Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bylgjan verið í loftinu í 25 ár „Ég hlustaði alltaf á Bylgjuna þegar hún byrjaði. Þá var ég sölumaður hjá Myllunni árið 1986 og ók með kökur og brauð um Suðurnesin á daginn. Á kvöldin var ég plötusnúður og lét mig dreyma um að verða útvarpsmaður á Bylgjunni,“ segir Ívar Guðmundsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar. 27.8.2011 06:30
Samningi við miðstöð bjargað Ríkisstjórnin ákvað einróma á fundi sínum í gær að veita aukaframlag til Útlendingastofnunar vegna reksturs miðstöðvar fyrir hælisleitendur í Reykjanesbæ. Að óbreyttu hefði stofnunin þurft að segja upp samningi við Reykjanesbæ þar sem miðstöðin er starfrækt. Var þetta gert að tillögu innanríkisráðherra. 27.8.2011 06:00
Íslenska hagkerfið útskrifað af meðferðarheimilinu Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti í gær sjöttu og síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. Þar með er formlegu samstarfi við sjóðinn lokið. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Ísland sé þar með fyrsta ríkið til að útskrifast frá AGS í yfirstandandifjármálakreppu. 27.8.2011 05:30
Leikfélag Akureyrar leitar á náðir bæjarins Tap á rekstri Leikfélags Akureyrar (LA) á síðasta ári nam 67 milljónum króna, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum útreikninga. Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að greiða félaginu fyrir fram allt að 30 milljónir króna af væntanlegum framlögum næsta árs til að koma í veg fyrir að leikárið yrði stöðvað. 27.8.2011 04:30
Jóhanna ræddi við forseta Litháen Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræddi við forseta Litháen, Daliu Grybuskaité, um aðildarviðræður Íslands að ESB, efnahagsmál og samstarf ríkjanna tveggja yfir kvöldverðarborði á Þingvöllum í kvöld. 26.8.2011 22:30
Þrisvar kveikt í sama húsi Þrisvar sinnum hefur verið kveikt í sömu nýbyggingu í miðborg Reykjavíkur á síðustu tveimur vikum. Slökkviliðsstjóri segir ástandið á byggingarreitum í miðbænum slæmt, skemmdarverk séu unnin og eldhætta sé mikil. 26.8.2011 21:00
Loftárásir í fæðingabæ Gaddafi Breskar orrustuþotur gerðu í nótt loftárásir á bæinn Sirte í Líbíu, sem er eitt síðasta vígi stuðningsmanna Gaddafís, einræðisherra. Uppreisnarmenn undirbúa nú allsherjar árás á bæinn. 26.8.2011 20:30
Staðan hjá Kvikmyndaskólanum 33 milljónir vantar upp á tilboð ríkisins til Kvikmyndaskólans svo að hann geti haldið starfsemi sinni áfram í óbreyttri mynd. Margir nemendur við skólann munu lenda í vandræðum næstu mánaðarmót þar sem þeir fá ekki greidd námslán. 26.8.2011 20:15
Ísland útskrifað frá AGS Ísland er fyrsta ríkið til að útskrifast úr efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í yfirstandandi alþjóðafjármálakreppu. Forsætisráðherra segir viðsnúning efnahagslífsins kraftaverki líkast. 26.8.2011 21:30
Opið hús í Þjóðleikhúsinu Boðið verður uppá skoðunarferðir baksviðs, hestakerruferðir, barnasýningar á Stóra sviðinu, grillaðar pylsur, búningamátun og andlitsmálningu í Þjóðleikhúsinu á morgun, laugardag. Húsið verður opið frá 14:00 til 17:00 og forsetinn og prinsessan úr Ballinu á Bessastöðum taka á móti gestum með söng og skemmtilegheitum. 26.8.2011 20:45
Nubo vill þakka fyrir lopapeysu Áform kínverska auðmannsins Nubo, um tugmilljarða fjárfestingu í íslenskri ferðaþjónustu, þarfnast kyrfilegrar skoðunar, að mati Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Sjálfur segist Nubo vilja með þessu þakka fyrir íslenska lopapeysu sem honum var gefin fyrir þrjátíu árum og stefnir að því að gera Ísland að miðstöð kínverskra ferðamanna á leið til Norðurlanda. 26.8.2011 20:00
