Innlent

Reykur í fjölveiðiskipi

Mikinn reyk tók að leggja upp frá stóru fjölveiðiskipi í Akureyrarhöfn í nótt og var slökkviliðið kallað á vettvang og hafði mikinn viðbúnað.

Verið var að landa úr skipinu þegar þetta gerðist og var öll vinna stöðvuð til öryggis. Enginn eldur fannst um borð, en skýringin var sú að olíurör með heitri olíu hafði brostið í vélarrúminu og olían lekið yfir heita vélina með þessum afleiðingum.

Lekinn var stöðvaður og skipið reykræst. Tjón mun vera óverulegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×