Fleiri fréttir Fullur á Hellisheiðinni Einn ökumaður ók út af á Hellisheiðinni þar sem er hálka og snjór. Aðstæður virðast þó ekki hafa ollið slysinu því að sögn lögreglunnar á Selfossi reyndist maðurinn vera grunaður um að aka ölvaður. 14.11.2010 09:27 Segir trúarbrögð eigi í takmörkuðu mæli að fá aðgang að skólum „Enda þótt ég sé almennt þeirrar skoðunar að trúarbrögð eigi í mjög takmörkuðum mæli að fá aðgang að skólastofnunum, þá þarf að hyggja að ábendingum skólafólks um að ekki megi vanrækja skólann sem mikilvægan vettvang til að ná til mismunandi trúar- og menningarheima,“ sagði Ögmundur Jónasson, kirkjumálaráðherra, í ræðu sinni á kirkjuþingi í dag. 13.11.2010 16:56 Vilja Róbert Spanó í rannsóknarnefnd kirkjunnar Fyrri umræðu lauk í dag um fyrsta mál kirkjuþings er varðar starfsreglur um rannsóknarnefnd. 13.11.2010 16:41 Óveður á Kjalarnesi Það eru hálkublettir á Sandskeiði, Bláfjallavegi og Mosfellsheiði samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 13.11.2010 13:34 Rannsóknarnefnd kirkjunnar lýkur störfum innan hálfs árs Tillaga um rannsóknarnefnd, sem á að rannsaka starfshætti og viðbrögð Þjóðkirkjunnar vegna ásakanda á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, er meðal þess sem verður tekið fyrir á kirkjuþingi í dag en þar bíða 37 mál afgreiðslu. 13.11.2010 12:11 Vill hætta aðlögunarferli og hefja raunverulegar viðræður við ESB Ögmundur Jónasson dóms-, mannréttinda og samgönguráðherra vill ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið á næstu tveimur mánuðum. Hann segir yfirstandandi viðræður snúast of mikið um aðlögun Íslands að sambandinu. 13.11.2010 12:05 Biskup Íslands: Rangt að tala um ríkisrekna kirkju Kirkjuþing var sett í morgun í Grensáskirkju. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hélt setningaræðu og fór víða í henni en uppbygging samfélagsins, grunngildi og von var efni ávarpsins. Hann sagði meðal annars að það væri rangt að tala um að hér væri ríkisrekin kirkja. 13.11.2010 11:34 Segir kraftaverkadrykkinn skaðlausan „Drykkurinn er algjörlega skaðlaus,“ segir Óli Sólimann en engiferdrykkur hans, Aada frá My Secret, var innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga sem ekki var heimild fyrir. 13.11.2010 11:21 Vongóðir um uppbyggingu Alþingis- og sveitarstjórnarfólk á Norðausturlandi telur ástæðu til að vera bjartsýnn á að brátt fari að draga til tíðinda varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu. 13.11.2010 11:00 Lögreglan varar við hálku Lögreglan varar við mikilli hálku á Höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í efri byggðum og eru ökumenn minntir á að skylt er að hafa bifreiðar útbúnar til vetraraksturs við slíkar aðstæður. 13.11.2010 10:35 Þrekvirki að bjarga hrossum úr eldinum „Það er ólýsanlegt þrekvirki að ná hrossunum út úr brennandi hesthúsinu,“ segir Þorlákur Sveinsson, sonur Sveins Inga Grímssonar sem átti hesthúsið í Mosfellsbæ sem varð eldi að bráð í fyrrakvöld. Í húsinu voru þrír vel ættaðir stóðhestar, tveir reiðhestar, 1. verðlauna hryssa og tvö folöld. Ljóst er að mikil verðmæti voru í hrossunum sem tókst með snarræði að bjarga á síðustu stundu. 13.11.2010 10:15 Opið í Bláfjöllum Í dag er opið í Bláfjöllum frá klukkan tíu til fimm. 13.11.2010 10:06
Sjá næstu 50 fréttir
Fullur á Hellisheiðinni Einn ökumaður ók út af á Hellisheiðinni þar sem er hálka og snjór. Aðstæður virðast þó ekki hafa ollið slysinu því að sögn lögreglunnar á Selfossi reyndist maðurinn vera grunaður um að aka ölvaður. 14.11.2010 09:27