Hagnaður hjá Byr Byr hagnaðist um ellefu hundruð milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður skýrist aðallega af endurmati á eignum. Ekki liggur fyrir hversu mikið ríkið fær endurgreitt af 900 milljóna króna fyrirgreiðslu til Byrs. 26.8.2011 19:30
Níu milljóna afgangur af rekstri spítalans Níu milljóna tekjuafgangur var af rekstri Landspítalans á fyrri helmingi ársins. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, gerir þetta að umtalsefni í fjölmiðlapistli sínum. 26.8.2011 17:06
Háskólalestin stoppar á morgun Háskólalestin lýkur yfirferð sinni um landið með pompi og prakt og heimsækir tvö bæjarfélög með vísindi, fjör og fræði á morgun, laugardaginn 27. ágúst. Sandgerði og Seltjarnarnes eru áningarstaðirnir og þar verður boðið upp á góða skemmtun og fræðslu fyrir alla fjölskylduna. 26.8.2011 16:14
Tímamóta minnst í Höfða Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaitë, heimsótti Höfða í morgun. Tilefnið var að í dag eru liðnir nákvæmlega tveir áratugir frá því að utanríkisráðherrar Íslands og Litháen staðfestu með undirritun að Íslendingar viðurkenndu fullt og óskorað sjálfstæði Litháa og annarra Eystrasaltsþjóða. 26.8.2011 16:05
Bless, bless... AGS! Atvinnuleysi er enn hátt en minnkar hraðar en búist var við og hefur ekki verið lægra frá hruni, segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tilefni af því að samstarfi íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er formlega lokið. Ríkisstjórnin segir að hið sama megi segja um kaupmátt launa sem sé nú að aukast á ný og hafi ekki verið meiri frá hruni. 26.8.2011 15:41
Polli er kominn heim til sín Páfagaukurinn Polli, sem lýst var eftir hér á Vísi í vikunni, er kominn heim til sín. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Auður Helgadóttir sendi Vísi. Eftir að Vísir auglýsti eftir gauknum hafði fólk samband við Auði og sagðist hafa séð gaukinn. Eigendunum tókst ekki að handsama hann og voru þeir búnir að telja hann af þegar þeir fengu símtal frá verkfræðingum á Höfða sem höfðu handsamað gaukinn og könnuðust við hann af Vísi. Gaukurinn er því kominn heim til sín í gott yfirlæti. 26.8.2011 15:23
Læknir Sigmundar rökstyðji ummæli sín eða dragi þau til baka Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur gerir verulegar athugasemdir við fullyrðingar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sett fram opinberlega varðandi megrunarkúr sem hann hefur hafið. 26.8.2011 14:58
Tíuþúsund gloss hafa selst Tíuþúsund gloss hafa selst í söfnunarátaki „Á allra vörum þetta árið“. Aðstandendur söfnunarátaksins fagna árangrinum, sem von er. „Viðtökurnar hafa verið með hreinum ólíkindum og andinn og krafturinn í kringum þetta átak hefur sjaldan verið betri", segir Guðný Ó. Pálsdóttir ein forsvarskona Á allra vörum í fréttatilkynningu. 26.8.2011 14:35
Metflugumferð yfir Ísland Aldrei hafa fleiri flugvélar í millilandaflugi flogið um íslenska flugstjórnarsvæðið á einum mánuði eins og í síðasta mánuði. Alls flugu 12.439 vélar um svæðið en fyrra metið 12.114 var sett í júlí 2008. Flugumferðinni er stjórnað úr flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. 26.8.2011 14:29
Forsetar kynntu sér starfsemina í Skógarhlíð Dalia Grybauskait, forseti Litháens, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsóttu björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í morgun, en sá fyrrnefndi er hér í opinberri heimsókn. Á móti þeim tóku Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Margrét Laxdal, varaformaður Slysavarnafélagsin Landsbjargar. 26.8.2011 14:20
