Fleiri fréttir Viðbragðshópur vegna misnotkunar lyfseðilsskyldra lyfja myndaður Velferðarráðherra hefur skipað viðbragðshóp til stemma stigu við misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja sem hafa verið notuð til sölu og dreifingar meðal fíkla á Íslandi samkvæmt tilkynningu sem ráðuneytið birti í dag. 1.6.2011 18:40 Eldur í Kópavogi Eldur kviknaði í íbúð í Kjarrhólma í Kópavogi. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað á staðinn. Ekki er vitað á þessari stundu hve mikill eldurinn er. 1.6.2011 18:25 Blaðamenn skrifuðu undir kjarasamning Blaðamannafélagið gekk frá nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnuífsins fyrr í dag. Samningurinn gildir frá 1. júní að telja og er í öllum aðalatriðum samhljóða þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði að undanförnu og háður sömu fyrirvörum og þeir. Laun hækka um 4,25% 1. júní, 3,5% 1. febrúar næstkomandi og síðan um 3,25% ári síðar. 1.6.2011 17:59 Vill takmarka eggjatöku og veiðar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beinir þeim tilmælum til landeigenda og handhafa hlunnindakorta að eggjataka og hlunnindaveiðar á svartfugli í sumar verði takmarkaðar eða felldar niður á þessu ári. Ástæðan er lélegt ástands fuglastofnanna og fæðubrestur undanfarin ár. Frekari aðgerðir verða skoðaðar í kjölfarið í samráði við vísindamenn, stofnanir og hagsmunaaðila til þess að tryggja betri viðgang sjófuglastofna og sjálfbærar veiðar á þeim. 1.6.2011 17:49 15 mánaða fangelsi og 90 milljóna króna sekt fyrir skattalagabrot Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann í 15 mánaða fangelsi og til að greiða 90 milljóna króna sekt vegna meiriháttar brota gegn skattalögum og almennum hegningarlögum í starfi sínu fyrir þrjú einkahlutafélög. 1.6.2011 17:35 Úrskurðir staðfestir yfir meðlimum Black Pistons Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurði héraðsdóms yfir tveimur meðlimum vélhjólaklubbsins Black Pistons, sem nú gengur undir nafninu Outlaw Prospect, en þeir voru handteknir fyrir skömmu vegna gruns um meiri háttar líkamsárás, húsbrot og frelsissviptingu. 1.6.2011 17:28 Þyngja dóm vegna alvarlegra afleiðinga líkamsárásar Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir Andra Vilhelm Guðmundssyni um hálft ár, er hann því dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa veist með ofbeldi að manni síðustu áramót með þeim afleiðingum að hann féll í gangstétt. Síðan sparkaði Andri ítrekað í höfuðið mannsins þar sem hann lá. 1.6.2011 16:38 Öllum heimilt að nota orðið Kvikk Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fyrirtækið Nýir Tímar ehf., af því að nota nafnið Kvikkfix í heimildaleysi. Það var fyrirtækið Kvikk sem stefndi hinum fyrrnefndu en bæði fyrirtækin vinna á vettvangi bílaviðgerða. 1.6.2011 16:11 Þyrlan á leið til Reykjavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni til Reykjavikur með þrjá erlenda hjólreiðamenn sem voru strandaglópar á Fjórðungssandi, vestan við Þjórsá. Ekkert amar að fólkinu en um er að ræða tvo karlmenn og eina konu. 1.6.2011 16:03 Breytir litlu fyrir þingflokk VG "Þetta breytir í sjálfu sér ekki miklu fyrir okkur sem þingflokk því hann greiddi auðvitað atkvæði með vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina,“ Þuríður Backman, þingflokksformaður VG, aðspurð um þá ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. 1.6.2011 15:47 Dæmdur fyrir fjölmörg hylmingabrot Karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir þrjátíu hylmingarbrot vegna 25 innbrota. Brotin áttu sér stað á síðastliðnum tveimur árum en meðal annars var stolið úri sem kostaði hálfa milljón króna, en þýfið fannst á heimili mannsins. 