Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Surtsey á frímerki hjá Sameinuðu Þjóðunum Surtsey hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að prýða frímerki sem gefið er út af Póststofnun Sameinuðu Þjóðanna. Sex frímerki hafa verið gefin út í sérstakri útgáfu sem ætlað er að minnast norrænna heimsmynja. 10.5.2011 11:48
Synda fyrir bætta geðheilsu Sala á K-lykli Kiwanishreyfingarinnar hófst í morgun með því að Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir, afreksmenn í sundi, stungu sér til sunds í Laugardalslauginni í Reykjavík ásamt þeim Herði Oddfríðarsyni, formanni Sundsambandsins, og Óskari Guðjónssyni frá Kiwanissamtökunum. 10.5.2011 10:37
Fjöldi nýnema tvöfaldast Nýnemar á háskólastigi voru um það bil 3900 síðasta haust og hafði fjöldi þeirra tæplega tvöfaldast frá hausti 1997. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Nýnemar voru þó enn fleiri haustið 2009 eða tæplega 4400 og hafa aldrei verið fleiri en þá. 10.5.2011 09:17
Leki kom að Atlasi Leki kom að strandveiðibátnum Atlasi SH þegar hann var staddur út af Grundarfirði undir kvöld í gær. Skipverjum tókst að halda bátnum á floti með stöðugri dælingu á meðan þeir sigldu honum til lands. Þegar þangað kom var töluverður sjór kominn í bátinn. 10.5.2011 09:09
Veiðar stöðvaðar á svæði eitt Strandveiðar á svæði númer eitt, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem bátarnir voru búnir að veiða heildarkvóta þessa mánaðar. Svæðið nær frá Snæfellsnesi til Bolungavíkur og er lang vinsælasta svæðið, sem sést best af því að lang flestir bátar eru skráðir til veiða þar. 10.5.2011 08:22
Reiðhjólalöggur tóku Vespu-mann úr umferð Tveir lögreglumenn á reiðhjólum tóku ökumann vespu-bifhjóls úr umferð á Akureyri í nótt þar sem hann reyndist undir áhrifum áfengis. Þetta gerðist á Mýrarvegi við Kaupvang og var Vespumaðurinn sviftur ökuréttindum til bráðabirgða. 10.5.2011 07:05
Segja bellibrögðum beitt í vínbúðarmáli Fjölmargir íbúar og húseigendur í nágrenni við vínbúð ÁTVR á Hólabraut á Akureyri mótmæla harðlega fyrirhugaðri deiliskipulagsbreytingu sem gera mun fyrirtækinu kleift að reisa viðbyggingu við húsnæði sitt. 10.5.2011 07:00
Hreindýraleyfi verði seld hæstbjóðendum Tekjur af hreindýrum á Austurlandi eru verulega minni en þær gætu verið vegna þess að veiðileyfin er seld á undirverði. Þetta segja kennarar við Háskólann á Akureyri. 10.5.2011 06:30
Dómurinn telur ákæruna vera skýra Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hafnaði í gær frávísunarkröfu verjenda í skattahluta Baugsmálsins. Dómarinn taldi ákæru í málinu ekki svo óskýra að ákærðu gætu ekki varið sig. 10.5.2011 05:00
Ráðgjöf og aðstaða í Matarsmiðju Matís mun opna áttundu starfsstöð sína utan höfuðborgarsvæðisins á fimmtudaginn á Flúðum. Um er að ræða svokallaða matarsmiðju en smiðjur sem þessar hefur Matís byggt upp með góðum árangri á Höfn í Hornafirði og á Egilsstöðum. 10.5.2011 04:00
Gangast í persónulegar ábyrgðir Eigendur Menntaskólans Hraðbrautar hafa ákveðið að innrita nýnema þrátt fyrir að þjónustusamningur við mennta- og menningarmálaráðuneytið kveði aðeins á um kaup ráðuneytisins á þjónustu skólans vegna nemenda á öðru ári. 10.5.2011 04:00
Aukið samstarf hjá háskólum Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra í dag. 9.5.2011 16:33