Segir trúarbrögð eigi í takmörkuðu mæli að fá aðgang að skólum „Enda þótt ég sé almennt þeirrar skoðunar að trúarbrögð eigi í mjög takmörkuðum mæli að fá aðgang að skólastofnunum, þá þarf að hyggja að ábendingum skólafólks um að ekki megi vanrækja skólann sem mikilvægan vettvang til að ná til mismunandi trúar- og menningarheima,“ sagði Ögmundur Jónasson, kirkjumálaráðherra, í ræðu sinni á kirkjuþingi í dag. 13.11.2010 16:56
Vilja Róbert Spanó í rannsóknarnefnd kirkjunnar Fyrri umræðu lauk í dag um fyrsta mál kirkjuþings er varðar starfsreglur um rannsóknarnefnd. 13.11.2010 16:41
Óveður á Kjalarnesi Það eru hálkublettir á Sandskeiði, Bláfjallavegi og Mosfellsheiði samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 13.11.2010 13:34
Rannsóknarnefnd kirkjunnar lýkur störfum innan hálfs árs Tillaga um rannsóknarnefnd, sem á að rannsaka starfshætti og viðbrögð Þjóðkirkjunnar vegna ásakanda á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, er meðal þess sem verður tekið fyrir á kirkjuþingi í dag en þar bíða 37 mál afgreiðslu. 13.11.2010 12:11
Vill hætta aðlögunarferli og hefja raunverulegar viðræður við ESB Ögmundur Jónasson dóms-, mannréttinda og samgönguráðherra vill ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið á næstu tveimur mánuðum. Hann segir yfirstandandi viðræður snúast of mikið um aðlögun Íslands að sambandinu. 13.11.2010 12:05
Biskup Íslands: Rangt að tala um ríkisrekna kirkju Kirkjuþing var sett í morgun í Grensáskirkju. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hélt setningaræðu og fór víða í henni en uppbygging samfélagsins, grunngildi og von var efni ávarpsins. Hann sagði meðal annars að það væri rangt að tala um að hér væri ríkisrekin kirkja. 13.11.2010 11:34
Segir kraftaverkadrykkinn skaðlausan „Drykkurinn er algjörlega skaðlaus,“ segir Óli Sólimann en engiferdrykkur hans, Aada frá My Secret, var innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga sem ekki var heimild fyrir. 13.11.2010 11:21
Vongóðir um uppbyggingu Alþingis- og sveitarstjórnarfólk á Norðausturlandi telur ástæðu til að vera bjartsýnn á að brátt fari að draga til tíðinda varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu. 13.11.2010 11:00
Lögreglan varar við hálku Lögreglan varar við mikilli hálku á Höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í efri byggðum og eru ökumenn minntir á að skylt er að hafa bifreiðar útbúnar til vetraraksturs við slíkar aðstæður. 13.11.2010 10:35
Þrekvirki að bjarga hrossum úr eldinum „Það er ólýsanlegt þrekvirki að ná hrossunum út úr brennandi hesthúsinu,“ segir Þorlákur Sveinsson, sonur Sveins Inga Grímssonar sem átti hesthúsið í Mosfellsbæ sem varð eldi að bráð í fyrrakvöld. Í húsinu voru þrír vel ættaðir stóðhestar, tveir reiðhestar, 1. verðlauna hryssa og tvö folöld. Ljóst er að mikil verðmæti voru í hrossunum sem tókst með snarræði að bjarga á síðustu stundu. 13.11.2010 10:15
Nýta sér ekki tiltækar leiðir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, telur að forstöðumenn ríkisstofnana ráði yfir öllum tækjum sem þurfi til að tryggja góða stjórnsýslu. 13.11.2010 10:00
Víða ófært Færð á vegum landsins er æði misjöfn að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun. 13.11.2010 09:52
Vill ljúka aðildaviðræðum á tveimur mánuðum Ögmundur Jónasson dóms-, mannréttindamála og samgönguráðherra vill ljúka samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið á tveimur mánuðum og bera niðurstöðuna síðan undir þjóðina. 13.11.2010 09:50
