Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kenna hvorir öðrum um ofbeldið Fulltrúar Líbanons og Ísraels kenndu hvorir öðrum um sprenginguna í Kana á aðfaranótt sunnudags, þegar þeir ávörpuðu fund öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. 1.8.2006 09:15
Meira herlið til Líbanons Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í morgun tillögu Amir Peretz, varnarmálaráðherra, að senda meira herlið inn í Suður-Líbanon til að berjast gegn skæruliðum Hisbollah. Tillagan var samþykkt samhljóða, stuttu eftir að Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels útilokaði vopnahlé svo lengi sem Ísraelar teldu öryggi sínu ógnað. 1.8.2006 09:00
Kastró stígur af stóli til hvíldar Fídel Kastró, einræðisherra á Kúbu mun láta tímabundið af leiðtogaembætti Kúbu meðan hann leggst inn á sjúkrahús. Bróðir hans stendur í brúnni á meðan. 1.8.2006 08:02
Ekkert vopnahlé í Líbanon í bráð Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að ekkert verði af vopnahléi í Líbanon í bráð. Forseti Egyptalands segir hættu á að friðarferlið í Mið-Austurlöndum öllum verði að engu ef árásum á Suður-Líbanon verði ekki hætt. 31.7.2006 18:55
Fleiri ísraelskir hermenn kallaðir til þjónustu Ísraelar halda áfram loftárásum sínum í Suður-Líbanon, þrátt fyrir heit um að gefa Líbönum grið í tvo sólarhringa. Varnarmálaráðherra Ísraels boðar einnig aukinn landhernað í Líbanon. Að sögn yfirmanna í Ísraelsher er loftárásunum í dag ætlað að styðja við landhernað í Taibe í Suður-Líbanon. 31.7.2006 18:17
Sendinefndir Indlands og Pakistans funda Sendinefndir Indlands og Pakistans hittust í dag í fyrsta skipti frá því að sprengingar í lestakerfi Múmbei urðu á þriðja hundrað manns að bana. 31.7.2006 13:19
Mannanafnanefnd Malasíu tekur til hendinni Mannanafnanefnd í Malasíu stendur í ströngu þessa dagana. Nú hefur í fyrsta sinn verið gefinn út listi yfir nöfn sem fólk er hvatt til að sniðganga. Á listanum eru nöfn eins og Hitler, Skítugur Hundur og 007. 31.7.2006 12:15
Ísraelar halda áfram árásum í Líbanon Varnarmálaráðherra Ísraels tilkynnti í morgun að landhernaður Ísraela yrði aukinn í Líbanon á næstu dögum. Þar með renna út í sandinn vonir um að tveggja sólarhringa hlé á loftárásum gæti leitt til friðar. 31.7.2006 11:29
Hætta á mikilli mengun í Rússlandi Rússnesk yfirvöld vara nú við stóru umhverfisslysi eftir að ein helsta olíuleiðsla í Rússlandi lak í Bryansk-héraði í Vestur-Rússlandi. Yfir 10 ferkílómetra svæði er mengað, skógar, ár og vötn. Ekki er enn vitað hvað olli lekanum en hin 4000 kílómetra langa Drushba-olíuleiðsla getur flutt yfir 1,2 milljónir tunna af olíu á dag. 31.7.2006 11:00
Gay Pride í Brasilíu Sannkölluð karnivalstemning var á Copacabana-ströndinni í Rio de Janeiro í gær, þegar brasilíska Gay Pride skrúðgangan fór þar um. 31.7.2006 09:48
Fórnarlamba minnst Tugir Líbana söfnuðust saman á píslarvottatorginu í miðbæ Beirút í gærkvöldi til að minnast fórnarlamba loftárásanna á Kana. 31.7.2006 09:35
Ísraelar fallast á tímabundið vopnahlé Ísraelar hafa fallist á að gera tveggja sólarhringa hlé á loftárásum sínum í Suður-Líbanon. Þetta er gert til að hægt sé að rannsaka hvers vegna gerð var loftárás á þorpið Kana í fyrrinótt. 31.7.2006 09:18
Ellefu létust í bíslysi í Malasíu Ellefu manns létu lífið í rútuslysi í Malasíu í dag. Fólkið var á leið á árlega hátíð sem kristnir menn halda til dýrðar heilagri Önnu í Penang-fylki í norðurhluta landsins, þegar bíllinn rann út af veginum og fór á hvolf. Í bílnum voru 46 menn, aðallega af indverskum uppruna. 30.7.2006 19:50
