Fleiri
Banaslys á Djúpavogi Erlendur ferðamaður á sjötugsaldri lést á Djúpavogi í dag. 21.6.2022 17:21 Stal tæplega 20 þúsund lítrum af bensíni Karlmaður var í gær dæmdur í 90 daga skiloðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa fyrir stolið tæplega 20 þúsund lítrum lítrum af eldsneyti, að andvirði 3,6 milljónum króna. 21.6.2022 17:05 Fær ekki líftryggingu eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna þunglyndis Stefán Árnason hefur fengið synjun á umsókn um líftryggingu frá tveimur vátryggingafélögum. Þau hafa synjað umsóknum hans af þeim ástæðum einum að hann sé þunglyndur og hafi leitað sér hjálpar vegna þess. 21.6.2022 16:46 Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“ Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi. 21.6.2022 16:14 Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala. 21.6.2022 14:46 Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014. 21.6.2022 14:27 Mikil aðsókn í opna húsið Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við. 21.6.2022 14:04 Sjá næstu 50 fréttir
Metverðbólga og vextir á hraðri uppleið Verðbólga hefur ekki verið meiri í tólf ár og meginvextir Seðlabankans eru orðnir hærri en þeir voru áður en vaxtalækkunarferli bankans hófst fyrir þremur árum. Seðlabankastjóri og stjórnvöld leggja mikla áherslu á skynsama kjarasamninga í haust til að ná verðbólgunni niður. 22.6.2022 19:20
Beitti líklega riffli: „Guðs lifandi feginn að enginn hafi skaðast“ Sex ára barn var í bílnum sem skotið var á fyrir utan leikskóla í Hafnarfirði dag. Íbúi í húsi byssumannsins segist hafa verið skjálfandi hræddur en maðurinn notaði líklega riffil í árásinni. 22.6.2022 19:04
Hefur fulla trú á því að Efling sláist í hópinn Formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) segir að komið gæti til átaka á vinnumarkaði í vetur, verði kröfum verkalýðshreyfingarinnar um krónutöluhækkanir og lækkun á greiðslubyrði ekki mætt. Efling er ekki aðili að kröfugerð sambandsins sem afhent var Samtökum atvinnulífsins í morgun en formaður SGS hefur fulla trú á því að félagið sláist í hópinn. 22.6.2022 19:01
Segir mikilvægt í huga albönsku konunnar að engin önnur lendi í því sama Albönsk kona sem vísað var úr landi á níunda mánuði meðgöngu er létt yfir því að hafa fengið viðurkenningu frá íslenska ríkinu að á réttindum hennar hafi verið brotið. 22.6.2022 18:16
Varað við hálku í nótt á hæstu fjallvegum Hætt er við að hálka muni myndast á hæstu fjallvegum norðan- og vestanlands í nótt. 22.6.2022 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Umsátursástand myndaðist í Hafnarfirði í dag eftir að skotið var með riffli á feðga í bíl fyrir utan leikskóla. Árásarmaðurinn, sem er íbúi í fjölbýlishúsi við leikskólann, gaf sig fram nokkrum klukkutímum síðar. 22.6.2022 18:00
Hvalbátarnir rákust saman þegar dráttarbátur reyndist of kraftlítill Neyðarleg uppákoma varð í Reykjavíkurhöfn í dag þegar hvalbátar Hvals hf. voru að leggja frá bryggju til hvalveiða. Dráttarbátur Faxaflóahafna réð ekki við það verkefni að draga fyrri hvalbátinn, Hval 9, frá hinum bátnum, Hval 8, og missti hann frá sér. Það varð til þess að Hvalur 9 rakst bæði utan í Hval 8 sem og skuttogarann Sigurborgu SH. 22.6.2022 17:56
Markús hafi ekki verið vanhæfur í BK-málinu Hæstiréttur vísaði í dag frá máli Magnúsar Arnars Arngrímsssonar, sem kallað hefur verið BK-málið, en Endurupptökunefnd féllst á beiðni Magnúsar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, um að tveggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Hæstarétti árið 2015 yrði endurupptekinn. 22.6.2022 15:47
„Ég var mjög hrædd og óttaslegin“ Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41 þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, sagðist hafa orðið óörugg og óttasleginn vegna ástandsins sem skapaðist í morgun. Henni fannst skorta nægilega upplýsingagjöf frá lögreglunni en einu upplýsingarnar sem hún fékk um málið heyrði hún í útvarpinu. 22.6.2022 15:45