1.6.2011 15:45 "Íslenska flokkakerfið lúið" Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, segir flokkaskipti Ásmundar Einars Daðasonar benda til þess að íslenska flokkakerfið sé orðið lúið en Ásmundur sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem hann greindi frá inngöngu sinni í Framsóknarflokkinn. Ásmundur var kjörinn á þing fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð árið 2009 en hann sagði sig úr flokknum í apríl síðastliðnum. 1.6.2011 15:40 Atli Gíslason: Úrsögn Ásmundar kemur ekki á óvart "Þetta kom mér ekki á óvart. Ég vissi að þetta var í pípunum," segir Atli Gíslason, en hann sagði sig úr þingflokki VG ásamt Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Einari Daðasyni í mars síðastliðnum. Ásmundur tilkynnti í dag að hann væri genginn í Framsóknarflokkinn. 1.6.2011 15:09 Vigdís himinlifandi yfir ákvörðun Ásmundar Einars "Ég er himinlifandi yfir þessum tíðindum,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um þá ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. "Það er alltaf gaman þegar þingflokkurinn stækkar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður þingflokks framsóknarmanna. 1.6.2011 14:51 Ásmundur Einar genginn í Framsókn Ásmundur Einar Daðason þingmaður hefur gengið til liðs við Framsóknarflokkinn. Þetta kemur fram á vefmiðlinum Tíminn. 1.6.2011 14:31 Þyrla sækir erlenda hjólreiðamenn Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leiðinni til þriggja erlendra hjólreiðamanna sem eru strandaglópar á Fjórðungssandi vestan við Þjórsá, norður af Norðlingaöldu. 1.6.2011 14:09 Sjálfstætt fólk hefur selst í fjórum milljónum eintaka 1.6.2011 14:00
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbragðshópur vegna misnotkunar lyfseðilsskyldra lyfja myndaður Velferðarráðherra hefur skipað viðbragðshóp til stemma stigu við misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja sem hafa verið notuð til sölu og dreifingar meðal fíkla á Íslandi samkvæmt tilkynningu sem ráðuneytið birti í dag. 1.6.2011 18:40
Eldur í Kópavogi Eldur kviknaði í íbúð í Kjarrhólma í Kópavogi. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað á staðinn. Ekki er vitað á þessari stundu hve mikill eldurinn er. 1.6.2011 18:25
Blaðamenn skrifuðu undir kjarasamning Blaðamannafélagið gekk frá nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnuífsins fyrr í dag. Samningurinn gildir frá 1. júní að telja og er í öllum aðalatriðum samhljóða þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði að undanförnu og háður sömu fyrirvörum og þeir. Laun hækka um 4,25% 1. júní, 3,5% 1. febrúar næstkomandi og síðan um 3,25% ári síðar. 1.6.2011 17:59
Vill takmarka eggjatöku og veiðar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beinir þeim tilmælum til landeigenda og handhafa hlunnindakorta að eggjataka og hlunnindaveiðar á svartfugli í sumar verði takmarkaðar eða felldar niður á þessu ári. Ástæðan er lélegt ástands fuglastofnanna og fæðubrestur undanfarin ár. Frekari aðgerðir verða skoðaðar í kjölfarið í samráði við vísindamenn, stofnanir og hagsmunaaðila til þess að tryggja betri viðgang sjófuglastofna og sjálfbærar veiðar á þeim. 1.6.2011 17:49
15 mánaða fangelsi og 90 milljóna króna sekt fyrir skattalagabrot Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann í 15 mánaða fangelsi og til að greiða 90 milljóna króna sekt vegna meiriháttar brota gegn skattalögum og almennum hegningarlögum í starfi sínu fyrir þrjú einkahlutafélög. 1.6.2011 17:35
Úrskurðir staðfestir yfir meðlimum Black Pistons Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurði héraðsdóms yfir tveimur meðlimum vélhjólaklubbsins Black Pistons, sem nú gengur undir nafninu Outlaw Prospect, en þeir voru handteknir fyrir skömmu vegna gruns um meiri háttar líkamsárás, húsbrot og frelsissviptingu. 1.6.2011 17:28