Helgi Seljan fór í hjartaþræðingu Helgi Seljan sjónvarpsfréttamaður gekkst undir hjartaþræðingu í fyrir fáeinum dögum. Hann er nú að jafna sig á Landspítalanum, samkvæmt heimildum Vísis. Helgi fann fyrir verki í hjarta og ákvað að leita læknisaðstoðar á bráðamóttöku Landspítalans. Fréttavefurinn Eyjan segir að þar hafi komið í ljós að ekki hafi verið um kransæðastíflu að ræða heldur bólgur í hjartavöðvum. Helgi baðst undan viðtali þegar Vísir spurði hann út í málið. 9.5.2011 15:15
Pöddur og skordýr í heimahúsum Ef þú þekkir fyrirbærið þá þarftu ekki að vera með æsing, heldur bregðast rétt við, segir Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur. Pöddur, eins og ryklús, hambjöllur, húsamaur, silfurskottur - og svo humlur og geitungar eru yfirleitt illa séðir gestir í heimahúsum. Þóra segir að sér finnist viðbrögð við slíkum gestum oft líkjast hysteríu. Þörf sé á meiri fræðslu um slík dýr. Hún ætlar að bæta úr þessu með fyrirlestri í sal Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar á morgun. „Auk þess vil ég gefa innsýn í það sem mér finnst vera heillandi heimur smádýra," segir Þóra í samtali við Vísi. 9.5.2011 14:31
Herjólfur í Landeyjahöfn fram á fimmtudag Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun áfram sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en siglingar til Landeyja hófust að nýju um helgina. Ferjan mun sigla þrjár ferðir á dag á hverjum degi fram á fimmtudag þegar ástand mála verður endurmetið. 9.5.2011 14:27
Umferðarslys í Hafnarfirði - leitað að vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Reykjavíkurvegar og Hraunbrúnar í Hafnarfirði um klukkan 16 fimmtudaginn 5. maí. Að sögn lögreglu var grænum pallbíl, með húsi yfir palli, ekið á reiðhjólamann sem var á leið yfir götuna umferðarljós eru á gatnamótunum. 9.5.2011 14:18
Skarst illa á hendi í Ólafsvík Maður slasaðist á Ólafsvík fyrir hádegið þegar hann fór með hendina í fiskvinnsluvél. Skarst maðurinn svo illa að kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn. Þyrlan kom til Reykjavíkur um klukkan eitt var maðurinn lagður inn á Landspítalann í Fossvogi. 9.5.2011 13:43
Ríkissaksóknari beitir sér ekki vegna ísbjarnardráps Ríkissaksóknari hyggst að óbreyttu ekkert aðhafast vegna ísbjarnardrápsins á Hornströndum í síðustu viku. Dýrafræðingur telur að lagaákvæði um friðun hvítabjarna hafi verið brotin. Samkvæmt lögum eru hvítabirnir friðaðir á Íslandi. Þó má fella hvítabjörn, sem gengið hefur á land, ef fólki og búfénaði er talin stafa hætta af. 9.5.2011 13:36
Lögreglan leitar að eiganda myntsafns Lögreglan lýsir á Facebook síðu sinni eftir eiganda myntsafns sem er í hennar vörslu. Safnið er í möppu og er merkt „Íslenzkar myntir“. Þeir sem telja sig kannast við safnið geta haft samband við lögregluna í Hafnarfirði. 9.5.2011 13:10
Pétur Kristján fékk myndavélina Pétri Kristjáni Guðmundssyni varð að ósk sinni þegar hann fékk afhenta glæsilega Canon myndavél auk linsu og minniskorts í gær en Pétur lamaðist fyrir neðan mitti þegar hann féll niður kletta í Austurríki um síðustu áramót. 9.5.2011 13:03
Aukin aðstoð við innflytjendur Innflytjendur geta nú sótt ráðgjöf og upplýsingar um réttindi sín og skyldur í Þjónustumiðstöð Breiðholts í Mjódd. Í tilkynningu frá borginni segir að boðið sé upp á almenna ráðgjöf, til að mynda um dvalarleyfi og ríkisborgararéttindi, réttindamál ýmis konar, sem og upplýsingar um menntunarmöguleika og frístundir, auk lögfræðilegrar ráðgjafar. 9.5.2011 12:53
Lagt til að bann við herskyldu fari í stjórnarskrá Stjórnlagaráð hefur birt ellefu greinar til kynningar í mannréttindakafla nýrrar stjórnarskrár, þar sem meðal annars er bannað að innleiða herskyldu á Íslandi. Þriðjungur er liðinn af skipunartíma ráðsins. 9.5.2011 12:16
