Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákæran á hendur Geir þingfest eftir hádegi Ákæra Sigríðar Friðjónsdóttur, saksóknara Alþingis, á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, verður þingfest í landsdómi eftir hádegi í dag. Á blaðamannafundi í gær gagnrýndi Geir málsmeðferðina harðlega og boðaði frávísunarkröfu vegna galla á henni. Ítrekað hefði verið brotið á sér. 7.6.2011 10:11
Þétt dagskrá á Alþingi Á fjórða tug mála eru á dagskrá Alþings í dag. Greidd verða atkvæði um fjölmörg mál, þar á meðal breytingar á barnaverndarlögum, lögum um almannatryggingar og almenningsbókasöfn. Auk þess munu þingmenn ræða um mál á borð við losun gróðurhúsalofttegunda, ráðstafanir í ríkisfjármálum, rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, skeldýrarækt, framkvæmdasjóð ferðamannastaða og austurrísku leiðin svokölluðu. Þingfundur hefst klukkan 10:30 þegar þingmenn ræða störf þingsins. 7.6.2011 09:36
Börn neita að taka Rítalín vegna umræðunnar Foreldrar ungmenna með ADHD segja þau nú neita að taka lyfin vegna umræðunnar sem hefur átt sér stað í kringum misnotkun á metýlfenídat lyfjum og skyldum lyfjum s.s. Rítalíni og þann ömurlega veruleika sem á sér stað í undirheimum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn ADHD samtakanna sendi frá sér en fjöldi félaga eru ósáttir við það hvernig Rítalíni og skyldum lyfjum hefur nánast eingöngu verið lýst sem dópi í fjölmiðlum. 7.6.2011 09:33
Sjúklingum með skorpulifur fjölgar verulega Mikil fjölgun sjúklinga með skorpulifur hér á landi hefur leitt til þess að Íslendingar eru ekki lengur með lægstu tíðni þessa sjúkdóms á Vesturlöndum, eins og verið hefur áratugum saman. 7.6.2011 07:46
Strandveiðibátar og fiskiskip streyma á miðin Strandveiðibátar og önnur fiskiskip streyma á miðin og tilkynntu 300 bátar og skip brottför á aðeins þremur klukkustundum í nótt. 7.6.2011 07:45
Búast við éljum norðan- og austantil á landinu Búast má við stöku éljum norðan- og austantil á landinu í dag, samkvæmt spá Veðurstofunnar og verður vindátt áfram norðlæg. 7.6.2011 07:43
Borgin vill starfsfólk Hörpunnar í strætó "Mér finnst dálítið mikið að ætlast til þess að Harpa ein standi fyrir því að kollvarpa ferðavenjum Reykvíkinga,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar sem á og rekur tónlistarhúsið Hörpu. 7.6.2011 07:30
Björgunarsveit aðstoðaði þrjá ferðamenn Björgunarsveit var kölluð út seint í gærkvöldi til að aðstoða þrjá erlenda ferðamenn, sem sátu fastir í snjóskafli í jepplingi sínum á Dómadalsleið, skammt frá Landmannalaugum. 7.6.2011 07:22
Aflífa þurfti reiðhest eftir umferðaróhapp Aflífa þurfti stórslasaðan reiðhest en annar slapp lítið meiddur eftir að kerra með hestunum losnaði aftan úr bíl á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis í nótt. 7.6.2011 07:13
Skipt um efstu stjórnarmenn Aðalsteinn Leifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur tekið við sem formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans á Bifröst, tekið við sem varaformaður. 7.6.2011 07:00
Útvegaði burðardýr til fíkniefnasmygls Brynjar Mettinisson, sem situr í gæsluvarðhaldi í Bangkok í Taílandi, útvegaði arabískum manni sem hann hafði verið í samskiptum við á netinu burðardýr sem flytja átti einn lítra af metamfetamíni í vökvaformi til Japans. 7.6.2011 06:30
Jói Fel innkallar súkkulaði Hjá Jói Fel hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla belgískt súkkulaði merkt Jóa Fel. 6.6.2011 22:29