Aung San Suui Kyi hugsanlega frjáls í dag Stuðningsmenn Aung San Suui Kyi leiðtoga lýðræðissinna í Búrma, eða Myanmar, hafa safnast saman skammt frá heimili hennar eftir að fregnir bárust af því að hún kynni að verða látin laus út stofufangelsi. 13.11.2010 09:47
Kæfa og kraftaverkadrykkur afturkallað af markaði Engiferdrykkurinn Aada frá My Secret hefur verið innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga en tilkynningu þess eðlis má finna á heimasíðu matvælastofnunnar. 13.11.2010 09:32
Skáldastígur verði verndaður Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að breyta deiliskipulagi og setja kvöð á lóðirnar Mjóstræti 4 og Garðastræti 15 til að tryggja umferð um svokallaðan Skáldastíg sem liggur að hinu sögufræga Unuhúsi. 13.11.2010 09:00
Íraksrannsókn komi á dagskrá „Ég mun þrýsta á forseta að fá þetta á dagskrá sem fyrst,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, í kjölfar birtingar utanríkisráðuneytisins á skjölum er varða stuðning Íslands við innrásina í Írak 2003. 13.11.2010 08:00
Ekki nóg að tala við eldhúsborðið Alþjóðlega athafnavikan hefst á mánudaginn og stendur til laugardagsins kemur. Um 50 aðilar taka þátt í viðburðum vikunnar sem munu eiga sér stað um land allt. 13.11.2010 07:00
Bækur og armbönd til athafna Actavis prentar út og gefur öllum gestum og þátttökuaðilum Athafnavikunnar litla bók sem ætluð er til þess að skrá niður hugmyndir og hjálpa fólki að koma þeim í framkvæmd. Bókin er smá í sniðum og er prentuð í tugum þúsunda eintaka. 13.11.2010 06:00
Reynt að lægja öldur á fjölmennum fundi Reynt var að sætta ágreining um meðferð nauðgunarmála í rannsóknar- og réttarkerfinu á fjölmennum, ríflega þriggja tíma samráðsfundi sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra boðaði til í ráðuneytinu í gær. 13.11.2010 06:00
Engin lending um makrílinn Engin niðurstaða náðist um stjórn makrílveiða á næsta ári á fundi strandríkja í Lundúnum í gær. Gera á úrslitatilraun til að ná samkomulagi í Ósló 25. til 26. nóvember. 13.11.2010 06:00
Rof á þjóðarsátt um gjaldtöku Runólfi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, hugnast illa áform um að leggja vegtolla á umferð til að fjármagna framkvæmdir á Reykjanesbraut, Suðurlands- og Vesturlandsvegi. 13.11.2010 06:00
Óttast yfirtöku innflytjenda í Svíþjóð Peter Mangs, 38 ára Svíi sem er grunaður um eitt morð og nokkrar skotárásir í Malmö undanfarið ár, óttast að innflytjendur muni yfirtaka sænskt samfélag, er haft eftir föður hans í netútgáfu sænska blaðsins Aftonbladet. Mangs er jafnframt grunaður um morð sem framin voru í nágrenni borgarinnar árið 2003. 13.11.2010 06:00
Amast við táningi í húsi 50 ára og eldri Sautján ára piltur sem býr í Skipalóni í Hafnarfirði þarf að flytja út af heimili sínu þar sem blokkin sem hann býr í er eingöngu ætluð fyrir fimmtíu ára og eldri. 13.11.2010 05:00
Krapaflóð í Eystri-Rangá í dag „Þetta var óvenjulegt og bændur og aðrir á svæðinu voru mjög hissa á þessu. Þetta var gríðarlega mikið miðað við árstíma,“ segir Grettir Rúnarsson sem var á ferð við bakka Eystri-Rangá í dag þegar krapaflóð fór niður ánna og vatnsmagnið margfaldaðist skyndilega. 12.11.2010 21:36
Lenti á Keflavíkurflugvelli með veikan farþega Farþegaþota frá flugfélaginu United Airlines lenti á Keflavíkurflugvelli nú fyrir stundu með veikan farþega innanborðs. 12.11.2010 18:25
