Innlent

Ólafur Ragnar fundar í Alaska

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson tekur næstu daga þátt í Norðurslóðaþingi sem haldið er í Alaska samkvæmt tilkynningu frá embættinu.

Þingið sækir fjöldi áhrifamanna frá Bandaríkjunum, bæði á vettvangi stjórnkerfis, atvinnulífs og fjölmiðla. Þá sitja þingið einnig forystumenn Alaskaríkis og fulltrúar samtaka og byggðarlaga frumbyggja á Norðurslóðum.

Meðal umræðuefna á þinginu eru staða Bandaríkjanna á Norðurslóðum, efnahagsþróun svæðisins og kapphlaupið um nýtingu auðlinda, stjórnun fiskveiða, skipulag flugsamgangna og skipaflutninga, framlag Hafréttarsáttmálans við lausn deiluefna, samstarf Rússa og Bandaríkjamanna og vaxandi mikilvægi Norðurslóða á heimsvísu í alþjóðasamskiptum og efnahagslífi nýrrar aldar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×