Fleiri fréttir Kastró allur að koma til á áttræðisafmælinu Dagblað á Kúbu segir að Fídel Kastró sé allur að skríða saman en í dag er áttræðisafmæli einræðisherrans. Hátíðarhöldum vegna afmælis hans hefur hins vegar verið frestað þar til í desemberbyrjun þegar einnig verður haldið upp á 50 ára afmæli byltingar kommúnista á Kúbu. 13.8.2006 11:00 Búast við samþykki Ísraelsstjórnar Fastlega er gert ráð fyrir því að ísraelska stjórnin fallist formlega á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé í Líbanon á reglubundnum ráðherrafundi í dag. Búist er við að Ísraelar hætti hernaðaraðgerðum í Líbanon klukkan fimm í nótt, að íslenskum tíma. 13.8.2006 10:30 Telja sig hafa náð höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi Breska blaðið The Times hefur eftir háttsettum mönnum í bresku leyniþjónustunni að meðal þeirra sem handteknir voru í Bretlandi í síðustu viku vegna gruns um að ætla að fremja hryðjuverk sé höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi. 13.8.2006 10:01 Tafir á breskum flugvöllum Flugfélög í Bretlandi segja að umferð um breska flugvelli sé í uppnámi vegna nýrra öryggisreglna. Flugfélögin segja að fyrirtækið sem rekur flugvellina - BAA - hafi ekki fjárfest nægilega í öryggisbúnaði og því einkenni hægagangur og tafir alla starfsemi flughafna. 13.8.2006 09:20 Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt vopnahlésályktun um átökin í Líbanon. Leiðtogi Hizbollah segist ætla að virða vopnahléið fari Ísraelar frá Líbanon. Ísraelar sækja fram af auknum krafti í S-Líbanon. 13.8.2006 06:00 Lula ánægður með efnahaginn Efnahagur Brasilíu stendur nú styrkum fótum og er óháður erlendri aðstoð. Þetta segir forseti Brasilíu sem hóf í gær baráttu sína fyrir endurkjöri. 12.8.2006 19:19 Ísraelar hætta að sprengja í Líbanon á mánudag Ísraelar segjast ætla að hætta hernaðaraðgerðum í Líbanon á mánudag. Þeir sækja nú fram með mikinn liðsafla að Litani-ánni, sem skilur að norður- og suðurhluta landsins, þrátt fyrir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi um vopnahlé. Að minnsta kosti tuttugu Líbanar létu lífið í árásum Ísraela í dag og sjö ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hizbolla-skæruliða. 12.8.2006 19:17 Ísraelar sækja fram í Líbanon Ísraelar hafa þrefaldað liðsstyrk sinn í Suður-Líbanon, þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi á fundi sínum í nótt samþykkt áætlun um vopnahlé. 12.8.2006 17:16 Hræfnykur í grasagarðinum í Brooklyn Mikinn fnyk leggur nú um grasagarðinn í Brooklyn í New York vegna hræblóms sem blómstraði þar í gærkvöldi. Nafnið á blóminu er verðskuldað því lyktin af því þykir helst minna á rotnandi hræ og er plantan almennt viðurkennd sem verst lyktandi blómplanta í heimi. En þó mannfólkið fúlsi við lyktinni sækja skordýr mjög í hana. 12.8.2006 15:09 Hátt í 200 fallnir í átökum á Sri Lanka í dag Stjórnarherinn á Sri Lanka ræðst nú gegn Tamíltígrum á Sri Lanka með auknu afli. Heryfirvöld áætla að yfir 150 tígrar hafi látið lífið í átökum hersins og skæruliða á Jaffna-skaganum í norðurhluta landsins í morgun. Átök halda einnig áfram á austurströndinni, meðal annars í Batticaloa og fyrir ströndum Trincomalee. 12.8.2006 14:43 Leitað að tengslum hryðjuverkamanna við Bandaríkin Bandarískir leyniþjónustumenn eru nú að fara yfir bresk njósnagögn til að athuga hvort Bretarnir sem hugðu á hryðjuverk höfðu einhver tengsl í Bandaríkjunum. Engar vísbendingar hafa þó enn fundist um að svo sé. 12.8.2006 13:00 Tónlistarmenn ferðast með lest Nýjar reglur um handfarangur í flugvélum neyða tónlistarmenn eins frægasta balletts Rússlands, Bolshoi-ballettsins, til að ferðast með lest frá Rússlandi til Bretlands vegna fyrirhugaðrar sýningar á Svanavatninu í Konunglega óperuhúsinu í London næstkomandi laugardag. 