Þyngja dóm vegna alvarlegra afleiðinga líkamsárásar Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir Andra Vilhelm Guðmundssyni um hálft ár, er hann því dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa veist með ofbeldi að manni síðustu áramót með þeim afleiðingum að hann féll í gangstétt. Síðan sparkaði Andri ítrekað í höfuðið mannsins þar sem hann lá. 1.6.2011 16:38
Öllum heimilt að nota orðið Kvikk Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fyrirtækið Nýir Tímar ehf., af því að nota nafnið Kvikkfix í heimildaleysi. Það var fyrirtækið Kvikk sem stefndi hinum fyrrnefndu en bæði fyrirtækin vinna á vettvangi bílaviðgerða. 1.6.2011 16:11
Þyrlan á leið til Reykjavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni til Reykjavikur með þrjá erlenda hjólreiðamenn sem voru strandaglópar á Fjórðungssandi, vestan við Þjórsá. Ekkert amar að fólkinu en um er að ræða tvo karlmenn og eina konu. 1.6.2011 16:03
Breytir litlu fyrir þingflokk VG "Þetta breytir í sjálfu sér ekki miklu fyrir okkur sem þingflokk því hann greiddi auðvitað atkvæði með vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina,“ Þuríður Backman, þingflokksformaður VG, aðspurð um þá ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. 1.6.2011 15:47
Dæmdur fyrir fjölmörg hylmingabrot Karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir þrjátíu hylmingarbrot vegna 25 innbrota. Brotin áttu sér stað á síðastliðnum tveimur árum en meðal annars var stolið úri sem kostaði hálfa milljón króna, en þýfið fannst á heimili mannsins. 1.6.2011 15:45
"Íslenska flokkakerfið lúið" Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, segir flokkaskipti Ásmundar Einars Daðasonar benda til þess að íslenska flokkakerfið sé orðið lúið en Ásmundur sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem hann greindi frá inngöngu sinni í Framsóknarflokkinn. Ásmundur var kjörinn á þing fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð árið 2009 en hann sagði sig úr flokknum í apríl síðastliðnum. 1.6.2011 15:40
Atli Gíslason: Úrsögn Ásmundar kemur ekki á óvart "Þetta kom mér ekki á óvart. Ég vissi að þetta var í pípunum," segir Atli Gíslason, en hann sagði sig úr þingflokki VG ásamt Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Einari Daðasyni í mars síðastliðnum. Ásmundur tilkynnti í dag að hann væri genginn í Framsóknarflokkinn. 1.6.2011 15:09
Vigdís himinlifandi yfir ákvörðun Ásmundar Einars "Ég er himinlifandi yfir þessum tíðindum,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um þá ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. "Það er alltaf gaman þegar þingflokkurinn stækkar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður þingflokks framsóknarmanna. 1.6.2011 14:51
Ásmundur Einar genginn í Framsókn Ásmundur Einar Daðason þingmaður hefur gengið til liðs við Framsóknarflokkinn. Þetta kemur fram á vefmiðlinum Tíminn. 1.6.2011 14:31
Þyrla sækir erlenda hjólreiðamenn Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leiðinni til þriggja erlendra hjólreiðamanna sem eru strandaglópar á Fjórðungssandi vestan við Þjórsá, norður af Norðlingaöldu. 1.6.2011 14:09
Skattlagning í hrópandi andstöðu við loforð ríkisstjórnarinnar Áform um skattlagningu á lífeyri er forsendubrestur í nýgerðum kjarasamningum, að mati Alþýðusambandsins. Ljóst sé að slík skattlagning mun leiða til skerðinga á áunnum lífeyrisréttindum félagsmanna sambandsins á meðan stjórnvöld ábyrgist lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. 1.6.2011 13:57
Nauðgunartilraun enn til rannsóknar Tilraun til nauðgunar á Egilsstöðum um miðjan síðasta mánuð er enn til rannsóknar hjá lögreglu. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur einn karlmaður verið handtekinn í tengslum við málið en honum var að lokum sleppt. Hann neitar sök. 1.6.2011 13:55
