Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsætis- og dómsmálaráðuneyti vinna greinargerð um Hjalteyrarmálið Forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hafa tekið ákvörðun um að greinargerð verði unnin um það hvort og þá hvernig hægt verði að rannsaka mál þeirra barna sem vistuð voru á Hjalteyri á áttunda áratugi síðustu aldar. 24.11.2021 16:19
Afkoma ríkissjóðs 51 milljarði betri en áætlað var Afkoma ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins er neikvæð um 138 milljarða króna. Afkoman er þó talsvert betri en áætlanir, sem gerðar voru í upphafi árs, gerðu ráð fyrir eða 51 milljarði betri. 24.11.2021 14:42
Reiknað með að atkvæðagreiðslu um kjörbréf ljúki annað kvöld Enn liggur ekki fyrir hversu margar tillögur koma til atkvæðagreiðslu á Alþingi á morgun varðandi staðfestingu eða synjun kjörbréfa vegna alþingiskosninganna í lok september. Niðurstaða þingsins ræður miklu um hvenær ný ríkissjórn og stjórnarsáttmáli verða kynnt. 24.11.2021 13:27
Ungir Sjálfstæðismenn gagnrýna Svandísi og kalla eftir afléttingum hið fyrsta Samband ungra Sjálstæðismanna gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og hefur kallað eftir því að takmörkunum stjórnvalda vegna faraldurs kórónuveirunnar verði aflétt hið fyrsta. 24.11.2021 13:11
Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl. 24.11.2021 13:09
Getur enn brugðið til beggja vona þó bylgjan sé á hægri niðurleið Svo virðist sem fjórða bylgja kórónuveirunnar hér á landi sé á hægri niðurleið. Sóttvarnalæknir segir að enn geti þó brugðið til beggja vona. 24.11.2021 12:12
Skýrist væntanlega í dag hvernig stjórnvöld hyggjast rannsaka Hjalteyrarmálið Forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið vinna saman að því með hvaða hætti stjórnvöld geta komið að rannsókn á starfsemi vist-og meðferðarheimila þar sem grunur er um að börn hafi orðið fyrir ofbeldi. Það skýrist væntanlega í dag hver niðurstaðan verður. 24.11.2021 12:10
Krefjast farbanns yfir lækninum: Fékk nýverið endurnýjað takmarkað starfsleyfi Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á farbann yfir fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í starfi, sem hafi leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings, samkvæmt heimildum fréttastofu. 24.11.2021 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um mál læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en lögreglu grunar að andlát sex sjúklinga hafi borið að með saknæmum hætti. 24.11.2021 11:37
147 greindust með kórónuveiruna innanlands 147 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjötíu af þeim 147 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 48 prósent. 77 voru utan sóttkvíar, eða 52 prósent. 24.11.2021 10:49
Fyrstu laugargestirnir þurftu frá að hverfa í morgun Fastagestir Laugardalslaugar þurftu margir frá að hverfa snemma í morgun þar sem ekki var hægt að opna laugina vegna undirmönnunar starfsfólks. 24.11.2021 10:38
Leggja til að lausagöngugarður fyrir hunda verði á Klambratúni Meðal tillaga sem lagðar hafa verið fram af Reykjavíkurborg um hverfisskipulag Norðurmýrar, Holta og Hlíða er að breyta hluta af útivistarsvæðinu á Klambratúni í lausagöngugarð fyrir hunda. Enginn slíkur garður er í Reykjavík vestan Elliðaáa. 24.11.2021 10:35
Lögregla rannsakar sex andlát og mál fimm annarra sjúklinga á HSS Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur mögulegt að hafi borið að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga eru einnig í skoðun. 24.11.2021 10:32
Dýralæknafélagið fordæmir ómannúðlega meðferð á blóðmerum Ábyrgð dýralækna sem vinna við blóðtöku úr hryssum er skýr og þeim ber skylda til að hafa velferð dýranna í fyrirrúmi og stöðva blóðtökuna ef aðbúnaður og framkvæmd er ábótavant. Þá ber þeim að gera Matvælastofnun viðvart. 24.11.2021 10:02
Eldhamar GK 13 strandaði fyrir 30 árum: „Mikill harmleikur og áfall fyrir bæjarfélagið Grindavík“ Rétt rúm þrjátíu ár eru liðin frá því fimm sjómenn fórust er Eldhamar GK13 strandaði við Grindavík. Þann 22. nóvember 1991 strandaði skipið við Hópsnes fyrir utan Grindavík en mjög erfiðar aðstæður voru á slysstað. 24.11.2021 09:18
Sýknaður af kynferðislegri áreitni í Hrunalaug Karlmaður hefur verið sýknaður af kynferðislegri áreitni í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í apríl í fyrra strokið um bert bak og læri konu, reynt að toga hana til sín og strokið og haldið um rass hennar utanklæða í Hrunalaug í nágrenni við Flúðir. 24.11.2021 08:00
