Fleiri fréttir

Vilja mæla árangur nemenda í bókstöfum en ekki tölustöfum

Menntamálaráðherra vill að kynnt verði nýtt einkunarkerfi fyrir nemendur í 10. bekk. Nýja kerfið myndi byggja á bókstöfum og verður hugsanlega komið í gagnið á næsta ári. Því er ætlað að nýtast framhaldsskólum við val á nýnemum.

Gleymdi potti á eldavélinni

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að heimili í Vesturbænum um hádegisbilið vegna eldsvoða.

Sagði túlkun lögreglunnar á umferðarlögunum ranga

Afskiptum lögreglu af fólki í umferðinni er ekki alltaf vel tekið. Þetta átti t.d. við um karl sem virti ekki innakstursbann og ók bíl sínum gegn einstefnu í miðborg Reykjavíkur og lögreglan hafði afskipti af. Í framhaldinu lagði hann bílnum á gangstétt í sömu götu og hindraði þannig umferð gangandi vegfarenda.

Þúsund bókaverslanir vildu Auði Övu

Þúsund franskar bókaverslanir óskuðu eftir því að skáldið Auður Alva Ólafsdóttir kæmi í heimsókn og áritaði nýútkomna bók sína, Rigning í nóvember, sem kom nýlega út í franskri þýðingu.

Þingflokkur fundar um breytingar á ráðuneytum í fyrramálið

Þingflokkur Samfylkingarinnar hittist klukkan hálf níu í fyrramálið á Hótel Natura, áður hótel Loftleiðir. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Magnús Orri Schram, segir að þar verði rætt um breytingar á skipan ríkisstjórnarinnar. Til stendur að fækka ráðuneytum úr tíu í átta.

Kostnaður við Flikk Flakk nemur 32 milljónum

Kostnaður Vestmannaeyjabæjar og Hafnar í Hornafirði vegna gerðar þáttanna Flikk flakk, sem Ríksútvarpið gerði í bæjarfélögunum í sumar, nemur samtals 32 milljónum króna.

Ólafur Ragnar fundar í Alaska

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson tekur næstu daga þátt í Norðurslóðaþingi sem haldið er í Alaska samkvæmt tilkynningu frá embættinu.

Reykur í fjölveiðiskipi

Mikinn reyk tók að leggja upp frá stóru fjölveiðiskipi í Akureyrarhöfn í nótt og var slökkviliðið kallað á vettvang og hafði mikinn viðbúnað.

Hælisleitendur teknir við í Sundahöfn

Tveir erlendir hælisleitendur voru handteknir á öryggissvæði Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík í nótt, þegar þeir ætluðu að laumast um borð í flutningaskip, sem var að fara vestur um haf.

Brú yfir Fossvog fyrir hjólandi og gangandi

"Um nokkurt skeið hefur verið rætt hér í Kópavogi um að leggja brú þarna yfir og höfum við heyrt að borgaryfirvöldum lítist vel á það,“ segir Birgir H. Sigurðsson, skipulagstjóri Kópavogsbæjar, um hugmynd tveggja arkitekta um göngu- og hjólabrú yfir Fossvog.

Um 150 Íslendingar fóru með hlutverk í Noah

Alls unnu 220 manns að kvikmyndinni Noah, sem tekin var upp að hluta til hér á landi, og voru Íslendingar meira en helmingur þeirra. Um 150 Íslendingar fóru með misstór hlutverk í myndinni. Leigðar voru samtals 3.650 nætur á hótelherbergjum. Tökuliðið leigði þrjátíu jeppa, tíu sendibíla og 75 fólksbíla.

Bráðadeildir Landspítalans að kikna vegna fjölgunar

Annað árið í röð er mikil aukning á komum á bráðadeildir Landspítalans (LSH). Forstjórinn segir þetta áhyggjuefni en ekki auðvelt að greina hvað veldur. Að meðaltali koma yfir 200 manns á bráðadeild LSH í Fossvogi.

Veiðiskráning einstök

Skrínan, rafræn skráning lax- og silungsveiði á vegum Veiðimálastofnunar og Fiskistofu, hefur vakið ágæt viðbrögð hjá veiðiréttarhöfum í sumar. Það sem af er veiðitímanum hafa upplýsingar um tæplega 4.000 stangveidda laxa og um 800 silunga verið skráðar með þessum hætti, en þetta er annað sumarið sem boðið er upp á þessa veflausn.