Ríkisstjórnin samþykkti aðgerðaráætlun í loftlagsmálum Ríkisstjórnin samþykkti nýverið aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Samkvæmt henni verður dregið úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda um allt að 30 prósent til ársins 2020 með tíu lykilaðgerðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. 12.11.2010 17:52
Þriðjungur enn óviss um hvort hann mætir á kjörstað Samkvæmt nýrri könnun MMR eru 34 prósent aðspurðra enn ekki búin að ákveða hvort þau hyggjast mæta á kjörstað 27. nóvember og velja fólk til setu á stjórnlagaþingi. 57,4 prósent hafa ekki kynnt sér neinn frambjóðanda. Könnun MMR var framkvæmd dagana 3.-5. nóvember, og var spurt um væntanlega þátttöku almennings í komandi kosningum. 12.11.2010 16:06
Brotist inn í Pedrómyndir Í nótt var brotist inn í verslunina Pedrómyndir sem stendur við Skipagötu á Akureyri. Farið var inn í verslunina með því að spenna upp hurð sem er á bakhlið hennar. Stolið var all nokkrum myndavélum og linsum og er talið að söluverðmæti þessara hluta geti numið um 4 til 5 milljónum króna. Lögreglan óskar eftir því að ef einhver hafi orðið var við mannaferðir síðastliðna nótt við verslunina eða búi yfir einhverjum upplýsingum um málið hafi samband við lögregluna á Akureyri í síma 464-7705. 12.11.2010 15:38
Sex starfsmenn vilja verða framkvæmdastjóri Sex starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar eru á meðal þeirra 33 sem sækja um starf framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar. Umsóknarfrestur rann út 8. nóvember síðastliðinn en gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið í desember. 12.11.2010 15:37
Íslenskur sendiráðsstarfsmaður í Vín játaði fjárdrátt Tuttugu og níu ára gömul kona játaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa dregið sérog notað heimildarlaust í eigin þágu 335 þúsund evrur í eigu íslenska sendiráðsins í Vínarborg. 12.11.2010 14:50
Skoða nýtt hundasvæði í Grindavík Umhverfisnefnd Grindavíkurbæjar leggur til við skipulags- og bygginganefnd að hún taki til skoðunar að gera svæði norðan við bæinn að sérstöku útivistarsvæði fyrir hundaeigendur til að viðra hundana sína. Svæðið sem um ræðir var áður notað undir losun garðaúrgangs og telur nefndin það hentugt til að viðra hunda. Greint er frá þessu á vef Grindavíkurbæjar. 12.11.2010 14:13
Glæsilegur stjórnlagaþingsvefur í loftið Sex háskólaprófessorar, fjórir bændur og þrír leikstjórar eru á meðal þeirra sem sækjast eftir sæti á Stjórnlagaþingi samkvæmt upplýsingum á vef sem Guðmundur Hreiðarsson forritari hefur sett upp. Á síðunni eru frambjóðendur kynntir með myndrænni hætti en áður. sérstaklega langan tíma að setja vefinn upp. 12.11.2010 13:45
Hrottinn í Laugardal fundinn Tuttugu og þriggja ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem var handtekinn í gær, hefur játað að hafa ráðist á 16 ára stúlku á göngustíg við Suðurlandsbraut í Reykjavík í síðasta mánuði. Að öðru leyti ber hann við minnisleysi vegna fíkniefnaneyslu. 12.11.2010 12:46
Óska eftir vitnum að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum í Stekkjarbakka í Reykjavík laust fyrir klukkan 9 laugardagsmorguninn 6. nóvember. Þar rákust saman grá Toyota Corolla og dökkgrænn Nissan Terrano en ökumönnum þeirra ber ekki saman um stöðu umferðaljósa. 12.11.2010 12:32
