Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samningur um þvinguð mannshvörf enn ekki fullgildur Tuttugu aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa nú fullgilt alþjóðlegan samning um þvinguð mannshvörf. Þvingað mannshvarf á sér stað þegar maður er handtekinn eða rænt fyrir hönd ríkisins. Yfirvöld neita þá að viðkomandi sé í haldi eða leyna dvalarstað hans og firra hann þannig allri lagavernd. 6.12.2010 15:15
Enginn borgarstjóri í Bústaðakirkju þessa aðventuna Frá því Bústaðakirkja var vígð fyrir 39 árum hefur nýr borgarstjóri verið viðstaddur aðventukvöld í kirkjunni á fyrsta sunnudag aðventu, með örfáum undantekningum. Til stóð að Jón Gnarr myndi halda hefðinni við en eftir veikindi hans nýverið þurfti að fækka verkefnum og var heimsókn á aðventukvöldið eitt af því sem tekið var af dagskrá borgarstjóra. 6.12.2010 14:43
Disney matreiðslubókin uppseld hjá útgefanda - mest selda bók ársins Stóra Disney matreiðslubókin er mest selda bók landsins 2010, samkvæmt bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda og er nú uppseld aftur hjá útgefanda, þrátt fyrir viðbótarupplag sem prentað var nýlega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgefanda og er þess getið að bókin hafi nú verið prentuð í 13.000 eintökum, sem sé mesta upplag sem prentað hefur verið af íslenskri bók á þessu ári. 6.12.2010 14:33
Handtekinn fyrir káf og fyllerísraus Ölvaður karlmaður gekk berserksgang á Hótel Örk um helgina. Auk þess angraði hann gesti með káfi og rausi. 6.12.2010 14:06
Innbrot tíðari á tekjulágum svæðum Nokkur fylgni er milli fjölda brota og efnahagslegrar og félagslegrar stöðu eftir svæðum samkvæmt afbrotaskýrslu lögreglunnar fyrir árið 2009. 6.12.2010 13:29
Auðgunarbrotum fjölgar Árið 2009 var um margt viðburðarríkt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þegar litið er til þróunar afbrota samkvæmt afbrotaskýrslu lögreglunnar fyrir árið 2009. 6.12.2010 13:22
Lögðu hald á 54 kíló af kannabisefnum á síðasta ári Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 54 kíló af kannabisefnum árið 2009 samkvæmt skýrslunni, Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2009. 6.12.2010 13:11
Hugsaði um Guð og jörðina áður en hann steyptist í hafið „Ég held að hugurinn hafi frosið. Maður hugsaði bara um Guð og jörð,“ segir Hilmir Arnarson, sem var hætt kominn í gær þegar hann missti stjórn á jepplingi sem hann ók og endaði í sjónum nálægt Fáskrúðsfirði. 6.12.2010 13:00
Valgerður segir Guantanamó-áformin andvana fædd Áform Bandaríkjamanna um að vista hér fanga úr Guntanamo-fangelsinu voru andvana fædd segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún segist muna eftir þessu eins og þetta hafi gerst í gær því sér hafi þótt þetta svo sérkennilegt. 6.12.2010 12:00
Áhyggjur af ungum þjófum Ungur aldur búðarþjófa vakti athygli hjá Öryggismiðstöðinni um helgina. Í tilkyningu segja þeir að öryggisverðir á þeirra vegum hafi komið að nokkrum málum um helgina þar sem mjög ungir ólögráða einstaklingar voru staðnir að hnupli í verslunum, allt niður í 12-13 ára gamlir. 6.12.2010 11:49
Kínverjar vísa á bandaríska sendiráðið vegna meintra njósna Kínverska sendiráðið hér á landi vísar á bandaríska sendiráðið vegna frétta um meintar iðnnjósnir Kínverja hér á landi. Í þeim gögnum sem birtust á Wikileaks er sérstaklega talað um að grunur leiki á að meintar iðnjósnir hafi snúist um að komast yfir upplýsingar í erfðatækni og læknavísindum. 6.12.2010 10:54
Brotist inn á lögreglustöðina á Eskifirði Brotist var inn á lögreglustöðina á Eskifirði í síðustu viku. Yfirlögregluþjónn, sem Vísir ræddi við, sagði þjófinn hafa brotið stóra rúðu og farið þannig inn í húsakynni lögreglunnar. 6.12.2010 09:41