12.8.2006 08:00 Trúa mýtu um meyjarhaftið Meirihluti sænskra unglinga trúir enn bábiljum um meyjarhaftið, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn sem gerð var við háskólann í Umeå, þar sem tvö hundruð framhaldsskólanemar voru spurðir: „Hvað er meyjarhaftið?“. 12.8.2006 07:30 Rice bjartsýn á málamiðlun Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og aðrir háttsettir fulltrúar aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna kepptust í gær við að koma saman nýrri ályktun sem ætlað er að stuðla að því að átökum Ísraelshers og Hizbollah-liða í Líbanon linni. Vonir stóðu til að samkomulag tækist í gærkvöld að bandarískum tíma, í nótt að íslenskum tíma. 12.8.2006 07:00 Yfir 100 manns farast í fellibyl 12.8.2006 06:30 Bjarndýraveiðar heimilaðar 12.8.2006 06:00 Ísraelar skutu á bílalest flóttafólks Ísraelsk flugvél skaut í það minnsta fimm eldflaugum að bílalest hundraða farartækja sem flutti flóttafólk frá suðurlíbanska bænum Marjayoun í dag. Tveir létust í árásinni. Í bílalestinni voru um 3000 óbreyttir borgarar og 350 líbanskir öryggisverðir sem aðstoðuðu fólkið við að flýja svæðið eftir að Ísraelar héldu lengra inn í Líbanon. 11.8.2006 21:00 Öryggisráðið fundar um ályktun um Líbanon Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er nú sest að fundi til að ræða tillögu að ályktun um vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs. Ráðið mun greiða atkvæði um tillöguna í kvöld. John Bolton, sendifulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum segist vonast til þess að tillagan verði samþykkt samhljóða. Ísraelar hafa enn ekki gefið neitt út um viðbrögð sín við tillögunni. 11.8.2006 20:33 Samkomulag í sjónmáli Líklegt er talið að samkomulag náist á næstu klukkustundum milli Líbana og Bandaríkjamanna um orðalag ályktunar sem miðar að því að binda enda á átök Ísraela og Hizbollah skæruliða í Suður-Líbanon. Endanleg drög verða svo lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem greidd verða atkvæði um þau. 11.8.2006 14:38 Lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Evrópu ganga til baka Lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í gær, vegna hryðjuverkaógnar sem steðjaði að Bretlandi og Bandaríkjun, hafa nú þegar gengið nokkuð til baka. 11.8.2006 13:12 Brasilískir þingmenn kærðir fyrir að draga sér fé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn fyrir að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. 11.8.2006 13:00 Ráðist á æfingabúðir Tamíltígra Uppreisnarmenn Tamíltígra á Srí Lanka segja stjórnarherinn þar í landi hafa efnt til átaka á nýjum vígstöðvum í morgun þegar þeir vörpuðu sprengjum á æfingarbúðir tígranna í Batticaloa. Að sögn Tamíltígra féllu fjölmargir liðsmenn í árásinni. 11.8.2006 12:45 Enn deilt um orðalag ályktunar Sprengjur hafa dunið á Beirút, höfuðborg Líbanons, í morgun um leið og forsætisráðherra landsins fundar þar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar. Vonast er til að samkomulag náist í dag um orðalag ályktunar í deilu Ísraela og Hizbollah-skæruliða. 11.8.2006 12:30 Höfuðpaurarnir sagðir í haldi lögreglu Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaura hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar. 11.8.2006 12:15 Beðið eftir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna Bandaríkjamenn binda vonir við að fulltrúar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna geti í dag greitt atkvæði um nýja ályktun um vopnahlé milli Ísraela og Hizbollah-skæruliða í Líbanon. 