Sigmundur Ernir um landsdómsmálið: Óþverralegt einelti Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að landsdómsmálið sé pólitísk aðför að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segir málið vera kattahreinsun. 6.6.2011 20:57
Blaðamannafundurinn í heild sinni Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, boðaði til blaðamannfundar í dag í tilefni af því að á morgun verður mál Alþingis gegn honum þingfest fyrir Landsdómi. 6.6.2011 20:23
Atli Gíslason: Virði skoðanir Geirs en er ósammála honum Atli Gíslason, þingmaður utan þingflokks á Alþingi, segist virða skoðanir Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra en sé ósammála honum. Þingfesting í máli Alþingis gegn honum fer fram á morgun fyrir Landsdómi. 6.6.2011 20:03
Tilnefningar til Grímunnar - Lér konungur með 10 tilnefningar Tilnefningar til Grímuverðlauna 2011 í alls 16 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddum fjölda sviðslistafólks, en alls komu 80 leiklistarverkefni til álita til Grímunnar í ár. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. 6.6.2011 19:21
Boðar nýja stóriðjusamninga á komandi mánuðum Iðnaðarráðherra sagði á Alþingi í dag alveg ljóst að samningar um stóriðju í Þingeyjarsýslum yrðu gerðir á komandi mánuðum. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir þetta enn eitt loforðið sem ríkisstjórnin geti ekki staðið við. 6.6.2011 18:55
Hugsanlegt að tíu þúsund króna seðill verði framleiddur Það kostar þrjár krónur að búa til eina krónumynt, en krónan hefur rýrnað mikið síðustu áratugi. Seðlabankastjóri segir að skoða þurfi hvort mynteiningar séu orðnar of litlar, og segir hugsanlegt að tíu þúsund króna seðill verði framleiddur. 6.6.2011 18:55
Allir sem greinst hafa með HIV notuðu rítalín frá læknum Allir þeir sprautufíklar sem greinst hafa HIV jákvæðir á þessu ári sprautuðu sig með rítalíni í æð sem ávísað var af læknum. Yfirlæknir smitsjúkdóma segir að hemja verði dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax. 6.6.2011 18:30
Khat-málið: Íri áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag að írskur ríkisborgari skuli sæta áfram gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að innflutningi á tæpum sextíu kílóum af fíkniefinu Khat hingað til lands. 6.6.2011 18:05
Eldur kom upp í raðhúsi við Miklubraut Eldur kom upp í raðhúsi á gatnamótum Miklubrautar og Stakkahlíðar um klukkan hálf sex í dag. Mikinn reyk lagði frá húsinu en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var eldur laus í íbúð og tókst að slökkva hann fljótt og örugglega. Eldsupptök eru ókunn. Allar stöðvar voru sendar á vettvang en eldurinn virðist hafa verið minni en talið var í upphafi. 6.6.2011 17:32
Geir fékk send blóm frá stuðningsmönnum Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fékk send blóm á tröppurnar heima hjá sér í gær. Þetta sagði hann á blaðamannafundi sem hann hélt á Grand hótel í dag vegna ákærunnar gegn sér, sem þingfest verður fyrir Landsdómi á morgun. 6.6.2011 17:22
Vörnin hefur þegar kostað Geir 9 milljónir Kostnaðurinn strax kominn í níu milljónir, sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á blaðamannafundi í dag. Stuðningsmannafélag hefur verið stofnað fyrir Geir til þess að standa straum af kostnaði við málið. Geir og Andri Árnason verjandi hans eru með fjölda manna á sínum snærum til að vinna að vörnum við málið. 6.6.2011 16:45
Tilmæli um bönd í blöðrum Neytendastofa beinir þeim tilmælum til söluaðila og foreldra að huga að böndum á blöðrum nú þegar styttist í 17. júní. Fram kemur í tilkynningu að börn geti viljandi eða óviljandi vafið slíkum böndum um háls sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Lengri bönd geti auk þess skapað hættu á kyrkingu. 6.6.2011 16:40