Segir gagnrýni á efnahagsbrotadeild snúa að yfirstjórn RLS Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skorti faglega yfirstjórn og metnað. Þá döguðu of mörg mál þar uppi þótt rannsókn þeirra hefði tekið langan tíma. Þetta kemur fram í minnisblaði ríkissaksóknara til innanríkisráðherra. Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi saksóknari efnahagsbrotadeildar, segist hafa fengið þau svör hjá Valtý Sigurðssyni, fyrrverandi ríkissaksóknara, að gagnrýni hans beindist að yfirstjórn RLS, og þar með Haraldi Johannessen. 26.8.2011 13:00
Útlendingastofnun fær aukapening fyrir hælisleitendur Ríkisstjórnin ákvað í morgun, að tillögu innanríkisráðherra, að veita aukaframlag til Útlendingastofnunar vegna reksturs miðstöðvar fyrir hælisleitendur. Að óbreyttu hefði stofnunin þurft að segja upp samningi við Reykjanesbæ þar sem miðstöðin er starfrækt. 26.8.2011 12:58
Þríburar meðal 29 arnarunga sem komust á legg Arnarvarp gekk vonum framar þetta sumarið og komust alls 29 ungar á legg, þrátt fyrir afleitt tíðarfar í vor. Aðeins sjö sinnum áður hafa komist upp fleiri arnarungar á síðustu fimmtíu árum. 26.8.2011 11:17
Ungir sjálfstæðismenn sammála Bjarna Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna lýsir yfir stuðningi við ummæli Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að draga beri aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka. Bjarni lét ummælin falla í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni á dögunum og í yfirlýsingu frá stjórn SUS segir að þau séu í takt við yfirlýsingar sambandsins í gegnum tíðina. 26.8.2011 10:15
Auglýsir eftir skólabókum sem var stolið úr bifreið í nótt „Þeir tóku útvarpið og alla geisladiskana mína og einnig stóra leðurtösku með öllum skólabókunum mínum og glósur til margra ára,“ segir Þórdís Leiva, nemandi í Háskólanum í Reykjavík. 26.8.2011 09:55
Með byssu á bensínstöð Lögreglan fékk í nótt tilkynningu um mann sem væri með haglabyssu á bensínstöð í Breiðholti. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til en almennir lögreglumenn sem mættu fyrstir á vettvang höfðu leyst málið áður en sveitin mætti. 26.8.2011 06:58
Tugþúsundir e-taflna í farangri 17 ára pilts Sautján ára íslenskur piltur var tekinn með tösku sem innihélt mikið magn fíkniefna í Leifsstöð aðfaranótt miðvikudags. 26.8.2011 06:00
Umfjöllun fjölmiðla leiðir til rannsókna Umfjöllun fjölmiðla um fjárhagsstöðu fyrirtækja og stofnana hefur verið kveikja að athugunum Kauphallar Íslands sem enda með fjársekt í um 40 prósentum tilvika, síðan í nóvember 2008. 26.8.2011 06:00
Talin hafa gengið í veg fyrir bíl Kona á níræðisaldri hlaut talsverða áverka, þar á meðal beinbrot, þegar ekið var á hana á gatnamótum Grensásvegar og Bústaðavegar á þriðja tímanum í gær. Ekki var vitað um tildrög slyssins síðdegis í gær en talið er að konan hafi gengið út á götuna og í veg fyrir bílinn. 26.8.2011 05:00
Stofninn mun minni en síðustu ár Rjúpnastofninn er mun minni í upphafi vetrar en hann hefur verið síðustu ár, samkvæmt talningu sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ). „Talningarnar í vor sýndu okkur að það var mikil fækkun um allt land,“ segir Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur á NÍ. Hann segir slæmt tíðarfar og kulda í vor að auki hafa haft mikil áhrif á viðkomu rjúpunnar, með þeim afleiðingum að stofninn sé nú minni en hann hafi verið árum saman. 26.8.2011 05:00
Hvetja fisksala til að sniðganga HB Granda Bresku samtökin Whale and Dolphin Conservation Society (WDCS) hvöttu í fyrradag sölumenn fisks og franskra, hins þjóðlega breska réttar, til að hætta að kaupa fisk frá HB Granda. Andstaðan við HB Granda er vegna tengsla fyrirtækisins við Hval hf. Hvalur er stærsti einstaki hluthafinn í HB Granda með fjörutíu prósent hlutafjár í gegnum dótturfyrirtæki sitt Vogun. 26.8.2011 04:00
