Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfirgengilegur hugtakaruglingur að kalla þrettándaskessuna ofbeldishótun Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nú bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, segir yfirgengilegan hugtakarugling að kalla nafnbót þrettándaskessunnar í Eyjum rasisma eða ofbeldishótun. Hann segir athæfið skýrlega hafa verið dómgreindarlaust smekkleysi en ekki megi gengisfella hugtökin. Sema Erla Serdar segir Páli að líta sér nær. 13.1.2023 19:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði. 13.1.2023 18:02
Skerðing á Akureyri þar sem gengur illa að fá fólk til starfa Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Valkvæðum skurðaðgerðum verður fækkað tímabundið meðal annars til að létta á álagi á gjörgæsludeild. Þetta kemur fram í pistli Hildigunnar Svavarsdóttur forstjóra á vefsíðu stofnunarinnar. 13.1.2023 16:23
Erfiðast að skyldfólkið hafi komið skepnunum fyrir kattarnef Guðmunda Tyrfingsdóttir bóndi í Lækjartúni í Ásahreppi segir erfiðast af öllu að skyldfólk sitt standi á bak við það að allir gripir á bænum hafi verið aflífaðir. Nágrannar í sveitinni segjast hafa fengið símtöl þess efnis að ekki ætti að hjálpa Guðmundu með búskapinn eftir að hún fór úr axlarlið í desember og var flutt á sjúkrahús. 13.1.2023 15:57
Segir að samráð hefði mátt vera meira en flóttamennirnir verði áfram í Grindavík Flóttafólk, sem Vinnumálastofnun hefur komið fyrir á hótelinu Festi í Grindavík, verður þar áfram. Bæjarstjórn Grindavíkur gagnrýndi stofnunina fyrir að koma fólkinu þar fyrir í gær og deildi á um hvort stofnunin hafi haft heimild til að koma fólkinu þar fyrir. Forstjóri Vinnumálastofnunar fundaði með Bæjarráði í morgun og segir hann hafa verið farsælan. 13.1.2023 14:07
Tveir sóttu um embætti varadómanda við Endurupptökudóm eftir aðra atrennu Tveir sóttu um embætti varadómanda við Endurupptökudóm, aðeins er um eina stöðu að ræða. 13.1.2023 14:00
Ekki gerð refsing vegna líkamsárásar á sáttafundi Héraðsdómur Reykjaness hefur sakfellt karlmann vegna líkamsárásar á sérstökum sáttafundi þar sem hann réðst á annan mann sem átti að hafa áreitt ólögráða dóttur ákærða ítrekað og kynferðislega. Manninum var ekki gerð sérstök refsing í málinu. 13.1.2023 13:30
Afpöntuðu skíðaferðirnar fara fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir þrjú mál sem tengjast endurgreiðslu afpantaðra skíðaferða vegna Covid-19. Dómstóllinn telur að málin geti haft fordæmisgildi um rétt til endurgreiðslu vegna afpantaðra pakkaferða. 13.1.2023 13:21
Guðni forseti sér möguleika á verðlaunapalli Forseti Íslands er sannfærður um að íslenska landsliðið í handbolta eigi góðan möguleika á að komast á verðlaunapall á HM í Svíþjóð. Hann stefnir á að fara á mótið á einhverjum tímapunkti þess. 13.1.2023 12:31
Sviptu veikan bónda á Suðurlandi öllum búfénaði og slátruðu Matvælastofnun hefur aflífað búfénað bónda á Suðurlandi í kjölfar vörslusviptingar. Um er að ræða nautgripi, hross, sauðfé og hænur. 13.1.2023 12:26
Sigurður svo öflugur að ekki hafi verið tilefni til að auglýsa starfið Heilbrigðisráðherra segist fylgja þeirri reglu að auglýsa í opinber störf en að í tilviki Sigurðar Helga Helgasonar, nýskipaðs forstjóra Sjúkratrygginga, sé hann svo öflugur stjórnandi að ekki hafi verið talin ástæða til að auglýsa stöðuna. 13.1.2023 12:04