Fjórir vilja fá hvítabjörninn Fjórir aðilar hafa sent Náttúrufræðistofnun erindi þar sem óskað er eftir því að fá hvítabjörninn sem var skotinn á Hornströndum í síðustu viku til varðveislu. Þar af eru þrír aðilar á Vestfjörðum, eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta. 9.5.2011 11:30
Sigríður verður ekki á tvöföldum launum Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, hefur óskað eftir samtölum við skrifstofustjóra Alþingis um að laun vegna starfa hennar fyrir Alþingi verði lækkuð. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri þingsins, í samtali við Vísi. 9.5.2011 11:04
Gáfu fæðingardeildinni fullkominn blóðþrýstingsmæli Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu, til dæmis ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstaks eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir. Tækið var afhent 2. maí 2011. 9.5.2011 10:11
Ráðherrar víki sæti á Alþingi Þingmenn þriggja stjórnmálaflokka hafa lagt fram frumvarp um heimild ráðherra til að víkja tímabundið af þingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti. Fyrstu umræðu þingsins um frumvarpið er lokið og verður það til umræðu í allsherjarnefnd í dag. 9.5.2011 09:38
Amfetamín á Austfjörðum Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við lögregluna á Seyðisfirði lagði í fyrrinótt hald á 25 grömm af amfetamíni, sem talið er að hafi verið ætlað til dreifingar og sölu á Austfjörðum. Lögreglumenn fréttu af þekktum fíkniefnasala á svæðinu og höfðu upp á honum með þessum árangri. Hann var handtekinn, en sleppt að yfirheyrslum loknum. Fíkniefnahundur frá Seyðisfirði var notaður við aðgerðina. 9.5.2011 08:36
Launin margföld í Noregi Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar fara í miklum mæli til Noregs og Svíþjóðar til að vinna þar í stuttan tíma í senn. Fólk hefur þá ýmist óskað eftir launalausu leyfi frá vinnu hér á landi eða notar sumarleyfi og vaktafrí til þess að fara á hálfgerða vertíð í þessum nágrannalöndum. Launin eru miklu hærri. 9.5.2011 07:00
Ammoníakleki á Suðurnesjum Tveimur reykköfurum í eiturefnabúningum tókst í gærkvöldi að stöðva mikinn ammoníakleka í húsnæði Slægingarþjónustu Suðurnesja í Sandgerði, og varð engum meint af lekanum. Í ljós kom að ammoníakrör hafði sprungið þannig að efnið lak út. 9.5.2011 06:54
Kona höfuðkúpubrotnaði Kona höfuðkúpubrotnaði þegar hún féll niður tröppur húss í Biskupstungum aðfaranótt sunnudags. Konan var flutt til Reykjavíkur og liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Engin vitni voru að slysinu. 9.5.2011 06:00
Hætta vegna lengri boðleiða Breytingar á lögreglustjóraembættum samkvæmt nýju frumvarpi mæta mikilli andstöðu hjá sveitarstjórn Rangárþings eystra. 9.5.2011 05:30
Kemur íslenskri matarmenningu á kortið Skorað hefur verið á Íslendinga að bjóða sig fram á ný til stjórnarsetu í Heimssamtökum matreiðslumanna, eða WACS, fyrir kjörtímabilið 2012 til 2016. Þeir Gissur Guðmundsson, Hilmar B. Jónsson og Helgi Einarsson sitja í núverandi stjórn en um tíu milljónir matreiðslumanna í 100 löndum eru meðlimir í WACS. 9.5.2011 05:15
60% bera traust til barnaverndarnefnda Tæplega sextíu prósent landsmanna bera frekar mikið eða mjög mikið traust til barnaverndarnefnda. Þetta er niðurstaða rannsóknar á trausti almennings til barnaverndarnefnda, sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. 9.5.2011 05:00
