Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eignaspjöll og þjófnaðir í verslunum Tveir voru handteknir í gærkvöldi fyrir eignaspjöll. Öðrum var leyft að fara eftir samræður við lögreglu en hinn var látinn laus eftir skýrslutökur. 16.12.2020 05:56
4,1 stiga skjálfti á Reykjanesskaga Um klukkan 4.30 í morgun varð jarðskjálfti af stærð 4,1 um átta kílómetra norðaustur af Reykjanestá. Tilkynningar bárust af Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu um að skjálftinn hefði fundist þar. 16.12.2020 05:38
Lýsa yfir hættustigi á Seyðisfirði og óvissustigi á Austurlandi Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi vegna skriðufalla á Seyðisfirði. Það var gert í samráði við lögreglustjórann á austurlandi og Veðurstofu Íslands. Óvissustig er á Austurlandi vegna skriðuhættu. 16.12.2020 00:04
Enn falla aurskriður á Seyðisfirði Ný aurskriða féll á Seyðisfirði skömmu fyrir níu í kvöld. Hún féll á sömu slóðum og aurskriðurnar fyrr í kvöld og fór hún neðarlega. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir skriðuna hafa fallið að efstu húsum svæðisins en það þurfi að skoða það betur í fyrramálið. 15.12.2020 21:36
Dæmdir fyrir að hafa nauðgað íslenskri stelpu á Krít Tveir þýskir karlmenn á fertugsaldri hafa verið dæmdir fyrir að hafa nauðgað íslenskri unglingsstúlku þegar hún var í skólaferðalagi á Krít í júní í fyrra. Annar maðurinn var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi og hinn í fjögurra ára fangelsi. 15.12.2020 20:29
Fullkomið verkefni um Brennu-Njáls sögu á Laugarvatni Sögupersónur Brennu Njáls sögu hafa öðlast nýtt líf í meðförum nemenda Menntaskólans að Laugarvatni, sem unnu nokkur myndbönd um söguna í stað þess að sitja í kennslustund og læra söguna þar, því það er bannað vegna heimsfaraldursins. Kennarinn segir verkefnið hafa heppnast fullkomlega. 15.12.2020 20:05
Mildaðir nauðgunardómar séu afleiðing manneklu Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu. 15.12.2020 19:45
Bíða þarf dagsbirtu til að meta tjónið á Seyðisfirði Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir eftir að aurskriður féllu meðal annars á hús á Seyðisfirði nú síðdegis. Hluti bæjarins hefur verið rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð. 15.12.2020 18:47
Pfizer bóluefnið gæti fengið leyfi á Íslandi á Þorláksmessu Pfizer-bóluefnið gæti verið komið með markaðsleyfi á Íslandi á þorláksmessu eftir að Lyfjastofnun Evrópu ákvað að flýta fundi sínum. Hráefnaskortur veldur því að Íslendingar fá færri skammta af bóluefninu um áramótin en til stóð. 15.12.2020 18:36
„Það er skelfilegt að eiga við þetta“ Fjöldi flutningabíla og annarra bíla hafa skemmst undanfarna daga vegna vegklæðninga sem losnað hafa á kafla leiðarinnar á milli Staðarskála og Varmahlíðar. Framkvæmdastjóri Þróttar segir tjónið tilfinnanlegt fyrir utan þá hættu sem þessar aðstæður skapi. 15.12.2020 18:30
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir eftir að aurskriður féllu meðal annars á hús á Seyðisfirði nú síðdegis. Hluti bæjarins hefur verið rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð. Við verðum í beinni útsendingu frá björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í kvöldfréttum Stöðvar 2. 15.12.2020 18:02