100 reiðhjól verða boðin upp Um 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstkomandi laugardag, 11. júní, klukkan 11. Um er að ræða reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. 6.6.2011 16:33
Geir segist eiga við ofurefli að etja "Ég vísa öllum ákæruatriðum á bug. Þau eru fráleit, sérstaklega í ljósi þess að ákvarðanir minnar ríkisstjórnar í aðdraganda bankahrunsins reyndust réttar. Ákæruskjalið er þannig samið að nausynlegt er að láta á það reyna hvort það standist réttarfarslegar reglur," segir Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á blaðamannafundi, sem nú fer fram. Hann segist ætla að krefjast frávísunar í málinu við fyrsta tækifæri og að um pólitíska atlögu sé að ræða. 6.6.2011 16:16
Slasaðist á torfæruhjóli Maður slasaðist á torfæruhjóli er hann var að æfa sig á æfingasvæði við Hrísmýri á Selfossi um miðjan dag í gær. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysasdeild Landspítala. Talið var að hann hafi rifbeinsbrotnað og ef til vill hlotið innvortis blæðingar. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítalans er maðurinn kominn aftur heim. 6.6.2011 15:49
Háskólinn á Akureyri aldrei vinsælli Umsóknir um skólavist við Háskólann á Akureyri hafa aldrei verið fleiri en umsóknarfrestur rann út í gær. Alls sóttu 1030 manns um skólavist og er þetta í fyrsta sinn sem umsóknir eru fleiri en þúsund. Flestir vilja komast að í hjúkrunarfræði, viðskiptafræði og sálfræði. 6.6.2011 15:45
Sérfræðiaðstoð fyrir 555 milljónir Íbúðalánasjóður keypti sérfræðiaðstoð af einstaklingum og lögaðilum fyrir um 555 milljónir á tímabilinu 2001-2008. Árið 2008 var kostnaðurinn rúmar 100 milljónir. Þetta er meðal þess fram kemur í svari Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 6.6.2011 15:40
Þremur bifreiðum stolið í Þorlákshöfn Sá fátíði atburður átti sér stað um helgina að þremur bifreiðum var stolið í því sem virðist vera þrjú óskyld atvik, og það allt á Þorlákshöfn. 6.6.2011 15:32
Ferðamenn geta skráð sig í gagnagrunn utanríksráðuneytisins Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til útlanda eða dvelja erlendis í lengri eða skemmri tíma geta nú skráð upplýsingar þar að lútandi á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Fyrirkomulag þetta er sérstaklega hugsað fyrir þá sem fara til fjarlægari heimshluta eða svæða þar sem af einhverjum ástæðum má ætla að sé viðsjárvert ástand. Upplýsingarnar eru færðar í þar til gerðan gagnagrunn og geymdar á meðan á dvölinni stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneytið hefur á undanförnum árum ítrekað þurft að virkja neyðaráætlun sína vegna hamfara eða annars hættuástands erlendis. Stór þáttur í því starfi sem þá hefst er að hafa samband við alla íslenska ríkisborgara sem kunna að vera staddir á viðkomandi svæði. Gagnagrunninum er ætlað að auðvelda ráðuneytinu að ná sambandi við þá einstaklinga sem hafa skráð sig, auk þess sem við slíkar aðstæður er hægt að kalla eftir því að Íslendingar sem eru á hættusvæði og hafa ekki þegar skráð sig í grunninn, fari á netið og skrái sig. Er litið svo á að þetta kunni að reynast mikilvægt þar sem við slíkar aðstæður eru gjarnan vandamál með símasamband, en netið virkar. Gagnagrunnurinn telst eign utanríkisráðuneytisins og verða upplýsingar úr grunninum ekki veittar til þriðja aðila nema öryggi þeirra sem skráðir eru í gagnagrunninn krefjist þess. Upplýsingar í grunninum verða aðeins notaðar í öryggisskyni og til að utanríkisráðuneytið eða íslenskt sendiráð geti náð sambandi við viðkomandi. Þeim sem hyggja á ferðalög til viðsjárverðra svæða er sérstaklega bent á að skrá sig en öllum sem vilja láta vita af sér er það velkomið. 6.6.2011 15:23