11.8.2006 09:00 Mikið mannfall í Kína eftir fellibyl Hátt í hundrað manns eru sagðir hafa týnt lífi þegar fellibylurinn Saomai fór yfir suð austurhluta Kína í nótt og í morgun. 11.8.2006 08:33 Höfuðpaurar hryðjuverkahópsins í haldi Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaurar hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar. 11.8.2006 08:05 Ræsibúnaður úr ljósaperu Hryðjuverkavarnayfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum vildu í gær ekkert gefa upp um það hvers konar sprengjum þau teldu að hryðjuverkamenn hefðu ætlað sér að smygla um borð í farþegaþotur. Þar sem algert bann var lagt við því að hafa hvers konar vökva með í handfarangri voru leiddar að því líkur að óttast væri að hryðjuverkamenn reyndu að smygla með sér sprengiefni á vökvaformi. 11.8.2006 08:00 Komu í veg fyrir fjöldamorð á flugfarþegum frá London Sprengja átti bandarískar vélar á leið frá Bretlandi. Allur vökvi og raftæki eru nú bönnuð í farþegaflugi. Gífurleg gæsla og miklar tafir á Heathrow-flugvelli. Lögreglan handtók 24 menn í gær. 11.8.2006 07:45 Hryðjuverkatilræðinu afstýrt Bresk yfirvöld björguðu í gær farþegum fjölda bandarískra flugvéla frá tortímingu. Talið er að hryðjuverkamenn hafi ætlað að sprengja vélarnar á flugi með sprengiefni í fljótandi formi, sem átti að smygla um borð í handfarangri. Vélarnar áttu allar að fljúga frá Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Öll starfsemi á flugvellinum lamaðist um tíma, meðan föggur farþega og fatnaður voru grandskoðuð. Allur handfarangur var bannaður 11.8.2006 07:30 Sprengjur settar saman um borð Næstu hryðjuverkaárásir á farþegaflugvélar kunna að verða framdar af mönnum sem smygla íhlutunum í sprengju um borð í sakleysislegum umbúðum svo sem fyrir barnamat eða lyfjaflöskur. Sprengjuna myndu þeir setja saman úr íhlutunum bak við luktar salernisdyr um borð í flugvélinni. Við þessu vara öryggismálasérfræðingar sem AP-fréttastofan ræddi við í gær. 11.8.2006 07:15 1,5 milljónir flýja heimili sín Fellibylurinn Saomai, sem gengur nú yfir suðausturhluta Kína, hefur hrakið 1,5 milljónir manna frá heimilum sínum. Þetta er einn kraftmesti stormur sem riðið hefur yfir Kína áratugum saman og áttundi fellibylurinn þar í landi í sumar. 11.8.2006 07:00 Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45 Loksins leyfð í búðum vestra 11.8.2006 06:45 Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30 Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00 Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45 Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00 Óbreyttum neitað um hjálp ekki samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær um orðalag ályktunar sem ætlað er að stuðla að vopnahléi milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna í Líbanon. Þó vonast fastafulltrúi Bandaríkjanna, John Bolton, til þess að ályktunin verði samþykkt í dag. 11.8.2006 04:00 Vladimír Pútín sker upp herör Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði ríkisstjórn sinni í gær að láta gera eignaskrá yfir öll þau verk sem listasöfn landsins hafa að geyma. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að upp komst um stórfelldan þjófnað úr safni í Pétursborg, en talið er að 221 listaverki, samtals metin á um 360 milljónir króna, hafi verið stolið á síðustu árum. 11.8.2006 04:00 Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14 Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30 Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55 21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43 Ekki næst enn samkomulag um breytt orðalag svo hægt verði að stilla til friðar í Líbanon Ísraelsher náði í nótt og í morgun þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. 10.8.2006 12:48 Sjá næstu 50 fréttir
