Fleiri fréttir

Braust inn til barnsmóður sinnar

Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjaness rúmlega fertugan karlmann fyrir húsbrot, líkamsárás, eignaspjöll og fleiri brot.

Lýst eftir Andrési

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Andrési Tómassyni, 41 árs, en ekkert er vitað um ferðir hans frá síðastliðnum föstudegi, 24. september.

Frank Hvam segir Jón Gnarr halda óvanalega langar ræður

Nokkrir af þekktustu grínurum Norðurlandanna verða með uppistand á kvöldstund með Frímanni Gunnarssyni. Meðal þeirra sem fram koma eru borgarstjóri Reykjavíkur og hinn danski Frank Hvam sem segir Jón Gnarr bera titilinn með rentu þar sem hann sé farinn að halda óvenju langar ræður. Guðný Helga kíkti í Háskólabíó þar sem undirbúningur var í hámarki.

Ingibjörg Sólrún: Mér finnst þetta dapurlegt

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar forystu Vinstri grænna um pólitíska ofsóknir í Landsdómsmálinu og segir að ákærunar standist ekki lög.

Steingrímur bauð í sumarbústað tengdó

Geir Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur upplýst að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, reyndi eftir kosningarnar 2007 að koma á fundi um ríkisstjórnarmyndun flokkanna. Á þeim tíma sagði Steingrímur hins vegar á Stöð 2 að Vinstri grænir lytu hinum formlegu reglum um stjórnarmyndun og leiðinlegur svipur væri á öðru.

Fimm í gæsluvarðhald vegna fjársvikamáls

Fimm aðilar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fjársvikamáli.

Vilja fjarlægja blómaker fyrir utan bandaríska sendiráðið

Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í gær, þriðjudaginn 28. september, var tekin fyrir tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar, fulltrúa VG, þess efnis að bandaríska sendiráðinu verði gert að fjarlægja blómaker á bifreiðastæðum og hindranir á gangstéttum fyrir framan húsið.

Trylltist fyrir utan Mæðrastyrksnefnd og hótaði lífláti

„Hann hefur fengið sér of mikið neðan í því og liðið eitthvað illa,“ segir Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar. Um klukkan þrjú í dag trylltist maður fyrir utan húsnæði Mæðrastyrksnefndar og hótaði öryggisverði og lögreglu lífláti.

Chomsky til Íslands

Bandaríski þjóðfélagsrýnirinn Noam Chomsky er væntanlegur hingað til lands og mun flytja fyrirlestur við Háskóla Íslands í september á næsta ári.

Betra fyrir ketti að búa í Kópavogi

„Maður gleðst alltaf þegar maður kemur góðu máli í höfn,“ segir Guðríður Arnardóttir oddviti Samfylkingarinnar í Kópvogi og formaður bæjaráðs Kópavogs. Reglur um kattahald í Kópavogi voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gær en í reglunum segir meðal annars að eigendum katta er skylt að láta örmerkja þá, ormahreinsa reglulega og vera með bjöllu á varptíma fugla. Þá kveður einnig á um að kattaeigendur hugi að því að kötturinn sinn valdi ekki nágrönnum sínum ónæði eða tjóni.

Bílabíó á Reykjavíkurflugvelli í kvöld

Flugskýli 3 við Reykjavíkurflugvöll fær nýtt hlutverk í kvöld. RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, heldur þar árlegt bílabíó sitt og er það smellurinn Cry Baby með Johnny Depp í aðalhlutverki sem verður varpað upp á hvíta tjaldið.

„Því fyrr því betra“ að Steingrímur komi til landsins

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að það sé alveg viðbúið að lögregluyfirvöld á Íslandi sendi lögreglumann til Venesúela til að ná í Steingrím Þór Ólafsson, sem er grunaður um að vera höfuðpaur í virðisaukaskattsvikunum og var handtekinn á flugvelli á eyjunni Margarita í fyrradag. Hann verður framseldur til Íslands.

Geir fær stuðning frá Eyjum

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, harma að þrjátíu og þrír þingmenn hafi í gær ákveðið að draga Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir landsdóm vegna meintra brota gegn ráðherraábyrgð.

