Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannfall í aurskriðum í Kína Að minnsta kosti sex eru látnir og tæplega fjörutíu er saknað eftir að aurskriður féllu í tveimur héruðum í suðurhluta Kína í gær. Skriðurnar féllu í kjölfar mikilla rigninga eftir að hitabeltisstormurinn Kaemi gekk yfir Guangdong- og Jiangxi-hérað. 27.7.2006 08:15
Mesta mannfall í röðum Ísraela á einum degi Ísraelsher hefur beitt loftárásum og stórskotaliði af miklu afli í Suður-Líbanon undanfarinn sólarhring eftir að níu hermenn voru drepnir í gær. Það er mesta mannfall á einum degi í röðum Ísraela frá því átökin hófust fyrir rúmum tveimur vikum. 27.7.2006 08:01
Ísraelar hunsuðu viðvaranir Ehud Olmert segist sjá eftir árásum ísraelska hersins á bækistöð friðargæslusveita í Líbanon. Kofi Annan segir árásina hafa verið vísvitaða. Fjórir friðargæslumenn Sameinuðu þjóðanna létust í árásunum. 27.7.2006 07:30
Húsaleigan þykir afar lág Húsaleiga í Kaupmannahöfn er ein sú lægsta í Evrópu, kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken. Leigan er svo lág, að hún jafnast á við leigu í Istanbúl og Búdapest, jafnvel þó að laun í Danmörku séu almennt talin vera þrisvar til fjórum sinnum hærri en í Tyrklandi og Ungverjalandi. 27.7.2006 07:15
Alþjóðlegt lið við landamæri Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir í gær að hann vildi fá tveggja kílómetra langa ræmu af líbönsku landsvæði meðfram landamærum Ísraels undir yfirráð alþjóðlegs gæsluliðs. 27.7.2006 07:00
Eldur í efnaverksmiðju Talsverð skelfing greip um sig í gríska bænum Lavrio í morgun þegar eldur kom upp í efnaverksmiðju þar. 26.7.2006 21:00
Enginn árangur af ráðstefnunni Bandaríkjamenn og Bretar komu í veg fyrir að tafarlauss vopnahlés yrði krafist á alþjóðlegri ráðstefnu um stríðið í Líbanon sem fram fór í Róm í dag. Líbanski forsætisráðherrann spurði á ráðstefnunni hvort tár Ísraela væru meira virði en blóð Líbana. 26.7.2006 19:16
Ísraelar grunaðir um græsku Forsvarsmenn Sameinuðu þjóðanna saka Ísraela um að hafa af yfirlögðu ráði varpað sprengjum á búðir friðargæsluliða í Líbanon með þeim afleiðingum að fjórir þeirra létust. Átökin í Líbanon eru ekki í rénun og Ísraelar hertu enn sókn sína á Gaza í dag. 26.7.2006 19:00
Bóluefni við H5N1 afbrigði fuglaflensu Lyfjafræðingar hjá breska lyfjafyrirtækinu Glaxo Smith Kline telja sig hafa þróað bóluefni gegn hinu banvæna H5N1 afbrigði fuglaflensu. Fjöldaframleiðsla á því gæti hafist á næsta ári. 26.7.2006 12:45
Krefja Ísraela um bætur Líbanar ætla að krefja Ísraela um bætur vegna árása þeirra á landið síðustu daga. Fuad Siniora, forsætisráðherra landsins, sem nú situr fund um ástandið í Líbanon í Róm á Ítalíu, tilkynnti þetta í morgun. 26.7.2006 12:30
Ótímabært að ræða hvort NATO sendi lið til Líbanon Framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins segir ótímabært að ræða það hvort fjölþjóðlegt herlið sem sent yrði til Suður-Líbanon lúti stjórn þess. Frakkar segjast tilbúnir að leiða herliðið. Fjórir liðsmenn friðareftirlitssveitar Sameinuðu þjóðanna í Líbanon féllu í loftárás Ísraelshers á bækistöð þeirra í suðurhluta landsins í nótt. 26.7.2006 12:15
Náðust loksins eftir mikinn eltingaleik Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Richfield í Minnesota í Bandaríkjunum eftir æsilegan eltingaleik í gærmorgun. Lögregla bað mennina um að stöðva bíl sinn við venjubundið eftirlit en þeir létu ekki segjast. 26.7.2006 11:15
