Fleiri fréttir

Icelandair stefnir á flug klukkan fjögur í dag

Icelandair hefur ákveðið að stefna að því að hefja flug síðdegis í dag um klukkan fjögur en ríkisstjórn samþykkti að leggja fram frumvarp um lögbann á verkfall flugvirkja í hádeginu í dag, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en Alþingi hefur lokið meðferð sinni.

Varað við stormi

Veðurstofan varar við stormi víða sunnan- og vestantil í nótt og á morgun. Gert er ráð fyrir austan og norðaustanátt, víða 10-18 m/s. Síðan gangi í norðaustan 18-23 suðaustan-, og norðvestanlands í kvöld og einnig um tíma með suðvesturströndinni í kvöld og nótt.

Verið að verja Icelandair fyrir skaða með lögbanni

„Samkvæmt þessu, þá eru engin rök í sjálfu sér fyrir lögbanninu annað en félagið skaðast af þessu. Landið lokast ekki. Við fljúgum í dag, fljúgum til allra landa,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Icelandexpress en hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að samþykkja lögbann á verkfall flugvirkja hjá Icelandair en það var samþykkt af hálfu ríkisstjórnar í hádeginu í dag. Lögbannið þarf hinsvegar að samþykkja á Alþingi eigi það að taka gildi.

Héraðssaksóknarar frestast enn vegna sparnaðar

Það frestast enn um sinn að setja á fót embætti héraðssaksóknara vegna sparnaðaraðgerða dómsmálaráðuneytisins. Því hafði áður verið frestað til 1. janúar síðastliðins.

Fréttamaður í miðju öskufallinu nálægt Fimmvörðuhálsinum

„Ég er kominn upp á Fimmvörðuháls við Baldvinsskála. Öskustrókurinn er yfir okkur, við erum í öskufalli en snjórinn er orðinn grár,“ sagði Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar tvö sem var staddur aðeins örfáum kílómetrum fyrir neðan gosið í Eyjafjallajökli. Strókarnir eru um einum kílómeter frá Fimmvörðuhálsinum sjálfum.

Vegum lokað í Þórsmörk og á Fimmvörðuháls

Veginum inn í Þórsmörk verður lokað og eins veginum upp að Fimmvörðuhálsi. Þetta var ákveðið á fundi Almannavarna á Hellu nú í morgun, en næsti fundur hefur verið ákveðinn klukkan þrjú í dag. Karen Kjartansdóttir fréttakona ræddi við Víði Reynisson deildarstjóra almannavarna Ríkislögreglustjóra nú rétt fyrir fréttir.

Flugbannsvæði stækkað vegna sprengingar

Sprengingin í gosstróknum í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi í morgun varð til þess að svæði þar sem flugumferð var bönnuð var stækkaði þónokkuð.

Nýtt frumvarp um sérstakan til að eyða óvissu

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn frumvarp til breytingar á lögum um embætti sérstaks saksóknara, en tilgangur þess er að taka af allan vafa um verkefni og verksvið embættisins.

Mikið um þjófnaði og skemmdarverk í Árborg

Um helgina báru hæst verkefni sem tengdust eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Lögreglumenn fóru þegar í upphafi á Hvolsvöll til aðstoðar við lokanir vega og rýmingu auk þess að sjá um lokun þjóðvegarins austan við Selfoss.

Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun sameinast

Stefnt er að því að Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun sameinist um næstu áramót í nýja og öfluga vinnumarkaðsstofnun. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti áformaða sameiningu á fundi með starfsfólki stofnananna tveggja í morgun.

Gosmökkurinn í dag - myndskeið

Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður Stöðvar 2 var í morgun staddur ásamt Kristjáni Má Unnarssyni fréttamanni Stöðvar 2 vestan við Hellu. Hann tók meðfylgjandi myndir um klukkan níu.

Vöxtur hlaupinn í Krossá

Vöxtur er hlaupinn í Krossá í Þórsmörk, en hún á upptök í Eyjafjallajökli og undan Fimmvörðuhálsi.