Ekkert bendi til að nýja breska veiran sé ónæm fyrir bóluefninu Heilbrigðisráðherra Bretlands greindi frá því í dag að nýtt afbrigði kórónuveirunnar hafi fundist í landinu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir ekkert benda til þess að nýja breska veiran sleppi fram hjá bóluefninu sem hefur verið þróað. 15.12.2020 17:44
Rannsaka líkamsárás á Bíldudal Lögreglan á Vestfjörðum hefur til rannsóknar líkamsárás í heimahúsi á Bíldudal sem gerð var á aðfaranótt sunnudags. Maður sem kom heim til sín á laugardagskvöldið hitti þar fyrir tvo ókunnuga menn sem höfðu brotist inn á heimil hans. 15.12.2020 17:13
Hús rýmd á Seyðisfirði vegna aurskriða Tvær skriður féllu úr Botnum utan við Nautaklauf á Seyðisfirði á þriðja tímanum í dag og ná nær niður á jafnsléttu. Önnur skriðan féll á hús en samkvæmt fyrstu upplýsingum eru skemmdir sagðar óverulegar. Nokkur hús við hafa verið rýmd vegna ofanflóðahættu. 15.12.2020 16:39
Fólk fresti för um sólarhring í það minnsta Vegagerðin hvetur fólk sem á leið milli Borgarness og Akureyrar að fresta för sinni um að minnsta kosti sólarhring ef kostur er vegna bikblæðinga á þjóveginum, sem valdið hafa miklu tjóni á bílum og geta verið hættulegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis. 15.12.2020 16:32
Dæmdur fyrir 200 þúsund barnaklámsmyndir eftir brot gegn fötluðum skjólstæðingi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni barnaníðsefnis. Maðurinn var í júní á þessu ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi sínum. 15.12.2020 16:09
Óvissa varðandi hópamyndanir utandyra Óljóst er hvort gluggatónleikar Priksins á Laugavegi á laugardag brutu gegn reglum um samkomubann. Sóttvarnalæknir segir hins vegar ljóst að útitónleikar séu ekki í anda sóttvarnareglna, þó svo að þeir brjóti hugsanlega ekki gegn reglunum. 15.12.2020 15:41
Aflýsa öllum áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fella niður allar áramótabrennur sem skipulagðar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu í ár. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að samkomubann miðast við tíu manns og „mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. 15.12.2020 14:36
Varar við „spekúlasjónum“ um nýja afbrigðið í Bretlandi Sóttvarnalæknir telur að fara eigi varlega í vangaveltur um nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem skotið hefur upp kollinum í Bretlandi, áður en áreiðanlegar upplýsingar liggi fyrir. Fjölmargar og mismunandi stökkbreytingar af veirunni séu þekktar. 15.12.2020 13:49
Hráefnisskortur ástæða þess að Ísland fær færri skammta frá Pfizer Ástæðan fyrir því að Íslendingar munu fá færri skammta af bóluefni frá Pfizer er hráefnisskortur. Þetta kemur fram í bæði í svari heilbrigðisráðuneytisins og Evrópuútibúi lyfjaframleiðandans Pfizer við fyrirspurn fréttastofu. 15.12.2020 13:36
Fjölmenningarráð vill greinargerð frá Fjölskylduhjálp eftir að fleiri stíga fram og lýsa mismunun Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar hefur farið fram á að Fjölskylduhjálp Íslands skili greinargerð um hvernig tryggt sé að þar sé unnið gegn mismunun við úthlutun til skjólstæðinga. Formaður ráðsins segir skjólstæðinga og sjálfboðaliða af erlendum uppruna hafa lýst mismunun í starfi samtakanna. 15.12.2020 13:15
Segist hafa látið Vegagerðina vita af bikblæðingunum strax á sunnudag Framkvæmdastjóri flutningafyrirtækisins Vörumiðlunar á Sauðárkróki segist hafa varað Vegagerðina við miklum bikblæðingum á vegkafla frá Borgarfirði norður í Skagafjörð strax á sunnudag en ástandið var þó enn mjög slæmt í gærkvöldi. Vegagerðin kveðst hafa varað við blæðingunum um leið og ábendingar bárust. 15.12.2020 12:23
