Brú yfir Fossvog fyrir hjólandi og gangandi 24. ágúst 2012 07:00 Þrjú hundruð metra brú tengir Reykjavík og Kópavog ef tillaga arkitekta í Alark verður að veruleika. Brúin á að vera lágreist til að trufla ekki útsýni. mynd/alark „
Um nokkurt skeið hefur verið rætt hér í Kópavogi um að leggja brú þarna yfir og höfum við heyrt að borgaryfirvöldum lítist vel á það," segir Birgir H. Sigurðsson, skipulagstjóri Kópavogsbæjar, um hugmynd tveggja arkitekta um göngu- og hjólabrú yfir Fossvog. Samkvæmt tillögu arkitektanna Jakobs Líndals og Kristjáns Ásgeirssonar er gert ráð fyrir þrjú hundruð metra brú frá Kársnesi yfir að brautarenda Reykjavíkurflugvallar. Í miðjunni yrði snúningsbrú til að hleypa bátum í gegn. „Þetta hefur alltaf legið í loftinu og það hefur verið vilji beggja vegna frá," segir Jakob Líndal sem kveður brúna mundu skapa margvíslega möguleika. Til dæmis skapist ný hringleið og vaxandi fjöldi hjólreiðamanna allt suður í Hafnarfjörð fái nýja leið inn á háskólasvæðið í Öskjuhlíð og Vatnsmýri og inn í miðborgina sjálfa. Kársnesið myndi opnast sem búsetumöguleiki fyrir háskólaborgara, meðal annars á landfyllingu Kópavogsmegin og innan við hina áætluðu brú. Þar hefur nýtt bryggjuhverfi verið samþykkt. „Ekki er hægt að segja til um það á þessari stundu hvort og þá hvenær eitthvað verði af hugmyndum í þessa veru – en vonandi skýrist það þegar lengra líður á haustið og vinnu sveitarfélaganna, Kópavogs og Reykjavíkur, miðar áfram," segir skipulagstjórinn í Kópavogi.- gar / sjá síðu 4
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Sjá meira