Kastró allur að koma til á áttræðisafmælinu Dagblað á Kúbu segir að Fídel Kastró sé allur að skríða saman en í dag er áttræðisafmæli einræðisherrans. Hátíðarhöldum vegna afmælis hans hefur hins vegar verið frestað þar til í desemberbyrjun þegar einnig verður haldið upp á 50 ára afmæli byltingar kommúnista á Kúbu. 13.8.2006 11:00
Búast við samþykki Ísraelsstjórnar Fastlega er gert ráð fyrir því að ísraelska stjórnin fallist formlega á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé í Líbanon á reglubundnum ráðherrafundi í dag. Búist er við að Ísraelar hætti hernaðaraðgerðum í Líbanon klukkan fimm í nótt, að íslenskum tíma. 13.8.2006 10:30
Telja sig hafa náð höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi Breska blaðið The Times hefur eftir háttsettum mönnum í bresku leyniþjónustunni að meðal þeirra sem handteknir voru í Bretlandi í síðustu viku vegna gruns um að ætla að fremja hryðjuverk sé höfuðpaur Al Kaída í Bretlandi. 13.8.2006 10:01
Tafir á breskum flugvöllum Flugfélög í Bretlandi segja að umferð um breska flugvelli sé í uppnámi vegna nýrra öryggisreglna. Flugfélögin segja að fyrirtækið sem rekur flugvellina - BAA - hafi ekki fjárfest nægilega í öryggisbúnaði og því einkenni hægagangur og tafir alla starfsemi flughafna. 13.8.2006 09:20
Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt vopnahlésályktun um átökin í Líbanon. Leiðtogi Hizbollah segist ætla að virða vopnahléið fari Ísraelar frá Líbanon. Ísraelar sækja fram af auknum krafti í S-Líbanon. 13.8.2006 06:00
Lula ánægður með efnahaginn Efnahagur Brasilíu stendur nú styrkum fótum og er óháður erlendri aðstoð. Þetta segir forseti Brasilíu sem hóf í gær baráttu sína fyrir endurkjöri. 12.8.2006 19:19
Ísraelar hætta að sprengja í Líbanon á mánudag Ísraelar segjast ætla að hætta hernaðaraðgerðum í Líbanon á mánudag. Þeir sækja nú fram með mikinn liðsafla að Litani-ánni, sem skilur að norður- og suðurhluta landsins, þrátt fyrir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi um vopnahlé. Að minnsta kosti tuttugu Líbanar létu lífið í árásum Ísraela í dag og sjö ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hizbolla-skæruliða. 12.8.2006 19:17
Ísraelar sækja fram í Líbanon Ísraelar hafa þrefaldað liðsstyrk sinn í Suður-Líbanon, þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi á fundi sínum í nótt samþykkt áætlun um vopnahlé. 12.8.2006 17:16
Hræfnykur í grasagarðinum í Brooklyn Mikinn fnyk leggur nú um grasagarðinn í Brooklyn í New York vegna hræblóms sem blómstraði þar í gærkvöldi. Nafnið á blóminu er verðskuldað því lyktin af því þykir helst minna á rotnandi hræ og er plantan almennt viðurkennd sem verst lyktandi blómplanta í heimi. En þó mannfólkið fúlsi við lyktinni sækja skordýr mjög í hana. 12.8.2006 15:09
Hátt í 200 fallnir í átökum á Sri Lanka í dag Stjórnarherinn á Sri Lanka ræðst nú gegn Tamíltígrum á Sri Lanka með auknu afli. Heryfirvöld áætla að yfir 150 tígrar hafi látið lífið í átökum hersins og skæruliða á Jaffna-skaganum í norðurhluta landsins í morgun. Átök halda einnig áfram á austurströndinni, meðal annars í Batticaloa og fyrir ströndum Trincomalee. 12.8.2006 14:43
Leitað að tengslum hryðjuverkamanna við Bandaríkin Bandarískir leyniþjónustumenn eru nú að fara yfir bresk njósnagögn til að athuga hvort Bretarnir sem hugðu á hryðjuverk höfðu einhver tengsl í Bandaríkjunum. Engar vísbendingar hafa þó enn fundist um að svo sé. 12.8.2006 13:00