Smári segir hálendisþjóðgarð kominn í skrúfuna hjá ríkisstjórninni Smári McCarthy Pírati furðar sig á því hvernig ríkisstjórninni tókst að klúðra samstöðu um hálendisþjóðgarð. 15.12.2020 12:07
Færri skammtar af Pfizer-bóluefninu til landsins um áramót en gert var ráð fyrir Ljóst er að færri skammtar af bóluefni Pfizer gegn Covid-19 muni berast til landsins um áramót en ráð var fyrir gert. Samkvæmt samningum áttu rúmlega 21 þúsund skammtar að berast til landsins, en þeir verða um 10 þúsund. 15.12.2020 12:06
Meiri sveigjanleiki í fæðingarorlofi samkvæmt drögum að nefndaráliti Framseljanlegum mánuðum í lengdu fæðingarorlofi verður fjölgað úr einum í tvo samkvæmt drögum að nefndaráliti velferðarnefndar Alþingis. Enn er þó ágreiningur um málið innan nefndarinnar. 15.12.2020 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður greint frá breytingum sem nefndarmenn í velferðarnefnd vilja gera á frumvarpi um fæðingarorlof. 15.12.2020 11:30
Þrír greindust með veiruna innanlands í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. 15.12.2020 10:50
Frítt í Strætó frá áramótum fyrir ellefu ára og yngri Frá og með 3. janúar 2021 munu börn ellefu ára og yngri fá frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á vefsíðu Strætó. Árskort fyrir 6-11 ára kostar í dag 9.100 kr. Almennt fargjald í Strætó hækkar um áramótin um tíu krónur og verður gjaldið 490 krónur fyrir fullorðna. 15.12.2020 09:17
„Þetta er stórhættulegt fyrir margra hluta sakir“ „Við erum að sjá þetta á sumrin, við erum að sjá þetta á veturna,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur um blæðingar á vegum landsins. 15.12.2020 09:08
„Við skuldum bæjarbúum það að uppbygging geti hafist hérna“ Bæjarfulltrúar á Akureyri skulda íbúum bæjarins það að uppbygging hefjist í miðbæ bæjarins að sögn formanns hópsins sem leiddi vinnu við nýtt miðbæjarskipulag 15.12.2020 09:00
Þrír handteknir vegna gruns um fjárkúgun og frelsissviptingu Þrír voru handteknir í höfuðborginni í nótt grunaðir um fjárkúgun og frelsissviptingu. Þá voru þrír handteknir í gærkvöldi vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Allir voru vistaðir í fangageymslum lögreglu vegna rannsóknarhagsmuna. 15.12.2020 06:26
Veðurstofa varar við skriðuhættu á Austfjörðum Von er á allhvassri eða hvassri norðaustanátt og snörpum vindhviðum við fjöll sunnan- og vestantil á landinu í dag. Á Austfjörðum er áfram búist við talsverðri rigningu fram á miðvikudag með auknu afrennsli og tilheyrandi líkum á vatnavöxtum og skriðuföllum. 15.12.2020 06:13
Fjárbændur ætla að verja nytjarétt sinn á hálendinu Sauðfjárbændur sem sakaðir hafa verið um ofbeit á hálendinu segja þvert á móti að afréttarlönd séu í framför. Þeir hafa ekki í hyggju að gefa nytjaréttinn frá sér. 14.12.2020 23:23
Bílstjórar hafa ekki séð aðrar eins tjörublæðingar áður: „Eins og að baða dekkin í karamellu“ Þjóðvegurinn norður til Akureyrar virðist hafa blætt mikið í kvöld og hafa bílstjórar og ökumenn orðið fyrir tjóni. Vegklæðning hefur þakið dekk bíla og kannast bílstjórar ekki við að hafa séð annað eins. 14.12.2020 22:14
