Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kemur með meiri rigningu Fellibylurinn fyrrverandi, Írena, kemur upp að ströndum landsins á fimmtudag, en líkast til verður hún ekki frábrugðin þeim 300 lægðum sem koma upp að landinu á hverju ári. Írena olli miklum skemmdum á meðan hún var í hámarki og æddi yfir Karíbahafið og ríkin á norðausturströnd Bandaríkjanna. Henni þvarr þó kraftur eftir því sem norðar dró og var stödd yfir Kanada í gær. 30.8.2011 06:00
Tækifærum glutrað Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, eru gagnrýnir á málflutning ríkisstjórnarinnar í tengslum við lok formlegs samstarfs Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Þeir segja ríkisstjórnina hafa brugðist í endurreisn efnahagslífsins. 30.8.2011 06:00
Ráðherra segir allt Líbíumálið vera uppi á borðum Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að allt sé uppi á borðum varðandi stuðning Íslands í mars síðastliðnum við aðgerðir Atlantshafsbandalagsins (NATO) gegn hersveitum Gaddafís í Líbíu. Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs (VG) ályktaði um málið um helgina og beindi því til Alþingis að skipuð yrði rannsóknarnefnd „til að rannsaka aðdraganda þess að Ísland samþykkti þessar aðgerðir“. 30.8.2011 05:00
Naumur tími er hindrun „Þegar loksins var búið að framlengja opna tollkvótann í nautakjöti var búið að selja öðrum aðila nautakjötið sem ég ætlaði að kaupa erlendis. Ég þurfti þess vegna að byrja að því að leita að kjöti aftur. Og það er ekki eins og menn úti í heimi bíði eftir þessum viðskiptum.“ 30.8.2011 04:00
Færri fara í endurmenntun Starfsemi Sjúkraflutningaskólans hefur dregist töluvert saman undanfarin þrjú ár. Þátttakendum á endurmenntunarnámskeiðum hefur fækkað um helming að sögn Hildigunnar Svavarsdóttur skólastjóra. 30.8.2011 03:15
Íslensk kona handtekin í Færeyjum fyrir fíkniefnasmygl Fimmtíu og sjö ára gömul íslensk kona var handtekin í Færeyjum í dag fyrir að hafa reynt að smygla inn 1,5 kílóum af hassi til Færeyja. Konan kom til Færeyja í morgun með Norrænu. Færeyska útvarpið segir að konan muni sitja í fjögurra vikna gæsluvarðhaldi. 29.8.2011 20:04
Hefur þrisvar sinnum reynt að tæla börn upp í bílinn Ókunnugur maður hefur þrisvar sinnum reynt að tæla börn upp í bíl til sinn í Hafnarfirði á síðustu dögum. Skólastjóri segir málið grafalvarlegt og hvetur foreldra til að brýna fyrir börnum sínum að setjast ekki upp í bíl hjá ókunnugum. 29.8.2011 19:17
Spyr hvort fuglar verði teknir fram yfir fólk á Vestfjörðum Á að taka tré og fugla fram yfir lífsmöguleika byggðarinnar á Vestfjörðum? Þessari spurningu varpaði prófessor á Akureyri fram í dag inn í tuttugu manna nefnd sem vinnur að sátt um framtíðarlegu vegarins um sunnanverða Vestfirði. Ráðamenn á Vestfjörðum vilja að leiðin um Barðastrandarsýslur verði stytt um rúma tuttugu kílómetra með því að þvera Djúpafjörð og Gufufjörð og losna um leið við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls. 29.8.2011 19:13
Trúir því ekki að ríkisstjórnin verði á móti Bæjarstjóri Norðurþings neitar að trúa því að ríkisstjórnin leggist gegn tugmilljarða fjárfestingum Kínverjans Huang Nubo í íslenskri ferðaþjónustu á sama tíma og sárvanti að efla atvinnu. Huang Nubo flaug með fylgdarliði norður á Grímsstaði á Fjöllum í síðustu viku, skrifaði undir viljayfirlýsingu við bæjarstjóra Norðurþings um uppbyggingu ferðaþjónustu og keypt svo stóran hluta jarðarinnar til að byggja þar lúxushótel. 29.8.2011 18:54
Lítil hætta á að fuglaflensan berist hingað Sameinuðu Þjóðirnar vöruðu í dag við því fuglaflensan gæti dreift sér upp á nýtt. Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, telur ekki mikla hættu á að fuglaflensan berist hingað. Hann segir ekki um nýtt tilbrigði flensunnar að ræða. "Þetta er H5N1 tilbrigðið sem hefur verið þekkt lengi. Hún hefur verið landlæg í ýmsum ríkjum í Suðaustur-Asíu undanfarið," segir Haraldur, en þegar farfuglar leggja af stað í sín árstíðarbundnu ferðalög á haustin berst vírusinn sér gjarna með þeim til nýrra landa. 29.8.2011 16:57