Sjómenn hafna frumvarpi Fulltrúar sjómanna hafna þeim breytingum sem stjórnvöld áforma að gera á kvótakerfinu og vilja að frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem nú bíður umfjöllunar sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, verði vísað frá í heild sinni. 26.8.2011 04:00
Lög leyfi nafnlausar ábendingar á netinu „Við munum taka þessa gátt úr sambandi en fara jafnframt fram á það við velferðarráðuneytið að það verði gert skýrt með lögum að þessi möguleiki sé ótvíræður,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, um þá ákvörðun Persónuverndar að Vinnumálastofnun og Ríkisskattstjóri megi ekki bjóða fólki að gefa upplýsingar um aðra undir nafnleynd á netinu. 26.8.2011 04:00
Minnast sjálfstæðis Litháens Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaité, er í opinberri heimsókn hér á landi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hélt móttöku fyrir forsetann í gær auk þess sem hátíðarkvöldverður var haldinn á Bessastöðum í gærkvöldi. 26.8.2011 03:15
Horfur á hækkandi verðbólgu Ársverðbólgan stendur í stað milli mánaða og stendur í fimm prósentum eins og í júlí samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. 26.8.2011 03:00
Harma staðsetningu fangelsis Bæjarstjórar sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma ákvörðun innanríkisráðherra um staðsetningu nýs fangelsis á Hólmsheiði. 26.8.2011 03:00
Fjölbreyttir orkugjafar mögulegir Framtíðarsýn stjórnvalda gerir ráð fyrir fjölorkustöðvum um allt land sem bjóða upp á fjölbreytta orkugjafa til hliðar við bensín og olíu. Ljóst er að til þess að það verði að veruleika þarf að gjörbylta orkudreifingu um allt land. Stjórnvöld munu ekki einblína á einn endurnýjanlegan orkugjafa, heldur styðja ýmiss konar framleiðslu. 26.8.2011 02:30
Endurskoða þarf hvata og gatnakerfi Sverrir Viðar segir að innan Grænu orkunnar sé unnið að nánum tímasetningum á því hvernig markmið ríkisstjórnarinnar um hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa náist. Í því ljósi sé mikilvægt að horfa til reynslu annarra þjóða; vera ekki alltaf að finna upp hjólið. 26.8.2011 02:00
Afar ósáttir við lausa samninga Félagar í Félagi skipstjórnarmanna (FS) standa nú í kjaradeilum hjá ríkissáttasemjara. Félagsmenn sem starfa hjá Landhelgisgæslunni og Hafró hafa verið samningslausir frá 1. apríl 2009. 26.8.2011 02:00
Hugsanlega lokað á geðsjúka Til stendur að loka Vin á Hverfisgötunni. Þetta er fullyrt á nýstofnaðri síðu á facebook. Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Á facebook-síðu hópsins, sem stofnaður var til að koma í veg fyrir þessi áform, kemur fram að Rauði Krossinn þurfi styrk frá borginni til að halda áfram rekstri athvarfsins. Sá styrkur fáist ekki og stefnt sé að lokun nú stuttu eftir mánaðarmót. 25.8.2011 23:16
Paul Young til Íslands Tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar í byrjun október. 25.8.2011 21:43
Árbæingar sorgmæddir vegna skemmdarverka Hópur kraftmikilla Árbæinga úr Rótarýklúbbi hverfisins, sem hefur ánægju af að fegra umhverfi sitt, er dapur eftir að skemmdarvargar grýttu forláta drykkjarfont sem hópurinn hefur eytt frítíma sínum í að koma upp spottakorn frá bökkum Elliðaáa. 25.8.2011 20:30
Nokkrir bílar skemmdir Nokkrir bílar voru skemmdir við Þorláksgeisla og þeir mikið rispaðir. Lýst er eftir vitnum að atburðunum. 25.8.2011 20:30
Eldur á Bergstaðastrætinu Slökkviliðs- og sjúkrabíll eru á Bergstaðastrætinu vegna eldsvoða en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki talið að um meiriháttar tilvik sé að ræða. 25.8.2011 23:15