Grikkir eru reynslunni ríkari

Ríkisstarfsmenn eru meðal þeirra heppnu á Grikklandi því þó klipið hafi verið vel af launum þeirra frá því hremmingarnar hófust þá prísa þeir sig sæla yfir að vera með örugga vinnu. En þó eru blikur á lofti þar líka og margsinnis hefur gríska ríkið staðið frammi fyrir því að sjá ekki fram á að geta greitt starfsmönnum sínum. „Ég man til dæmis þegar ég pantaði flugmiðana til Íslands, það var í febrúar þó ferðin væri ekki fyrr en í ágúst, þá hugsaði ég með mér, hvað í ósköpunum er ég að gera? Ég hef ekki hugmynd um hvernig verður ástatt hjá mér í ágúst.“

Færanlegu rýmin flest í efri byggðum

Grunnskólar Reykjavíkur munu notast við 62 færanleg kennslurými á lóðum skólanna í vetur. Flestar eru kennslustofurnar við Dalskóla í Úlfarsfellshlíðum eða tólf talsins. Þangað flutti Reykjavíkurborg fjórar skólastofur til viðbótar í sumar.

Íslandsklukkunni hringt 150 sinnum

Afmælisvaka, 150 ára afmælishátíð Akureyrar, hefst formlega í dag. Hátíðarhöldin hefjast klukkan tvö eftir hádegi með því að Íslandsklukkunni við Háskólann á Akureyri verður hringt 150 sinnum í tilefni afmælisins.

Koma ekki í veg fyrir vefþrjóta á sölutorgi

Fjölmörg dæmi eru um að á íslenskum vefsölutorgum finnist auglýsingar erlendra þrjóta sem hafa það eitt að leiðarljósi að hafa peninga af fólki. Mikil umræða hefur til að mynda skapast um það á Bland.is hvort ekki sé hægt að koma í veg fyrir að þrjótarnir fái að birta auglýsingar sínar á vefnum. Ekki hefur þó verið gripið inn í.

Erfiðara að vera nammigrís í Versló

Hafragrautur og lýsi á morgnanna í stað langloku og kók er meðal þeirra breytinga sem nemendur Verzlunarskóla Íslands gerðu síðasta vetur og er skólinn nú orðinn einn sá heilsusamasti á landinu. Næsta skref er hreyfing og segir skólastjórinn nemendur og kennara hafa gott af því að fara öll saman út að skokka.

Krían er einkennisfugl Dögunar

Stjórnmálaaflið Dögun samþykkti formlega nýtt merki fyrir flokkinn í gær. Merkið er fljúgandi kría með rísandi sól í bakgrunn.

Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar við kaup á skóladóti

Hátt í fimm hundruð börn og unglingar þiggja aðstoð frá hjálparstarfi kirkjunnar í haust við að kaupa skólabækur og vetrarfatnað. Markmið starfsins er meðal annars að koma í veg fyrir að framhaldsskólanemar flosni upp úr námi vegna fjárhagserfiðleika.

Mesta úrkoman í borginni í dag

Mesta úrkoma landsins í dag mældist á Reykjavíkursvæðinu að sögn veðurfræðinga Veðurstofunnar. Það þykir fremur óvenjulegt.

Dálítið asnaleg lausn að frysta sæði

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, gefur ekki mikið fyrir þá tillögu vísindamanns frá Bandaríkjunum að ungir menn frysti sæði sitt í ljósi nýrrar rannsóknar sem bendir til að börn miðaldra og roskinna feðra greinist frekar með einhverfu og geðsjúkdóma en börn yngri manna.

Segir ákvörðun Lilju ótrúlega jákvætt skref

Stjórnmálafræðiprófessor furðar sig á að Lilja Mósesdóttir, móðir Samstöðu, hafi kastað sterkasta vopninu frá flokknum. Stjórnarmaður í flokknum segir hins vegar Lilju hafa skapað ótrúlegt tækifæri fyrir Samstöðu með því að hætta sem formaður.

Elsti glerframleiðandi heims skoðar Ísland

Einn stærsti efna- og byggingavöruframleiðandi heims, franska fyrirtækið Saint Gobain, skoðar nú möguleika á byggingu slípiefnaverksmiðju við Húsavík. Fulltrúar félagsins heimsóttu Norðurland í dag, í annað sinn í sumar.

