Fleiri fréttir

Bandaríkin vilja alþjóðlegt lið friðargæsluliða til Sómalíu

Bandaríkin ætla sér að koma með tillögu í öryggisráðinu um að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins muni fara til Sómalíu og styðja stjórnvöld þar í baráttu sinni við íslamska uppreisnarmenn. Ástandið á svæðinu hefur verið vægast sagt erfitt og ræður stjórnin í landinu aðeins yfir borginni sem hún situr í og næsta nágrenni.

Kerry ekki vinsæll meðal bandarískra kjósenda

Kjósendur í Bandaríkjunum tóku nýlega þátt í könnun þar sem var metið hversu vel þeir kunnu við hugsanlega forsetaframbjóðendur árið 2008. Alls voru þeir spurðir um 20 hugsanlega frambjóðendur og varð John Kerry, sem tapaði fyrir George W. Bush í kosningunum 2004, neðstur.

Spænska konungsfjölskyldan fjölgar sér

Væntanlegt konungshjón Spánar, krónprinsinn Felipe og konan hans Letizia prinsessa, eiga von á sínu öðru barni en þetta staðfestu talsmenn konungsfjölskyldunnar í dag. Letizia prinsessa á von á stúlkubarni og er komin átta vikur á leið. Hún er fyrrum sjónvarpskona og á að eiga í maí á næsta ári.

Íranir lofa Írökum aðstoð

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tók í dag á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, og hófu þeir viðræðu um ástandið í Írak og hvernig Íran gæti komið að því að bæta ástandið þar. Ahmadinejad sagði fyrir fundinn að hann myndi gera allt í sínu valdi til þess að bæta ástandið í Írak en löndin áttu í átta ára löngu stríði á níunda áratug síðustu aldar.

Dómstólar staðfesta sigur Kabila

Hæstiréttur Austur-Kongó hefur nú lýst Joseph Kabila forseta landsins eftir að dómstóllinn vísaði frá kærum Jean-Pierre Bemba, hans helsta andstæðings. Dómstóllinn kom saman í utanríkisráðuneyti landsins, þar sem að æstur múgur stuðningsmanna Bemba hafði kveikt í húsi hæstaréttar í mótmælum sem voru í vikunni sem leið, og var dómssalarins og kyrfilega gætt af friðargæslumönnum Sameinuðu þjóðanna sem og hermönnum Austur-Kongó.

Bush í viðræðum við leiðtoga í Mið-Austurlöndum

George W. Bush, Bandaríkjaforseti, mun ræða við íraska forsætisráðherrann Nuri al-Maliki um ofbeldisölduna sem er að tröllríða Írak um þessar mundir. Talsmaður Hvíta hússins viðurkenndi að ofbeldið þar í landi væri komið á nýtt stig og vísaði þar í auknar árásir og hefndarárásir trúarhópa. Þess er skemmst að minnast að bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld.

Búið að opna minnismerkið á ný

Lögregla í Washington hefur aftur opnað minnismerkið um Lincoln og svæðið í kring eftir að því var lokað í dag vegna ótta um að hættuleg efni eða sprengjur væru þar. Við leit og efnagreiningu kom í ljós að ekki var um hættulegt efni að ræða.

Segist vilja slíðra sverðin

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Palestínumenn um lausn fanga og endalok hernáms heimastjórnarsvæðanna. Leiðtogar Hamas-samtakanna taka þessari útréttu sáttahönd með varúð.

Borgarastyrjöld í Írak

NBC fréttastöðin í Bandaríkjunum hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld þrátt fyrir að hvorki yfirvöld þar í landi eða Írak skilgreini það svo. Talsmenn Hvíta hússins hafa þegar mótmælt þessari skoðun stöðvarinnar. Stjórnmálafræðingar telja að þetta eigi eftir að hafa töluverð áhrif á skoðanir amerísks almennings á ástandinu í Írak.

Grunsamleg efni finnast í Washington

Hluta af minnismerkinu um Abraham Lincoln hefur verið lokað eftir að grunsamlegt efni fannst á svæðinu en lögreglumaður þar skýrði frá þessu í dag. Sögðust þeir vera að fylgja settum starfsreglum og að svæðið myndi sennilega aðeins vera lokað í stuttan tíma á meðan efnið yrði rannsakað. Starfsmaður bandarísku ríkisstjórnarinnar sagði að umslag með orðinu "anthrax" hefði fundist við minnismerkið.