Slökkviliðið kallað að raðhúsi í nótt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að raðhúsi í borginni í nótt þar sem óttast var að kviknað hefði í einhverju í kjallara hússins. 6.12.2010 09:21
Kennarasambandið ætlar ekki að vera með í samfloti „Kennarasamband Íslands mun ekki taka þátt í heildarsamfloti um gerð kjarasamninga,“ segir í ályktun sem Kennararasambandið sendi til fjölmiðla í morgun. Þar segir ennfremur: 6.12.2010 09:12
Maðurinn með riffilinn látinn laus Maðurinn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í fyrrinótt eftir að hann hafði verið á veitingahúsi, vopnaður riffli, var látinn laus að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi. 6.12.2010 09:03
Fangar afhenda smákökur Fangar af Litla-Hrauni munu afhenda Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Jólaaðstoð-2010 um 36 þúsund smákökur í dag. Fangarnir bökuðu kökurnar sjálfir til styrktar Mæðrastyrksnefnd. 6.12.2010 09:01
15 prósent kvenna í ofbeldissambandi Ofbeldi í nánum samböndum er víðtækara samfélagsmein en flestir gera sér grein fyrir, þar sem 15 prósent kvenna upplifa ofbeldi í núverandi sambandi. 6.12.2010 06:45
Aðeins brot hefur verið birt Á vefsíðunni Wikileaks hafa til þessa einungis verið birt 837 þeirra 251.287 leyniskjala úr bandarísku utanríkisþjónustunni, sem boðuð hefur verið birting á. 6.12.2010 06:30
Álfyrirtækin voru varin fyrir hækkun Aldrei stóð til að setja á einnar krónu orkuskatt á hverja kílóvattsstund. Upphæðin var til viðmiðunar til að sjá um hvaða fjárhæðir væri að ræða, að sögn Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Hún segir bandaríska sendiráðið hér á landi ekki hafa haft áhrif á að einnar krónu orkuskattur var lækkaður niður í tólf aura. 6.12.2010 06:00
Pilti gert að fara frá fjölskyldu sinni „Sonur minn þarf að yfirgefa landið fyrir áramót og við erum leið og hrygg vegna þess. Okkur finnst þetta ósanngjarnt.“ Þetta segir Julio Cesar Gutierrez, bóndi á Hávarsstöðum í Hvalfjarðarsveit, um þá ákvörðun Útlendingastofnunar að neita nítján ára syni hans um landvistarleyfi. 6.12.2010 06:00
Wikileaks: Níu mílna fjarlægð Frásögnum íslenska utanríkisráðuneytisins og bandaríska sendiráðsins ber ekki saman um flug rússneskra sprengjuflugvéla inn á íslenska flugumsjónarsvæðið aðfaranótt 17. ágúst árið 2007. 6.12.2010 06:00
Börn læra um jafnrétti Jafnréttisverkefnið Jafnrétti kynjanna frá landnámi til vorra daga hefur verið kynnt fyrir kennurum í ýmsum grunnskólum í Reykjavík undanfarið, meðal annars í Selásskóla og Langholtsskóla. Markmiðið er að kynna nýstárlegar aðferðir til að vinna á úreltum hugmyndum um hlutverk kynjanna, sem fyrirfinnast enn meðal skólabarna. 6.12.2010 05:00
Kallar eftir framtíðarstefnu Fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Fasteigna Reykjanesbæjar ehf., sem heldur utan um félagslega íbúðakerfið í bænum, hefur kallað eftir skýrri framtíðarsýn sjálfstæðismanna í meirihlutanum varðandi félagið. 6.12.2010 04:00
Reyndu að koma sér hjá atkvæðagreiðslu Bandaríska sendiráðið í Reykjavík hefur greinilega frá fyrstu stundu fylgst grannt með samningum um Icesave-reikninga Landsbankans. Í skýrslu frá Carol van Voorst, þáverandi sendiherra, sem dagsett er 23. október 2008, segir hún frá viðræðum sínum við Martin Eyjólfsson, sviðsstjóra viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins, um framgang viðræðna við Breta, en í vikunni á undan hafði bráðabirgðasamkomulag við Hollendinga verið undirritað. 6.12.2010 04:00
