn Talið er að um 300 tonn af olíu hafi lekið í sjóinn undan vesturströnd Noregs eftir að kýpverska flutningaskipið Server strandaði þar síðdegis í gær. Skipið brotnaði í tvennt og afturhluti þess sökk en framhlutinn var dreginn að landi. 25 menn voru í áhöfn skipsins og var öllum bjargað. Umhverfisverndarsinnar segja þetta stórslys. 13.1.2007 18:45 Sjá næstu 50 fréttir
Hlýir vetur ógna hreindýrum í Lapplandi Óvenju hlýr vetur hefur haft slæm áhrif á hreindýrahjarðir Sama í Norður-Svíþjóð þar sem blautur og þungur snjór og tíðar hitasveiflur gera hreindýrunum erfitt fyrir að krafsa snjóinn ofan af hreindýramosanum sem þau byggja afkomu sína á. 15.1.2007 19:34
Jarðskjálfti í Japan Jarðskjálfti að styrkleika 5,7 á Richter-skalanum skók miðhluta Japans klukkan 18:18 í kvöld. Skjálftinn átti upptök sín skammt suður af höfuðborginni Tokyo. Engar fréttir hafa borist af skemmdum eða slysum á fólki. Flestir hafa væntanlega verið sofandi í rúmum sínum enda mið nótt í Japan. 15.1.2007 19:00
Bush: Írakar standi í þakkarskuld við Bandaríkjamenn Bush Bandaríkjaforseti segir Íraka eiga Bandaríkjamönnum mikið að þakka fyrir að hafa losað þá undan oki einræðisherra með innrásinni 2003. Hann gagnrýnir Íraka fyrir það hvernig staðið var að aftöku Saddams Hússeins. Hálfbróðir forsetans fyrrverandi var hengdur við annan mann í nótt. 15.1.2007 19:00
Gen tengt Alzheimers Fólk sem fæðist með tiltekið gen í líkama sínum á frekar á hættu að fá Alzheimers-sjúkdóminn síðar á lífsleiðinni. Þetta er niðurstaða bandarískra og kanadískra vísindamanna. Íslenskur læknir segir langt í að þessi uppgötvun leiði til haldbærrar meðferðar en sé þó skref í rétta átt. 15.1.2007 18:45
Leynigöng á Gaza fóðruð með sprengiefnum Palestínskar öryggissveitir greindu frá því í dag að þær hefðu fundið yfirgripsmikil jarðgangakerfi á Gaza. Fatah-hreyfingin sagði að göngin hefði mátt nota til að nota til að myrða æðstu leiðtoga hreyfingarinnar, þeirra á meðal forseta Palestínu, Mahmoud Abbas. Hamas-hreyfingin vildi ekki segja hvort liðsmenn hennar hefðu grafið göngin. 15.1.2007 18:25
Auðgunarferlið í Íran byrjar innan skamms Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í dag að aðstaða til að auðga úran í Natanz kjarnorkuverinu yrði stækkuð smátt og smátt og að það ferli byrjaði mjög fljótlega. Fyrr í dag sögðu stjórnvöld í Teheran að 3000 kjarnakljúfum yrði bætt við kjarnorkuverið í Natanz. 15.1.2007 17:30
Zapatero of bjartsýnn Forsætisráðherra Spánar viðurkenndi í dag að hann hafi gert "greinileg mistök" með því að vera of bjartsýnn á niðurstöður sáttaumleitana við basknesku aðskilnaðarsamtökin ETA. José Luis Zapatero, sagði þann 29. desember að viðræðurnar væru að taka við sér, degi seinna sprengdi ETA bílsprengju á flugvellingum í Madríd. 15.1.2007 17:15
Maóistar taka sæti á nepalska þinginu Þingmenn á nepalska þinginu samþykktu í dag bráðabirgðastjórnarskrá sem gerði það að verkum að fulltrúar maósta tóku sæti á þinginu. 15.1.2007 16:03
Fyrstu hermennirnir í liðsauka Bandaríkjanna komnir til Bagdad Fyrstu bandarísku hermennirnir í liðsaukanum sem senda á til Íraks vegna ástandsins þar eru þegar komnir til Bagdad, að sögn George Casey, yfirmanns herliðs Bandaríkjanna í Írak. 15.1.2007 15:26
Myndir sýndar af aftökunum í Írak í nótt Stjórnvöld í Írak hafa sýnt fjölmiðlum myndir af aftökum sem fram fóru í Bagdad í nótt. Þá voru hálfbróðir Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og fyrrverandi yfirdómari landsins hengdir. 15.1.2007 13:52