Minni niðurskurðir til tónlistarnáms Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þann 26. maí að hagræðing til tónlistarskóla yrði 4% á þessu ári sem er um helmingi lægri hagræðingarkrafa en gerð hefur verið undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að borgaryfirvöld fagni samkomulagi ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13. maí um að efla tónlistarnám söngnema í mið- og framhaldsnámi, og hljóðfæranema í framhaldsnámi. Borgaryfirvöld hafa síðustu átta ár þrýst á um slíkt samkomulag til að tryggjja jafnræði til náms, óháð búsetu. 1.6.2011 13:20
Bjarni: Kröfuhafar soga til sín hagvöxtinn Fjármálaráðherra segir hugmyndir um að mikill afsláttur á lánasöfnum gömlu bankanna hafi átt að ganga til lántakenda væru úr lausu lofti gripnar. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir kröfuhafa soga til sín hagvöxtinn. 1.6.2011 12:39
Tveir af átján reiðhjólamönnum notuðu reiðhjólarein Átján reiðhjólamenn áttu leið um Suðurgötu í Reykjavík á meðan á hraðaeftirliti lögreglu stóð. Athygli lögreglu vakti að aðeins tveir þeirra notuðu reiðhjólareinina, hinir hjóluðu ýmist á þeim hluta götunnar sem er ætluð bílaumferð eða á gangstéttinni vestanmegin við akbrautina. 1.6.2011 12:31
Vilja hverfa frá 15-metra reglunni Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði telja að hverfa eigi frá innleiðingu svokallaðrar 15-metra reglu að svo komnu máli. Þetta kom fram í bókun flokksins í umhverfis- og samgönguráði í gær þar sem lagt var til að hætt sé við að innleiða regluna. 1.6.2011 12:22
Rannsóknin grundvallast á fleiri vísbendingum en kæru FME Rannsókn sérstaks saksóknara á tryggingarfélaginu VÍS grundvallast ekki aðeins á kæru Fjármálaeftirlitsins heldur nýjum vísbendingum sérstaks saksóknara. Skýrslutökur yfir sakborningum halda áfram í dag. 1.6.2011 12:04
Allsherjarnefnd styður þyngri refsingar við mansali Allsherjarnefnd leggur til að samþykkt verði frumvarp um breytingar á hegningarlögum um mansal. Annars vegar er lagt til að refsing fyrir mansal verði hækkuð úr 8 ára fangelsi í 12 ára fangelsi. Hins vegar er mælt með því að mansalsbrot tæmi ekki sök gagnvart öðrum mjög alvarlegum frelsissviptingarbrotum, líkt og nú er, enda varða slík brot þyngri refsingu en ef brotið er gegn mansalsákvæði hegningarlaganna. Frumvarpið var afgreitt úr allsherjarnefnd í gær. Í frumvarpinu er ennfremur lögð til sú breyting á hegningarlögum um mansal að heimilt verði að beita gæsluvarðhaldi og einangrun í gæsluvarðhaldi ef önnur skilyrði eru uppfyllt, það er að ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni, eða telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings ellegar hann sjálfan fyrir árásum eða áhrifum annarra manna. Nefndin telur að þegar litið er til eðlis þeirra brota sem um er að ræða og þeirra hagsmuna sem í húfi eru sé eðlilegt að dómstólar hafi þessi heimild. 1.6.2011 12:00
Jeppa- og skotveiðimenn kvarta til umboðsmanns Alþingis Ferðaklúbburinn 4X4 og Skotveiðifélag Íslands, hafa kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna umhverfisráðherra, umhverfisráðuneytis, stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs. Kvartað er yfir því að umhverfisráðherra hafi hinn 28. febrúar 2011 staðfest stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs eins og sú áætlun lá þá fyrir. 1.6.2011 12:00
Á fjórða tug féllu í Jemen 37 eru sagðir hafa fallið í bardögum í Sanaa höfuðborg Jemens síðastliðna nótt. Róstusamt hefur verið víða í landinu eftir að uppreisn hófst gegn Ali Abdullah Saleh forseta landsins. Var það ein fyrsta uppreisnin í því sem kallað hefur verið arabíska vorið. Saleh neitar að víkja úr embætti og hefur beitt öryggissveitum sínum óspart gegn uppreisnarmönnum. 1.6.2011 11:51
Aðstoðuðu vélarvana bát Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út á níunda tímanum í morgun þegar bátur varð vélarvana í innsiglingunni í höfnina í Grindavík. 1.6.2011 11:15