Saddam færður með valdi af sjúkrahúsi fyrir dóm Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseti, segist frekar vilja falla fyrir byssukúlu en að fara í gálgann veðri hann sakfelldur og dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Saddam var færður með valdi af sjúkrahúsi í morgun og fyrir dóm. 26.7.2006 10:00
Kínverjar krefja ísraelsk stjórnvöld um afsökunarbeiðni Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna féllu í árásum Ísraelshers á bækistöð þeirra í bænum Khima í Suður-Líbanon í gærkvöld. Mennirnir voru frá Austurríki, Finnlandi, Kanada og Kína. Kínverjar hafa krafið ísraelsk stjórnvöld um afsökunarbeiðni. 26.7.2006 09:45
Leiðtogar funda í Róm Fundur utanríkisráðherra helstu ríkja og fulltrúa alþjóðsamtaka um átökin í Líbanon hófst í Róm á Ítalíu í morgun. Þar verður rætt um hvernig hægt verði að stilla til friðar milli Ísraela og skæruliða Hizbollah og hvernig hægt verði að flytja hjálpargögn til þjáðra á átakasvæðinu. 26.7.2006 09:15
Níu hermenn féllu í átökum Hizbollah og Ísraelsher Að minnsta kosti níu ísraelskir hermenn féllu í miklum átökum við skæruliða Hizbollah í þorpinu Bint Jbeil í Suður-Líbanon í morgun. Arabíska fréttastöðin Al Jazeera greindi frá þessu fyrir stundu. Arabíska sjónvarpsstöðin Al Arabiya segir hins vegar að tólf hermenn hafi fallið. Fréttir bárust af því í gær að Ísraelsher hefði hertekið þorpið en nú berast fréttir af frekari átökum þar. 26.7.2006 09:02
Rolling stones með tekjuhæstu tónleikaferð allra tíma Hljómsveitin Rolling Stones eru nú enn og aftur komin á spjöld sögunnar og að þessu sinni fyrir að vera komin í efsta sæti lista yfir tekjuhæstu tónleikarferðir sögunnar. Hljómsveitarmeðlimirnir hófu tónleikaferð sína, A Bigger bang, fyrr á þessu ári en eru nú komnir til Evrópu. 26.7.2006 08:30
22 skipverjum bjargað Mildi þykir að ekki fór verr þegar tuttugu og tveimur skipverjum var bjargað af flutningaskipi sem fór á hliðina undan ströndum Alaska í fyrrinótt. Skipið, sem skráð er í Singapúr, var á leið frá Japan til Kanada með um fimm þúsund bíla og önnur farartæki um borð. 26.7.2006 08:30
Palestínsk stúlka lést í átökum á Gaza Átta Palestínumenn féllu og þrjátíu særðust í átökum á Gaza-ströndinni í morgun. Á meðal hinna látnu var þriggja ára gömul stúlka. Að sögn Reuters-fréttastofunnar voru hinir sjö sem féllu í árásunum skæruliðar Hamas-samtakanna. 26.7.2006 08:03
FBI segir ásatrú ofbeldisfulla Ásatrú verður sífellt vinsælli innan fangelsisveggja í Bandaríkjunum og mun einn fangi verða tekinn af lífi á morgun fyrir að drepa samfanga, fyrir að sýna guðunum ekki tilhlýðilega virðingu. Sérfræðingar óttast að ofbeldi muni aukast með útbreiðslu trúarbragðanna. 26.7.2006 07:45
Sextugur Dani olli fjaðrafoki slökkvilið og sjúkrabifreiðar voru snögg á vettvang í gærmorgun, með sprengjuleitarbúnað og sprengjuleitarhunda, þegar tilkynning barst frá bandaríska sendiráðinu í Kaupmannahöfn um hættu á sprengjuárás. Nærliggjandi götur voru lokaðar klukkutímum saman. 26.7.2006 07:15
Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna drepnir Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna féllu í árásum Ísraelshers í bænum Khima í Suður-Líbanon í gærkvöld. Mennirnir voru staddir í bækistöðvum sínum á svæðinu þegar Ísraelar gerðu loftárás á þær. 26.7.2006 07:13
