Fleiri fréttir

Rússar skora á Írana að láta af kjarnorkuvinnslu

Íranar hafa færst skrefi nær atómsprengjunni eftir að þeir tilkynntu í gær að þeim hefði tekist að auðga úran. Rússar skoruðu á Írana í morgun að láta af kjarnorkuvinnslu sinni.

Myndar líklega ekki ríkisstjórn fyrr en um miðjan maí

Romando Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á Ítalíu, segist líklega ekki getað myndað nýja ríkisstjórn fyrr en um miðjan maí þegar nýr forseti landsins hefur verið kosinn. Hann hafnar algjörlega tillögu Silvios Berlusconi, forsætisráðherra og leiðtoga hægrimanna, um myndun samsteypustjórnar.

Áframhaldandi árásir í Bagdad

Þrír óbreyttir borgarar og einn lögreglumaður létust þegar sprengja sprakk nærri lögreglubíl í norðurhluta Bagdad-borgar í morgun. Þá særðust þrír lögreglumenn til viðbótar og einn vegfarandi.

57 manns féllu í sjálfsmorðssprengjuárás

Að minnsta kosti fimmtíu og sjö manns féllu þegar tvær sjálfsmorðssprengjuárásir voru gerðar í suðurhluta Pakistans á mánudag. Fjöldi súnnía var saman kominn til bænastundar þegar árásirnar voru gerðar. Þá særðust fjölmargir í árásunum og er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Hryðjuverkaárásum hefur fjölgað mikið í Pakistan síðan landið gerðist bandamaður Bandaríkjanna eftir árásirnar á New York og Washington þann 11. september árið 2001.

Prodi hafnar tillögu Berlusconis

Romano Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á Ítalíu, hafnaði í gær tillögu Silvios Berlusconis, forsætisráðherra og leiðtoga fylkingar hægrimanna, um myndun samsteypustjórnar. Berlusconi hefur neitað að játa sig sigraðan fyrr en atkvæði hafa verið endurtalin en vinstri fylking Prodis hlaut meirihluta í báðum deildum þingsins. Munurinn gæti þó ekki hafa verið minni í efri deildinni

Íranar farnir að auðga úran

Íranar eru farnir að auðga úran til framleiðslu á kjarnorkueldsneyti fyrir raforkuver landsins. Forseti landsins staðfesti þetta í sjónvarpsávarpi í gær. Donald Rumsfeld, varnarmálráðherra Bandaríkjanna, sagði Írana vera á rangri leið og leitað yrði allra leiða til að stöðva þá í áætlunum sínum.

Kína gerir tilslakanir gagnvart Bandaríkjunum

Kína hefur gert nokkrar viðskiptatilslakanir gagnvart Bandaríkjunum nú skömmu áður en að forseti landsins, Hu Jintao, heimsækir Bandaríkin í næstu viku. Yfirvöld í Peking hafa afnumið innflutningsbann á bandarísku nautakjöti og gert bandarískum fyrirtækjum auðveldara að bjóða í samninga á vegum ríkissins.

Sýkti svanurinn ef til vill á leið til Íslands

Svanurinn, sem fannst dauður í Skotlandi á dögunum, og var síðar greindur með fuglaflensuveiru af gerðinni H5N1, var ef til vill á leið til Íslands að sögn Martins Fowlie, hjá breska fuglafræðifélaginu. Frá þessu greinir fréttastofan BBC. Um var að ræða álft en ekki hnúðsvan eins og haldið var fram í fyrstu.

Staðráðnir í halda áfram auðgun úrans

Íran hefur nú bæst í hóp þeirra þjóða sem hafa yfir kjarnorkutækni að ráða og Íranar eru staðráðnir í að halda áfram auðgun úrans. Þetta sagði Íransforseti í dag. Bandaríkjastjórn segir að ef fram fari sem horfi þurfi að ræða næstu skref í kjarnorkudeilunni í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Danska sendiráðið í Damaskus opnar á ný

Danska sendiráðið í Damaskus, höfuðborg Sýrlands hefur verið opnað á ný. Á heimasíðu danska ríkisútvarpsins segir að farið verði í að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi í Sýrlandi sem fyrst. Starfsemi sendiráðsins hefur legið niðri síðan sendiráðinu var lokað í febrúar þegar deilan um múhamesðteikningarnar stóð sem hæst.

