Fleiri fréttir

Stendur klár þegar borpallurinn kemur

Steingrímur Erlingsson, sem er að láta smíða dýrasta skip Íslendinga, segist vilja standa klár þegar borpallarnir mæta á Drekasvæðið. Næstu árin hefur hann þó tryggt skipinu sjö milljarða verkefni á Svalbarða, eða sem nemur kaupverðinu að stórum hluta. Hann er 43 ára Hafnfirðingur, vélfræðingur og flugvirki að mennt, var lengi útgerðarstjóri í Þorlákshöfn, en hefur síðasta áratug stundað útgerð á norðurslóðum Kanada.

Grunur leikur á að íslenskur karlmaður hafi verið myrtur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust nýlega ábendingar um að íslenskur karlmaður, fæddur 1983, hefði verið myrtur í Suður-Ameríku. Eftirgrennslan hefur hins vegar litlu skilað og upplýsingar um margt óljósar.

„Við erum miður okkar yfir þessu“

Ingi Karl Sigríðarson, frambjóðandi Pírata í norðausturkjördæmi, sagði að það þyrfti að gefa Hildi Lilliendahl "high five með sleggju í andlitið“. Framkvæmdastjóri Pírata segist miður sín.

Anna Kristín ófundin - björgunarsveitarmenn ganga fjörur

Leit stendur enn yfir að Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem hefur verið saknað frá því í gærkvöldi. Fjölmargir björgunarsveitar- og lögreglumenn leita hennar í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi og þá er einnig verið að ganga fjörur í Skerjafirði.

ASÍ mótmælir fríverslunarsamningi við Kína

Alþýðusamband Íslands mótmælir því harðlega að til standi að gera fríverslunarsamning við Kína. Í yfirlýsingu frá ASÍ segir að kínversk stjórnvöld viðurkenni ekki mannréttindi og hafi áratugum saman hunsað grundvallarsamþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og þannig meinað launafólki að stofna frjáls stéttarfélög til að semja um sín kjör. Það sé ótrúlegt að ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna skuli ætla íslenskum fyrirtækjum og íslensku launafólki að keppa á jafnréttisgrundvelli við fyriræki í Kína.

"Þetta er voðalega leiðinlegt"

"Þetta kom mjög flatt upp á mig,“ segir Haukur Magnússon, stofnandi og eigandi Svarta-Hauks sem selur Lúpínuseyði. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallaði á dögunum seyðið þar sem það var framleitt við óheilnæmar aðstæður.

Ungir sjálfstæðismenn styðja Bjarna

Ungir sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. Í ályktun sem stjórn SUS samþykkti í dag harma þeir það sem fram kom á RÚV í gærkvöldi um að Bjarni Benediktsson íhugi að segja af sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

Sérsveitamenn lærðu fallhlífarstökk

Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík bauð sérsveit ríkislögreglustjóra á námskeið í fallhlífarstökki á dögunum. Námskeiðið stóð yfir í viku og var um að ræða bæði bóklegt og verklegt nám. Landhelgisgæslan tók þátt í námskeiðinu og flugvélin TF-SIF var notuð við stökkin. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík hefur langa reynslu á þessu sviði og hefur stundað björgunarfallhlífarstökk eftir alþjóðlegum stöðlum til margra ára.

Lúpínuseyði innkallað

Í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á dögunum kom í ljós að lúpínuseyði frá Svarta Hauki var framleitt við óheilnæmar aðstæður. Varan uppfyllir því ekki kröfur um öryggi matvæla og hefur því verið innkölluð af markaði og frá neytendum. Varan er ekki lengur í sölu í verslunum í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu Matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þeir sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neita hennar ekki og farga.

Safna fyrir skógum í Skorradal og á Austurlandi

Almenningur er hvattur til að leggja sitt af mörkum í verkefninu Aprílskógar. Safnað er fyrir Bændaskóga á Austurlandi, til að grisja lerkiskóginn, og plöntun nýrra trjáa í Skorradal. Aprílskógar eru söfnunarverkefni átaksins Græns Apríl.

Suðurnesjamenn á hraðferð

Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum.