Dæmdir fyrir brandara um íslam Dómstóll í Casablanca í Marokkó hefur dæmt tvo blaðamenn í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi og sektað þá um hátt í 600 þúsund krónur fyrir að hæðast að íslam og draga úr siðferði almennings í vikuriti sínu. 15.1.2007 13:25
Innflutningsbann stendur enn Ólíklegt er að Rússar eigi eftir að aflétta banni sínu á innflutning á pólska kjötvöru þrátt fyrir að viðræður milli þeirra hefjist nú í vikunni. Rússar segja að meðferð kjötsins á meðan flutningi standi, standist ekki heilbrigðiskröfur sínar og neita að taka gild pólsk vottorð sem og vottorð Evrópusambandsins. 15.1.2007 13:01
Hátt í 100 ungmenn rekin út af Sjónarhóli í Kaupmannahöfn Lögregla í Kaupmannahöfn handtók í morgun nærri 100 manns eftir að hafa rekið fólkið út úr yfirgefinni verksmiðjubyggingu sem það hafði lagt undir sig. Ungmenninn lögðu undir sig bygginguna á laugardag og neituðu að hreyfa sig en með þessu vildu þau mótmæla lokun hins svokallað Ungdómshúss í borginni. 15.1.2007 13:01
Engar myndir birtar af aftökum í nótt Hálfbróðir Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og fyrrverandi yfirdómari landsins voru hengdir í Bagdad í nótt. Þeir voru, ásamt Saddam, dæmdir til dauða fyrir morð á nærri hundrað og fimmtíu sjíamúslimum árið 1982. Engar myndir hafa verið birtar frá aftökunni. Upphaflega átti að taka þá alla þrjá af lífi á sama tíma en síðan var ákveðið að byrja á Saddam. Hann var svo hengdur 30. desember síðastliðinn. 15.1.2007 13:00
Bandaríkin ráðast gegn Írönum í Írak Bandaríski sendiherrann í Írak, Zalmay Khalilzad, sagði í dag að þau muni reyna að uppræta hópa Írana og Sýrlendinga sem starfa í Írak. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í Írak í dag til þess að kynna nýja stefnu Bandaríkjamanna í Írak. 15.1.2007 12:21
Abbas, Olmert og Rice funda Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur samþykkt að funda með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bandarískir sendifulltrúar greindu frá þessu fyrir stundu. Óvíst er hvenær blásið verður til fundarins. 15.1.2007 12:15
Bush játar að hafa gert ástandið verra George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi í viðtali við fréttamann 60 mínútna í gær að ákvarðanir hans hefðu gert ástandið í Írak óstöðugara en það var áður. Í því sagði Bush að ofbeldið á milli trúarhópa í Írak gæti leitt til hryðjuverkaárása í Bandaríkjunum. Því væri nauðsynlegt að ná stjórn á ástandinu þar í landi. 15.1.2007 11:56
ESB harmar loftárásir Formaður neyðarhjálpar Evrópusambandsins, Louis Michel, sagði í dag að sprengjuárásir Bandaríkjanna í suðurhluta Sómalíu gætu aukið á ofbeldi á svæðinu. Michel sagði að í síðustu viku að árásir Bandaríkjanna hefðu ekki gert aðstæður betri á neinn hátt. 15.1.2007 11:39
Við hjálpum með Írak ef þið gefið okkur Palestínu Hófsöm Arabaríki segjast munu hjálpa Bandaríkjamönnum að koma á friði í Írak, ef þeir taki virkari þátt í því að endurvekja friðarferlið milli Ísraela og Palestínumanna. Þeir kalla það "Írak fyrir land," og eiga þar við sjálfstætt ríki fyrir Palestínumenn. 14.1.2007 21:30
Varnarmálaráðherra Ísraels vill sleppa Arwan Barghouti Aðstoðar varnarmálaráðherra Ísraels sagði í dag að Ísraelar yrðu að finna einhverja leið til þess að sleppa Fatah leiðtoganum Marwan Barghouti, úr fangelsi. Barghouti er hæst setti Fatah leiðtoginn sem situr í fangelsi þeirra og sá sem mestrar virðingar nýtur meðal Palestínumanna. 14.1.2007 20:20
Zapatero fer undan í flæmingi um Baska Forsætisráðherra Spánar vék sér undan því í dag að svara því hvort hann sé tilbúinn að halda áfram viðræðum við aðskilanaðarhreyfingu Baska, ETA, eftir að þeir rufu níu mánaða vopnahlé með mikilli bílsprengju, fyrir tveim vikum. Tveir menn fórust í sprengingunni. Fram til þess voru Spánverjar farnir að vona að áratuga hryðjuverkum Baska myndi brátt linna. 14.1.2007 20:15