Styttist í svör frá Alþingi í lánamálinu

Það ætti nú að styttast í að fjölskyldur í landinu fái svör við því hvort og þá hvernig gengistryggð lán verða endurreiknuð. Frá því Hæstaréttardómur féll í bílálánamálinu þann 16. september hefur ekkert annað komist að í sölum Alþingis en málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Nýtt þing hefst í vikulok.

Skúli: Tilraun sem mistókst

Lög um landsdóm eru meingölluð og niðurstaðan í gær sýnir að Alþingi ræður ekki við það verkefni að taka afstöðu til ráðherraábyrgðar. Þetta segir Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir að flokkspólitík hafi ráðið för við atkvæðagreiðslu hjá öllum þingflokkum nema Framsókn og Samfylkingu.

Fjölmiðlar heimsins fjalla meira um karla en konur

Konur eru 24 prósent þeirra sem fjallað er um eða talað við í fréttum heimspressunnar, en karlar 76 prósent. Hér á landi er hlutfall kvenna nokkru hærra en annars staðar, eða 28 prósent. Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið hinsvegar á bilinu 30-33 prósent. Niðurstöðurnar verða kynntar nánar á Þjóðarspeglinum 2010: Ráðstefnu í félagsvísindum XI, sem haldin verður föstudaginn 29. október 2010 við Háskóla Íslands.

Björgvin snýr aftur á föstudag

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, mun taka sæti á Alþingi þegar þing kemur saman á föstudag. Björgvin staðfesti þetta við blaðamann Vísis í sms skilaboðum í gærkvöld.

Framseldur til Íslands - áfram krafist gæsluvarðhalds yfir hinum

Lögreglan í Venesúela handtók í fyrradag 36 ára íslenskan karlmann, Steingrím Þór Ólafsson, sem talinn er vera höfuðpaur í virðisaukaskattsvikunum, sem nýlega komst upp um hér á landi og nema 270 milljónum króna. Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim sem þegar eru í varðhaldi.

Mótmælendur boðaðir til Brussel

Búist er við að þúsundir manna víðsvegar að úr Evrópusambandinu mæti til Brussel í dag til þess að mótmæla niðurskurðaráformum ríkisstjórna landa sinna. Talsmenn evrópskra verkalýðsfélaga segja að mótmælin gætu orðið þau stærstu í borginni í áraraðir enda niðurskurðarhnífurinn víða á lofti um álfuna. Á Spáni er allsherjarverkfall hafið vegna aðgerða ríkistjórnarinnar en í flestum löndum sambandsins hafa laun verið lækkuð, lífeyrir skertur og störfum fækkað.

Ofbeldismaðurinn með fortíð

Karlmaður um þrítugt, sem var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa ruðst inn í íbúð fyrrverandi sambýliskonu sinnar í Hveragerði á mánudagsmorgun og veitt henni áverka, hefur áður gerst brotlegur við lög og hlotið dóma, meðal annars fyrir ofbeldi.

Meintur skattsvikari fannst í Venezúela

Lögreglan í Venesúela handtók í fyrradag 36 ára íslenskan karlmann, sem talinn er vera höfuðpaur í virðisaukaskattsvikunum, sem nýlega komst upp um hér á landi og nema 270 milljónum króna.

Fundu klifurlínu á afar torfarinni leið

Slysfarir Lögregla og Slysavarnafélagið Landsbjörg skipuleggja leit vegna nýrra vísbendinga sem kunna að tengjast hvarfi tveggja þýskra ferðamanna í ágúst 2007.

Sýning fyrir luktum dyrum

Hæstiréttur hefur dæmt að þinghald skuli lokað meðan fram fer í dómsal sýning á myndbandsupptökum af konu, sem sýna hana nakta og í verulegu uppnámi. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað að allt þinghaldið skyldi fara fram fyrir luktum dyrum.