Tuttugu gróðurhúsalömpum stolið Tuttugu gróðurhúsalömpum var stolið úr gróðurhúsi Flúðajöfra á Flúðum aðfaranótt sunnudags. Þar sást til Nissan Terrano jeppabifreiðar. 6.6.2011 14:53
Þriðja leið Hreyfingarinnar rædd á Alþingi Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar mælir í dag fyrir Þriðju leiðinni, frumvarpi flokksins um stjórn fiskveiða. Eftir það mun málið ganga til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Í tilkynningu frá Hreyfingunni segir að nefndin ætli að standa fyrir kynningu á þeim sjávarútvegsmálum sem hún fær til meðferðar og í framhaldi af því ætla þingmenn Hreyfingarinnar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn fiskveiða „þar sem valið standi á milli óbreytts ástands, leiðar ríkisstjórnarinnar eða leiðar Hreyfingarinnar." 6.6.2011 14:39
Um 1200 styðja Geir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Einar Karl Haraldsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, eru meðal þeirra sem styðja Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna ákæru á hendur honum fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Fjöldi fólks hefur skráð sig á vefsíðu sem opnuð hefur verið til stuðnings Geir en hátt í 1200 höfðu skráð nafn sitt á síðuna um klukkan tvö í dag. 6.6.2011 14:28
Áralangri baráttu fyrir austurrísku leiðinni að ljúka „Auðvitað fagna ég því að þetta sé vonandi að komast á endapunkt," segir Kolbrún Halldórsdóttir um afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi um hina svonefndu austurrísku leið. Þegar Kolbrún sat á Alþingi lagði hún ítrekað fram frumvarp þess efnis en aldrei komst það í gegn. Hún sér því nú fyrir lok áralangrar baráttu fyrir því að lögregla fái heimild til að fjarlægja ofbeldismenn af heimili sínu, í stað þess að brotaþoli þurfi að flýja. Stór hluti þeirra kvenna sem dvelst í Kvennaathvarfinu er þar eftir að hafa flúið ofbeldismanninn og þar með heimili sitt. Eftir mikla fjölgun kvennaathvarfa var farin sú leið að fjarlægja ofbeldismanninn af heimilinu í stað þess að brotaþoli þurfi að flýja, og hefur þessi leið því verið kölluð austurríska leiðin í þeim löndum sem síðar tóku hana upp. Kolbrún leggur áherslu á nauðsyn þess að löggjafinn vinni málið þannig að aðgengilegt verði fyrir löggæsluyfirvöld að koma þessu ákvæði í framkvæmd. „Ákvæði um refsingar við klámi og nauðgunum sem eiga að vernda fólk gegn kynferðisofbeldi hafa ekki virkað, og hefur löggæslan borið því við að löggjafinn hafi útfært reglurnar svo illa að erfitt sé að fara eftir þeim. Ég vona að þetta verði ekki eitt af þeim dæmum. Markmiðið er jú að koma í veg fyrir ofbeldið," segir Kolbrún. Hún viðurkennir að það sé mikið inngrip í líf gerandans að fjarlægja hann af eigin heimili. „Austurríska leiðin er skref í rétta átt. Þetta er alvarlegt inngrip í líf gerandans, í líf ofbeldismannsins, en svo virðist sem lög og reglur þurfi að taka á gerandanum til að þau hafi áhrif. Aðgerðirnar þurfa að brenna á hans skinni," segir Kolbrún. 6.6.2011 14:19
Geir boðar til blaðamannafundar Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra hefur boðað blaðamenn á sinn fund í dag klukkan fjögur. Í tilkynningu segir að tilefnið sé væntanleg þingfesting landsdómsmálsins gegn Geir sem fram fer á morgun. 6.6.2011 12:55