Vill ekki tala við fjölmiðla enn um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. Sá þeirra sem var í haldi í á fimmta ár vill ekki segja sögu sína opinberlega enn um sinn. 14.1.2007 19:11
Þrír létust í ofsaveðri Níu ára gamall drengur lét lífið þegar tré féll ofan á hann í ofsaveðri sem gengið hefur yfir suðurhluta Svíþjóðar í dag. Tveir karlmenn létust til viðbótar í veðurofsanum þar. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast alvarlega í óveðri í Danmörku og Noregi. 14.1.2007 18:54
Aleinn heima George Bush sagði einhverntíma að hann myndi halda fast við stefnu sína í Írak, þótt Laura kona hans og hundurinn Barney væru þau einu sem stæðu með honum. Það líður að því. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum telja aðeins 29 prósent þjóðarinnar að forsetinn sé á réttri leið. 14.1.2007 18:33
Lítið á innflytjendur sem auðlind Benedikt sextándi páfi hvatti í dag þjóðir heims til þess að líta á farandverkamenn og innflytjendur sem auðlind en ekki vandamál. Hann hvatti einnig innflytjendur til þess að virða siði og gildi sinna nýju landa. Talsmaður Páfagarðs sagði að hans heilagleiki hefði áhyggjur af þróun í þessum málaflokki. 14.1.2007 18:01
Jimmy Carter var skelfilegur forseti Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var borinn til grafar við hátíðlega athöfn, á dögunum. Margt manna var við útförina og þeir báru mikið lofsorð á þennan eina forseta landsins sem aldrei var kjörinn í embætti. Gerald Ford talaði hinsvegar ekki sérstaklega hlýlega um starfsbræður sína, fyrr og síðar. 14.1.2007 17:35
Danska fréttastöðin TV2 í miklum vanda Hin nýja danska sjónvarpsfréttastöð TV2 er í vanda eftir að hún hefur verið sökuð um að lofa auglýsendum að þeir gætu haft áhrif á fréttaflutning stöðvarinnar. Það er brot á dönskum lögum um útvarps- og sjónvarpsrekstur, svo ekki sé minnst á traust áhorfenda. 14.1.2007 17:05
Abram fær sér nýjan bát Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich er að láta smíða fyrir sig nýjan bát. Sem er ekki nema von, kænan sem hann á nú er ekki nema 115 metra löng og ekki með nema 40 manna áhöfn. Nú ætlar Abramovich að fá sér alvöru duggu sem verður 168 metra löng og kostar sautján milljarða króna. 14.1.2007 16:02
Biður Sýrlendinga að loka landamærum sínum Jalal Talabani, forseti Íraks kom í dag til Damaskus til þess að reyna að fá forseta Sýrlands til þess að stöðva ferðir skæruliða yfir landamæri ríkjanna. 14.1.2007 15:17
Lautinant Windsor á leið til Íraks Lautinant Harry Windsor er byrjaður þjálfun með herdeild sinni, sem á að búa hana undir þjónustu í Írak. Það þykir fréttnæmt þar sem Harry þessi er prins og þriðji í röðinni sem erfingi bresku krúnunnar. 14.1.2007 14:26
Sarkozy í forsetaframboð í Frakklandi Hinn hægri sinnaði ríkisstjórnarflokkur Frakklands, UMP hefur valið Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra frambjóðanda sinn í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Hættulegasti andstæðingur Sarkozys í þeim kosningum verður frambjóðandi sósíalista Segolene Royal. 14.1.2007 14:02
Festist í kattalúgu Konu í Oregon í Bandaríkjunum brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún fann feitan kött fastann í kattalúgunni sinni. Kötturinn, sem er nokkuð feitur og kallaður Herkúles, ætlaði sér inn í húsið í leit af kattamat. 14.1.2007 14:00
