Fleiri fréttir Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum. 13.10.2006 18:04 Verðlaunaféð fer í sjúkrahús og matvælaverksmiðju Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði og veitir fátækum lán, deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Verðlaunaféð, um 100 milljónir króna, mun Yunus nota til að koma á fót verksmiðju sem framleiðir ódýr matvæli með miklu næringargildi auk þess að koma á fót í heimalandi sínu sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í augnaðgerðum. 13.10.2006 17:45 Dæmdur fyrir að styðja Hamas Bandaríkjamaðurinn Mohamed Shorbagi hefur játað á sig fyrir dómi í Bandaríkjunum að hafa veitt Hamas-samtökunum fjárstuðning. Shorbagi, sem er 42 ára, er imam í mosku í Georgíu-ríki. Í lok sumars var hann ákærður fyrir að styðja erlend hryðjuverkasamtök og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Bandarísk stjórnvöld skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. 13.10.2006 17:32 Sprengja N-Kóreumenn vetnissprengju næst? 13.10.2006 17:06 Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. 13.10.2006 16:46 Dýrasti veitingastaður heimsins 13.10.2006 15:54 Bandaríkin styðja andstæðinga Hamas 13.10.2006 15:36 Sprengdi Norður-Kórea bara dínamít ? 13.10.2006 15:13 Bandaríkjamenn útiloka hernað gegn Norður-Kóreu 13.10.2006 14:34 Bráðnandi jökulhettur ógna lífi í Afríku 13.10.2006 14:13 Danskir múslimaklerkar vilja frið 13.10.2006 13:42 Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. 13.10.2006 13:32 Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. 13.10.2006 11:28 Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. 13.10.2006 11:28 Kasparov óttast um líf sitt 13.10.2006 11:20 Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. 13.10.2006 10:40 Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. 12.10.2006 23:45 Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. 12.10.2006 23:15 Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. 12.10.2006 22:45 Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. 12.10.2006 22:18 Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. 12.10.2006 21:58 Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. 12.10.2006 21:44 Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. 12.10.2006 20:31 Refsivert að tala um annað en þjóðarmorð Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp um að refsivert verði að halda fram að Tyrkir hafi ekki framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Tyrkir eru fjúkandi reiðir og hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að efri deild og forseti geri frumvarpið að lögum. 12.10.2006 20:00 Íbúar í New York voru slegnir Sá sem flaug lítilli einkavél á byggingu í New York í gærkvöldi reyndist vera hafnarboltastjarna úr New York Yankees-liðinu. Íslendingur, sem býr í næstu götu, segir borgarbúa hafa verið slegna og óttast að um hryðjuverk væri að ræða, en lögregluyfirvöld hafa útilokað að svo sé. 12.10.2006 19:48 Starfsemin flutt á Grundartanga Stjórn Elkems, móðurfélags Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, mun leggja það til á morgun að loka verksmiðjunni í Ålvik í Noregi og flytja starfsemina á Grundartanga. Þetta var fullyrt í fréttum norska ríkissjónvarpsins í kvöld. 12.10.2006 19:30 Ford á sjúkrahús Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn. 12.10.2006 18:23 Fengu að hitta Guantanamo fanga Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag. 12.10.2006 18:13 Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. 12.10.2006 16:39 Loftslagsbreytingar eru ekki okkur að kenna 12.10.2006 16:16 Amish-skóli jafnaður við jörðu 12.10.2006 15:37 Blaðberar grunaðir um innbrot 12.10.2006 15:23 Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20 Skoðana hvað ? 12.10.2006 14:59 Viðurkenndi undirbúning árása 12.10.2006 13:43 Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03 Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30 Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56 Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03 Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. 12.10.2006 10:11 Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10 Danir bíða föstudagsins með kvíða 11.10.2006 16:53 Spilaði tölvuleik með hugarorku 11.10.2006 16:36 Morðingja Lennons synjað um reynslulausn 11.10.2006 16:06 Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. 11.10.2006 16:01 Sjá næstu 50 fréttir
Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum. 13.10.2006 18:04
Verðlaunaféð fer í sjúkrahús og matvælaverksmiðju Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði og veitir fátækum lán, deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Verðlaunaféð, um 100 milljónir króna, mun Yunus nota til að koma á fót verksmiðju sem framleiðir ódýr matvæli með miklu næringargildi auk þess að koma á fót í heimalandi sínu sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í augnaðgerðum. 13.10.2006 17:45
Dæmdur fyrir að styðja Hamas Bandaríkjamaðurinn Mohamed Shorbagi hefur játað á sig fyrir dómi í Bandaríkjunum að hafa veitt Hamas-samtökunum fjárstuðning. Shorbagi, sem er 42 ára, er imam í mosku í Georgíu-ríki. Í lok sumars var hann ákærður fyrir að styðja erlend hryðjuverkasamtök og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Bandarísk stjórnvöld skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. 13.10.2006 17:32
Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. 13.10.2006 16:46
Tyrkir hóta Frökkum hefndum Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sagði í dag að Tyrkir myndu leita hefnda gegn Frökkum, sem í gær samþykktu lög um að skilgreina það sem glæpsamlegt athæfi að neita því að Tyrkir hafi framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. 13.10.2006 13:32
Friðsamleg mótmæli fyrir utan sendiráð Dana í Djakarta Hópur múslíma kom saman fyrir framan sendiráð Danmerkur í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýjum teikningum af Múhameð spámanni sem birst hafa á vegum Danska þjóðarflokksins að undanförnu. Mótmælin voru þó fámenn og friðsamleg en þau áttu sér stað eftir föstudagsbæn múslíma. 13.10.2006 11:28
Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. 13.10.2006 11:28
Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. 13.10.2006 10:40
Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. 12.10.2006 23:45
Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. 12.10.2006 23:15
Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. 12.10.2006 22:45
Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. 12.10.2006 22:18
Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. 12.10.2006 21:58
Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. 12.10.2006 21:44
Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. 12.10.2006 20:31
Refsivert að tala um annað en þjóðarmorð Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp um að refsivert verði að halda fram að Tyrkir hafi ekki framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Tyrkir eru fjúkandi reiðir og hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að efri deild og forseti geri frumvarpið að lögum. 12.10.2006 20:00
Íbúar í New York voru slegnir Sá sem flaug lítilli einkavél á byggingu í New York í gærkvöldi reyndist vera hafnarboltastjarna úr New York Yankees-liðinu. Íslendingur, sem býr í næstu götu, segir borgarbúa hafa verið slegna og óttast að um hryðjuverk væri að ræða, en lögregluyfirvöld hafa útilokað að svo sé. 12.10.2006 19:48
Starfsemin flutt á Grundartanga Stjórn Elkems, móðurfélags Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, mun leggja það til á morgun að loka verksmiðjunni í Ålvik í Noregi og flytja starfsemina á Grundartanga. Þetta var fullyrt í fréttum norska ríkissjónvarpsins í kvöld. 12.10.2006 19:30
Ford á sjúkrahús Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn. 12.10.2006 18:23
Fengu að hitta Guantanamo fanga Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag. 12.10.2006 18:13
Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. 12.10.2006 16:39
Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. 12.10.2006 15:20
Myndband veldur pólitískri deilu Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim. 12.10.2006 13:03
Amish skólinn jafnaður við jörðu Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ. 12.10.2006 12:30
Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. 12.10.2006 11:56
Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. 12.10.2006 11:03
Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. 12.10.2006 10:11
Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. 11.10.2006 19:10
Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. 11.10.2006 16:01