Ófullnægjandi verðmerkingar í apótekum

Athugasemd var gerð í Laugarnesapóteki vegna verðmerkinga í verslunarrými af hálfu neytendastofu en í öðrum apótekum voru þær í góðu lagi. Starfsmenn Neytendastofu fóru daganna 26. febrúar - 10. mars í 31 apótek á höfuðborgarsvæðinu til að athuga hvort verðmerkingar væru í samræmi við lög og reglur, einnig voru teknar vörur af handahófi og gerð athugun á samræmingu milli hillu- og kassaverðs.

Ríkisstjórnarfundi frestað til hádegis

Ríkisstjórnarfundi sem átti að halda klukkan tíu um lagasetningu á verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefur verið frestað til klukkan tólf. Verfallið hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi.

Samfylkingarkonur ánægðar með Jóhönnu

Samfylkingarkonur hittust á ársþingi sínu í Hveragerði um helgina. Í ályktun þingsins er lýst yfir ánægju með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta kvenforsætisráðherra sögunnar. Nýr formaður, Elfur Logadóttir var einnig kjörin á þinginu og tekur hún við keflinu af Steinunni Valdísi Óskarsdóttur.

Ríkisstjórnin hittist til að ræða verkfallið

Ríkisstjórnin verður kölluð saman til fundar í dag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, til að fjalla um Verkfall flugvirkja hjá Icelandair, sem hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi.

Gosmökkurinn nær átta kílómetra upp í loft - sprungan virðist lengri

Á áttunda tímanum í morgun jókst styrkurinn í gosinu á Fimmvörðuhálsi töluvert og er talið að gufusprenging hafi orðið í eldstöðinni. Mikill gufustrókur sést nú frá gosinu og sýna mælitæki að hann nær um átta kílómetra upp í loft. Fljótlega dró þó úr virkninni á nýjan leik.

Allur flugfloti Icelandair stoppar í dag vegna verkfallsins

Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst klukkan eitt í nótt eftir að viðræður þeirra við félagið sigldu í strand hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Vélar félagsins frá Evrópu voru að tínast til Keflavíkur í nótt, en brottför þeirra seinkaði í gærmorgun vegna eldgossins.

Gosið enn í gangi - farið að bera á öskufalli

Gosórói í Eyjafjallajökli fór vaxandi um ellefu leytið í gærkvöldi og hélst fram til klukkan þrjú í nótt, að heldur dró úr honum aftur og það er staðan núna í morgunsárið.

Var illa við að skilja dýrin eftir á bænum

„Auðvitað bregður manni fyrst en við urðum strax rórri þegar okkur var tjáð að þetta væri lítið gos,“ segir Vilborg Alda Jónsdóttir, bóndi í Hvítanesi í Vestur-Landeyjum, þegar henni var tilkynnt að byrjað væri að gjósa.

Tengsl gosa í Eyjafjallajökli við Kötlugos

„Það hefur ekki gosið á Fimmvörðuhálsi í fleiri þúsund ár, og ekki hægt að skýra af hverju gýs þarna núna en ekki beint þaðan sem kvikan safnast saman undir háfjallinu,“ segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. „Það eru gossprungur bæði vestan og austan úr Eyjafjallajökli, fyrir ofan Seljalandsfoss og þar sem gýs núna. Fjallið er jú um 700 þúsund ára gamalt þannig að gríðarlegur fjöldi gosa hefur komið upp á svæðinu. Bæði í háfjallinu og sprungunum í hlíðum þess.“ Að minnsta kosti þrjár gossprungur liggja um Fimmvörðuháls, en sú sem nú gýs liggur öðruvísi en hinar tvær.

Þetta er helvíti gaman

„Þetta er bara helvíti gaman,“ sagði Gabríel Björnsson, fjórtán ára, sem þurfti að verja aðfaranótt sunnudags í fjöldahjálparmiðstöðinni í grunnskólanum á Hvolsvelli. Hann var vakinn með þeim fregnum að gos væri hafið og þurfti undir eins að yfirgefa bæinn Lindartún í Vestur-Landeyjum ásamt fjölskyldu sinni.

Hræðsla þegar einn gleymdist

Töluverð hræðsla greip um sig í hópi ríflega fjörutíu leiklistarnema úr Menntaskólanum við Sund þegar þeim bárust fréttir af gosinu í miðju skólaferðalagi.