Geir hafði allar upplýsingar

„Ég lagði þetta mál alfarið upp eftir eigin forsendum og til að byrja með reyndi ég að skoða hvort það væri yfir höfuð tilefni til að ákæra. Niðurstaða mín var sú að það væri mjög mismunandi eftir því hvaða ráðherra átti í hlut. Í fyrsta lagi aðgangur þeirra að upplýsingum; höfðu þeir nægilegar upplýsingar um þær hættur sem steðjuðu að samfélaginu. Í öðru lagi hvort þau höfðu pólitíska stöðu til að grípa inn í. Síðast hvort þeir hefðu völd til að grípa til aðgerða,“ segir Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem segir jafnframt að í öllum tilvikum hafi þetta átt við um Geir H. Haarde.

HB Grandi að ljúka veiðum

Vertíðarlok á norsk-íslenskri síld og makríl eru skammt undan. Um svipað leyti í fyrra var síldveiðin að fjara út innan íslenskrar lögsögu en veiðar voru þá stundaðar áfram um skeið í síldarsmugunni og síðan innan norskrar lögsögu.

Verður að boða til kosninga

„Þetta er ömurleg niðurstaða. Það eina sem var ákveðið hér í dag er að hrunið verður ekki gert upp pólitískt. Það er hér pólitísk yfirstétt sem sló skjaldborg um sjálfa sig. Skjaldborgin hélt í þremur tilfellum af fjórum," segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

Niðurstaðan vond í alla staði

„Þetta er pólitísk niðurstaða. Það er að segja að það voru pólitísk undirmál sem réðu niðurstöðu þessa máls,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Gerir ráð fyrir að Björgvin snúi aftur

Anna Margrét Guðjónsdóttir, sem situr í á Alþingi í fjarveru Björgvins G. Sigurðssonar þingmanns Samfylkingarinnar, segist ekki vita hvort að hún muni sitja áfram á Alþingi. Nýtt þing hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni á föstudaginn, samkvæmt venju.

Hvar er Björgvin?

Enn er óljóst hvort Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskipta- og efnahagsráðherra, taki aftur sæti á Alþingi.

Saksóknara leitað í hópi sérfræðinga Atlanefndarinnar

Alþingi mun á næstu dögum þurfa að velja saksóknara til þess að sækja mál gegn Geir H. Haarde forsætisráðherra. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segist ætlast til þess af Atla Gíslasyni formanni

Geir er kominn með lögmann - myndskeið

Geir Haarde hefur fengið Andra Árnason til þess að gæta hagsmuna sinna nú þegar að ákveðið hefur verið að ákæra hann fyrir Landsdómi. Þetta sagði Geir í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bryndís verður ekki saksóknari

Bryndís Hlöðversdóttir var einn lögspekinganna sem vann með þingmannanefnd Atla Gíslasonar við vinnu hennar að þingsályktunartillögum um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og ákærum gegn fyrrverandi ráðherrum úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og

Heimdallur gefur út ákærur á hendur Steingrími J. Sigfússyni

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur gefið út ákæru á hendur Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, vegna framgöngu hans í Icesave-málinu samkvæmt tilkynningu sem Heimdallur sendi frá sér nú í kvöld.

Ólína Þorvarðar: Ætlar Geir að persónugera vandann nú?

„Einu sinni sagði Geir H. Haarde að nú væri ekki rétti tíminn til þess að persónugera vandann og mér finnst sorglegt ef hann ætlar að persónugera það sem gerðist á Alþingi í dag,“ svaraði Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hún var spurð í Kastljósi um ummæli Geirs þar sem hann sagði framgöngu Samfylkingarinnar loddaraleik.

Sigmundur Davíð: „Mjög taktísk atkvæðagreiðsla“

„Mér fannst það mest sláandi að Geir var dreginn einn út í mjög taktískri atkvæðagreiðslu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins um ákæruna gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðsherra.

Fjórir þingmenn vildu ákæra Geir en ekki Ingibjörgu

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason greiddu öll atkvæði með ákæru á hendur Geir Haarde en gegn ákæru á hendur fyrrverandi ráðherrum Samfylkingarinnar úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sem var við völd í aðdraganda hrunsins.

Sjá næstu 50 fréttir