Ísraelsher tryggir sér svæði Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Ísraelar ætli sér upp á eigin spýtur að ákvarða "öryggissvæði" syðst í Líbanon á landræmu meðfram landamærum Ísraels. Þeir ætla sér að verja þetta svæði þangað til annað hvort alþjóðlegar gæslusveitir verða sendar þangað eða samið verður um að skæruliðar Hizbollah-hreyfingarinnar fari frá ísraelsku landamærunum. 26.7.2006 07:00
Fimm þúsund bílar sukku Tuttugu og þriggja manna áhöfn var í gær bjargað um borð í þyrlur af sökkvandi flutningaskipi skammt frá Aleuteyjum, suður af Alaska. Um borð í skipinu eru fimm þúsund nýjar bifreiðar sem átti að flytja frá Japan til Kanada. 26.7.2006 06:45
Framtíð friðargæslu í Líbanon óljós Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði bak við luktar dyr í dag til að ræða um framtíð alþjóðlegs friðargæsluliðs í Líbanon sem gæta bláu línunnar sem skilur Líbanon og Ísrael. 25.7.2006 21:47
Fundað í Róm á morgun um ástandið í Líbanon Háttsettir sendifulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópulöndum og ríkjum Mið-Austurlanda koma saman til fundar í Róm á morgun til að ræða ástandið í Líbanon. Fulltrúar Rauða krossins þar segja sjúkraflutningamenn á þeirra vegum ekki óhulta fyrir árásum Ísraelshers. Þeir fullyrða að níu hafi særst þegar sprengjum var varpað á sjúkrabíla á þeirra vegum í Suður-Líbanon á sunnudag. 25.7.2006 12:45
Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn girt af Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn var girt af í morgun eftir að danska lögreglan handtók mann með bakpoka sem í var grunsamlegur pakki. Öryggisverðir sendiráðsins veittu manninum athygli fyrir utan bygginguna en hann virtist ringlaður. 25.7.2006 10:45
Starfsmenn Rauða krossins segjast hafa orðið fyrir árásum Starfsmenn líbanska Rauða krossins segja Ísraelsher hafa gert loftárásir á sjúkrabíla á þeirra vegum í Suður-Líbanon á sunnudag. AP fréttastofan komst yfir myndir sem starfsmenn Rauða krossins tóku af tveimur sjúkrabílum sínum sem þeir segja hafa eyðilagst í árásinni. 25.7.2006 10:19
Leiðtogar Serba og Albana funda í Vín Viðræður milli serbneskra og albanskra leiðtoga um framtíð Kosovo báru lítinn árangur á fundi leiðtoganna í Vín í Austurríki í gær. Fundurinn var haldinn fyrir tilstillan Sameinuðu þjóðanna og miðast viðræðurnar við að leysa framtíð Kosovo héraðs fyrir lok ársins. 25.7.2006 08:30
Egeland vill koma á vopnahléi milli Ísrael og Líbanon Jan Egeland, yfirmaður neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir nauðsynlegt að koma á vopnahléi milli Ísraela og Líbanon. Hann kom til Ísrael í dag í þeim tilgangi að reyna að leita leiða til að koma hjálparaðstoð til þeirra líbanskra borgara sem eru fastir mitt átökunum á milli hersveita Ísraela og Hizbollah. 25.7.2006 08:14
Kærði sjálfan sig til lögreglu Tvítugur norskur ökumaður tók upp á því aðfaranótt sunnudags að hringja í lögreglu og tilkynna að hann æki undir áhrifum áfengis. Að því loknu beið hann í bílnum eftir lögreglu. Maðurinn var einnig með útrunnið ökuskírteini og á óskráðum bíl. 25.7.2006 08:00
Tuttugu og tveir látast vegna hitabylgju Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi. 25.7.2006 08:00
