Fleiri fréttir

Minnst 3 skólastúlkur myrtar í Pennsylvaníu

Að minnsta kosti þrjár eru sagðir hafa týnt lífi og sjö særst þegar byssumaður skaut á skólastúlkur í skóla Amish-fólks í smábæ í Pennsylvaniu-ríki í Bandaríkjunum í dag. Stúlkurnar sem voru skotnar eru allar á aldrinum 6 til 13 ára.

Múffínutoppar og grjóst

Viktoría Beckham er með sólrexíu, Partýljónið París Hilton er fræbreimsk og Johnny Vegas er með grjóst samkvæmt nýrri bók sem gefin hefur verið út í Bretlandi. Bókin inniheldur samsetningu orða sem sem eru yfirleitt neikvæð og eru nýjasta tegund niðurlægingar.

Ríkisstjórn Austurríkis féll

Stjórnarflokkurinn í Austurríki galt afhroð í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær. Íhaldsflokkur kanslarans, Wolfgangs Schüssels, fékk 34.2% atkvæða, tapaði meira en 8 prósentum frá síðustu kosningum 2002, en Sósílademókratar, undir stjórn Alfreds Gusenbauers fengu 35,2%, einu prósenti meira en stjórnarflokkurinn.

FBI skoðar Foley

Bandaríska alríkislögreglan hefur til skoðunar klúr bréfaskrif bandarísks þingmanns til lærlinga á skrifstofu hans. Hann hefur þegar sagt af sér embætti. Maðurinn sem um ræðir heitir Mark Foley en hann sat í fulltrúadeildinni fyrir Repúblikanaflokkinn.

Nóbelsverðlaun í læknisfræði tilkynnt

Tveir Bandaríkjamenn, Andrew Z. Fire frá MIT í Massachusetts og Craig C. Mello við Harvard, fá Nóbelsverðlunin í læknisfræði í ár fyrir að uppgötva leið til að slökkva á ákveðnum áhrifum gena.

Forsetakosningar endurteknar í Brasilíu

Forseta Brasilíu, Lula da Silva, tókst ekki að tryggja sér hreinan meirihluta í kosningum sem fóru fram um helgina og verður gengið aftur til kosninga í lok október. Lula tryggði sér 49% atkvæða nú, en þarf yfir 50% til að ná kosningu. Keppinautur hans um forsetastólinn er Geraldo Alckmin, fyrrum ríkisstjóri Sao Paulo fékk 41% atkvæða.

Schüssel viðurkennir ósigur í þingkosningum

Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis, viðurkenndi í dag að hægri flokkur hans hefði „líklega" tapað í þingkosningunum sem þar fóru fram í dag. Sagði hann niðurstöður talningar benda til þess að sósíaldemókratar undir forystu Alfreds Gusenbauers hefðu farið með sigur af hólmi og óskaði hann Gusenbauer til hamingju með sigurinn.

Meintir talibanar handteknir í Pakistan

Pakistönsk lögregla handtók í dag sex meinta uppreisnarmenn úr röðum talibana. Mennirnir voru gripnir á einkasjúkrahúsi í borginni Quetta þangað sem þeir höfðu leitað aðstoðar eftir að hafa særst í átökum í suðurhluta Afganistans.

Átök milli Hamas-liða og manna hliðhollum Abbas

Fimm Palestínumenn hafa fallið og að minnsta kosti 60 særst í bardögum á milli byssumanna hliðhollum Hamas-samtökunum og lögreglu og opinberum starfsmönnum sem styðja Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, í Gasaborg í dag.

Fimm létust þegar hraðbraut hrundi í Kanada

Fimm manns létust þegar hraðbraut í Montreal í Kanada hrundi í gær. Fólkið var allt í tveimur bílum á vegi undir hraðbrautinni sem krömdust þegar brautin hrundi. Björgunarmenn voru að störfum í alla nótt til þess að ná bílunum undan rústunum en auk þeirra fimm sem létust slösuðust sex, þar af þrír alvarlega.

Útlit fyrir að stjórn Schüssels sé fallin

Svo virðist sem stjórn Wolfgangs Schüssels, kanslara Austurríkis, sé fallin í þingkosningum sem fram fóru í landinu í dag. Kjörfundi lauk í landinu nú klukkan þrjú að íslenskum tíma og fyrstu spár benda til þess að sósíaldemókratar undir forystu Alfreds Gusenbaurs hafi naumt forskot á hægri flokk Schüssels, 36 prósent atkvæða á móti 35 prósentum.

September sá heitasti í Bretlandi frá upphafi

Útlit er fyrir að nýliðinn september verði sá heitasti í Bretlandi frá því að veðurmælingar hófust, eða 15,4 gráður. Er það 0,7 gráðum heitara en í september árið 1949. Veðurstofa Bretlands mun á morgun staðfesta metið sem er rúmum þremur gráðum hærra en langtímameðaltal.

Fellibylurinn Xangsane veldur usla í Víetnam

Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir að fellibylurinn Xangsane gekk á land í Mið-Víetnam í morgun. Húsþök fuku, tré rifnuðu upp með rótum og rafmagnslínur slitnuðu þegar fellibylurinn kom að landi en yfirvöld í Víetnam höfðu gert töluverðar ráðstafanir og flutt burt um tvö hundruð þúsund manns.

Fjörtíu taldir látnir eftir að stífla brast í N-Nígeríu

Óttast er að fjörutíu manns hafi látist þegar stífla gaf sig nærri þorpi í Norður-Nígeríu í gær. Fram kemur í nígerískum fjölmiðlum að starfsfólki við stífluna hafi ekki tekist að opna fyrir hjáleið fyrir vatnið á bak við stífluna eftir gríðarlegar rigningar á svæðinu að undanförnu og því hafi stíflan brostið.

Ísraelsher farinn frá Líbanon

Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Líbanon seint í gærkvöldi. Þar með hefur einu grundvallarskilyrðinu fyrir vopnahléi milli Hizbollah og Ísraels, verið fullnægt.

Kosið víða um heim í dag

Kosningar verða víða um heim í dag. Í Brasilíu eru forsetakosningar og er búist við að núverandi forseti, Luis Ignacio "Lula" da Silva, beri sigur úr býtum. Í Bosníu og Austurríki eru þingkosningar. Í Austurríki sýna skoðanakannanir hnífjafnt fylgi hægri flokks Wolfgangs Schussels og vinstri flokks Alfreds Gusenbauers.

Hermenn komnir að flaki farþegaflugvélar í Amazon

Hermenn eru komnir að flaki farþegavélarinnar sem hrapaði í regnskógum Amazon á föstudag. 155 manns voru um borð og þótt björgunarsveit sé komin á staðinn, hefur ekki verið staðfest enn hvort einhverjir eftirlifendur séu. Það er þó talið ólíklegt.

Sjá næstu 50 fréttir