Kvörtunum Bemba vísað frá dómi

Hæstiréttur Austur-Kongó úrskurðaði rétt í þessu í kvörtunum þeim sem Jean-Pierre Bemba lagði fram vegna því sem hann kallaði óreglu í lokaumferð forsetakosninga landsins sem fram fóru þann 29. október síðastliðinn. Hæstiréttur vísaði þeim öllum frá og samkvæmt því ætti ekki að vera langt þangað til Joseph Kabila, sigurvegari kosninganna, verði staðfestur af hæstarétti sem forseti landsins.

837 demantar í einum hring

Úkraínska skartgripahúsið Lobortas & Karpova afhjúpaði í dag gullhring með alls 837 afrískum og jakútskum demöntum og segja þeir jafnframt að þetta sé heimsmet í fjölda demanta á einum hring. Ekki hefur þó verið gefið upp hversu mikils virði hringurinn, sem kallaður er "Dans engilsins" er en hann er í einkaeign úkraínskar viðskiptakonu.

Merkel endurkjörin formaður CDU

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, var í dag endurkjörin formaður Kristilegra demókrata á landsfundi þeirra í Dresden. Merkel hlaut 93 prósent atkvæða sem staðfesti stuðning flokkssystkina hennar við hana í embætti.

Hvernig er veðrið í Ástralíu ?

Farsími sem hvarf af skoska þinginu í janúar árið 2004 hefur verið aftengdur. Hinsvegar verður erfiðara að aftengja símreikning upp á tæpar átta milljónir króna, sem eftir stendur. Síminn var ætlaður starfsfólki til afnota um helgar og þegar það þurfti að yfirgefa skrifstofur sínar.

Tóbaksframleiðendur anda léttar

Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti í dag frávísun 700 milljarða króna sektar á hendur tóbaksframleiðandanum Philip Morris.

Óvægin kvikmyndagagnrýni

Hópur vopnaðra múslima réðst inn í kvikmyndahús í Sómalíu, í gær, þar sem verið var að sýna leik Chelsea og Manchester United, í ensku úrvalsdeildinni. Byssumennirnir skutu yfir höfuð fótboltaunnenda, brutu tæki og handtóku tuttugu og fimm þeirra. Meðal hinna handteknu voru börn allt niður í tíu ára.

Olmert býður Palestínumönnum sættir

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels hefur boðið Palestínmönnum sættir, í kjölfar vopnahlés sem lýst var yfir í gær. Hann sagði í stefnuræðu að Ísraelar myndu draga sig í hlé frá Vesturbakkanum og leggja niður landamærabyggðir þar. Forsætisráðherrann sagði líka að ísraelar væru reiðubúnir að fækka eftirlitsstöðvum hersins, afhenda palestínumönnum skattekjur sem þeir hafa innheimt og láta lausa fanga.

Ítalskir hermenn farnir frá Írak fyrir vikulok

Síðustu ítölsku hermennirnir í Írak verða komnir til síns heima fyrir vikulok. Þetta segir Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Um 60-70 hermenn eru enn í Nassyria þar sem þeir hafa haft yfirumsjón með öryggismálum en írakska lögreglan tekur við af þeim fyrir helgi.

Blaðamenn fá líflátshótanir

Tveir blaðamenn við rússneska blaðið Novaya Gazeta fengu líflátshótanir, í síðustu viku, vegna frétta sem þeir væru að vinna að. Þetta er sama blað og Anna Politkovskaya vann fyrir, en hún var myrt í síðasta mánuði.

Vilja bætur frá Bretum vegna þrælahalds

Blökkumenn í Bretlandi segja að Tony Blair, forsætisráðherra, hafi ekki gengið nógu langt þegar hann harmaði innilega þátt Breta í þrælahaldi fyrr á öldum. Þeir vilja að ráðherrann biðjist fyrirgefningar og lýsi vilja til þess að greiða bætur.

Viðræðurnar út um þúfur

Viðræður Tyrkja við Evrópusambandið um stöðu Kýpur runnu í morgun út í sandinn vegna andstöðu þeirra við að aflétta hafnbanni sínu á kýpversk skip eins og ESB hafði krafist.