Mótmæli fyrir utan ísraelska sendiráðið í París Um hundrað og fimmtíu manns mótmæltu innrás Ísraela í Líbanon fyrir utan ísraelska sendiráðið í París höfuðborg Frakklands í gær. Mótmælin fóru friðsamlega fram. 25.7.2006 07:53
Litlar líkur á samkomulagi Forystumenn Serbíu og albanskra íbúa í Kosovo hittust í gær í Vínarborg í Austurríki til þess að finna lausn á ágreiningi þeirra um framtíð Kosovo. Líkur á samkomulagi þykja þó litlar. 25.7.2006 07:45
Rice fundar með Olmert í dag Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú komin til Ísraels en hún hóf ferð sína um Mið-Austurlönd í gær í Beirút, höfuðborg Líbanons. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax. 25.7.2006 07:30
Kynlíf veldur vandræðum Sífellt fleiri dönsk pör kjósa að flytja kynlífið úr svefnherberginu út á sólarstrendur landsins yfir sumartímann en sífellt fjölgar kvörtunum sem lögregla fær vegna fólks er stundar kynlíf á almenningsströndum fyrir allra sjónum. 25.7.2006 07:30
Rice á stormasömum fundi Condoleezza Rice kynnti ráðamönnum í Líbanon í gær tillögur um að líbanskar og alþjóðlegar hersveitir gæti friðar eftir að vopnahlé kemst á. Hizbollah sýnir hugmyndum um vopnahlé engan áhuga. 25.7.2006 07:30
Hundruð mót-mælenda áreitt Meira en 500 manns, sem mótmæltu leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Pétursborg í síðasta mánuði, urðu fyrir margvíslegu áreiti af hálfu rússnesku lögreglunnar. 25.7.2006 07:00
Skilyrði Bandaríkjamanna óásættanlega Yfirmaður viðskiptamála hjá Evrópusambandinu segir Bandaríkjamenn ábyrga fyrir því að Doha-samningaviðræðurnar skuli hafa runnið út í sandinn enn á ný. Hann segir skilyrði sem Bandaríkjamenn settu fyrir því að lækka innflutningstolla á landbúnaðarafurðum vera algjörlega óásættanleg. Framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar segir nú fullvíst að samningalotan muni ekki klárast í ár eins og flestir höfðu vonast til. 24.7.2006 22:32
Hitabylgja veldur dauða Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi. 24.7.2006 22:26
Sómalar mótmæla veru Eþíópíumanna Yfir 5000 manns söfnuðust saman í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í dag til að mótmæla veru eþíópísks herliðs í landinu. 24.7.2006 21:00
Óvænt heimsókn Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf ferð sína um Mið-Austurlönd óvænt í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Þar ræddi hún við ráðamenn. Rice heldur síðan til Ísraels. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax. 24.7.2006 19:03
Líðan Sharon fer versnandi Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Tel Aviv í morgun en líðan hans hefur farið stöðugt versnandi um liðna helgi. 24.7.2006 13:30
Búið að ráða um 100 starfsmenn Undirbúningur gengur vel fyrir útkomu Nyhedsavisen í Danmörku. Svenn Dam, forstjóri 365 media Scandinavia, segir að fyrsta blaðið muni koma út þegar keppninautar blaðsins eiga síst von á því. 24.7.2006 12:15
Rice fundar með ráðamönnum Ísraels í dag Ísraelsher telur sig þurfa minnst viku í viðbót til að ljúka sókn sinni gegn skæruliðum Hizbollah áður en komist verði að samkomulagi til að binda enda á átök í Líbanon. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til átakasvæðisins í dag til fundar með ráðamönnum í Ísrael. 24.7.2006 12:00