Vel heppnuð hátíð á Patreksfirði Hátíðarhöld og skemmtanahald vegna sjómannadagsins fóru vel fram í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum og er talið að íbúafjöldi hafi að minnsta kosti tvöfaldast á Patreksfirði um helgina en hátíðarhöld stóðu frá fimmtudegi til sunnudags. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum. 6.6.2011 12:31
Sigmundur Davíð vill úttekt á Seðlabankanum Formaður Framsóknarflokksins segir nauðsynlegt að gera úttekt á Seðlabanka Íslands, eftir að bankinn þurfti að leiðrétta upplýsingar sínar um stöðu þjóðarbúsins, sem sé hundruð milljörðum verri en fyrri upplýsingar bankans gáfu til kynna. Fjármálaráðherra segir ástæuðulaust að fara á taugum vegna þessa. 6.6.2011 12:19
Nefskatturinn nær ekki til myndlykla Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir langsótt að ætlast til þess að útvarpsgjald ber þann kostnað sem til fellur þegar almenningur þarf að leigja myndlykla til að ná útsendingum Ríkissjónvarpsins. Það sama eigi við um myndlykla og sjónvarpstæki. Gjaldið nái ekki til sjónvarpskaupa. 6.6.2011 12:16
Stuðningsmenn Geirs opna heimasíðu Vefsíða hefur verið opnuð til stuðnings Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna ákæru á hendur honum fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. 6.6.2011 12:13
Steingrímur segir að kynslóð hans hafi brugðist Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að hans kynslóð stjórnmálamanna hafi brugðist í aðdraganda kreppunnar á Íslandi og hún megi ekki bregðast þjóðinni aftur í uppbyggingunni. Í fyrirlestri á Írlandi sagði hann nýja ríkisstjórn landsins eiga að búa sig undir að verða óvinsæl vegna nauðsynlegra aðgerða. 6.6.2011 12:11
Margrét Pála heiðruð við útskrift MBA-nema Háskólinn í Reykjavík brautskráði 32 nemendur með MBA-gráðu um helgina. Athöfnin fór fram í aðalbyggingu HR í Nauthólsvík og voru um 200 gestir viðstaddir athöfnina. Fyrir fjórum árum var tekin upp sú nýbreytni að nemendur í MBA-námi kjósa þann samnemanda sinn sem þeim finnst hafa lagt mest af mörkum til annarra nemenda. Sá nemandi sem hlaut þessi verðlaun í ár var Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi og fræðslustjóri Hjallastefnunnar, og tók hún við verðlaunum úr hendi Eggerts B. Guðmundssonar, forstjóra HB Granda og stjórnarmanns í Viðskiptaráði. Þess má til gamans geta að fyrir þremur árum var Margrét Pála fulltrúi viðskiptalífsins við MBA-útskrift Háskólans í Reykjavík og ákvað hún í kjölfarið að sækja um í námið. 6.6.2011 12:07
Mennirnir sem urðu eftir úti á sjó bera sig báðir vel "Þetta er svona það versta sem maður kemst í að leita að félögum sínum á sjó," segir varaformaður Björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga en tveir liðsmenn sveitarinnar urðu eftir í sjó í um fjörutíu mínútur í gær. Mennirnir voru nokkuð þrekaðir þegar þeir fundust en hafa nú báðir náð sér nokkuð vel. 6.6.2011 12:03
Styttist í ákvörðun um nýtt fangelsi „Útboðsgögn eru því sem næst tilbúin eftir því sem ég best veit þannig að það styttist í ákvarðanatöku,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum Alþingi í dag um byggingu nýs fangelsis. Ekki liggur fyrir hvort um opinbera framkvæmd eða einkaframkvæmd verði að ræða. 6.6.2011 11:46
Töluverð hreyfing komin á fjárfesta Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segir samkeppni um orku sem framleidd er hér á landi ánægjulega. Landsvirkjun telji eftirspurnina vera um 1600 megavött. „Auðvitað verður ekki framleitt það mikið af orku á komandi árum en það er ánægjulegt að eftirspurnin skuli vera eins mikil og raun ber vitni.“ 6.6.2011 11:17