Kynnti nýjan veflykil

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í dag nýjan veflykil sem Þjóðskrá Íslands hefur þróað til að tryggja einfalda og örugga leið til auðkenningar inn á vefi. Lykillinn nefnist Íslykill og hann má nota til innskráningar á einstaklingsmiðaðar síður hjá stofnunum, sveitarfélögum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem nýta sér innskráningarþjónustu Ísland.is.

Númer klippt af 36 bílum

Lögreglumenn í Hafnarfirði og í austurborginni tóku númer af þrjátíu og sex bifreiðum í nótt. Bifreiðarnar höfðu ekki verið færðar til skoðunar á réttum tíma eða tryggingarnar voru í ólagi. Þetta kemur fram í fréttaskeyti frá lögreglu.

Þetta sagði Bjarni Ben í viðtalinu

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að tilkynna það hvort að hann ætli að hætta sem formaður flokksins í dag eða um helgina. Í þættinum forystusætinu á RÚV í gærkvöldi sagði hann að hann væri að íhuga stöðu sína alvarlega.

Bjarni finnur fyrir stuðningi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fengið mjög mikinn stuðning og hvatningu um að halda áfram eftir að hann tilkynnti í gær að hann íhugaði að segja af sér og hvort betra væri fyrir flokkinn að Hanna Birna Kristjánsdóttir tæki við.

Lögreglan lýsir eftir Önnu Kristínu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Önnu Kristínu Ólafsdóttur, 47 ára. Anna er rúmlega 170 sentimetrar á hæð, grannvaxin, með dökkt stutt hár. Hún er talin vera í brúnum rússkinsjakka, gallabuxum , svörtum stígvélum og með grátt hliðar veski.

Konu á fimmtugsaldri leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir eru nú að hefja leit að konu á fimmtugsaldri sem ekkert hefur spurst til síðan kl. 20 í gær. Konan var klædd í brúnan rúskinsjakka, bláar gallabuxur og svört leðurstígvél þegar hún fór að heiman í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í vesturborginni.

Spurning hvort að Bjarni hafi sagt of mikið

"Þetta samtal hans í gær er eitthvað sem maður á við sína nánustu vini, en það fór fram fyrir framan alþjóð," segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.

Stal síma og hringdi til Sýrlands

Karlmaður tilkynnti á dögunum að farsíma sínum hefði verið stolið á skemmtistað í umdæminu. Síminn var nýlegur og hafði kostað 100 þúsund krónur. Maðurinn sagði símann hafa verið notaðan daginn eftir að honum var stolið og hefði verið hringt úr honum til útlanda, þar á meðal til Sýrlands, fyrir þrjátíu þúsund krónur.

Fjöldi nýliða á þingi

Einungis fjórtán þingmenn af 63 sem sátu á Alþingi fyrir bankahrunið árið 2008 myndu sitja á þingi eftir kosningar 27. apríl næstkomandi verði niðurstöður kosninganna í takti við niðurstöður skoðanakannana sem hafa birst að undanförnu.

Djúpið frumsýnt í Noregi

Djúpið, kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýndi í Noregi í dag og ríkir nokkur eftirvænting meðal þarlendra sem og aðstandenda kvikmyndarinnar.

Þarf að horfa til allra eigna við afnám gjaldeyrishafta

Fulltrúar í þverpólitískri nefnd vara við einstökum aðgerðum varðandi erlendar eignir hérlendis. Ekki megi selja banka eða losa snjóhengju í sértækum aðgerðum. Fjárþörf úr krónueignum geti skert samningsstöðu.

Tannlækningar fyrir börn verða ókeypis

Langþráður samningur á milli tannlækna og velferðarráðuneytisins var undirritaður í gær. Samningurinn felur í sér stórbætta þjónustu við barnafjölskyldur. Nýtt kerfi verður innleitt í þrepum og fá 15-17 ára ungmenni þjónustuna fyrst.