Taldi að hagsmunum vera stefnt í hættu Carol van Voorst, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, ráðlagði stjórnvöldum í Bandaríkjunum eindregið að verða við ósk Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra, sem sett var fram í bréfi frá Davíð seint í október árið 2008, um stórt lán í tengslum við aðgerðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi. 6.12.2010 03:30
Ímynd Bandaríkjanna talin í hættu Í skýrslum bandaríska sendiráðsins kemur fram að Carol van Voorst sendiherra hafi haft nóg að gera eftir að íslensk kona varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að vera handtekin við komu sína til New York í desember 2007. 6.12.2010 03:30
Pólitískur skáldskapur Valur Ingimundarson sagnfræðingur hefur sent Fréttablaðinu athugasemd vegna umfjöllunar blaðsins á laugardaginn um minnisblað úr bandaríska sendiráðinu. Athugsemdin er hér í heild sinni: 6.12.2010 03:15
Auglýsandi krefst nafnleyndar Sá sem stendur á bak við auglýsingar á flettiskiltum í höfuðborginni gegn Evrópusambandsaðild Íslendinga vill ekki að nafn hans komi fram. Vegfarendur í Reykjavík hafa undanfarna mánuði rekið augun í auglýsingar á flettiskiltum borgarinnar þar sem birtur er íslenski fáninn og fáni Evrópusambandsins með orðinu NEI. Margir hafa velt því fyrir sér hver standi á bak við herferðina. Þær upplýsingar fengust hjá Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, að auglýsingin væri ekki á þeirra vegum. 5.12.2010 19:45
DeCode vill lögreglurannsókn á meintum njósnum Kínverja Íslensk erfðagreining ætlar að óska eftir því að ríkislögreglustjóri rannsaki sérstaklega hvort Kínverjar hafi njósnað skipulega um starfsemi fyrirtækisins. Ekkert bendir þó til þess að óviðkomandi aðilum hafi tekist að brjótast inn í gagnagrunna fyrirtækisins. 5.12.2010 18:30
Vel gengur að flytja Vonarstræti 12 Vel hefur gengið að flytja húsið sem áður stóð við Vonarstræti 12 yfir á horn Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Verkinu er nánast lokið en það tafðist eftir að í ljós kom að húsið var 25 tonnum þyngra en áætlað var í upphafi. Þriðja krananum var bætt við og nýjum keðjum komið fyrir til að lyfta húsinu. 5.12.2010 19:41
Fáfróðir um íslensk stjórnmál Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tekur ekki undir áhyggjur bandarískra sendiráðsstarfsmanna um að Kínverjar stundi iðnaðarnjósnir hér á landi. Hann segir að Wikileaks skjölin opinberi vanþekkingu Bandaríkjamanna á íslensku stjórnmálum. 5.12.2010 18:47
Alþingi hugsanlega vanhæft Þingmenn Hreyfingarinnar óttast að Alþingi ætli breyta tillögum stjórnlagaþings áður en þjóðin fær að kjósa um þær. Fulltrúi á stjórnlagaþingi segir að Alþingi verði hugsanlega vanhæft til að fjalla um tillögur þingsins. 5.12.2010 18:43
Skýrslan ekki dauðadómur yfir Samfylkingunni „Mér finnst þessi skýrsla sýna styrkleika flokksins sem er tilbúinn til að fara með opinskáum hætti yfir þennan vanda sem flokkurinn hefur verið að takast á við,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Skýrsla umbótanefndar Samfylkingarinnar sé ekki dauðadómur yfir flokknum. 5.12.2010 17:24
Fangar hjálpa fátækum: Baka mörg þúsund smákökur „Margir hérna koma frá brotnum heimilum og fjölskyldum sem hafa haft lítið á milli handanna þannig að það eru margir hérna sem þekkja þetta. Okkur fannst við þurfa að gera eitthvað en það er ekki mikið sem við getum gert verandi í öryggisfangelsi,“ segir fanginn Jónas Árni Lúðvíksson í samtali við fréttastofu. 5.12.2010 16:41
Varðberg lagt niður Félögin Varðberg og Samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál verða lögð niður í núverandi mynd næstkomandi fimmtudag. Félögin hafa verið starfrækt í áratugi en til stendur að stofna nýtt félag á grunni SVS og Varðbergs. 5.12.2010 15:05