Kraftasport á Patreksfirði Skosku Hálandaleikarnir verða haldnir á Patreksfirði dagana 2. til 6. júní. Leikarnir kallast á ensku „Iceland Highland Games". Hálandaleikarnir verða hluti hátíðahalda Sjómannadagsins sem árlega er haldinn hátíðlegur á Patreksfirði. Stjórn Sjómannadagsins sér um að halda leikana í samvinnu við Pétur Guðmundsson, kúluvarpara, en Pétur hefur keppt í Hálandaleikum um árabil og er núverandi heimsmethafi í steinkasti. Ákveðið var að ráðast í þessa framkvæmd vegna þess að Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Patreksfirði í 70 skipti og er ein stærsta hátíð sjómannsins á Íslandi. Mörgum þekktum erlendum keppendum hefur þegar verið boðið á leikana og er áætlaður fjöldi þeirra 18 manns, 6 konur, 6 karlar og 6 öldungar. Með þessum útlendingum keppa svo tveir bestu Íslendingarnir í hverjum flokki og gefur sigur Íslandsmeistaratitil. 1.6.2011 10:50
Kvennahlaupið haldið í 22. sinn Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í tuttugasta og annað sinn, laugardaginn 4. júní. Í ár er kvennahlaupið í samstarfi við Styrktarfélagið Líf og slagorð hlaupsins er "Hreyfing allt lífið". Líf styrktarfélag vinnur að því að styrkja fæðingarþjónustu og kvenlækningar á kvennadeild Landspítalans. Markmiðið er að byggja upp öfluga miðstöð fæðinga og kvenlækninga á Íslandi og mun miðstöðin þjónusta konur og fjölskyldur þeirra. Þetta er málefni sem snertir allar konur og fjölskyldur þeirra og er við hæfi að nota styrk kvennahlaupsins til að beina kastljósinu að þessu mikilvæga málefni. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 þúsund konur taka þátt á um 85 stöðum hérlendis og á 14 stöðum erlendis. Stærsta hlaupið er í Garðabæ klukkan 14, þar sem þúsundir kvenna koma saman og hlaupa. Einnig er hlaupið í Mosfellsbæ og á Akureyri klukkan 11. Nánari upplýsingar um hlaupastaði má finna á www.sjova.is <http://www.sjova.is> eða á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ. 1.6.2011 10:25
Lamdi konu og sagðist þekkja menn í Fáfni Rétt rúmlega tvítugu karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast á konu í samkvæmi í apríl árið 2009. Hann er sakfelldur fyrir að hafa slegið hana með flötum lófa í andlitið þannig að hún féll í gólfið, svo steig hann ofan á höfuð hennar þar sem hún lá á gólfinu og togað í hár hennar. 1.6.2011 10:10
Konan sem uppgötvaði HIV-veiruna heldur fyrirlestur Franski Nóbelsverðlaunahafinn dr. Françoise Barré-Sinoussi er annar tveggja öndvegisfyrirlesara Heilbrigðisvísindasviðs á aldarafmælisári Háskóla Íslands og flytur hún erindi um rannsóknir sínar í veirufræðum á málþingi sem haldið er til heiðurs íslenska lækninum og veirufræðingnum Birni Sigurðssyni. Rannsóknir próf. Barré-Sinoussi skiptu sköpum við uppgötvun HIV-veirunnar og þeirrar staðreyndar að veiran veldur alnæmi. Hún hóf veirurannsóknir sínar árið 1970 og 13 árum síðar greindi hún og samstarfsfólk hennar frá uppgötvun þeirra á veirunni sem síðar hlaut nafnið HIV. Fyrir þessa uppgötvun hlaut dr. Barré-Sinoussi Nóbelsverðlaunin í líf- og læknavísindum árið 2008 ásamt samstarfsmanni sínum, próf. Luc Montagnier. Fyrirlesturinn hefst klukkan tvö í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands 1.6.2011 09:59
Höfuðkúpubraut sambýliskonuna Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að ráðist á þáverandi sambýliskonu sína og veita henni áverka á heimili þeirra í júlí á síðasta ári. Konan höfuðkúpubrotnaði og var í framhaldinu flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Maðurinn sagði í skýrslutöku konan hefði ráðist á hann með skærum í kjölfar rifrildis og því hafi verið um sjálfsvörn að ræða. 1.6.2011 09:48
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Eggert Kári Kristjánsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa nauðgað stúlku á heimili sínu í maí á síðasta ári. 1.6.2011 09:27