Fær ekki bætur eftir að hann datt ofan í 1,7 metra djúpa gryfju Vátryggingafélag Íslands var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum manns sem hafði í október 2016 runnið ofan í 173 sentímetra djúpa viðgerðargryfju í húsnæði Frumherja, sem hann starfaði hjá, og hlotið af því talsverðan skaða. 14.12.2020 21:58
Tæplega 2300 umsækjendur um alþjóðlega vernd síðustu þrjú ár Alls hafa 2263 sótt um alþjóðlega vernd á árunum 2018, 2019 og á fyrstu tíu mánuðum ársins 2020. Af þeim var um helmingur umsóknanna tekinn strax í efnislega meðferð hjá Útlendingastofnun. Fjórðungur umsækjenda hafði þegar fengið alþjóðlega vernd í öðru EES- eða EFTA ríki. 14.12.2020 20:20
Segir frumvarp um kynrænt sjálfræði ómanneskjulegt og fornaldarlegt öfgamál Þingmenn Miðflokksins mótmæltu frumvarpi um kynrænt sjálfræði í pontu Alþingis undir kvöld. Frumvarpinu er ætlað að banna ónauðsynlegar aðgerðir á kynfærum barna og Miðflokksmenn eru sagðir standa einir gegn því á Alþingi. 14.12.2020 20:00
„Þetta er algjört met, algjört met" Sjaldan hafa eins margir listamenn verið með verk sín til sölu fyrir jólin í miðbæ Reykjavíkur og í ár. Formaður sambands íslenskra myndlistarmanna segir alla í spreng eftir að hafa verið einir á vinnustofum sínum í Covid. 14.12.2020 20:00
Grunnskólastarfsmaður handtekinn grunaður um brot gegn barnungri dóttur sinni Karlmaður var í þarsíðustu viku handtekinn vegna gruns um að hann hafi beitt barnunga dóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn er á fertugsaldri og er starfsmaður í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV. 14.12.2020 19:14
Sundlaugagestir hlusti ekki eða „eru með derring“ Nokkur hópamyndun hefur verið í sundlaugum, þó svo að þær nýti aðeins 50 prósent hámarksgetu sinnar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 mátti til dæmis sjá að mun fleiri voru í heitum pottum Vesturbæjarlaugar en mega vera. 14.12.2020 18:52
Tekinn með 26 kíló af kannabis Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú innflutning á 26 kílóum af kannabis en þetta er langmesta magn sem náðst hefur í einu. Þá rannsakar embættið kókaíninnflutning sem talinn er hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. 14.12.2020 18:30
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Miklar áhyggjur eru af hópamyndun um næstu helgi þegar próftörn lýkur í mörgum skólum. Ef sóttvarnareglur eru ekki virtar geti fólk átt von á sektum að sögn yfirlögregluþjóns. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 14.12.2020 18:01
Prikið heldur ekki fleiri gluggatónleika Prikið Kaffihús mun ekki halda fleiri gluggatónleika. Ákvörðunin var tekin eftir að hópur myndaðist fyrir utan staðinn síðastliðinn laugardag þegar tónlistarmaðurinn Auður hélt tónleika í glugga staðarins. Margir tónleikagestanna voru ekki með grímur fyrir vitum og stóð fólk þétt saman. 14.12.2020 17:38
Skriðuhætta á Austfjörðum og gul viðvörun suðaustanlands Varað er við norðaustan stormi á Suðausturlandi í kvöld. Átján til tuttugu og fimm metrar á sekúndu, hvassast í Öræfum og í Mýrdal. Gul viðvörun gildir fyrir landsvæðið rennur úr gildi klukkan 22.00 í kvöld þegar dregur úr vindi smám saman. 14.12.2020 16:40
Stendur ekki til að „teppaleggja landið með vindmyllugörðum“ Katrín Jakokbsdóttir forsætisráðherra segir tækifæri liggja í vindorku og að mikilvægt sé að setja skýran ramma um þar um. Ekki standi þó til að „teppaleggja láglendi Íslands með vindmyllugörðum.“ 14.12.2020 16:05