Grunur um salmonellu Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til telur fyrirtækið rétt að innkalla vöruna. Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerum (Rlnr.) 011-10-43-2-25. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð. Í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins og í samráði við heilbrigðisyfirvöld hefur verið unnið að innköllun vörunar, að því er fram kemur í tilkynningu. 5.12.2010 14:40
Vilja ráðherra út af þingi Af 25 fulltrúum stjórnlagaþings sem kemur saman í febrúar á næsta ári eru 20 frekar eða mjög mótfallnir því að ráðherrar haldi sætum sínum á Alþingi. Meirihluti fulltrúanna vill þannig að ráðherrarnir víki sæti á Alþingi þegar taka við ráðherradómi. Aðeins tveir af fulltrúunum eru þeirrar skoðunar að ráðherrar eigi að sitja áfram á þingi. 5.12.2010 14:28
Unnu saman að listsköpun Listnemar unnu að listsköpun í samstarfi við fólk sem upplifir fátækt eða félagslega einangrun og er hægt að sjá afraksturinn á ljósmyndasýningu sem opnaði í gær. Verkefnið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun en auk þeirra komu Hlutverkasetur, Hjálparstofnun kirkjunnar og Kvennasmiðjan að framkvæmd verkefnisins. 5.12.2010 14:10
Vandræðagangur Landsvirkjunar Landsvirkjun hefur gengið illa að fjármagna Búðarhálsvirkjun og á meðan eru framkvæmdum haldið í lágmarki. Forstjóri fyrirtækisins segir að fjármögnun Búðarhálsvirkjunar verði lokið öðru hvoru megin við áramótin en í febrúar sagði hann að henni yrði lokið fyrir mitt árið. 5.12.2010 13:54
Wikileaks: Veikindi Geirs skýrðu undarlega hegðun Í leyniskjölum bandaríska sendiráðsins sem lekið var til Wikileaks og fjalla um Ísland er talsvert fjallað um veikindi forystumanna ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. 5.12.2010 13:31
Áfellisdómur yfir starfsháttum Samfylkingarinnar Skýrsla umbótanefndar Samfylkingarinnar er áfellisdómur yfir starfsháttum flokksins að mati Dags. B. Eggertssonar, varaformanns Samfylkingarinnar. Flokkurinn bað íslensku þjóðina afsökunar í gær á mistökum flokksins í aðdraganda hrunsins. 5.12.2010 12:18
Drög að Icesave samkomulagi kynnt Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. 5.12.2010 12:01
Jón Ásgeir sagður ræningi Í greinaflokki sænska viðskiptafréttavefsins E24 um helstu fjárglæframenn og svindlara efnahagskreppunnar er Jón Ásgeir Jóhannesson sagður hafa breyst úr glaumgosa í ræningja. Í greinaflokknum hefur áður m.a. verið fjallað um fjársvikamál bandaríska kaupsýslumannsins Bernard Madoff. 5.12.2010 10:52
Hvort á sinni öldinni „Ég hef aldrei verið mikil 20. aldar kona. Mér finnst stundum eins og allt það merkilegasta hafi gerst á 19. öldinni en menn halda náttúrulega með „sínum“ öldum. Ég þekki eiginlega ekkert annað en að hugsa út frá 19. öldinni, mitt sjónarhorn er litað af þeirri söguskoðun og ég horfi alltaf einhvern veginn á samtíðina úr fortíðinni. Og mig langaði að opna þessa öld fyrir breiðum og nýjum lesendahópi með því að fjalla um þennan kvennaheim 19. aldar,“ segir Sigrún Pálsdóttir, sagnfræðingur og höfundur bókarinnar Þóra biskups. 5.12.2010 10:47
Æfðu rústabjörgun Það er ekki alltaf sem björgunarsveitarfólki gefst kostur á að æfa rústabjörgun við sem raunverulegustu aðstæður. Það gerðist þó í gær. Til stóð að rífa hús á Laugarvatni um helgina og gafst rústabjörgunarsveitinni Ársæli í samvinnu við Björgunarsveitina Ingunni tækifæri til að nýta húsið til rústabjörgunar. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá björgunarsveitarmönnum gekk æfingin framar vonum í samvinnu við veðurguðina. 5.12.2010 10:20