Berlusconi vill ríkisstjórn olívubandalags og hægri flokka

Romano Prodi lýsti í dag yfir sigri vinstrimanna í þingkosningunum á Ítalíu en Silvio Berlusconi forsætisráðherra fer fram á endurtalningu. Hann leggur einnig til að fylkingarnar tvær sameinist í stórri ríkisstjórn sem allir landsmenn geti sætt sig við. Miðað við fyrstu viðbrögð úr herbúðum Prodis verður að teljast ólíklegt að tillaga Berlusconis verði að veruleika.

Íran í hóp með kjarnorkuvæddum ríkjum

Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, tilkynnti í dag að Íran hefði bæst í hóp þeirra þjóða sem hefðu yfir kjarnorkutækni að ráða. Hann sagði Írana staðráðna í að hefja auðgun úrans á sama stigi og þær þjóðir sem nýti sér kjarnorku. Talsmaður Bush Bandaríkjaforseta sagði málið ekki taka rétta stefnu og ef fram haldi sem horfi verið bandarísk yfirvöld að ræða næstu skref við þær þjóðir sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Berlusconi segir engan geta hrósað sigri

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi bandalags hægriflokka, segir engan flokk geta hrósað sigri í þingkosningunum sem fóru fram í gær og fyrradag. Hann segist aðeins sætta sig við sigur ólívubandalags Romanos Prodis eftir að búið verði að fara yfir atkvæðaseðla.

Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn

Romano Prodi, leiðtogi ólívubandalags, fagnaði í morgun sigri eftir að ljóst var að mið- og vinstriflokkarnir að baki honum hefðu náð meirihluta í eftir og neðri deild ítalska þingsins. Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn þrátt fyrir að talningu atkvæða sé formlega ekki lokið og Silvio Berluscon, forsætisráðherra, og leiðtogi bandalags hægri flokka, hafi ekki játað sig sigraðann.

Olmert tekur formlega við

Ríkisstjórn Ísraels hefur formlega bundið enda á forsætisráðherratíð Ariels Sharons og úrskurðað hann varanlega ófæran um að gegna embættinu. Þetta var einróma niðurstaða ráðherra í stjórninni og tekur Ehud Olmert því við embættinu en hann hefur verið starfandi forsætisráðherra frá því Sharon fékk alvarlegt heilablóðfall í byrjun árs.

Minnst 40 féllu í sprengjuárás í Pakistan

Að minnsta kosti 40 féllu og fjölmargir særðust þegar öflug sprengja sprakk í garði í hafnarborginni Karachi í Pakistan í dag. Múslimar höfðu safnast þar saman til að fagna fæðingardegi Múhameðs spámanns.

Ráðlagt að sniðganga fundi með Hamas-liðum

Sameinuðu þjóðirnar hafa ráðlagt yfirmönnum hjálparsamtaka á þeirra vegum að sniðganga fundi með stjórnmálaleiðtogum Hamas-samtakanna. Þeir er einnig ráðið frá því að eiga samskipti við forystumenn palestínsku heimastjórnarinnar sem Hamas-liðarnir fara fyrir.

29 ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd

29 menn voru í dag ákærðir fyrir aðild að sprengjuárásunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem urðu hátt í 200 manns að bana. Rúmlega 1700 manns særðust í hryðjuverkaárásinni en herskáuum múslimum hefur verið kennt um.

Prodi fagnar sigri

talskir stjórnmálamenn eru búnir að vera í sannkallaðri rússíbanaferð í nótt. Eftir að Romano Prodi hafði þegar fagnað sigri í gærkvöldi, missti Ólívubandalag hans meirihlutann í öldungadeildinni. Síðustu atkvæðin utan úr heimi færðu því meirihlutann aftur, en tæpara getur það ekki staðið.

Ítalska lögreglan handtók í morgun yfirmann mafíunnar

Ítalska lögreglan handtók í morgun Bernardo Provenzano yfirmann mafíunnar á Sikiley. Hann hafði verið á flótta í meira en fjörutíu ár, en þrátt fyrir ítarlega leit tókst lögreglunni ekki að hafa hendur í hári hans fyrr en nú.