Hópsmit á sunnanverðum Vestfjörðum Þrettán eru smitaðir af Covid-19 á sunnanverðum Vestfjörðum, flestir á Patreksfirði. 24.11.2021 07:34
2,6 milljón skráð samskipti á heilsugæslustöðvunum árið 2020 Skráð samskipti heilsugæslustöðva árið 2020 voru 2,6 milljónir, eða 7 samskipti á hvern íbúa landsins. Um er að ræða töluverða fjölgun frá 2019, þegar skráð samskipti voru um 6 á hvern íbúa. 24.11.2021 07:05
Töldu sig verða gerð afturreka með áminningu Sú rannsókn sem fór fram á ásökunum læknanema á Landspítalanum á hendur Björns Loga Þórarinssonar sérfræðilæknis um kynferðislega áreitni er sú ítarlegasta sem ráðist hefur verið í innan spítalans vegna áþekkra ásakana. 24.11.2021 07:01
Höfnuðu Heiðr en samþykktu Ullr með tilvísun í Eddukvæði Mannanafnanefnd hefur hafnað því að heimila eiginnöfnin Geitin, Frostsólarún, Heiðr og Winter. Hún hefur hins vegnar lagt blessun sína yfir eiginnöfnin Erykah, Ullr, Leonardo, Gottlieb, Gunni, Éljagrímur, Ítalía, Arún, Lílú og Lán. 24.11.2021 06:36
Þjóðin klofin vegna Instagram-færslu en Gísli er efstur á blaði hjá Katrínu Hvort er mikilvægara í menntun hvers manns, fjármálalæsi eða Gísla saga Súrssonar? Þetta er alls ekki á hreinu, og þegar frumkvöðlarnir hjá Fortuna Invest veltu þessu álitamáli upp á Instagram-síðu sinni um helgina sprakk það í loft upp á samfélagsmiðlum. 23.11.2021 23:00
Alvarlegast hvernig staðið var að vörslu kjörgagna Alvarlegasti annmarkinn á framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi þann 25. september lýtur að vörslu kjörgagna á meðan yfirkjörstjórn yfirgaf talningarstað daginn eftir kjördag. Þetta er niðurstaða undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa sem lauk störfum í gær. 23.11.2021 21:33
Fóru um borð í flugvélina án leyfis og fengu lögreglufylgd út Lögreglan á Suðurnesjum fór í kvöld um borð í flugvél ungverska flugfélagsins Wizz Air á Keflavíkurflugvelli og fjarlægði þrjá menn úr vélinni. Mennirnir höfðu farið í vélina þrátt fyrir að hafa verið meinaður aðgangur um borð af áhöfn hennar. 23.11.2021 21:18
Vonast til að ný ríkisstjórn verði kynnt í næstu viku Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist sjá fyrir sér að hægt verði að kynna nýja ríkisstjórn í næstu viku, að því gefnu að tímaáætlun um afgreiðslu tillagna kjörbréfanefndar, um hvort staðfesta skuli kjörbréf þingmanna gefin út á grundvelli endurtalningar í Norðvesturkjördæmi, standist. 23.11.2021 21:02
Hægt að finna fyrir töfrunum á ævintýralegu skólabókasafni Krakkar í Seljaskóla eru himinlifandi með bókasafnsfræðinginn sinn sem leggur allt í skreytingar fyrir hátíðirnar. Jólabókahornið kemur krökkunum í jólaskap og eykur lestraráhuga í leiðinni. 23.11.2021 20:10
Meirihluti að myndast í kjörbréfanefnd en minnihlutinn vil ganga mislangt Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í kjörbréfanefnd Alþingis telja tilefni til ógildingar Alþingiskosninganna í Norðvesturkjördæmi, og þar með uppkosningar, vegna ágalla á framkvæmd kosninganna. Fulltrúi Pírata í nefndinni gengur lengra og telur að kjósa eigi aftur á landinu öllu. 23.11.2021 20:00
Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi. 23.11.2021 19:31
Óháðir aðilar hafi hreinsað bæjarstjórann af eineltisásökunum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir endanlega og afdráttarlausa niðurstöðu óháðra og löggildra fagaðila liggja fyrir, um að ásakanir hafnsögumanns í Vestmannaeyjum á hendur henni um einelti hafi ekki átt við rök að styðjast. 23.11.2021 19:07
Hátt í fjörutíu lítrar teknir úr hverri hryssu Hátt í fjörutíu lítrar af blóði eru teknir úr hryssum á hverju blóðtökutímabili. Allt að fimm lítrar eru teknir í hvert skipti, sem samsvarar um fimmtán til tuttugu prósentum af öllu blóðmagni hestsins. Fyrir þessa fimm lítra fást tíu þúsund krónur eða áttatíu þúsund krónur fyrir fjörutíu lítra. 23.11.2021 18:12
Vonar að nýju þingi takist betur til við stjórnarskrárbreytingar Forseti Íslands vonar að nýju þingi takist betur til við breytingar á stjórnarskránni en á síðasta kjörtímabili. Meirihluti fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu í Norðvesturkjördæmi verði samþykkt. 23.11.2021 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forseti Íslands vonar að nýju þingi takist betur til við breytingar á stjórnarskránni en á síðasta kjörtímabili. Meirihluti fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu í Norðvesturkjördæmi verði samþykkt. 23.11.2021 18:01
