Fleiri fréttir

Mótmælaskeytin streyma inn

Hátt í níutíu þúsund mótmælaskeyti hafa verið send af heimasíðu Greenpeace-samtakanna til utanríkisráðuneytisins vegna hvalveiða Íslendinga.

Svíakonungur hitti Bandaríkjaforseta

Karl Gústa XVI. Svíakonungur og Sílvía, drottning Svíþjóðar, hittu George Bush, Bandaríkjaforseta, og konu hans, Lauru, í Hvíta húsinu í Washington í dag. Fulltrúi Hvíta hússins segir þetta tækifæri til að styrkja vinasamband Bandaríkjanna og Svíþjóðar sem eigi sér langa, sameiginlega sögu og standi vörð um lýðræði, mannréttindi og frelsi.

Boraði niður á sprengju

Borgarstarfsmaður í Aschaffenburg í Þýskalandi lét lífið þegar hann var að brjóta upp steinsteypu á hraðbrautinni milli Würzburg og Frankfurt. Stórvirk vinnuvél sem maðurinn var að vinna með sprakk þegar hún kom niður á sprengju úr Síðari heimsstyrjöldinni sem lá ósprungin undir steinsteypunni. Sprengjan sprakk þegar með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnuvélin gjöreyðilagðist.

Skólarúta valt á Spáni

10 börn slösuðust, þar af 2 alvarlega, þegar skólarúta valt í Zaragoza-héraði á norðaustur Spáni í dag. 50 börn voru um borð í rútunni þegar slysið varð. Rútan valt á aðrein á akbraut nærri bænum Villamayor.

18 manna áhöfn saknað

18 manna áhöfn rússnesks flutningaskips sökk undan norð-austur strönd Suður-Kóreu í dag. Verið var að flytja timbur frá Austur-Rússlandi til Kína.

Óvíst um framsal

Stjórnvöld í Namibíu hafa ekki fengið beiðni frá bandarískum stjórnvöldum um að framselja kvikmyndaleikarann Wesley Snipes sem er ákærður fyrir að hafa svikið jafnvirði rúmlega 800 milljóna íslenskra króna undan skatti. Snipes er nú staddur í Namibíu við tökur á næstu kvikmynd sinni.

Íran heldur kjarnorkutilraunum áfram

Ráðamenn í Íran hafa sett í gang aðra úranínum-auðgunarsamstæðu þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna.

Condoleezza Rice gagnrýnir súdönsk yfirvöld

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ákvörðun súdanskra yfirvalda um að reka sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna, Jan Pronk, úr landi hafi verið "ákaflega óheppileg".

Ísraelar skutu sjö til bana á Gaza

Ísraelskar hersveitir skutu til bana sjö Palestínumenn í morgun, þar af þrjá bræður. Fjórtán aðrir særðust í árásinni, sem var gerð á fyrsta degi aðalhátíðar múslima, Eid al-Fitr.

Yfirvöld í Íran banna umbótasinnað dagblað

Yfirvöld í Íran hafa bannað umbótasinnað dagblað sem var aðeins viku gamalt. Bannið var á þeim grundvelli að blaðið væri einfaldlega nýtt nafn á öðru blaði sem hefði verið bannað í september síðastliðnum.

Október blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher

Októbermánuður er þegar orðinn blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher í Írak. Tíu hermenn létust um helgina og hafa því alls 85 bandarískir hermenn fallið í mánuðinum sem er níu mönnum meira en í apríl síðastliðnum.

Reykingabann í Hong Kong

Reykingabann á opinberum stöðum í Hong Kong mun taka gildi í Janúar á næsta ári.

Sprenging í Þýskalandi hugsanlega af völdum gamallar sprengju

Verkamaður lést og fimm slösuðust þegar sprenging varð við vegavinnu á hraðbraut í Bæjaralandi í suðurhluta Þýskalands í dag. Lögregla telur hugsanlegt að vegavinnuvél hafi verið ekið á sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni.

Átök á afmæli uppreisnarinnar í Ungverjalandi

Til átaka kom í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í morgun þar sem þess var minnst að hálf öld er liðin frá uppreisninni í landinu. Nokkur fjöldi fólks hafði komið sér fyrir á torginu fyrir framan þinghúsið í borginni til að lýsa andstöðu sinni við Ferenc Gyurcsani forsætirsáðherra en þar inni fór fram athöfn í tilefni tímamótanna.

Talibanar ætla að ráðast gegn Evrópubúum

Foringi í liði talibana, Mullah Muhammad Amin, sagði í morgun að talibanar stefndu á árás á Bretland og Evrópu. Í einkaviðtali við Sky fréttastofuna sagði Amin að samtökin ættu gnægð vopna og að óbreyttum borgurum á Vesturlöndum yrði ekki hlíft enda hefðu þeir komið Bush og Blair til valda með atkvæðum sínum.

Ísrael krefst aðgerða vegna stefnu Írana

Forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert, skoraði í dag á alþjóðasamfélagið að refsa forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, fyrir að að hafa krafist eyðileggingar Ísraels

Útgöngubanni komið á í Amara

Yfirvöld í Írak hafa komið á útgöngubanni í bænum Amara í suðurhluta landsins vegna átaka milli andófsmanna úr röðum sjíta og lögreglu undanfarna daga.