Borgin mun koma götulýsingunni í stand

Borgaryfirvöld munu á næstu dögum gera út starfsmenn til að skipta um perur í ljósastaurum borgarinnar og ganga úr skugga um að borgin sé vel upp lýst þegar skammdegið færist yfir. Víða vantar perur eins og stendur, líkt og lögreglan í borginni benti á í dag.

Strætó fær samkeppni á leiðinni til Akureyrar

Fyrirtækið Sterna / Bílar og fólk ehf. mun halda uppi hópferðaakstri milli Reykjavíkur og Akureyrar þrátt fyrir að Strætó bs hefji áætlanaferðir á leiðinni þann 2. september. Fyrirtækið hefur ekið milli staðanna síðustu sex ár og ætlar ekki að láta Strætó slá sig út af borðinu. Þetta kemur fram á

Atkvæðagreiðsla um stjórnarskrána hefst eftir tvo daga

Kjörseðillinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga var birtur á netinu í dag. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst næstkomandi laugardag, eða eftir tvo daga. Atkvæðagreiðslan sjálf fer fram 20. október.

Spjallaði í símann á ofsahraða

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú þjófnað á níu steypumótum og 70 byggingartjökkum sem stolið var í Grindavík fyrr í sumar. Mótunum og tjökkunum hafði verið komið fyrir til geymslu á lóð. Þegar til átti að taka fannst hvorki tangur né tetur af þeim. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.

Guðrún Sóley ritstjóri Stúdentablaðsins

Guðrún Sóley Gestsdóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Stúdentablaðsins fyrir skólaárið 2012-2013. Mun hún taka við störfum af Sólrúnu Halldóru Þrastardóttur.

Kannast þú við hvutta?

Þessi litli, fallegi hundur, sem fannst í miðborginni í dag, er í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað hans hjá lögreglunni en upplýsingar eru veittar í síma 444-1000. Krafist verður staðfestingar á eignarhaldi.

Breiðholtshrottarnir játuðu sök

Tveir karlmenn sem réðust inn á heimili aldraðs karlmanns í Breiðholti fyrr í sumar játuðu sakargiftir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir að svipta manninn frelsi sínu í rúmlega sex klukkustundir og neyða hann til að millifæra pening af bankareikningi sínum yfir á þeirra bankareikning. Þá hótuðu þeir honum með skotvopni en fallið var frá ákæru hvað það varðar hjá öðrum manninum.

Laugalandsskógur verður opinn skógur

Frú Vigdís Finnbogadóttir mun opna Laugalandsskóg sem "Opin skóg“ sunnudaginn 26. ágúst næstkomandi. Markmið verkefnisins er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga.

Nýja brúin fær vegtengingu á næsta ári

Vegagerðin hefur boðið út lagningu vega að nýrri brú yfir Reykjadalsá í Reykholtsdal í Borgarfirði og samkvæmt útboðsauglýsingu eiga þeir að vera tilbúnir 15. júlí næsta sumar. Nýja brúin, sem lokið var við í vor, mun því standa ónotuð án vegtengingar í heilt ár áður en vegfarendur fá að aka yfir hana.

Ökumaður í vímu með þýfi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni. Í farangurgeymslu hennar fundust fimm verkfæratöskur og tvö iðnaðarvesti.

Segja meirihluta borgarstjórnar skattleggja að óþörfu

Í tillögu um endurskoðun útsvarstekna sem lögð var fram á borgarráðsfundi í dag kemur í ljós að enn og aftur innheimta borgaryfirvöld meiri skatta en gert er ráð fyrir í áætlun. Þetta kemur meðal annars fram i tilkynningu frá borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

"Fólk brosir bara að þessu öllu"

"Það þarf ekkert að halda víni frá þessu fólki. Þetta er fullorðið fólk sem kann sínum fótum forráð." Þetta segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara.

Hjálmlaus, í símanum á ljóslausri vespu

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu, sem ekki fór alveg að þeim reglum sem gilda um akstur slíkra farartækja.

Hjólbarði undan rútu skall á bíl

Það óhapp varð á Reykjanesbrautinni í gær að hjólbarði losnaði undan rútu, sem ekið var áleiðis til Reykjavíkur. Hjólbarðinn kastaðist yfir veginn og lenti á afturhorni nálægrar bifreiðar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Engin slys urðu á fólki vegna þessa atviks.

Sjá næstu 50 fréttir