Rice í Mið-Austurlöndum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Ramalla á Vesturbakkanum í morgun til viðræðna við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Fulltrúar Fataha og Hamas hafa síðustu vikur fundað stíft og reynt að mynda starfhæfa þjóðstjórn Palestínumanna. Þær viðræður munu hafa gengið vel og gerði Abbas grein fyrir gangi þeirra á fundi sínum með Rice í morgun. 14.1.2007 13:45
Hreinsunarstarfi haldið áfram Norskir sérfræðingar vinna nú við að hreinsa upp olíuna sem lak úr flutningaskipinu Server sem strandaði við vesturströnd Noregs í fyrrakvöld. Skipið brotnaði í tvennt og tæp 300 tonn af olíu fóru í sjóinn. Skipverjar voru 25 og öllum bjargað. 14.1.2007 13:30
Ræðir ekki við fjölmiðla fyrst um sinn Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. 14.1.2007 13:15
Ofsaveður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð Ofsaveður gengur nú yfir Norður-Jótland í Danmörku. Vindhraðinn mun á við fellibyl, ferjusiglingum hefur verið aflýst og fólk er hvatt til að halda sig heima. Einnig er varað við vondu veðri í Noregi og Svíþjóð. 14.1.2007 13:10
Hillary vill fækka hermönnum í Írak Hillary Clinton telur að hvorki Bandaríkjamenn né Írakar geti komið á friði í Írak. Hún kom þangað í dag í sína þriðju heimsókn og segir að það skeri sig í hjartað að sá að ástandið versni stöðugt. 13.1.2007 21:30
Blaðamenn fá kaldar kveðjur frá Pútin Vladimir Putin sendi blaðamönnum kaldar kveðjur í dag, í tilefni af því að haldið er upp á "Dag fjölmiðla". Þess er minnst að þá hófst útgáfa á fyrsta dagblaði Rússlands, Vedomosti, sem Pétur mikli hleypti af stokkunum. Níu blaðamenn og ritstjórar hafa verið myrtir í Rússlandi, á þessu ári, og margir fjölmiðlar hafa fundið heitan andardrátt Kremlar aftan á hnakkanum. 13.1.2007 20:37
Beckham undrandi á leikbanni David Beckham er undrandi á þeim orðum Fabios Capellos, þjálfara Real Madrid að hann muni ekki leika fleiri leiki með liðinu. Capello sagði á blaðamannafundi í dag að Beckham myndi æfa með Real Madrid, en ekki spila neina leiki. 13.1.2007 20:22
Miklar mótmælagöngur á Spáni Hundruð þúsunda Spánverja fóru í dag í þöglar friðargöngur í mörgum borgum landsins. Fólkið var að mótmæla því að aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, rufu níu mánaða vopnahlé sitt fyrir tveim vikum með gríðarlegri bílsprengju sem varð tveim mönnum að bana á flugvelli Madridar. 13.1.2007 20:00
Forsetaflugvél rekin úr lofthelgi Mexíkós Mexíkó rak flugvél forseta Tævans út úr lofthelgi sinni, fyrr í þessari viku, að beiðni stjórnvalda í Kína. Kínverjar líta á Tævan sem hluta af Kína og hafa hótað að endurheimta eyjuna með vopnavaldi, ef Tævanar selja sig ekki sjálfviljugir undir stjórn þeirra. 13.1.2007 19:38
Drengjum bjargað úr klóm mannræningja Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst í gær heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannrán. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 19:15
Herlög í Sómalíu Þing Sómalíu samþykkti í dag að herlög skyldu gilda í landinu næstu þrjá mánuðina til að tryggja öryggi sómalskra borgara. Óttast er að til átaka komi milli stríðsherra í landinu og því er gripið til þessa ráðs. Til harðra átaka hefur komið frá því að eþíópískar og sómalskar hersveitir hröktu íslamska uppreisnarmenn á flótta í síðasta mánuði. 13.1.2007 19:00
Um 300 tonn af olíu í sjóinn Talið er að um 300 tonn af olíu hafi lekið í sjóinn undan vesturströnd Noregs eftir að kýpverska flutningaskipið Server strandaði þar síðdegis í gær. Skipið brotnaði í tvennt og afturhluti þess sökk en framhlutinn var dreginn að landi. 25 menn voru í áhöfn skipsins og var öllum bjargað. Umhverfisverndarsinnar segja þetta stórslys. 13.1.2007 18:45