Eftirlit með mengun sjaldan án fyrirvara Umhverfisstofnun hefur á undanförnum árum farið fjórum sinnum í óundirbúið eftirlit í fyrirtæki sem stofnunin hefur eftirlitsskyldu með. Í öll skiptin var það vegna utanaðkomandi ábendinga en ekki að frumkvæði stofnunarinnar. 9.5.2011 04:30
Tryggja þátt greinanna í hagkerfinu Samtök skapandi greina (SSG) hafa verið stofnuð. Að samtökunum standa allar kynningarmiðstöðvar lista og skapandi greina á Íslandi og samtök í hverri grein. Þau samtök mynda breiðustu fylkingu fagfólks í skapandi greinum í landinu. 9.5.2011 04:00
Fréttir vikunnar: Hvítabjörn skotinn og Næturvaktin á BBC4 Vikan byrjaði með frídegi verkalýðsins þann 1. maí. Dagurinn var svolítið skrítinn að því leytinu til að jörð var alhvít. Þetta var í fyrsta sinn síðan 1993 sem jörðin er alhvít í júní. 8.5.2011 20:00
Jóhanna þrýstir á Ólaf Ragnar Forsætisráðuneytið hefur ítrekað þrýst á forseta Íslands til að setja sér siðareglur en mælst er til þess í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekkert hefur orðið af því og skilja má af bréfasamskiptum embættanna tveggja að forsetanum finnist forsætisráðuneytið vera með of mikla afskiptasemi. 8.5.2011 18:47
Ögmundur segist ekki hafa verið í hættu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að hann og fjölskylda sín hafi ekki verið í hættu þegar ráðist var að húsi hans aðfaranótt laugardags og rúður brotnar. Glerbrotum rigndi yfir ráðherrann sem sat í stofunni ásamt eiginkonu sinni. 8.5.2011 18:40
Í götubolta í góðu veðri Það var margt um að vera í góða veðrinu í dag. Fólk stytti sér stundir við róður, reiðtúra, körfuknattleik og fleira. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á ferð um miðborgina í dag og smellti myndum af fólki í sumarskapi. 8.5.2011 18:03
ESB samningur tilbúinn á næsta ári Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að hægt verði að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið á einu ári. Eiginlegar viðræður munu hefjast í júní en rýnivinnu vegna aðildarumræðunnar lauk á dögunum. "Gangi samningsviðræður ágætlega held ég að svona eftir ríflega ár geti samningur verið að koma heim," segir Björgvin G. Sigurðsson í samtali við Vísi. 8.5.2011 17:38
Útrásarjeppi til sölu Útrásin er ekki dauð úr öllum æðum. Hún er staðsett á Höfðabakka skammt frá Gullinbrú. Þar er í það minnsta þessi forláta Daihatsubifreið sem ber einkanúmerið Útrásin. Bíllin er 1998 árgerð og er ekin tæpa 200 þúsund kílómetra. Það má segja að útrásin fáist á spottprís, eða einungis um 500 þúsund krónur. 8.5.2011 16:48
Nýta veðrið í strandferðir og Esjugöngur Fjöldi fólks hefur nýtt blíðviðrið sem nú er á höfuðborgarsvæðinu í útivist það sem af er degi. Töluverður fjöldi fólks hefur nýtt daginn til þess að ganga á Esjuna. Þar á meðal voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit eiginkona hans sem voru þar á göngu með hundinn sinn. 8.5.2011 15:12
Ráðist að heimili Ögmundar Ráðist var að heimili Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í fyrrinótt. Fjölmennt lið lögreglu var kallað á staðinn þar sem talið var að um umsátur væri að ræða. Öryggi ráðherrans var tryggt með aðgerðum lögreglunnar. 8.5.2011 13:01
Mistök að samþykkja umsókn í ESB Ögmundur Jónasson segist hafa gert mistök þegar hann studdi umsókn Íslendinga í Evrópusambandið. Hann vill flýta samningaviðræðunum og leggja málið í dóm kjósenda. 8.5.2011 12:23
Kvótinn ekki eina ástæða fólksfækkunar Það er mikil einföldun að halda því fram að kvótakerfið sé eina ástæða fólksfækkunar á landsbyggðinni. Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði. 8.5.2011 12:08