Unglingapartí fóru úr böndunum um helgina Lögreglunni bárust talsvert af símtölum um helgina þar sem kvartað var undan hávaða frá gleðskap í heimahúsum. Í einhverjum tilvikum var um að ræða eftirlitslaus unglingapartí en í einu slíku voru um 50 krakkar mættir á staðinn. Húsráðandinn reyndist vera 14 ára og ófær um að ráða við slíkar aðstæður. Lögreglan stöðvaði samkvæmið og vísaði gestunum frá að því er fram kemur í tilkynningu. 29.8.2011 16:54
Ekki borið á PMMA síðan í vor Ekkert hefur borið á fíkniefninu PMMA hér á landi síðan í maí á þessu ári. Snemma í sumar lést stúlka af völdum eiturlyfja og strax vaknaði grunur um að fíkniefnið PMMA hefði valdið dauða hennar. Það fékkst staðfest í síðustu viku eftir lyfjarannsókn, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. 29.8.2011 16:38
Hefja vinnu við hættumat fyrir eldgos - tekur 15 til 20 ár í heildina Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að hafin yrði vinna við hættumat fyrir eldgos á Íslandi. Í tilkynningu frá ráðherra segir að um viðamikla vinnu sé að ræða sem gróflega er áætlað að taki 15 - 20 ár í heildina. Fyrsti áfanginn er þó verkefni til þriggja ára. 29.8.2011 16:21
Ný stjórnarskrá verði rædd í október Tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða lagðar fyrir Alþingi í byrjun október. Það kemur fram á minnisblaði sem forseti Alþingis lagði fyrir forsætisnefnd í dag. Talið er óheppilegt að tillögur ráðsins verði ræddar á fundardögum þingsins í september því þá gæfist ekki nægur tími til umræðnanna. Nýtt löggjafarþing hefst 1. október og þá falla mál af þingi síðasta árs niður. 29.8.2011 15:32
Tíu ölvaðir og sjö dópaðir teknir undir stýri um helgina Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og sjö voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. 29.8.2011 15:31
Mini fór í heimsreisu og kom við á Íslandi Bílaframleiðandinn MINI hefur nú kynnt enn eina útgáfuna af smábílnum vinsæla, í þetta skipti er það Mini Coupe. Fyrirtækið ákvað að senda bílinn í heimsreisu og gera nokkrar stuttmyndir með hann í aðalhlutverki, víðsvegar um heiminn. Á meðal áfangastaða var Rio de Janeiro, Hong Kong og Ísland en í meðfylgjandi myndbandi má sjá þá Víking Kristjánsson og Finnboga Þorkel í hlutverki bílstjóra og puttaferðalangs. 29.8.2011 14:58
Black Pistons í héraðsdómi: Gerir lítið úr sínum hlut í árásinni Foringi vélhjólasamtakanna Black Pistons, neitaði fyrir dómara í morgun að hafa tekið þátt í líkamsárás á rúmlega tvítugan karlmann í maí síðastliðnum. 29.8.2011 13:54
Heimsmeistaramótið í tennisgolfi afstaðið Heimsmeistaramótið í tennisgolfi var haldið í Vestmannaeyjum nú um helgina með pomp og prakt. Spilaðar voru fjórar brautir, og barst slagurinn um allan bæ og allt niður í Herjólfsdal. Að lokum stóð Þórir Rúnar Geirsson uppi sem sigurvegari. Alls voru keppendur 27, en þeir voru allir íslenskir. 29.8.2011 13:53
Segja veitingastaði í vanda vegna kjötskorts Samtök ferðaþjónustunnar segja að skortur sé á gæða nautakjöti í landinu og að ástandið hafi sjaldan verið jafnslæmt og nú. Í tilkynningu frá samtökunum segir að raunar hafi veitingastaðir þurft að búa við þetta í áraraði en að nú sé ástandið sérstaklega slæmt. Samtökin segja að veitingastaðir hafi neyðst til að taka rétti af matseðlum sínum vegna skortsins. 29.8.2011 13:41
Birkifetinn rústar bláberjauppskeruna fyrir norðan Þar sem áður fengust tíu lítrar af bláberjum og aðalbláberjum á Norðurlandi fæst nú ekki einn lítri. Fiðrildið Birkifeti hefur étið mest allt lyngið og berin ná því ekki að vaxa. Skordýrafræðingur segir lítið hægt að gera og varanleg áhrif Birkifetans enn óljós. 29.8.2011 13:02