Ríkið greiðir óléttu konunni sem var vísað úr landi bætur Íslenska ríkið hefur viðurkennt bótaskyldu í máli albanskrar konu sem var vísað úr landi á níunda mánuði meðgöngu. Þetta staðfestir lögmaður konunnar í samtali við fréttastofu. 22.6.2022 15:39
Katrín segir engan tossalista hafa verið sendan til MDE Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir rétt hafa verið staðið að útnefningu dómaraefna til Mannréttindadómstóls Evrópu. Enginn tossalisti hafi verið sendur til dómstólsins. 22.6.2022 15:32
Var með barnið í bílnum þegar skotið var á hann Faðir og sex ára gamall sonur hans voru í öðrum bílanna sem skotið var á við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Lögreglan rannsakar skothríð sjötugs karlmanns á bílana sem tilraun til manndráps. 22.6.2022 15:25
Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins. 22.6.2022 15:09
Maður í bílnum sem skotið var á Lögreglan er sögð rannsaka skotárás á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í morgun sem tilraun til manndráps. Eigandi annars bílsins var inni í honum þegar karlmaður á sjötugsaldri skaut á hann. 22.6.2022 14:53
Auglýst að nýju eftir íslenskum dómurum við MDE Forsætisráðuneytið hefur auglýst eftir nýjum aðilum sem tilnefndir verða af Íslands hálfu í stað þeirra tveggja sem drógu umsókn sína til baka. 22.6.2022 14:50
„Það sér það hver maður að við landeigendur erum ekki að fara að greiða úr eigin vasa“ Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í gærkvöldi. Einn landeigenda segir mjög gott hljóð vera í hópnum og fundinn hafa gengið vel. Strax á föstudag hefst formlegt samstarf um að efla öryggi ferðamanna í Reynisfjöru. 22.6.2022 14:35
Öryggismál ekki í lagi þegar ferðamaður lést Öryggismál í Gleðivík á Djúpavogi eru til skoðunar eftir að erlendur ferðamaður varð fyrir lyftara og lést í gær. Samkvæmt heimamönnum hafði kaðall sem átti að aðskilja gangandi og akandi umferð meðfram ströndinni verið tekinn niður vegna framkvæmda og var því ekki til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær. 22.6.2022 13:41
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22.6.2022 13:34
Gæti stefnt í átök á vinnumarkaði Starfsgreinasamband Íslands afhenti fulltrúum Samtaka atvinnulífsins kröfugerð vegna komandi kjarasamninga í morgun. Formaður sambandsins segir eitt stærsta baráttumálið að létta á greiðslubyrði launafólks. Náist það ekki stefni í óefni á íslenskum vinnumarkaði. 22.6.2022 13:07
Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. 22.6.2022 12:36
Markmiðið að ná manninum út heilum á húfi Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögregla sé tilbúin að vera eins lengi og þarf við blokk við Miðvang í Hafnarfirði þar sem grunaður byssumaður er lokaður inni í íbúð. Markmiðið sé að ná manninum heilum á húfi út. 22.6.2022 12:25
„Hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér“ Skörp vaxtahækkun var nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgunni að sögn seðlabankastjóra en stýrvextir voru í dag hækkaðir um eitt prósentustig. Með þessu séu einnig send skýr skilaboð inn í komandi kjaraviðræður um að verðbólga verði ekki viðvarandi hér á landi. 22.6.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið sem verið hefur í norðurbæ Hafnarfjarðar síðan í morgun. 22.6.2022 11:36
Töskurnar fóru með út en komust ekki í hendur farþega Allur farangur sem farþegar tóku með sér í flug Icelandair til Amsterdam á mánudag fylgdi þeim út. Vegna manneklu á Schipol-flugvelli komst farangurinn hins vegar ekki til farþega að flugi loknu. 22.6.2022 11:32
Ingó áfrýjar til Landsréttar Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði. 22.6.2022 11:20
Umsátursástand eftir skotárás í Hafnarfirði Lögreglumenn reyna nú að ræða við karlmann á sjötugsaldri sem er grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl fyrir utan fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Vopnaðir sérsveitarmenn eru á vettvangi og mikil viðbúnaður en grunaði byssumaðurinn er í íbúð í blokkinni. 22.6.2022 09:29