Þrír sendir í rannsókn vegna hugsanlegrar geislunar

Þrír hafa verið sendir á sérstaka rannsóknarstofu í Lundúnum vegna hugsanlegrar geislunar í kjölfar dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB. Frá þessu greindi talsmaður heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi í dag.

Ólgan vex vegna morðsins

Mikil reiði ríkir á meðal þeldökkra Bandaríkjamanna eftir að óvopnaður blökkumaður var skotinn til bana fyrir utan næturklúbb í New York um helgina, nokkrum klukkustundum fyrir brúðkaup sitt.

Forsætisráðherra Tyrklands hittir páfa

Forsætisráðherra Tyrklands hefur breytt dagskrá sinni til þess að hitta Benedikt sextánda páfa, sem kemur í opinbera heimsókn til landsins á morgun.

Neyðarfundur hjá COBRA vegna njósnaramáls

John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar hjá svokallaðri COBRA-nefnd, sem fjallar um þjóðaröryggismál í í Bretlandi, vegna dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og rússnesku öryggislögreglunni.

Eldflaugaárásum á Ísrael ekki svarað

Vopnahlé tók gildi milli Ísraela og Palestínumanna í morgun eftir fimm mánaða blóðsúthellingar. Ísraelar segja eldflaugaárásirnar ógna vopnahlénu og möguleika á friði. Herir Ísraela voru farnir frá Gasa í morgun þegar vopnahléið hófst. Einungis örfáum tímum síðar, voru gerðar í það minnsta þrjár eldflaugaárásir á Ísrael. Þær unnu þó ekki borgurum mein, né ullu skemmdum á byggingum.

Royal leggur grunninn að kosningabaráttunni

Ségolène Royal tók við keflinu sem forsetaframbjóðandi franska Sósíalistaflokksins fyrir forsetakosningarnar í vor. Hún gaf einnig tóninn fyrir komandi kosningabaráttu sína. Þar verður lögð áhersla á menntun og aðgengi ungmenna á atvinnumarkaðinn, baráttu gegn ofbeldi í landinu og kaupmátt.

Jórdaníukonunugur varar við borgarastríði í þremur löndum

Abdullah, konungur Jórdaníu, varar við því að borgarastríð geti brotist út á þremur stöðum í Miðausturlöndum ef ekkert verði að gert: í Írak, Líbanon og Ísrael. Hann segir að fundur George Bush Bandaríkjaforseta með Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, í Jórdaníu í vikunni, muni skipta sköpum í baráttunni fyrir friði í Írak og á svæðinu öllu.

Bílalest Malikis grýtt í Bagdad

Bílalest forsætisráðherra Íraks, Nouri Al-Malikis var grýtt þegar hann fór í úthverfi Bagdad-borgar til að votta virðingu sína rúmlega 200 fórnarlömbum einnar mannskæðustu sprengjuárásar síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. Reiðin kraumar í almenningi í Sadr-hverfinu í Írak þar sem útgöngubann er nú þriðja daginn í röð.

Ísraelar notuðu jarðsprengjur í Líbanon í sumar

Nú er talið fullvíst að Ísraelskir hermenn hafi komið fyrir jarðsprengjum þegar þeir voru í Líbanon í sumar en þessu hafa Ísraelar staðfastlega neitað. Tveir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna stigu á jarðsprengjur á föstudaginn á svæði sem hafði verið hreinsað af jarðsprengjum eftir að Ísraelsher yfirgaf Líbanon árið 2000.

Bresks drengs saknað eftir að báti hvolfdi

14 ára gamals bresks drengs er saknað undan strönd Suður-Englands, eftir að litlum kappróðrarbáti sem hann og vinur hans tóku í leyfisleysi hvolfdi undan suðurströnd Englands. Björgunarbátur fann félaga drengsins í sjónum, um klukkan 3 í morgun, 25 mínútum eftir að bátnum hvolfdi í vindhviðu. Strákarnir voru ekki í björgunarvestum.

Aðstoð Írana í Írak skilyrðum háð

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í dag að Íranar væru tilbúnir að hjálpa Bandaríkjamönnum og Bretum í Írak en eingöngu ef þeir hétu því að breyta stefnu sinni og draga herlið sitt til baka. Jalal Talabani, forseti Íraks, er væntanlegur til Írans á morgun þegar útgöngubanni verður aflétt í Bagdad. Þeir Ahmadinejad munu ræða ástandið í Írak.