Rónaganga í borginni Samtökin SÁÁ standa fyrir rónagöngu næstkomandi laugardag. Þá gefst borgarbúum tækifæri til að ganga um miðbæ Reykjavíkur ásamt sagnfræðingnum Guðjóni Friðrikssyni og fræðast um róna og umhverfi þeirra í borginni. 29.8.2011 12:48
Óttast fjölgun á glákutilfellum Augnlæknar óttast að tilfellum gláku eigi eftir að fjölga á Íslandi þar sem sífellt færri fara í reglubundið eftirlit. Talið er að um fimm þúsund manns séu með sjúkdóminn á öllum stigum hérlendis og hafa þeir aldrei verið fleiri. 29.8.2011 12:26
Ráðgjafi Obama talar í HÍ Dr. Linda Darling-Hammond, bandarískur heiðursdoktor, heldur fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands (HÍ) 1. september. Fyrirlesturinn ber heitið Menntun og kennsla á 21. öld. 29.8.2011 11:39
Mótorhjólamenn keyrðu utan vegar við Skógafoss Lögreglan á Hvolsvelli rannsakar nú utanvegaakstur bifhjóla við Skógafoss um helgina. Lögreglu barst tilkynning um að hópur vélhjólamanna hefði ekið inn á friðað svæðið við Skógafoss, en hópurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Vitni munu hafa verið að akstrinum og náðust skráningarnúmer hjólanna. Málið er í rannsókn. Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi, heldur ber að leggja ökutækjum við bifreiðastæði við tjaldsvæðið á Skógum og ganga að fossinum að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. 29.8.2011 11:07
Íslendingur handtekinn með khat á Gardermoen Íslendingur var í síðustu viku handtekinn á Gardemoen flugvelli í Noregi. Hann hafði reynt að smygla sautján kílóum af fíkniefninu Khat til Noregs frá Amsterdam. Maðurinn var yfirheyrður af lögreglu og honum sleppt að því loknu að því er fram kemur í norskum miðlum. 29.8.2011 10:39
Black Pistons fyrir dóm Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum, sem grunaðir eru um sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í maí síðastliðnum, hóst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter yfir níu í morgun. 29.8.2011 09:18
Þrír skipaðir í rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar Róbert Spanó, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands hefur skipað þriggja manna rannsóknarnefnd sem ætlað er að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna ásakana á hendur vígðum þjónum og starfsmönnum kirkjunnar um kynferðisbrot eða annað ofbeldi. 29.8.2011 09:05
Ófrísk kona ekki alvarlega slösuð Ófrísk kona, sem slasaðist í bílveltu rétt austan við Múlakvísl í gærkvöldi, er ekki lífshættulega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á bráðamóttöku. Konan var gengin átta mánuði á leið og var í nótt í rannsóknum á kvennadeild Landspítalans. 29.8.2011 08:01
Þunguð kona flutt með þyrlu eftir bílslys Kona slasaðist í bílveltu í gærkvöldi rétt austan við Múlakvísl. Ákveðið var að kalla eftir þyrlu til þess að flytja hana á sjúkrahús en hún er gengin átta mánuði á leið. Sjúkrabíll flutti konuna að Skógum þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið eftir henni og flutti á Borgarspítalann þar sem lent var rétt fyrir miðnætti. 29.8.2011 07:21
Bíll brann á Bárugötu Kveikt var í bíl á Bárugötu í miðborg Reykjavíkur um klukkan hálftvö í nótt. Slökkviliðsmenn voru snöggir á staðinn og gekk vel að slökkva eldinn en svo virðist sem dagblöðum hafi verið troðið inn í bílinn og eldur borinn að. Bifreiðin er talin ónýtu en bíllinn hafði verið afskráður og ekki í góðu ásigkomulagi fyrir. Eigandinn tjáði lögreglu í nótt að hann hefði ekki orðið fyrir neinu tjóni því staðið hafi til að henda bílnum. 29.8.2011 07:20
Vatnsréttindi aftur á forræði ríkisvalds Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur skipað sérfræðingahóp til að vinda ofan af einkavæðingu vatnsréttinda sem fram fór með lagabreytingu árið 1998. Málið er unnið í samráði þingflokka beggja stjórnarflokkanna. 29.8.2011 07:00
Á hjólastólnum inn í bíl og ekið af stað Blaðamaður brá sér á rúntinn sem væri ekki í frásögu færandi nema fyrir það að bílsstjórinn, Hallgrímur Eymundsson, hefur notað rafmagnshjólastól frá sjö ára aldri. 29.8.2011 06:00
