Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn Algis Rucinskas, Sarunas Urniezius og Vitalij Gagin hafa verið ákærðir fyrir að ráðast með ofbeldi á lögreglumenn við fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem voru við skyldustörf fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn. 13.2.2008 12:05
Vilja 3,5 milljónir í bætur vegna umfjöllunar Kastljóss Sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, fara fram á að útvarpsstjóri og fjórir úr ritstjórn Kastljóss greiði sér samtals 3,5 milljónir króna í miskabætur og verði dæmd fyrir ærumeiðingar vegna umfjöllunar um ríkisborgararétt tengdadótturinnar í Kastljósi. 13.2.2008 11:52
Jeppi valt í Hveradalabrekku Jeppi valt í Hveradalabrekkunni á Suðurlandsvegi nú á ellefta tímanum. 13.2.2008 10:48
Hafa áhyggjur af heitavatnsskorti á Akranesi Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af því ástandi sem Akurnesingar hafa þurft að búa við vegna heitavatnsskorts á nýliðnum tveimur vikum. 13.2.2008 10:10
Slökkviliðsmenn í hrakningum í Grímsnesi Slökkvilið, lögreglumenn og sjúkralið frá Selfossi voru kallaðir að sumarbústað í Grímsnesi í gær þegar kviknaði í skúr sem stóð við bústaðinn. 13.2.2008 09:54
Eldur í bílskúr Eldur kviknaði í bílskúr úr timbri í vesturbæ Reykjavíkur á ellefta tímanum í gærkvöldi. Svo vel vildi til að eldsins varð vart skömmu eftir að hann kviknaði þannig að hann hafði ekki náð að breiðast um innviði skúrsins áður en slökkvilið kom á vettvang og slökkti í snatri. 13.2.2008 08:53
Íslenski pilturinn sem leitað var að í Danmörku fannst látinn Búið er a að finna íslenska piltinn Ívar Jörgensson sem saknað hefur verið í Danmörku undanfarna viku og er hann látinn. Frá þessu er greint á vef Extra bladet og þar vitnað í lögregluna á Norður-Jótlandi 12.2.2008 23:04
Hægt miðar í kjaraviðræðum en miðar þó Hægt miðar í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins en miðar þó eftir því sem fram kemur í frétt á vef sambandsins. 12.2.2008 23:17
Komu tveimur frönskum skíðagönguköppum til aðstoðar Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafirði og Björgunarsveitin Súlur frá Akureyri komu í dag tveimur frönskum skíðagönguköppum til aðstoðar sem hugðust ganga þvert yfir hálendið. 12.2.2008 22:40
Búið að opna Óshlíð - vegfarendur beðnir um að fara varlega Á Vestfjörðum er búið að opna veginn um Súðavíkurhlíð og Óshlíð og er fólk beðið um að fara varlega. Á Sunnanverðum Vestfjörðum er lokað um Klettsháls, Ódrjúgsháls og Hjallaháls. 12.2.2008 22:00
Verð á eldsneyti hefur aldrei verið hærra Eldsneyti hækkaði verulega í dag og hefur aldrei verið hærra að sögn Runólf Ólafssonar framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Frekari hækkanir virðast vera framundan, eftir því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2. 12.2.2008 19:35
Jóhanna Vilhjálms hætt í Kastljósi Jóhanna Vilhjálmsdóttir sagði upp störfum sem fréttamaður hjá Kastljósi Ríkissjónvarpsins í morgun. 12.2.2008 18:40
Óánægja blaðamanna skiljanleg Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að sú óánægja sem hafi orðið á meðal blaðamanna sem biðu viðbragða hjá borgarfulltrúm sjálfstæðisflokksins að loknum fundi þeirra í valhöll í gær sé skiljanleg. 12.2.2008 18:07
Fórnarlömb Guðmundar í Byrginu vilja 10 milljónir í bætur Vísir hefur undir höndum ákærur Ríkissaksóknara gegn Guðmundi Jónssyni í Byrginu sem þingfestar voru í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Í þeim kemur meðal annars fram að fjórar stúlkur sem Guðmundi er gefið að sök að hafabrotið gegn kefjast alls 10 milljóna króna í skaðabætur. 12.2.2008 18:06
Laus úr farbanni Pólskur karlmaður sem grunaður er um að hafa ekið á fjögurra ára dreng í Keflavík skömmu fyrir jól, með þeim afleiðingum að drengurinn lést, er laus úr farbanni. Hæstiréttur framlengdi farbann yfir manninum í lok janúar. 12.2.2008 17:12
Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum fíkniefnasmyglurum Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir bræðrunum Ara Gunnarssyni og Jóhannesi Páli Gunnarssyni til 22. febrúar næstkomandi. 12.2.2008 17:10
Bremsur í ólagi á rútunni sem fór út af í Bessastaðabrekku Umferðarslysið í Bessastaðabrekku í Fljótsdal í lok ágúst í fyrra má rekja til þess að bremsurnar á rútunni sem um ræddi voru í ólagi og þá var ástand sæta, sætisfestinga og bílbelta einnig ábótavant. 12.2.2008 16:56
Hvetja stjórnmálamenn til að hætta að rífast um Orkuveituna Stjórn starfsmannafélags Orkuveitu Reykjavíkur hvetur stjórnendur fyrirtækisins og borgarstjórn Reykjavíkur til þess að setja niður deilur um fyrirtækið til þess að skaða ekki starfsanda og ímynd fyrirtækisins 12.2.2008 16:26
Karl á níræðisaldri stöðvaður réttindalaus á bíl sínum Karlmaður á níræðisaldri var meðal þeirra sjö réttindalausu ökumanna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina. 12.2.2008 16:22
Vorkennir Vilhjálmi Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vorkenna Vilhjálmi Þ. Vihjálmssyni, oddvita sjálfstæðismanna, að standa í þeirri orrahríð sem staðið hefur yfir að undanförnu. „Ég óska honum bara alls hins besta," segir Gunnar, sem finnst Vilhjálmur hafa sætt ómaklegum árásum af hálfu pólitískra andstæðinga og fjölmiðlamanna að undanförnu. 12.2.2008 16:17
Ólíðandi framkoma í Valhöll Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú framkoma sem fjölmiðlar hafi mætt í Valhöll í gær, þar sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ávarpaði fjölmiðla, sé að hennar mati með öllu ólíðandi. 12.2.2008 15:54
Rætt við aðila vinnumarkaðarins á næstu dögum Geir H. Haarde forsætisráðherra á von á því að ríkisstjórnin ræði við aðila vinnumarkaðarins um aðkomu að kjarasamningum á næstu dögum. Þessi orð lét hann falla í utandagskrárumræðu um kjarasamninga og efnahagsmál á Alþingi í dag. 12.2.2008 15:22
Enn leitað að bandarísku ferjuflugvélinni Leit stendur enn yfir að bandarísku ferjuflugvélinni sem talið er að hafi hrapað í sjó um 50 sjómílur vestur af Keflavík í gær. 12.2.2008 15:19
Verður aftur forstjóri OR nema það vanti sökudólg Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, segist ekki eiga von á öðru en að hann taki aftur við forstjórastöðu Orkuveitu Reykjavíkur þann 1. apríl næstkomandi þegar sjö mánaða leyfi hans lýkur. 12.2.2008 15:12
Unglingagengi stal og skemmdi fyrir rúmar fjórar milljónir Fjórir piltar á aldrinum 16-19 ára hafa verið ákærðir fyrir að hafa á löngu tímabili meðal annars eyðilagt fjórtán bíla og brotist þrisvar inn í sömu sjoppuna. Drengirnir hafa skilið eftir sig skilaboð á sumum bílanna þar sem þeir hafa krotað orðin “D-Dog” og “Fuck Five”. 12.2.2008 15:01
Skipulagsstjóri Reykjavíkur fer í Kópavog Birgir H. Sigurðsson, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, hefur sagt upp störfum sínum hjá borginni. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að ráða Birgi í sambærilegt starf hjá Kópavogsbæ, sem hann gegndi áður. 12.2.2008 14:58
Samningar um sölu á Fríkirkjuvegi 11 tefjast vegna tíðra stjórnarskipta Samningum vegna sölu á Fríkirkjuvegi 11 er enn ekki lokið þrátt fyrir að samþykkt hafi verið í borgarráði fyrir um ári að selja það til Novators. Ástæðan fyrir seinagangnum eru tíð meirihlutaskipti í borginni. 12.2.2008 14:24
Eldsneytisverð hækkar í dag N1 hækkaði verð á bensíni og olíu í hádeginu í dag. Verð á bensíni hækkaði um tvær krónur og kostar 95 okt. nú kr. 137, 9 eftir breytingarnar en 98 okt kostar 143, 3 krónur. 12.2.2008 14:24
Sammála menntamálaráðherra um laun kennara Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segist fullkomlega sammála Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, um að hækka þurfi laun kennara. Þetta kom fram í umræðum um störf þingsins í dag. 12.2.2008 14:16