Sterkar íslenskar konur í Marie Claire „Er Ísland besta landið fyrir konur til að búa í?" spyr kvennatímaritið Marie Claire lesendur sína í nóvemberhefti áströlsku útgáfunnar þar sem sérstaklega er fjallað um íslenskar konur. Þar er rætt við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, Gerði Kristnýju rithöfund og Láru Ómarsdóttur fréttakonu, auk fleiri kjarnakvenna, og ljósi varpað á stöðu kvenna á Íslandi þar sem jafnrétti þykir vera til fyrirmyndar. 12.11.2010 11:57
Fjölskylduhjálpin opnar á Akureyri Útibú frá Fjölskylduhjálp Íslands verður opnað á Akureyri í dag. Þar mun Fjölskylduhjálpin hafa aðsetur að Freyjunesi 4 og verður Gerður Jónsdóttir umsjónarmaður útibúsins. Þeir sem staddir eru á Akureyri og í nágrenni í dag gefst kostur á að kynna sér starfsemina milli klukkan 13 og 15 í dag en þá munu sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálparinnar taka á móti fólki. 12.11.2010 11:45
Dómurum verður fjölgað Hæstaréttardómurum og héraðsdómurum verður fjölgað samkvæmt frumvarpi sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun. Ögmundur segir að fjölgunin sé komin til vegna landsdómsins, en fimm af níu dómurum úr Hæstarétti eiga sæti þar, en einnig vegna aukins álags á dómstóla vegna bankahrunsins. Gert er ráð fyrir að fjölgun dómaranna verði fjármögnuð með hækkun dómsmálagjalda. 12.11.2010 11:35
Ungur síbrotamaður hlaut níu mánaða dóm Liðlega tvítugur karlmaður var dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir líkamsárásir og fjölmörg umferðarlagabrot. Sjö mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir það að hafa hótað lögreglumanni og fjölskyldu hans ofbeldi þegar lögreglumenn höfðu afskipti af honum. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás. 12.11.2010 10:59
Börðust við eld í hesthúsi Myndatökumaður Stöðvar 2 var á vettvangi í gærkvöldi þegar hesthús brann í Mosfellsbæ. Níu hestum var bjargað fyrir snarræði og voru fleiri hesthús rýmd til öryggis. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsævðinu var sent á vettvang, enda var hvassviðri og hætta á að eldurinn næði mikilli útbreiðslu. Húsið sem brann, er eitt af fimm í sambyggðri lengju, og eyðilagðist næsta bil líka, en slökkviliðsmönnum tókst að hefta frekari útbreiðslu eldsins. Slökkvistarfi lauk upp úr miðnætti en vakt var staðin á brunastað í nótt. Eldsupptök eru ókunn. 12.11.2010 10:38
Jóhanna vísar ásökunum um ritstýringu á bug Jóhanna Sigurðardóttir hafnar því alfarið að hún hafi haft efnisleg afskipti af vinnu reiknimeistaranefnd sem fjallaði um skuldavanda heimilanna. Marínó G. Njálsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hélt því fram í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að skýrslunni, sem birt var í fyrradag, hefði verið „ritstýrt að ofan". Jóhanna vísaði þessum fullyrðingum á bug í viðtali í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöld. 12.11.2010 10:23
Landlæknir og Lýðheilsustöð sameinast um áramótin Embætti Landlæknis verður sameinuð Lýðheilsustöð um áramótin. Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp þessa efnis á Alþingi í gær. 12.11.2010 09:51
Starfsmannafélag Suðurnesja skorar á heilbrigðisráðherra Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja (STFS) skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þetta var samþykkt á fundi félagsins í gær. Í ályktuninni segir að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé einn af hornsteinum að góðum búsetuskilyrðum á svæðinu. Hugmyndir heilbrigðisráðherra þýði uppsagnir á hátt á 80 starfsmönnum, flest konum. Það sé ekki viðeigandi á svæði þar sem mesta atvinnuleysi sé fyrir á landinu. 12.11.2010 09:33