Mánaðarlangt skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa rassskellt dyravörð Karlmaður hefur verið dæmdur í mánaðarlangt skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið á rass dyravarðar fyrir utan skemmtistaðinn Lebowski í Reykjavík og reynt að kyssa hana á kinnina. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn í málinu. 23.11.2021 16:26
Meirihluti telur ekki forsendur til ógildingar kosninganna Formaður kjörbréfanefndar segir að meirihluti nefndarmanna telji ekki forsendur til að ógilda kosningarnar í Norðvesturkjördæmi. Ekkert hafi komið fram um að gallar hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Fulltrúi Pírata skrifar ekki undir greinargerð undirbúningskjörnefndar sem rannsakaði málið. 23.11.2021 16:07
„Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23.11.2021 15:32
„Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatti þingmenn til dáða er hann ávarpaði Alþingi við setningu þings í dag. Ræddi hann viðbrögð íslensk samfélags við kórónuveirufaraldrinum auk þess sem hann bað þingmenn að ræða kosti þess og galla að halda næstu Alþingiskosningar að hausti til. Þá sagðist hann vonast til þess að betur gengi nú að ráðast í umbætur á stjórnarskránni. 23.11.2021 15:11
Gengur hægt að ná bylgjunni niður vegna útbreiðslunnar Vegna mikillar útbreiðslu í samfélaginu mun ganga hægt að ná bylgunni niður segir sóttvarnalæknir. 194 greindust með kórónuveiruna í gær og um helmingur var í sóttkví. 23.11.2021 14:40
Bein útsending: Rætt við þingmenn í kjörbréfanefnd Alþingi kemur saman klukkan hálf tvö í dag eftir eitt lengsta þinghlé síðari ára. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerð sína vegna framkvæmdar kosninga í Norðvesturkjördæmi einnig í dag en reikna má með tveimur og jafnvel fleiri álitum frá nefndarfólki. 23.11.2021 14:39
Biður Loga Bergmann og aðra Stulla innilega afsökunar Guðni Þór Björnsson forritari hefur gefið sig fram sem höfundur forrits eða „scriptu“ sem gerði golfhópnum Stullunum og fleiri aðilum kleift að bóka rástíma með leifturhraða. 23.11.2021 14:32
Taka þurfi erfiðar ákvarðanir til að ná fram 370 milljóna hagræðingu Reiknað er með að rekstrarniðurstaða Akureyrarbæjar fyrir næsta ár verði neikvæð um 672 milljónir. Stefnt er að því að hagræða í rekstri bæjarins um 370 milljónir króna. Bæjarstjórnin segir ljóst að til að ná fram þeirri hagræðingu þurfi að taka erfiðar ákvarðanir. 23.11.2021 14:12
Segir afsögn ótengda umdeildri starfsemi Úrvinnslusjóðs Fráfarandi stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs segir afsögn sína ekki tengjast starfsemi sjóðsins. Ríkisendurskoðun vinnur nú að skýrslu um úttekt sína á starfseminni en sjóðurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að ofmeta stórlega hversu hátt hlutfalls íslensks plasts er endurunnið. 23.11.2021 14:02
Dældi fyrir milljón með annarra manna dælulyklum Karlmaður hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað, ólögmæta meðferð fundins fjárs og fjársvik. Maðurinn notaði meðal annars dælulykla í eigu annarra til að dæla bensíni fyrir rúma milljón. 23.11.2021 13:12
Orðspor Íslendinga bíði hnekki eftir hroðalegt dýraníð Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að orðspor Íslands bíði hnekki eftir heimildarmyndina sem sýnd var í gær, þar sem varpað var ljósi á slæma meðferð á íslenskum hryssum við blóðtöku. Hún vill að starfsemin verði bönnuð og að stjórnvöld komi til móts við bændur sem hafi reitt sig á starfsemina. 23.11.2021 13:06
Bein útsending: Alþingi sett eftir langt hlé Nýtt löggjafarþing verður sett í dag og hefst þingsetningarathöfn klukkan 13:30 með guðþjónustu í Dómkirkjunni. 23.11.2021 13:02
Telur rétt að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á börnum Umsjónamaður sanngirnisbóta segir að nýjar ásakanir um illa meðferð barna á vistheimilum komi sífellt fram og því rétt að endurvekja störf vistheimilinefndar. Málin hafi ekki verið kláruð á sínum tíma. Hann hefur áránna rás fengið kvartanir um Hjalteyrarheimilið. 23.11.2021 13:00
Meðferðin til háborinnar skammar en leggur ekki mat á hvort hætta þurfi blóðtökunni Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir meðferð á íslenskum hryssum við blóðtöku vera til háborinnar skammar. Hann vill þó ekki leggja mat á það hvort hætta þurfi þessari starfsemi. 23.11.2021 12:45
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Erlent