Útskúfuð Blönduóslögga í mál við ríkið

Fyrrverandi lögregluvarðstjóri vill komast aftur til starfa á Blönduósi eftir að hann var sýknaður af kynferðisbroti. Hann segist vera "milli steins og sleggju tveggja stjórnvalda“ og kvartar undan því að lögreglustjórinn svari ekki erindum hans.

Vopnuð íhlutun er alltaf sísti kosturinn

Vopnuð íhlutun í þeim tilgangi að skipta um stjórnendur ríkis eða bylta stjórnskipan kann aldrei góðri lukku að stýra. Þetta segir John Prescott, fyrrverandi aðstoðarforsætisráherra Bretlands, í samtali við Fréttablaðið.

13.200 fermetra vinnubúðir við Bjarnarflag

Stefnt er að því að fyrirhugaðar vinnubúðir Bjarnarflagsvirkjunar verði reistar á lóð Kísiliðjunnar. Gert er ráð fyrir tólf byggingarreitum alls 13.200m². Þetta kemur fram í auglýsingu um deiliskipulag frá skipulags- og byggingarfulltrúa Skútustaðahrepps sem birt var í Mýflugunni í gær.

Reyndi að stöðva birtingu stuðningslistans

Lögmaður Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur, Berglind Svavarsdóttir, reyndi að koma í veg fyrir birtingu stuðningslista með 113 nöfnum í blaðinu Skránni á Húsavík árið 2000.

Gunnar fundinn sekur um trúnaðarbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í gær Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fyrir brot á þagnarskyldu með því að koma upplýsingum um viðskipti þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til fjölmiðla í því skyni að koma á hann höggi.

Vilja ríkislóðir fyrir leiguíbúðir

„Þetta er ekki það eina sem þarf að gera til að efla leigumarkaðinn en væri að okkar mati mjög áhugavert og mikilvægt verkefni til að byggja upp öruggan leigumarkað,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sem vill samstarf við ríkið um uppbyggingu öruggari leigumarkaðar í Reykjavík.

Fá veiðikortið fyrir nætureftirlit

„Meirihlutinn í nefndinni er sammála því að gera þetta svona,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um samkomulag sem felur í sér að ekkert verður af banni við næturveiði í Þingvallavatni.

Víða mikið frost á landinu

Frostið fór niður í 17 gráður á Hveravöllum í nótt og yfir 19 gráður á Mörðuvöllum. Víða um land var sex til átta stiga frost á láglendi. Þá voru smá él á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum, og þar í grennd í nótt, þannig að vetarrríki er víða um land.

Töluverð skjálftavirkni er enn við Grímsey

Töluverð skjálftavirkni er enn austur af Grímsey, en heldur virðist draga úr styrk skjálftanna. Þannig mældust aðeins tveir skjálftar á svæðinu yfir tvö stig í gær.

Tekinn á 130 km hraða í Þrengslunum

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann upp úr miðnætti, eftir að bíll hans hafði mælst á 130 kílómetra hraða í Þrengslunum. Sektin við bortinu nemur 70 þúsund krónum, en þar sem hann greiddi sektina á staðnum fékk hann afslátt og greiddi 52,500 krónur.

Fölsuð könnun

Hans Kristján Árnason, einn stofnenda Stöðvar 2, segir fyrirtæki hafa falsað niðurstöður áhorfskannana.

Bjarni Ben íhugar afsögn

"Ég er bara mannlegur," sagði Bjarni Benediktsson í viðtali á RÚV í kvöld þar sem hann tilkynnti að hann íhugaði að segja af sér sem formaður flokksins. Tíðindin koma í kjölfar könnunar Viðskiptablaðsins sem sýndi að flokkurinn nyti mun meira fylgis tæki varaformaður flokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, við stjórnartaumunum.

Samfylkingin ekki minni í fimmtán ár

Framsóknarflokkurinn eykur fylgi sitt í rúm 29 prósent samkvæmt nýrri könnun Gallup en Samfylkingin tapar verulega og mælist nú með rúm tólf prósent.

Dæmdur í átta ára fangelsi

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Jens Hjartarson í átta ára fangelsi fyrir nauðgun, líkamsárásir og fleiri brot.

Sjá næstu 50 fréttir