Vill ekki verða forseti Frakklands

Dominique du Villepin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði engan áhuga á að verða forseti landsins eins og haldið hefur verið fram. Þá sagðist hann ekki vera fallinn í ónáð hjá Jacques Chirac forseta landsins í kjölfar umdeildrar atvinnulöggjafar stjórnarinnar sem dregin var til baka vegna mikillar óánægju námsmanna og verkalýðsfélaga.

Krefjast úrbóta í málefnum innflytjenda

Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælagöngum víða um Bandaríkin í gær og kröfðust úrbóta í málefnum innflytjenda. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig taka skal á þessu máli en talið er að á milli ellefu til þráttán milljónir ólöglegra innflytjenda búi í landinu. Í síðustu viku benti margt til að öldungadeild Bandaríkjaþings hefði náð samkomulagi um nýja tillögu

Fyrrum forstjóri Enron segist saklaus

Jeffrey Skilling, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri bandaríska orkusölufyrirtækisins Enron, lýsti sig saklausan er hann bar vitni við réttarhöldin í máli sínu og Kenneths Lays, fyrrverandi forstjóra Enron, í Houston í gær. Skilling og Lay eru ákærðir fyrir að hafa leynt raunverulegri fjárhagsstöðu fyrirtækisins fyrir fjárfestum áður en það varð gjaldþrota árið 2001. Skilling sagði í gær að hann myndi berjast fyrir sakleysi sínu til dauðadags.

Prodi fagnar sigri

Miðvinstri-fylkingin, undir forystu Romanos Prodis, sigraði í þingkosningunum á Ítalíu sem fram fóru á sunnudag og í gær. Fylkingin fékk til neðri deildarinnar 49,8 prósent atkvæða en hægri fylking Berlusconis forsætisráðherra fékk 49,7 prósent. Munurinn var því einungis 0,07 prósent eða um 25 þúsund.

Pólitísk framtíð forsætisráðherra Frakklands óráðin

Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique de Villepin, forsætisráðherra, þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg.

Bush vísar fréttum á bug

Bush Bandaríkjaforseti vísar alfarið á bug fréttum í fjölmiðlum um nýliðna helgi þess efnis að Bandaríkjamenn ætli að ráðast gegn hernaðarlegum skotmörkum í Íran með kjarnorkuvopnum. Hann segir bandarísk stjórnvöld stefna að því að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran.

Má vart á milli sjá

Lokaspretturinn í ítölsku þingkosningunum hefur verið hörkuspennandi en svo virðist sem stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, ætli að halda naumum meirihluta í efri deild þingsins en missa hann naumlega í neðri deild. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta.

Óvíst hverjir fá meirihluta í ítölsku þingkosningunum

Allt stefni í hörkuspennandi lokasprett í ítölsku þingkosningunum en fyrstu tölur benda til þess að stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta.

Chirac skarst í leikinn

Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique du Villepin forsætisráðherra þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg.

Vísa orðum Hersh á bug

Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu.

ESB stöðvar fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í dag formlega að stöðva tímabundið fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna. Fram kemur í tilkynningu að með því vilji sambandsríkin þrýsta á að stjórnin, undir forystu Hamas-samtakanna, viðurkenni Ísraelsríki, stöðvi ofsamenn í sínum röðum og staðfesti þau friðarsamkomulög sem gerð hafi verið.

Gífurleg flóð í Serbíu

Serbar búa sig undir það að vatnshæð í Dóná verði í dag sú mesta sem mælst hefur í aldarfjórðung. Gríðarlega hefur flætt í landinu síðasta hálfa mánuðinn sökum mikillar úrkomu og asahláku.

Talið að 120 manns hafi drukknað

Talið er að allt að 120 manns hafi látist er bát hvolfdi á vatninu Volta í Ghana í Vestur-Afríku á laugardag. Í það minnsta 150 manns voru um borð og var þrjátíu þeirra bjargað. Báturinn hefur enn ekki fundist en björgunarmenn leita nú að þeim sem kynnu að hafa lifað slysið af.