Stjórnvöld hyggjast flokka öll gögn í öryggisflokka Í samráðsgátt stjórnvalda liggur nú skjal þar sem lögð eru drög að flokkkun gagna ríkisaðila í öryggisflokka. Flokkarnir segja til um hvers konar varnir og ráðstafanir þarf að viðhafa fyrir gögn í umræddum flokki en engin samræmd öryggisflokkun hefur verið viðhöfð þar til nú. 22.6.2022 07:44
„Hvað á að gera þegar þessir menn fara á eftirlaun?“ Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir þungt hljóð í heilbrigðisstarfsmönnum víða á landinu. Ástandið sé ekki síður erfitt þar heldur en á Landspítalanum. 22.6.2022 06:57
Sá ekki börnin koma aðvífandi á rafmagnshlaupahjólum Það var heldur rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt, fyrir utan tilkynningu sem barst um klukkan hálf ellefu þar sem greint var frá umferðarslysi í Kópavogi. 22.6.2022 06:41
Fátt um svör hjá Icelandair eftir að allur farangurinn týndist Farþegar flugsins FI506 á vegum Icelandair til Schiphol flugvallar í Hollandi hafa ekki enn fengið farangurinn sinn afhentan síðan þau lentu um hádegi síðastliðinn mánudag. Farþegar hafa lítil svör fengið frá Icelandair þrátt fyrir að hafa reynt að hafa samband símleiðis og með netspjalli. 21.6.2022 23:52
Anna Hildur endurkjörin formaður SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ nú fyrr í kvöld og Þráinn Farestveit varaformaður sömuleiðis. Núverandi stjórn félagasamtakanna hélt velli þrátt fyrir mótframboð. 368 einstaklingar sóttu fundinn og fór hann vel fram að sögn varaformanns. 21.6.2022 22:22
Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu. 21.6.2022 21:53
Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. 21.6.2022 21:30
„Þetta virðist vera stjórnlaust ástand“ Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn segir að ástandið á húsnæðismarkaði sé stjórnlaust. Hann vonast til þess að fyrstu aðgerðir til að flýta úthlutun lóða í borginni komist á koppinn í sumar. 21.6.2022 20:30
Nýr sóttvarnarlæknir vonast eftir meiri ró í embætti Guðrún Aspelund, nýr sóttvarnarlæknir mætti í Reykjavík síðdegis í dag. Guðrún er sérhæfð í almennum barnaskurðlækningum og vann á sóttvarnasviði áður en hún sótti um embætti sóttvarnarlæknis. Hún vonast eftir meiri ró í starfi en Þórólfur. 21.6.2022 19:49
Telur Íslendinga á undan öðrum þjóðum í greiningum á ADHD Formaður ADHD samtakanna fagnar því að rannsaka eigi tengsl geðrofa og örlyndis og örvandi ADHD-lyfja. Hann telur Íslendinga fimm árum á undan öðrum þjóðum þegar kemur að greiningum á ofvirkni og athyglisbresti. 21.6.2022 19:01
Holtavörðuheiðinni lokað vegna hjólhýsis Holtavörðuheiði var lokað í tvær klukkustundir í dag vegna umferðaróhapps. 21.6.2022 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sögulegar verðhækkanir hafa orðið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu síðasta árið. Íslandsbanki býst við að verð haldi áfram að hækka næstu mánuði og gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun á morgun. 21.6.2022 18:00
Stal tæplega 20 þúsund lítrum af bensíni Karlmaður var í gær dæmdur í 90 daga skiloðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa fyrir stolið tæplega 20 þúsund lítrum lítrum af eldsneyti, að andvirði 3,6 milljónum króna. 21.6.2022 17:05
Fær ekki líftryggingu eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna þunglyndis Stefán Árnason hefur fengið synjun á umsókn um líftryggingu frá tveimur vátryggingafélögum. Þau hafa synjað umsóknum hans af þeim ástæðum einum að hann sé þunglyndur og hafi leitað sér hjálpar vegna þess. 21.6.2022 16:46
Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“ Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi. 21.6.2022 16:14
Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala. 21.6.2022 14:46
Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014. 21.6.2022 14:27
Mikil aðsókn í opna húsið Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við. 21.6.2022 14:04