Læra að beita kylfum, ekki byssum Tugir lögreglumanna í Afganistan útskrifuðust í dag úr skóla fjölþjóðlegu friðargæsluliðanna í Kabúl, en í skólanum lærðu þeir hvernig ber að kveða niður róstur án þess að beita byssum. 30.7.2006 19:46
Deilt um Líbanon á fundi Öryggisráðsins Ísraelar kröfðust þess í dag að Hisbolla skæruliðar yrðu afvopnaðir algjörlega; fyrr væri ekki hægt að semja um vopnahlé. Sendiherra Ísraels lét þessi orð falla á skyndifundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Kofi Annan kallaði til nú síðdegis. Í nótt létu að minnsta kosti 60 óbreyttir borgarar lífið í loftárás Ísraela, þar af 37 börn. 30.7.2006 19:30
Krefjast afvopnunar Ísraelar kröfðust þess í dag að Hisbolla skæruliðar yrðu afvopnaðir algjörlega; fyrr væri ekki hægt að semja um vopnahlé. Sendiherra Ísraels lét þessi orð falla á skyndifundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Kofi Annan kallaði til nú síðdegis. Í nótt létu að minnsta kosti 60 óbreyttir borgarar lífið í loftárás Ísraela, þar af 37 börn. 30.7.2006 18:59
Öryggisráðið kemur saman klukkan þrjú í dag Ákveðið var fyrir stundu að kalla saman Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna árásar Ísraela á bæinn Qana í nótt, sem varð 54 að bana, þar af 37 börnum. Ráðið kemur saman nú klukkan þrjú að íslenskum tíma samkvæmt ákvörðun Kofi Annans framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 30.7.2006 14:33
Sviðsmynd nýjustu Bond myndarinnar gereyðilagðist Sviðsmynd nýrrar kvikmyndar um James Bond, Casino Royale, gereyðilagðist í eldsvoða í Pinewood Studios kvikmyndaverinu í Buckinghamskíri á Englandi í morgun. Þegar tökum var að ljúka gaus upp mikill eldur og varð sviðsmyndin fljótt alelda. Þak kvikmyndaversins er að mestu hrunið. Ekki er vitað um slys á fólki. 30.7.2006 13:00
Kosningar fara vel af stað í Kongó Atkvæðagreiðsla hófst í dag í fyrstu lýðræðislegu kosningum í Afríkuríkinu Kongó í fjóra áratugi. Miklar vonir eru bundnar við kosningarnar, eftir óstjórn og ofbeldi undanfarinna ára. 30.7.2006 12:42
54 falla í árás Ísraela á þorp í Líbanon Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels segist munu leyfa hjálparstofnunum að fara inn í þorp í Líbanon, nálægt landamærunum við Ísrael, þar sem 54 létu lífið í loftárás í nótt. Þrjátíu og sjö þeirra sem létust voru börn. Evrópusambandið hvatti til þess skömmu fyrir hádegi að vopnahléi yrði komið á tafarlaust. Arababandalagið krefst þess að alþjóðleg rannsókn fari fram á árásinni á þorpið. 30.7.2006 12:22
Barist á tveimur vígstöðvum Ísraelar börðust á tveimur vígstöðvum í nótt, á svæðum Palestínumanna í Gaza og í Líbanon. Rétt fyrir dögun í morgun gerðu þeir tvær loftárásir á Gaza nálægt landamærunum við Egyptaland. 29.7.2006 12:12
Togarar greiða lausnargjald Norskir dómstólar hafa dæmt spænska útgerð til að greiða rúmar 342 milljónir króna í lausnargjald fyrir þrjá togara sem gripnir voru við ólöglegar þorskveiðar nálægt Svalbarða fyrr í mánuðinum. Greiðslan er innborgun á endanlega sekt útgerðarinnar, sem verður ákveðin fyrir dómstólum seinna á árinu. 29.7.2006 08:45
Ísrael var ekki gefið "grænt ljós" á árásir Sameinuðu þjóðirnar fjarlægja óvopnaða eftirlitsmenn sína úr Suður-Líbanon, því árásir Ísraela á Líbanon halda áfram og svara liðsmenn Hizbollah enn í sömu mynt. Talið er að á sjöunda hundrað Líbanar hafi farist í árásunum. 29.7.2006 08:30