Stjórn Berlusconis líklega fallin

Kjörstöðum á Ítalíu var lokað fyrir nokkrum mínútum og benda útgönguspár til að ólívubandalag Romano Prodis hafi nauma forystu á hægrifylkingu Silvio Berlusconis forsætisráðherra. Stjórn Berlusconis virðist með öðrum orðum fallin ef marka má þessar spár.

Kosið að nýju í Perú

Allt útlit er fyrir að kjósa þurfi að nýju í Perú þar sem enginn frambjóðendanna í forsetakosningum landsins fékk meirihluta atkvæða. Það er þjóðernissinninn og fyrrum yfirmaður í her Perú, Ollanta Humala, sem leiðir naumlega eftir fyrstu umferð forsetakosninganna.

Chirac dregur atvinnulöggjöfina til baka

Jacques Chirac, Frakklandsforseti, hefur tilkynnt að nýlegar breytingar á atvinnulöggjöf verði dregnar til baka. Breytingarnar hafa valdið miklum mótmælum í Frakklandi á undanförnum vikum, en nú segir forsetinn að lagðar verði fram nýjar áætlanir sem leysa eiga atvinnuvanda ungs fólks.

Kröftug sprenging á sjúkrahúsi í Kína

Í það minnsta 17 fórust og sjö slösuðust þegar kröftug sprenging varð á sjúkrahúsi í Shanxi héraði í norðurhluta Kína í gær. Sprenginin varð í bílageymslu sjúkrahússins og olli skemmdum á nærliggjandi byggingum. 17 lík hafa fundist en björgunarstarf stendur enn yfir og talið er að fleiri lík muni finnast við leit í dag. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni.

Alexander Lukashenko í ferðabanni

Alexander Lukashenko forseti Hvíta-Rússlands má ekki ferðast til landa innan Evrópusambandsins samkvæmt banni sem sambandið setti á í dag.

Slösuðust þegar svalir hrundu

Sex manns slösuðust á Lálandi í Danmörku í morgun þegar svalir sem fólkið stóð á hrundu til jarðar. Fólkið sem var statt á námskeiði hafði brugðið sér út á svalirnar til að reykja þegar óhappið varð. Það var flutt á slysadeild og mun ekkert þeirra vera alvarlega slasað.

Allt að hálf milljón manna mótmæla

Allt að hálf milljón manna hvöttu yfirvöld í mótmælagöngum í nokkrum bandarískum borgum í gær til að viðurkenna þær ellefu milljónir ólöglegra innflytjenda sem búa í landinu sem fullgilda borgara.

Heimsmet í páskaeggjaleit

Rúmlega tíuþúsund manns, aðallega börn, tóku forskot á páskasæluna og tóku þátt í heimsins stærstu páskaeggjaleit í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Rúmlega þrjúhundruð þúsund egg höfðu verið falin í Stone Mountain Park og innihéldu þau flest sælgæti en í rúmlega fjögur þúsundum þeirra voru ýmis verðlaun eins og DVD-diskar og aðgangsmiðar að leikjagörðum. Páskaeggjaleitin í gær sló fyrra heimsmet Rockfords í Illinois en þá voru falin 292.686 egg.

Mótmæla valdatöku Gyanendra

Mótmæli gegn konungi Nepals, Gyanendra standa enn yfir. Yfir helgina skutu hermenn tvo mótmælendur til bana en konungur landsins lagði á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu og skipaði hermönnum sínum að skjóta alla sem ekki virtu bannið. Þúsundir hafa mótmælt ólýðræðislegri valdatöku Gyanendra fyrir 14 mánuðum.

Átti sex börn með föður sínum

Karlmaður í Þýskalandi á nú yfir höfði sér 15 ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega í rúm þrjátíu. Maðurinn býr ásamt fjölskyldu sinni á bóndabæ og lengst af héldu nágrannarnir að þar færi venjuleg fjölskylda en á heimilinu bjuggu tólf börn. Nú hefur elsta dóttir bóndans komið fram og sagt föður sinn hafa misnotað sig frá níu ára aldri og að saman eigi þau sex börn.

Sjá næstu 50 fréttir