300 Bretar vilja geislarannsókn eftir dauða njósnara

300 manns hafa leitað til heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi eftir að í ljós kom að eitrað var fyrir rússneska njósnaranum Litvinenko með geislavirku póloníumi í byrjun mánaðarins. Fólkið verður sett í rannsókn öryggisins vegna en ólíklegt er talið að geislavirkni sem fundist hefur á sushi-veitingastaðnum þar sem hann át, hafi haft áhrif á aðra í umhverfinu.

Berlusconi hneig niður í ræðustóli

Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu til margra ára, hneig niður í ræðustóli í Toskana á Ítalíu í dag. Ekki er vitað hvað amar að fjölmiðlakónginum og stjórnmálamanninum en hann greip fyrir hjartað. Annar ræðumaður sagði fundarmönnum að Berlusconi hefði hjarnað við baksviðs og viljað halda áfram en læknir hefði bannað það.

Fríblöðin skapa vandamál í Danmörku

Fríblöð flæða um ruslatunnur og stigaganga fjölbýlishúsa í Danmörku. Dönsku neytendasamtökin hafa selt eitt hundrað þúsund límmiða gegn blöðunum. Danska þingið hefur gefið útgefendum blaðanna frest til áramóta til að finna í sameiningu lausn á málinu.

Yfir 200 manns jarðsettir í Írak

Yfir tvö hundruð manns voru bornir til grafar í Írak í dag eftir röð sjálfsmorðs- og bílaárása súnnia í borginni Sadr á fimmtudaginn. Dagurinn var sá mannskæðasti frá upphafi stríðsins. Hundruðir sungu og grétu þegar þeir gengu með kistum ástvina sinna á leið frá borginni Sadr til Najaf. Þrátt fyrir útgöngubann fyrirskipaði forsætisráðherrann lögreglu að gæta öryggis fólksins. Hinir látnu voru bornir til grafar í kirkjugarði í Najaf.

Fjölhæfir jólasveinar

Það þykir öruggt merki um að jólin séu í nánd, þegar ljós jólatrjáa eru tendruð. Í miðborg Chicago í Bandaríkjunum var kveikt á þrjátíu metra háu jólatré við hátíðlega athöfn undir jólasöng og flugeldasýningu. Í New York í dag gengu hins vegar eitt hundrað jólasveinar um götur Manhattan og söfnuðu peningum fyrir fátæka og heimilislausa.

Útgöngubann í Írak fram á mánudag

Útgöngubann í Bagdad í Írak mun vera í gildi fram á mánudag. Írösk stjórnvöld tilkynntu í dag að banninu verði aflétt á mánudagsmorgun. Útgöngubannið var sett á eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Um tvö hundruð manns týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad á fimmtudaginn.

Yfir tvö hundruð þúsund fuglum slátrað

Slátra á tvö hundruð þrjátíu og sexþúsund alifuglum í Suður-Kóreu eftir að hinn banvæni stofn fuglaflensunnar, H5N1, greindist í fuglum á fuglabúi í landinu.

Flugvél brotlendir á bíl á hraðbraut

Sjö eru slasaðir eftir að einkaflugvél brotlenti á bíl á hraðbraut nálægt borginni Essen í vesturhluta Þýskalands í gær. Vélin var í aðflugi að flugvellinum í Essen-Muelheim þegar slysið varð. Hún klippti í sundur umferðarljós og brú áður en hún brotlenti á bíl á fjölfarinni hraðbraut við flugvöllinn. Bílstjóri flutningabíls náði að slökkva eld sem kviknaði í flaki vélarinnar, en báðir vængirnir brotnuðu af við áreksturinn.

Geislavirk efni á „njósnara“ stöðum í London

Fólk sem heimsótti sama veitingastað og hótel og rússneski njósnarinn sem lést á fimmtudaginn er hvatt til að hafa samband við heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi vegna geislavirkra efna sem hafa fundist þar. Efnin fundust á veitingastaðnum Itsu Sushi bar við Piccadilly og Pine bar Millenium hótelsins við Grosvenor torg.

Breska lögreglan finnur leifar af geislavirku efni

Bresk yfirvöld hafa fundið leifar af sama geislavirka efninu og fannst í líkama Alexanders Litvinenko eftir að hann lést á þeim þremur stöðum sem hann dvaldi á daginn sem hann taldi að hefði verið eitrað fyrir honum.

Sjá næstu 50 fréttir