SÞ athuga viðbrögð stjórnar Danskir múslimar hafa beðið nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um kynþáttahatur að kanna hvort viðbrögð dönsku ríkisstjórnarinnar við birtingu Jyllandsposten á tólf skopmyndum af Múhameð spámanni í fyrra hafi brotið í bága við milliríkjasamning sem ætlað er að vinna gegn kynþáttahatri. 29.7.2006 08:15
Engar æfingar við Ísland Rússneski herinn mun ekki halda neinar flotaæfingar nærri Íslandi nú eða síðar á þessu ári, að sögn Victors I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi. 29.7.2006 08:00
SÞ kalla eftir lokunum Bandaríkjunum ber að loka öllum leynifangelsum sínum þegar í stað og heimila starfsfólki Rauða krossins aðgang að hverjum þeim fanga sem haldið er í tengslum við vopnuð átök. Þetta kemur fram í skýrslu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. 29.7.2006 07:45
Finnar og Danir fara heim Norrænu friðargæslustarfi á Srí Lanka virðist vera að ljúka í núverandi mynd. Ellefu manna herlið Finna heldur heim 1. september og haft er eftir talsmanni friðargæslunnar að Danir ætli að gera slíkt hið sama. Standa þá eftir Íslendingar, Svíar og Norðmenn, en búist er við að Svíar tilkynni einnig um brotthvarf sitt áður en langt um líður. 29.7.2006 07:00
Blair og Bush funda um stríðið í Líbanon Ísraelski herinn hélt áfram loftárásum sínum á norðurhluta Líbanons í morgun. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt til fundar við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag til að ræða átökin í Mið-Austurlöndum. 28.7.2006 12:09
Svíar um fjórðungur nýnema í læknisfræði Svíar eru um fjórðungur allra þeirra sem fá inngöngu í læknanám í Danmörku í haust. Fréttavefur danska ríkissjónvarpsins greinir frá því að rúmlega 1.100 manns munu verða teknir inn í læknanám í haust í Danmörku. Mörgum þykir hlutfall Svía vera hátt en Í Kaupmannahöfn munu Svíar verða rúmlega 40% nýnema í læknanáminu. Ástæður þessa eru að íbúum landa Evrópusambandsins eru frjálst að sækja um skólavist í öðru landi en heimalandi sínu. 28.7.2006 09:30
Um 44.000 manns fá svar frá KOT í dag Tæplega fjörtíu og fjögurþúsund manns munu í dag fá jákvætt svar vegna umsóknar um skólavist á háskólastigi í Danmörku. 28.7.2006 09:00
Yfir áttatíu hafa látist í hitabylgju Að minnsta kosti áttatíu hafa látist í Kaliforníu í Bandaríkjunum í hitabylgju sem gengur þar yfir. Hitabylgjan hefur staðið í tólf daga. 28.7.2006 08:30
Olmert sýndur sem nasisti Miryam Shomrat, sendiherra Ísraels á Noregi og Íslandi, hefur lagt fram kvörtun við Blaðamannafélag Noregs vegna skopmyndar sem birtist í norska blaðinu Dagbladet. Myndin sýndi forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sem foringja í fangabúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni og vísaði til árása Ísraela á Palestínumenn á Gaza-svæðinu. Hún birtist hinn 10. júlí. 28.7.2006 08:00
Fimmtán þúsund manna varalið kallað út Ekkert dró úr átökum milli Ísraelshers og Hizbollah skæruliða í suðurhluta Líbanon í nótt. Ísraelsher hefur nú kallað út um fimmtán þúsund hermenn úr varaliði sínu til að taka þátt í átökunum. 28.7.2006 07:56
Kjarnorka til Indverja Bandaríkjaþing samþykkti sölu á kjarnorku til Indverja, sem fá aukið svigrúm til vopnaframleiðslu og skrifa ekki undir bann við útbreiðslu kjarnavopna. Hætta á vopnakapphlaupi. 28.7.2006 07:45