Íbúar á Laugarvatni uggandi að setja eigi hælisleitendur í heilsuspillandi húsnæði Vinnumálastofnun hyggst hýsa tugi hælisleitenda á heimavist Háskóla Íslands á Laugarvatni, þrátt fyrir að heilbrigðiseftirlitið hafi varað við að húsnæðið geti verið heilsuspillandi og brunavarnir ekki í lagi. Sveitarstjóri segir það stóran bita fyrir lítið sveitarfélag að taka á móti tugum manna á einu bretti. 13.1.2023 12:00
Helgi Jensson hefur störf sem lögreglustjóri á Vestfjörðum Helgi Jensson hefur hafið störf sem lögreglustjóri á Vestfjörðum. Hann er skipaður í starfið frá 1. janúar 2013 en tilkynning var gefin út um skipunina fyrir jól, þar sem greint var frá því að hann hefði verið valinn úr hópi sex umsækjenda. 13.1.2023 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um Hnútuvirkjun en framkvæmdaleyfi hennar var fellt úr gildi á dögunum og því óljóst um framhaldið. 13.1.2023 11:37
Skilur sjónarmið náttúruverndarsinna en kallar eftir sanngirni Oddviti Skaftárhrepps segist fagna allri uppbyggingu í hreppnum hvort sem hún sé af hendi einkaaðila eða opinbers aðila. Framkvæmdaleyfi fyrir Hnútuvirkjun var felld úr gildi í vikunni og óvíst með framhaldið. 13.1.2023 11:21
Foreldrar bíða svara: Segja Safamýrina eins og lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að foreldrum barna í leikskólanum Hlíð var tilkynnt að flytja þyrfti starfsemina vegna myglu. Foreldrafélag leikskólans líkir leikskólaplássi í Safamýri, þar sem hluta barnanna var komið fyrir, við kalda lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum. Foreldrar óska eftir fundi með skóla- og frístundasviði ásamt eignaskrifstofu borgarinnar. 13.1.2023 11:18
Á leið úr landi í flýti eftir meint gróft kynferðisbrot Landsréttur hefur staðfest farbannsúrskurð yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um gróft kynferðisbrot aðfaranótt 2. janúar. Talið er að maðurinn hafi ætlað sér að yfirgefa landið í flýti eftir hið meinta brot. 13.1.2023 10:05
Eins manns rusl er annars manns safnmunur Skipulagsráð Akureyrar hefur ákveðið að hefja álagningu dagsekta vegna umgengni á lóðinni að Sjafnarnesi 2. Álagning dagsekta mun hefjast eftir þrjá mánuði verði ekki bætt úr umgengni á svæðinu. Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar segir bæinn frekar vilja hvetja til lagfæringa en að vera með kvaðir. Lóðarhafar segjast föst milli steins og sleggju. 13.1.2023 10:03
Faldi efnin í höfuðpúða, bakpoka og úlpu í farangrinum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt svissneskan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa reynt að smygla tæpu 1,4 kílóum af kókaíni til landsins. 13.1.2023 08:51
Sálfræðingar gagnrýna auglýsingu um „hugræna endurforritun“ „Það er mjög mikilvægt að almenningur sé gagnrýninn á það hver meðferðaraðilinn er. Og hann á að spyrja: Er meðferðaraðilinn heilbrigðisstarfsmaður? Því ef eitthvað fer illa og þér líður ef til vill verr eftir meðferð, þá er ekkert hægt að gera í því.“ 13.1.2023 07:49
Lærði fljótt að Sólveig „hafði rétt fyrir sér“ Þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Viðar Þorsteinsson, þáverandi framkvæmdastjóri, gengu út hjá félaginu í október 2021 fékk Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari Eflingar, óumbeðna kennslustund frá Viðari um það hvernig hún ætti að haga sér sem nýr varaformaður. 13.1.2023 07:15
Fyrsti Sunnlendingurinn loksins fæddur Fyrsta barnið, sem fæddist á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi á árinu 2023 kom í heiminn 8. janúar en það var stúlka og er hún því fyrsti Sunnlendingur þessa nýja árs. 13.1.2023 07:15