Blása nýju lífi í miðborgina

„Hugmyndin er sú að bæta ímynd þessarar götu, sem hefur því miður haft mjög slæmt orðspor á sér,“ segir Þórarinn Ívarsson, formaður félagasamtakanna Veraldarvina, sem vinna nú öttulega að endurbótum á gömlum húsum við Hverfisgötu sem hafa verið í niðurníslu um nokkurt skeið.

Lengingu skólaársins frestað

Innleiðingu nýrra framhaldsskólalaga verður frestað að hluta til, segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Til dæmis verður lengingu skólaárs sem kveðið er á um í lögum slegið á frest. Í ræðu ráðherrans á nýafstöðnu menntaþingi kom einnig fram að hægt verður á innleiðingu þeirra hluta laganna sem snúa að gildistöku nýrrar aðalnámskrár í framhaldsskólum.

Það hefur verið jarðgosaveður undanfarið

„Það hefur verið jarðgosaveður undanfarið, miklar stillur þannig að maður hefur nú búist við þessu,“ segir Jón Gunnar Karlsson, bóndi á Strönd í Vestur-Landeyjum.

Undirbúa endurskoðunina

Íslensk stjórnvöld undirbúa nú endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er unnið að því að sú endurskoðun fari fram, þrátt fyrir að Icesave-deilunni sé ekki lokið. Sú vinna er á lokastigi af Íslands hálfu.

Eldgosið ekki í rénun

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi er ekki í rénun, sagði Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í rannsóknarflugi með flugvél Landhelgisgæslunnar

Hvetur menn til að passa upp á dýrin

„Það sem maður hefur verið að leggja til við bændur í dag er að það reyni hver fyrir sig að vera með eigin athuganir," segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir.

Þingmenn til Bretlands til að laga samskiptin

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að fundur með utanríkismálanefnd og fjárlaganefnd breska þingsins verði vonandi til þess að bæta samskipti Íslands og Bretlands, sem hafa verið í lágmarki eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-lögin.

Segir eldgosið ekki koma á óvart

Búast má við því að mikið flúóríð og brennisteinskoltvísýringur fari í loftið vegna eldgossins. Þannig geti loftslagið breyst um tíma, segir Henning Andersen, danskur jarðfræðingur, í samtali við Danmarks Radio.

Fyrsta innanlandsflugið farið á sjötta tímanum

Gert er ráð fyrir að fyrsta flugvél á vegum Flugfélags Íslands fari í loftið á sjötta tímanum í dag, en innanlandsflug hefur annars legið niðri. Frá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að farnar yrðu fjórar ferðir til Akureyrar en annars væri ekki flogið.

Gosóróinn í lægð þessa stundina

Gosóróinn í Fimmvörðuhálsi er í lægð núna. Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hann virðist minnka og vaxa á víxl. Því er ómögulegt að spá fyrir um framhald málsins. Enn mælast smáskjálftar á svæðinu. Um hádegisbil höfðu um 30 smáskjálftar mælst siðan á miðnætti í nótt.

Fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins lokað

Fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins á Hvolsvelli, Hellu og í Vík í Mýrdal hefur verið lokað eftir að aðgerðarstjórn almannavarna aflétti rýmingaráætlun að mestu leyti. Íbúar á fjórtán bæjum mega enn ekki snúa til síns heima og verður þeim sem á þurfa að halda útveguð gisting.

Þarf að fylgjast vel með öskufalli

Yfirdýralæknir og Matvælastofnun mælist til þess við bændur að þeir fylgist vel með öskufalli vegna hættu sem búfénaði getur stafað af mengun sem öskunni fylgir. Þá er nauðsynlegt að fylgjast með gæðum vatns þar sem bæir eru með einkavatnsveitur.

Lokunum aflétt á Suðurlandsvegi

Öllum lokunum hefur verið aflétt á Suðurlandsvegi en þar hefur umferð verið takmörkuð frá því eldgos hófst í Eyjafjallajökli. Þessi ákvörðun var tekin á aðgerðarstjórnarfundi sem haldinn var á Hellu klukkan þrjú í dag.

Sjá næstu 50 fréttir