Tónlistarmenn ferðast með lest Nýjar reglur um handfarangur í flugvélum neyða tónlistarmenn eins frægasta balletts Rússlands, Bolshoi-ballettsins, til að ferðast með lest frá Rússlandi til Bretlands vegna fyrirhugaðrar sýningar á Svanavatninu í Konunglega óperuhúsinu í London næstkomandi laugardag. 12.8.2006 08:00
Trúa mýtu um meyjarhaftið Meirihluti sænskra unglinga trúir enn bábiljum um meyjarhaftið, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn sem gerð var við háskólann í Umeå, þar sem tvö hundruð framhaldsskólanemar voru spurðir: „Hvað er meyjarhaftið?“. 12.8.2006 07:30
Rice bjartsýn á málamiðlun Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og aðrir háttsettir fulltrúar aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna kepptust í gær við að koma saman nýrri ályktun sem ætlað er að stuðla að því að átökum Ísraelshers og Hizbollah-liða í Líbanon linni. Vonir stóðu til að samkomulag tækist í gærkvöld að bandarískum tíma, í nótt að íslenskum tíma. 12.8.2006 07:00
Ísraelar skutu á bílalest flóttafólks Ísraelsk flugvél skaut í það minnsta fimm eldflaugum að bílalest hundraða farartækja sem flutti flóttafólk frá suðurlíbanska bænum Marjayoun í dag. Tveir létust í árásinni. Í bílalestinni voru um 3000 óbreyttir borgarar og 350 líbanskir öryggisverðir sem aðstoðuðu fólkið við að flýja svæðið eftir að Ísraelar héldu lengra inn í Líbanon. 11.8.2006 21:00
Öryggisráðið fundar um ályktun um Líbanon Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er nú sest að fundi til að ræða tillögu að ályktun um vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs. Ráðið mun greiða atkvæði um tillöguna í kvöld. John Bolton, sendifulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum segist vonast til þess að tillagan verði samþykkt samhljóða. Ísraelar hafa enn ekki gefið neitt út um viðbrögð sín við tillögunni. 11.8.2006 20:33
Samkomulag í sjónmáli Líklegt er talið að samkomulag náist á næstu klukkustundum milli Líbana og Bandaríkjamanna um orðalag ályktunar sem miðar að því að binda enda á átök Ísraela og Hizbollah skæruliða í Suður-Líbanon. Endanleg drög verða svo lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem greidd verða atkvæði um þau. 11.8.2006 14:38
Lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Evrópu ganga til baka Lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í gær, vegna hryðjuverkaógnar sem steðjaði að Bretlandi og Bandaríkjun, hafa nú þegar gengið nokkuð til baka. 11.8.2006 13:12
Brasilískir þingmenn kærðir fyrir að draga sér fé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn fyrir að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. 11.8.2006 13:00
Ráðist á æfingabúðir Tamíltígra Uppreisnarmenn Tamíltígra á Srí Lanka segja stjórnarherinn þar í landi hafa efnt til átaka á nýjum vígstöðvum í morgun þegar þeir vörpuðu sprengjum á æfingarbúðir tígranna í Batticaloa. Að sögn Tamíltígra féllu fjölmargir liðsmenn í árásinni. 11.8.2006 12:45
Enn deilt um orðalag ályktunar Sprengjur hafa dunið á Beirút, höfuðborg Líbanons, í morgun um leið og forsætisráðherra landsins fundar þar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar. Vonast er til að samkomulag náist í dag um orðalag ályktunar í deilu Ísraela og Hizbollah-skæruliða. 11.8.2006 12:30
Höfuðpaurarnir sagðir í haldi lögreglu Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaura hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar. 11.8.2006 12:15
Beðið eftir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna Bandaríkjamenn binda vonir við að fulltrúar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna geti í dag greitt atkvæði um nýja ályktun um vopnahlé milli Ísraela og Hizbollah-skæruliða í Líbanon. 11.8.2006 09:00