Ölvun og átök á veitingastöðum borgarinnar Lögregla var tvisvar kölluð til í miðborginni í gær vegna einstaklinga sem voru með vesen á veitingastöðum. Í öðru tilvikinu aðstoðaði lögregla við að vísa manni út vegna ölvunarástands og í hinu var öðrum manni fylgt út vegna „óspekta“. 13.1.2023 06:51
Mælir alls ekki með því að fólk prófi hugvíkkandi efni heima hjá sér Margir helstu vísindamenn, læknar og sérfræðingar á sviði hugvíkkandi efna héldu erindi á ráðstefnu um málefnið í dag. Rætt var um rannsóknir á efnum eins og MDMA, Sílósíbin, Ketamín og Ajúvaska og hvernig þau hafi gagnast við meðferð á geðröskunum. Geðlæknir segir rannsóknir lofa góðu en mælir gegn notkun efnanna. 12.1.2023 21:22
„Við verðum aldrei ánægð nema við fáum að vera öll saman“ Fastagestir í Vin, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, segja áfangasigur hafa unnist í gær þegar ákveðið var að halda starfseminni áfram út árið. Þakklæti var efst í huga gestanna þegar fréttastofa leit við í Vin í dag. 12.1.2023 21:01
Nýsköpunarverkefni ráðherra skjóti skökku við þegar minnka þarf kennslu Háskólaráðherra hefur úthlutað rúmum milljarði króna í 25 nýsköpunarverkefni hjá háskólum landsins. Stúdentar segja skjóta skökku við að miklum fjármunum sé varið í slík verkefni þegar háskólarnir ná ekki endum saman og geti ekki veitt stúdentum grunnþjónustu. 12.1.2023 20:30
Stefnir í aðgerðir Eflingar um mánaðamót Reikna má með að Efling kynni tillögur að verkfallsaðgerðum fljótlega upp úr helgi. Ef aðgerðirnar verða samþykktar í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna gætu þær fyrstu brostið á í kringum um næstu mánaðamót. 12.1.2023 19:50
Vilja loka húsnæði sem hýsir hælisleitendur Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu. 12.1.2023 19:30
Reyndi að svíkja út vörur með fölsuðum pappírum Lögreglu barst tilkynning fyrr í dag um mann sem reyndi að svíkja út vörur hjá fyrirtæki í Kópavogi með fölsuðum pappírum. 12.1.2023 18:52
Fjarlægja hið ægibjarta skilti og biðjast velvirðingar Flennistórt ljósaskilti verslunar 10-11 í Austurstræti er ólöglegt og verður fjarlægt eftir að kvartanir bárust vegna ljósmengunar. Lýsingarhönnuður telur að skerpa eigi á reglum um lýsingu í borgarlandinu. Skær auglýsingaskilti eigi ekki heima hvar sem er. 12.1.2023 18:47
Hjón fá þrjár milljónir frá Grindavíkurbæ eftir bílastæðadeilur Grindavíkurbæ hefur verið gert að greiða hjónum í bænum 3,4 milljónir króna vegna þrifa á heimili þeirra og tjóns á bíl, í kjölfar sandfoks frá bílastæði við íþróttamiðstöðina Hópið. Hjónin fóru fram á tæplega 30 milljónir vegna málsins. 12.1.2023 18:37
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti stöðvað starfsemina. Við fjöllum um málið. 12.1.2023 18:00
Sólarhringsopnun í neyðarskýlum vegna fimbulkulda Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar um helgina vegna veðurs. Mikill kuldi er í kortunum og frost nær tveggja staða tölu í Reykjavík samkvæmt spám. 12.1.2023 17:18
Biðja íbúa að leita í görðum og geymslum að Modestas Lögreglan á Vesturlandi biður íbúa í Borgarnesi og nágrenni að skoða sitt nærumhverfi vegna leitarinnar að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem saknað hefur verið síðan á laugardag. 12.1.2023 16:02
Telja Sigrúnu ekki hafa brotið siðareglur lögmanna Úrskurðarnefnd lögmanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður hafi í störfum sínum ekki gert á hlut Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, með háttsemi sem stríðir gegn lögum eða siðareglum lögmanna. 12.1.2023 15:35