Rússneskur hermaður seldur sem þræll

Lögfræðingur í Rússlandi skýrði frá því í dag að hún væri með skjólstæðing sem hefði verið seldur sem þræll úr hernum. Hermaðurinn hafði verið seldur ásamt skurðgröfu á um 1.300 dollara, sem samsvarar um nítíu þúsund íslenskum krónum

Frú Forseti?

Allar líkur eru á að Nancy Pelosi, 66 ára amma frá San Francisco, fái nafn sitt ritað í sögubækurnar sem fyrsta konan til að gegna embætti forseta fulltrúadeildarinnar verði niðurstaða þingkosninganna í Bandaríkjunum í samræmi við skoðanakannanir.

Ísraelar halda áfram eftirlitsflugi um líbanska lofthelgi

Varnarmálaráðherra Ísraels, Amir Peretz, sagði í gær að Ísraelar myndu halda áfram daglegu eftirlitsflugi sínu yfir líbanska lofthelgi svo lengi sem líbanska ríkisstjórnin sinnti ekki sínum hluta vopnahléssamkomulagsins um að hindra vopnasmygl til Hisbollah. Líbanir hafa gagnrýnt yfirflug Ísraela sem skýlaust brot á vopnahléssamkomulagi öryggisráðsins.

Önnur umferð nauðsynleg í Búlgaríu

Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu og frambjóðandi sósíalista, vann fyrri umferð forsetakosninga í Búlgaríu með miklum yfirburðum. Hins vegar var þátttaka í kosningunum svo lítil að nauðsynlegt er að kjósa að nýju í annarri umferð milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu.

Paul stefnir á ferðamannastaði í Mexíkó

Hitabeltisstormurinn Paul stefnir nú að Baja California skaganum við Kyrrahafsströnd Mexíkós. Búist er við að veðurhamurinn fari yfir skagann nálægt Los Cabos, sem er vinsæll ferðamannastaður. Veðurfræðingar í Bandaríkjunum segja að vart hafi verið við storminn yfir Kyrrahafi á laugardag og að hann muni ná miklum styrk á þriðjudag.

Fulltrúi Sþ rekinn frá Súdan

Stjórnvöld í Súdan hafa rekið sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi, vegna ummæla sem hann setti á blogg-síðu sína. Honum er gert að fara úr landi innan 72 klukkustunda.

Fjármál Carls Bildt til rannsóknar

Carld Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, þarf nú væntanlega að sæta rannsókn vegna hlutabréfa sem hann á í fyrirtæki sem heitir Vostok Nafta.

Fleiri líkamspartar finnast

Enn finnast líkamsleifar á svæðinu þar sem tvíburaturnarnir í New York stóðu fyrir hryðjuverkaárásinu 9.september 2001. Í gær fundu leitarmenn 15 bein eða líkamsparta til viðbótar við þá 80 sem fundust óvænt í holræsisbrunni á svæðinu á föstudag. Leit á svæðinu hefur verið hafin að nýju, en henni var hætt árið 2002 og höfðu þá 20 þúsund líkamspartar fundist.

Leita að nýju að líkamsleifum

Leit er hafin að nýju að líkamsleifum fólks sem fórst í hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir rúmlega fimm árum, eftir að mannabein fundust í holræsum við svæðið þar sem turnarnir stóðu. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, meðal annars fótleggi og handleggi að því talið er.

Öldruð kynbomba giftir sig

Ítalska þokkagyðjan og leikkonan Gina Lollobrigida gekk í dag að eiga spánverjann Javier Rigau y Rafols. Brúðkaupið fór fram New York en parið kynntist fyrst í Monte Carlo fyrir 22 árum. Leikkonan sem er orðin 79 ára gömul er af mörgum talin ein fallegasta kona í heima. Eiginmaður hennar er töluvert yngri eða þrjátíu og fjórum árum.

Borgaryfirvöld í New York fyrirskipa nýja leit að líkamsleifum

Leit er hafin að nýju að líkamsleifum sumra þeirra sem fórust í hryðjuverkaárisinni á Tvíburaturnanna í New York fyrir fimm árum, að tilstuðlan borgaryfirvalda. Verkamenn sem unnu við framkvæmdir norðan við svæðið þar sem turnarnir stóðu, fundu mannabein í holræsum á miðvikudag, fótleggi og handleggi að því talið er. Holræsið varð fyrir skemmdum þegar turnarnir féllu og fyrst nú átti að hreinsa út úr því.

Rice í Moskvu til að ræða málefni Norður-Kóreu

Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ekkert liggja fyrir um að Norður-Kóreumenn ætli sér að hætta við tilraunir með kjarnorkuvopn. Hún kom til Moskvu í morgun, meðal annars til að ræða málefni Norður-Kóreu.

Putin segir stjórnvöld í Georgíu tefla á tvær hættur

Putin Rússlandsforseti sagði leiðtogum Evrópusambandsins í gærkvöldi að stjórnvöld í Georgíu væru að tefla á tvær hættur með því að reyna að ná aftur stjórn héraða þar sem uppreisnarmenn ráða ríkjum. Hann sagði að stjórnvöld í Tibilisi stefndu að blóðsúthellingum með uppbyggingu herafla við héruðin Abkasíu og Suður-Ossetíu.

Sjá næstu 50 fréttir