Vill auðlindir til umhverfisráðuneytis Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýstir yfir stuðningi við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og segir ótvíræðan árangur hafa náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar. Sá árangur sé í fyllsta samræmi við stefnu flokksins í ýmsum málum. 29.8.2011 05:30
Augu Meyjunnar stara í tómið Kíkir Stjörnustöðvar Evrópulanda á Suðurhveli (ESO) náði á dögunum einstaklega glæsilegri mynd af tveimur vetrarbrautum í órafjarlægð frá jörðu. Vetrarbrautirnar eru jafnan kallaðar Augun og eru í 50 milljóna ljósára fjarlægð frá stjörnumerkinu Meyjunni. 29.8.2011 05:00
Borgina vantar um 50 starfsmenn Um 600 grunnskólabörn í Reykjavík eru á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum. Þó hefur fjöldinn dregist saman um helming því í þar síðustu viku voru um 1.200 börn sem biðu eftir plássi. Borgina vantar enn um 50 starfsmenn í hlutastarf til að anna þessari eftirspurn, en búist er við því að það nái að ráða í stöðurnar á næstu vikum. 29.8.2011 04:30
Baráttan er alls ekki kvöð Heimsþekkt baráttukona heldur fyrirlestur um umhverfismál í Háskólabíói í dag. Segir Ísland hafa möguleika á að taka forystu í málaflokknum. Fjölbreytt baráttumál hennar snúast öll um lífið. 29.8.2011 04:00
26 prósenta hækkun hjá OR Heildarraforkukostnaður hjá heimilum landsins hefur hækkað umtalsvert frá því í júní 2010, samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ. Mest er hækkunin hjá viðskiptavinum Orkuveitu Reykjavíkur en heildarraforkukostnaður þeirra hefur hækkað um 26 prósent miðað við 4.000 kWst. notkun á ári. 29.8.2011 04:00
Gefur berjunum viku í viðbót „Berjaspretta er eins og vænta mætti en um það bil tveim til þrem vikum seinna á ferðinni í ár,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjaáhugamaður. Sjálfur er hann farinn að sulta og safta úr aðalbláberjum og segir þau harðari af sér. 29.8.2011 03:30
Heldur færri á ferð um hálendið Heldur færri ferðamenn fóru um hálendið í sumar en undanfarin sumur samkvæmt mati björgunarsveitarmanna sem sinntu vakt á hálendinu. Aðstoðarbeiðnir voru litlu færri en í fyrra. 29.8.2011 02:45
Mikið um smáskjálfta nærri Mýrdalsjökli Talsvert hefur verið um smáskjálfta nærri Mýrdalsjökli en stærsti skjálftinn mældist 2,3 á richter en upptök hans voru um tveimur kílómetrum vest-suðvestur af Goðabungu. 28.8.2011 13:58
La Primavera hættir rekstri - eigendur einbeita sér að Kolabrautinni Veitingastaðurinn La Primavera í Austurstræti hefur hætt rekstri. Tækjakostur og búnaður hefur verið seldur nýjum eigendum en veitingastaðnum hefur verið lokað samkvæmt tilkynningu frá eigendum veitingastaðarins. 28.8.2011 13:35
Ungir sjálfstæðismenn kjósa nýjan formann - rafmagnað andrúmsloft Hundruð manna eru samankomnir í Hveragerði til þess að kjósa á sambandsþingi Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS). 28.8.2011 13:09
Sér ekki ástæðu til þess að stofna rannsóknarnefnd Varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis hefur ekki nokkra trú á að þingstyrkur sé fyrir skipun rannsóknarnefndar til að rannsaka stuðning Íslands við aðgerðirnar í Líbíu. Hún segist ekki geta séð annað en að meirihluti hafi verið fyrir þessum stuðning á Alþingi. 28.8.2011 12:30
Snarpur skjálfti nærri Heklu í morgun Jarðskjálfti upp á 2,4 á richter varð skammt frá Heklu á áttunda tímanum í morgun. Upptök skjálftans má rekja til þekkts sprungusvæðið og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu bendir ekkert til þess að það séu hræringa í eldfjallinu, sem er aðeins fimmtán kílómetrum vestan frá upptökum skjálftans. 28.8.2011 09:40
Tveir gistu fangageymslur á Akureyri Tveir fengu að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt en þar fór fram Akureyrarvaka um helgina. Hátíðin tókst með eindæmum vel að sögn lögreglu og eru þeir sáttir við helgina. 28.8.2011 09:30