Hyggst kæra manninn fyrir tilraun til manndráps Maðurinn sem varð fyrir því að gröfumaður frá fyrirtækinu Óskatak sturtaði úr fullri skóflu af snjó yfir sig er strætóbílstjóri. Hann segist slasaður eftir atvikið og hyggst kæra gröfumanninn fyrir tilraun til manndráps. 12.1.2023 15:08
Skipaður forstjóri Sjúkratrygginga án auglýsingar Sigurður Helgi Helgason, skrifstofustjóri skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hefur verið skipaður forstjóri Sjúkratryggingar. Þetta staðfestir Sigurður í samtali við Vísi og segist spenntur að taka við starfinu. Stofnunin heyrir undir heilbrigðisráðuneyti Willums Þórs Þórssonar. 12.1.2023 15:02
Nám í tölvuleikjagerð og netöryggi í kortunum Tuttugu og fimm samstarfsverkefni háskóla landsins fá styrki upp á samtals 1,2 milljarða króna. Þetta tilkynnti háskólaráðherra í morgun og segir hann mikla möguleika liggja í verkefnunum á borð við stofnun náms í tölvuleikjagerð og meistaranámi þvert á skóla. 12.1.2023 14:39
„Við höfum engan áhuga á því að sjá iðnað á þessu svæði“ Bæjarstjóri í Kópavogi segir einhug innan bæjarstjórnarinnar um að mótmæla harðlega áformum Garðbæinga varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðarmörkum bæjarfélaganna. Stefnt er að því að byggja upp atvinnu- og verksmiðjuhverfi sem staðsett verður nánast í bakgarði eins stærsta hverfis Kópavogs, á Rjúpnahæð. 12.1.2023 14:11
Hafa aldrei keyrt eins mikið af snjó í burtu í borginni Snjómokstur stendur enn yfir í Reykjavík en vonir eru bundnar við að honum verði að mestu lokið eftir helgi. Á þriðja tug vörubíla vinna nú að því að fjarlægja snjóskafla. Rekstrarstjóri Borgarlandsins segir þau aldrei hafa flutt eins mikinn snjó og hefur vinnan því tekið lengri tíma en vanalega. 12.1.2023 14:01
Hýsa hælisleitendur í Festi í óþökk bæjaryfirvalda Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Festi í Grindavík í óþökk bæjaryfirvalda en hótelstarfsemi var stöðvuð í húsinu síðastliðið vor vegna myglu. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir engum verða úthýst en furðar sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar. 12.1.2023 13:00
Leyfi afturkallað fyrir umdeildri virkjun í Skaftárhreppi Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi framkvæmdaleyfi Skaftárhrepps vegna Hnútuvirkjunar í Hverfisfljóti. Fimm náttúruverndarsamtök og hópur landeigenda á svæðinu kærðu leyfið til úrskurðanefndarinnar í júní í fyrra, meðal annars vegna brota á náttúruverndarlögum. 12.1.2023 12:38
Segir félagsmenn Eflingar hringja í hrönnum til að reyna að flýja „Það eru glóandi línur hér,“ segir Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags. Hún segir að margir tugir félagsmanna Eflingar hafi haft samband við Báruna í gær og í dag þar sem þeir leitast eftir því að skipta um stéttarfélag. Halldóra segir að sömu sögu sé að segja af stéttarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. 12.1.2023 11:49
Fjallabyggð mátti aflífa Kasper Ákvörðun Fjallabyggðar um að láta aflífa hundinn Kasper, eftir að hann beit mann, í sumar, var í samræmi við valdheimildir sveitarfélagsins. Eigendur Kaspers vildu að ákvörðun sveitarfélagsins um að aflífa Kasper yrði úrskurðuð ógild. 12.1.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið í Festi í Grindavík þar sem hælisleitendur hafa verið hýstir í óþökk bæjaryfirvalda sem segja húsið óíbúðarhæft sökum myglu. 12.1.2023 11:40