Dyravörður á skilorði dæmdur fyrir að berja feðga Fyrrverandi dyravörður á Kaffi Viktor var í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar. Fjórir mánuðir af þeim eru þó skilorðsbundnir. Dyravörðurinn fyrrverandi réðist að feðgum fyrir utan skemmtistaðinn í semptember 2006. 12.2.2008 13:26
Atvinnuleysi jókst um 14% á milli mánaða Skráð atvinnuleysi í janúar 2008 var 1% eða að meðaltali 1.545 manns. Þetta eru 188 fleiri en í desember síðastliðinn eða um 14% aukning, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 12.2.2008 13:13
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá mann með hafnaboltakylfu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 18 ára karlmann í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með hafnaboltakylfu. 12.2.2008 13:13
Icelandair helst vel á töskum farþega sinna Icelandair týnir 11,1 tösku á hverja þúsund farþega samkvæmt samantekt Sambands evrópskra flugfélaga. Og Icelandair stendur sig bara býsna vel miðað við önnur flugfélög. 12.2.2008 12:57
Minningarbók um Fischer í Þjóðmenningarhúsinu Búið er að setja upp minningarbók um skáksnillinginn Bobby Fischer í Þjóðmenningarhúsinu. Fyrirhuguð minningarstund í Laugardælakirkju þar sem hinn látni hvílir á laugardag kl. 13. 12.2.2008 12:50
Ákærur á hendur Guðmundi í Byrginu þingfestar Ákærur á hendur Guðmundi Jónssyni í Byrginu voru þingfestar í héraðsdómi Suðurlands í dag. Um er að ræða fjórar konur og mun ein þeirra hafa verið undir lögaldri. 12.2.2008 12:42
Neikvæður fréttaflutningur meginorsök andúðar Framkvæmdastjóri Alþjóðahússins segir að fyrir nokkrum árum hafi útlendingaandúð hér á landi beinst að fólki af asískum uppruna en nú beinist hún að Pólverjum og Litháum 12.2.2008 12:36
Segir orð Vilhjálms aumkunarverð Yfirlýsingar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um að borgarfulltrúar Samfylkingar hafi ekki axlað ábyrgð í REI málinu, eru aumkunarverðar. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi Samfylkingar sem var varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 12.2.2008 12:32
Þórólfur segist engin ráð hafa fyrir Vilhjálm „Ég held að það sé ómögulegt að gefa manni ráð í þeirri stöðu sem Vilhjálmur er," segir Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri og forstjóri Skýrr. 12.2.2008 12:27
Aldrei hefur heyrst í neyðarsendi Leit að flugvélinni, sem brotlenti 50 sjómílur vestur af Reykjanesi í gær, hefur engan árangur borið. Aldrei hefur heyrst í neyðarsendi hennar, sem gæti bent til að hún hafi sokkið strax. 12.2.2008 12:10
Vilhjálmur vildi að Þórólfur segði af sér vegna ósannsögli Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, skoraði á Þórólf Árnason, fyrrverandi borgarstjóra, að segja af sér á sínum tíma, vegna tengsla hans við verðsamráð olíufélaganna. Þá sagði Vilhjálmur alvarlegt ef stjórnmálamenn segðu ekki satt. 12.2.2008 12:01
Reyndi að komast inn um brotna rúðu á nærbuxunum Ölvaður maður í Vestmannaeyjum þykir hafa sloppið vel þegar hann reyndi að komast inn í hús í bænum í gegnum brotna rúðu. 12.2.2008 11:13
Fokker-vél farin til leitar að flugvél vestur af Reykjanesi Verið er að búa Fokker-vél Landhelgisgæslunnar til leitar úr lofti að flugvélinni sem brotlenti vestur af Reykjanesi í gær. 12.2.2008 10:31
Beðið með mokstur á Vestfjörðum vegna slæms veðurs Beðið er með mokstur á öllum leiðum á Vestfjörðum vegna slæms veðurs og þá eru Gemlufallsheiði, Óshlíð og Súðavíkurhlíð lokaðar. 12.2.2008 10:03
Dregur úr flutningi erlendra ríkisborgara til landsins Fjöldi aðfluttra erlendra ríkisborgara umfram brottflutta var um 3.350 á síðasta ári samkvæmt tölum Hagstofunnar. 12.2.2008 09:27
Leit hafin að nýju Flugvél frá danska flughernum hélt frá Keflavíkurflugvelli klukkan átta í morgun til leitar úr lofti að flugvélinni, sem brotlenti vestur af Reykjanesi síðdegis í gær, en leit úr lofti var hætt um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Leit dönsku vélarinnar verður stjórnað frá varðskipinu Ægi sem leitaði í nótt ásamt þremur togurum. 12.2.2008 08:44