Al-Kaída boðar árásir Ayman al-Zawahri, Egyptinn sem sagður er standa næst Osama bin Laden að völdum í al-Kaída, hótaði í árásum um heim allan í ávarpi á myndbandi, sem sýnt var í gær. 28.7.2006 07:30
Ísraelski herinn ritskoðaði fréttir Á dögunum barst Fréttablaðinu frétt frá alþjóðlegu fréttastofunni Associated Press um bardaga Ísraelsmanna og Hizbollah-liða við Bint Jbail. Fréttin var vandlega merkt sem "endurskoðuð af ritskoðanda ísraelska hersins" og hafði verið stytt frá fyrri útgáfu. 28.7.2006 07:15
Ísraelar fengu ekki grænt ljós Í gær sagði Haim Ramon, dómsmálaráðherra Ísraels, að þar sem engin niðurstaða fékkst á alþjóðaráðstefnunni um Líbanon, sem haldin var í Róm á miðvikudag, þá hljóti Ísraelar að líta svo á að þeir hafi fengið „grænt ljós“ til þess að halda áfram árásum sínum „þangað til Hizbollah hefur verið hrakið frá Líbanon og afvopnað“. 28.7.2006 07:00
Hafa ekki heimild fyrir árásum Evrópusambandið tilkynnti nú undir kvöld að Ísraelar færu villu vegar ef þeir teldu sig hafa heimild fyrir áframhaldandi árásum á Líbanon eftir fund utanríkisráðherra í Róm í gær. ESB segir að árásirnar verði að hætta tafarlaust en Ísraelar eru ekki á þeim buxunum. 27.7.2006 22:21
Óttast um eiturefnamengun í Norður-Ísrael Óttast var að eiturefni myndu losna úti í andrúmslofið í bænum Kiryat Shemona í Norður-Ísrael í dag þegar flugskeyti Hizbollah skæruliða skall þar á efnaverksmiðju. Mikill eldur kviknaði og þykkan reyk lagði frá verksmiðjunni. 27.7.2006 14:34
Réttarhöldunum yfir Saddam lokið Dómur yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta, er væntanlegur sextánda október næstkomandi en réttarhöldum yfir honum og sjö öðrum lauk í dag. Saddam er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu og gæti átt yfir höfði sér dauðadóm verði hann sakfelldur. 27.7.2006 13:37
Grænt ljós á aðgerðir í Líbanon Ísraelar segja aðeins hægt að túlka niðurstöðu fundar í Róm í gær sem grænt ljós á árásir sínar á Líbanon þar til Hizbollah-samtökin hafi verið upprætt. Ekki tókst samkomulag um tafarlaust vopnahlé á fundinum. Mannréttindasamtök saka Ísraela um að nota klasasprengjur í árásum á þéttbýl svæði í Líbanon. 27.7.2006 12:45
60 þúsund deyja árlega af völdum sólarinnar Sólin verður um sextíu þúsund manns að bana um allan heim á ári hverju að mati Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Flest dauðsföllin verða af völdum húðkrabbameins. 27.7.2006 12:15
Næstráðandi í al-Kaída hvetur múslima til að berjast Ayman al-Zawahri, næstráðandi í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, hvetur múslima til að berjast saman gegn því sem hann kallar krossferð síonista gegn Líbanon, Palestínumönnum og öðrum ríkjum múslima. Þetta kemur fram í myndbandi sem arabíska fréttastöðin Al Jazeera birti fyrir stundu. 27.7.2006 11:00
Norður-Kóreumenn ætla ekki að ræða kjarnorkudeiluna Stjórnvöld í Norður-Kóreu ætla ekki að taka þátt í viðræðum um kjarnorkudeilu sína við vesturveldin á ráðstefnu samtaka Suðausturasíuríkja sem nú er haldin í Kuala Lumpur í Malasíu. 27.7.2006 10:45
Næsti Tiger Woods kominn fram? Bandarískur drengur á þriðja ári gæti hæglega orðið næsti Tiger Woods í golfinu ef hann heldur áfram að æfa sig. Brayden Bozak er ef til vill sá yngsti í heimi til að leggja stund á golf og það kemur líkast til á óvart að hann sveiflar kylfunni eins og atvinnumaður. 27.7.2006 10:26