"Það er ekki okkar markmið að sekta" "Það er ekki okkar markmið að sekta. Ef við þurfum ekki að sekta einn einasta ökumann þá erum við sáttir,“ segir Kristján Guðnason lögreglumaður. Fjöldi ökumanna hefur verið sektaður að undanförnu fyrir að leggja ólöglega þegar þeir sækja kappleiki eða fjölskylduhátíðir. Margir þessara ökumanna hafa lýst yfir óánægju sinni með þetta. Lögregla hefur hins vegar ítrekað vakið athygli á því fyrir stóra viðburði að ökumenn sem leggi ólöglega megi búast við því að fá sektir, og þeim bent á að koma á hjólandi, gangandi eða einfaldlega leggja í nokkurra mínútna göngufjarlægð. 1.6.2011 09:25
Skuldar 6,4 milljónir í dagsektir vegna Baldursgötu Dagsektir hrannast upp hjá Baldursgötu ehf. vegna húss við Baldursgötu 32. Íbúar við Þórsgötu krefjast þess að Reykjavíkurborg grípi til aðgerða. Verstu mistök sem ég hef gert eru að kaupa þessi hús, segir eigandinn. 1.6.2011 09:00
Hryssa kastaði tveimur sprækum folöldum „Þetta var reglulega óvænt,“ segir Guðjón Antonsson á Hvolsvelli um hryssu sína sem kastaði tveimur folöldum aðfaranótt mánudags. Hryssan er ásamt fleiri hrossum á Skeggjastöðum í Vestur-Landeyjum. Sjaldgæft er að hryssur eignist tvíburafolöld. 1.6.2011 09:00
Upphæð bóta til fórnarlamba ofbeldis óbreytt í 15 ár Bætur úr ríkissjóði til þolenda ofbeldisbrota hafa verið óbreyttar frá árinu 1996 og eru langtum lægri en bætur í nágrannalöndunum. Um 130 til 160 milljónir króna eru greiddar úr ríkissjóði ár hvert til þolenda ofbeldisbrota. Frá 2006 hafa borist um 400 umsóknir á ári um bætur. Um 25 prósentum umsóknanna er hafnað. 1.6.2011 08:00
Ágústi hlíft gegn þátttöku í Exeter-fléttunni Dómsmál Daginn eftir að MP banki hótaði að gjaldfella lán til félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, nánasta viðskiptafélaga Margeirs Péturssonar, fékk sama félag 50 milljóna lán frá bankanum sem framlag í Exeter-fléttuna svokölluðu. Tölvupóstsamskipti benda til þess að Ágúst Sindri hafi sloppið við gjaldfellinguna gegn þátttöku í fléttunni. 1.6.2011 08:00
Leggja til algjört bann við lundaveiðum Náttúrustofa Suðurlands leggur til algjört bann við lundaveiði í Vestmannaeyjum í ár og að sömuleiðis verði bannað að tína svartfuglsegg í eyjunum í ár. 1.6.2011 07:48
Lá við strandi við Straumsvík Stór seglskúta, með þremur íslendingum um borð, átti ekki nema um það bil tuttugu metra ófarna upp í grýtta fjöruna í grennd við Straumsvík í gærkvöldi, þegar skipverjum tókst að koma vél hennar aftur í gang og beina henni frá landi. Hana hafði þá rekið hratt að landi eftir að vélin bilaði, seglabúnaður var ekki um borð, og ankerið náði ekki botnfestu. 1.6.2011 07:46
Atvinnuflugmenn til sáttasemjara Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair til Ríkissáttasemjara. Á heimasíðu félagsins segir að samningar hafi verið lausir frá því í lok janúar og að síðan þá hafi lítið sem ekkert þokast í samkomulagsátt. 1.6.2011 07:44
Segir grunnlögin vernda brotamenn Arnar Jensson, tengifulltrúi Íslands hjá Europol, hefur, í eigin nafni en ekki sem fulltrúi yfirvalda, sent inn erindi til stjórnlagaráðs um að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar verði tekið til sérstakrar skoðunar. Ástæðan er mat Arnars um að eignarréttur njóti meiri lagaverndar á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Eins og ákvæðið er núna kemur það í veg fyrir að hægt sé að setja í lög alþjóðlega viðurkennd úrræði sem auðvelda yfirvöldum að ná til baka ólögmætum ávinningi af brotastarfsemi. 1.6.2011 07:30
Útboð byggingar nýs fangelsis að bresta á Útboð byggingar nýs fangelsis er að bresta á, að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Málið er á dagskrá ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag. 1.6.2011 06:30
Banninu fagnað innan íþróttahreyfingarinnar Framtak Skautafélagsins Bjarnarins í baráttu gegn munntóbaksnotkun er mikið fagnaðarefni, segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). 1.6.2011 06:15