Mikið mannfall í Kína eftir fellibyl Hátt í hundrað manns eru sagðir hafa týnt lífi þegar fellibylurinn Saomai fór yfir suð austurhluta Kína í nótt og í morgun. 11.8.2006 08:33
Höfuðpaurar hryðjuverkahópsins í haldi Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaurar hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar. 11.8.2006 08:05
Ræsibúnaður úr ljósaperu Hryðjuverkavarnayfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum vildu í gær ekkert gefa upp um það hvers konar sprengjum þau teldu að hryðjuverkamenn hefðu ætlað sér að smygla um borð í farþegaþotur. Þar sem algert bann var lagt við því að hafa hvers konar vökva með í handfarangri voru leiddar að því líkur að óttast væri að hryðjuverkamenn reyndu að smygla með sér sprengiefni á vökvaformi. 11.8.2006 08:00
Komu í veg fyrir fjöldamorð á flugfarþegum frá London Sprengja átti bandarískar vélar á leið frá Bretlandi. Allur vökvi og raftæki eru nú bönnuð í farþegaflugi. Gífurleg gæsla og miklar tafir á Heathrow-flugvelli. Lögreglan handtók 24 menn í gær. 11.8.2006 07:45
Hryðjuverkatilræðinu afstýrt Bresk yfirvöld björguðu í gær farþegum fjölda bandarískra flugvéla frá tortímingu. Talið er að hryðjuverkamenn hafi ætlað að sprengja vélarnar á flugi með sprengiefni í fljótandi formi, sem átti að smygla um borð í handfarangri. Vélarnar áttu allar að fljúga frá Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Öll starfsemi á flugvellinum lamaðist um tíma, meðan föggur farþega og fatnaður voru grandskoðuð. Allur handfarangur var bannaður 11.8.2006 07:30
Sprengjur settar saman um borð Næstu hryðjuverkaárásir á farþegaflugvélar kunna að verða framdar af mönnum sem smygla íhlutunum í sprengju um borð í sakleysislegum umbúðum svo sem fyrir barnamat eða lyfjaflöskur. Sprengjuna myndu þeir setja saman úr íhlutunum bak við luktar salernisdyr um borð í flugvélinni. Við þessu vara öryggismálasérfræðingar sem AP-fréttastofan ræddi við í gær. 11.8.2006 07:15
1,5 milljónir flýja heimili sín Fellibylurinn Saomai, sem gengur nú yfir suðausturhluta Kína, hefur hrakið 1,5 milljónir manna frá heimilum sínum. Þetta er einn kraftmesti stormur sem riðið hefur yfir Kína áratugum saman og áttundi fellibylurinn þar í landi í sumar. 11.8.2006 07:00
Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45
Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30
Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00
Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45
Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00
Óbreyttum neitað um hjálp ekki samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær um orðalag ályktunar sem ætlað er að stuðla að vopnahléi milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna í Líbanon. Þó vonast fastafulltrúi Bandaríkjanna, John Bolton, til þess að ályktunin verði samþykkt í dag. 11.8.2006 04:00
Vladimír Pútín sker upp herör Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði ríkisstjórn sinni í gær að láta gera eignaskrá yfir öll þau verk sem listasöfn landsins hafa að geyma. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að upp komst um stórfelldan þjófnað úr safni í Pétursborg, en talið er að 221 listaverki, samtals metin á um 360 milljónir króna, hafi verið stolið á síðustu árum. 11.8.2006 04:00
Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14
Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30
Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55
21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43
Ekki næst enn samkomulag um breytt orðalag svo hægt verði að stilla til friðar í Líbanon Ísraelsher náði í nótt og í morgun þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. 10.8.2006 12:48