Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast að vettvangsferðir leggist af Fræðslustjóri óttast að vettvangsferðir grunnskólanna leggist af ef grunnskólum verði gert að greiða fyrir þær. Dæmi eru um að slíkar ferðir kosti nemendur allt að 16 þúsund krónur. 19.9.2007 18:31
Leita að manni sem féll í Sogið Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurlandi leita nú manns er féll í Sogið, við Bildsfell rétt eftir klukkan 17:00 í dag. Ekkert hefur sést til mannsins síðan hann fór í ánna. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út. 19.9.2007 18:02
72 fjölskyldur borga bíl útvarpsstjóra Afnotagjöld 72 fjölskyldna í hverjum mánuði duga rétt til að borga af mánaðarlegri rekstrarleigu RÚV á glæsibifreið þeirri sem stofnunin greiðir undir Pál Magnússon útvarpsstjóra. Þetta jafngildir því að afnotagjöld allra íbúða á Reynimel 72 til 84 renni í bílasjóð Páls. Einn íbúi á Reynimel 74 segir kostnað við bíl Páls algjörlega út í hött. 19.9.2007 17:39
Stálu hársnyrtivörum og sokkum Nokkuð var um innbrot í höfuðborginni í gær. Meðal annars var brotist inn í þrjá bíla og þaðan stolið radarvara, veski og rafgeymi. Þá var brotist inn í fyrirtæki í austurborginni og þar teknar hársnyrtivörur, sokkar og smáræði af skiptimynt. 19.9.2007 17:09
Kompásmál: Eðlilegt að endurskoða lög Það er óheppileg staða sem nú er uppi að lögmaður sem sætir ákæru vegna kynferðisbrota, geti verið verjandi manna, sem ákærðir eru fyrir svipuð brot. Þetta segir Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis. Lög um meðferð opinberra mála verða endurskoðuð á komandi þingi og Birgir segir eðlilegt að þetta mál verði skoðað í því samhengi. 19.9.2007 16:45
Ákærður fyrir tvær líkamsárásir Tæplega tvítugur piltur hefur verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir en báðar árásirnar áttu sér stað síðastliðið vor. Málið var dómtekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í morgun. 19.9.2007 16:43
Kompáslögmaður tjáir sig ekki Vísir hafði í dag samband við lögmanninn sem var til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Kompás í gærkvöldi og gaf honum færi á því að tjá sig um umfjöllun þáttarins. Lögmaðurinn vildi ekki tjá sig um málið. Hann sagði að það væri vegna skipunar dómarans í málinu sem hann er sakborningur í. Lögmaðurinn kvaðst ekki hafa séð umræddann Kompásþátt. Hann er nú staddur erlendis ásamt fjölskyldu sinni. 19.9.2007 16:36
Kjósa græn svæði frekar en geðfatlaða Svandís Svavarsdóttir fulltrúi VG í skipulagsráði Reykjavíkurborgar segir mikla þörf fyrir sambýli fyrir geðfatlaða. Hún kaus hins vegar gegn byggingu slíks heimilis í Laugardalnum á fundi skipulagsráðs í morgun. 19.9.2007 16:32
Kemur á óvart að verjandi Kompáslögmannsins tjái sig Ritstjórn Kompás segir að það komi verulega á óvart að verjandi lögmannsins sem var til umfjöllunar í Kompás í gær hafi sent frá sér yfirlýsingu vegna þáttarins. Í yfirlýsingunni tjái hann sig um efnisatriði sakamáls sem nú er fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 19.9.2007 15:58
Tveir dæmdir fyrir fíkniefnalagabrot á Sauðárkróki Kona á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Norðurlands vestra í dag dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Við húsleit á heimili konunnar í síðastliðnum aprílmánuði fann lögreglan kannabisefni, hass og amfetamín. Þá var tæplega tvítugur karlmaður einnig fundinn sekur fyrir brot á fíkniefnalögum. 19.9.2007 15:28
Vill að Lögmannafélagið taki upp mál Kompáslögmanns Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður segir að næg næg úrræði séu fyrir hendi hjá Lögmannafélagi Íslands til að grípa inn í mál lögfræðings sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot. Í Kompás í gær kom fram að maðurinn sé verjandi annara meintra kynferðisbrotamanna þrátt fyrir að mál hans sjálfs sé í vinnslu. 19.9.2007 15:20
Dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Norðurlands vestra í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur fimm sinnum áður fengið dóm vegna annarra brota. 19.9.2007 15:09
Aron Pálmi fer ekki á Reykjalund Aron Pálmi Ágústsson fer ekki á Reykjalund eins áætlanir stóðu til. Eins og áður hefur verið greint frá var búið var að sækja um fyrir Aron en hann mun sjálfur hafa beðist undan vistinni. Einar S. Einarsson, talsmaður RJF hópsins, sem unnið hefur í þágu Arons upp á síðkastið, staðfesti þetta við Vísi. Aron mun í staðinn á næstunni einbeita sér að þriggja mánaða íslenskunámi sem hann hefur skráð sig í. Vonir standa svo til að hann geti hafið nám við Háskóla Íslands um áramótin. 19.9.2007 15:06
VG vilja ekki sambýli fyrir geðfatlaða Fulltrúar Vinstri-Grænna í skipulagsráði Reykjavíkurborgar greiddu atkvæði gegn byggingu sambýlis fyrir sex geðfatlaða einstaklinga við Holtaveg í morgun. 19.9.2007 14:30
Veitingamenn funda á eftir Veitingamenn í miðborginni munu hittast klukkan 15:00 í dag á Ölstofu Kormáks og Skjaldar og stofna hagsmunasamtök. Veitingamenn eru margir hverjir orðnir langþreyttir á ummælum lögregluyfirvalda og stjórnmálamanna um ástandið í miðborginni og fyrirhugaðar breytingar á skemmtanalöggjöfinni. Þeir ætla á fundinum að stilla saman strengi sína, velja sér talsmann og hafja samstillta baráttu gegn skerðingu á atvinnufrelsi sínu að sögn heimildarmanns Vísis sem mun sækja fundinn á eftir. 19.9.2007 14:22
Lést í bílslysi í Reykhólasveit Ökumaðurinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysinu sem átti sér stað á mánudaginn var við bæinn Klukkufell í Reykhólasveit er látinn. Hinn látni var tvítugur karlmaður af erlendu bergi brotinn. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar tildrög slyssins. 19.9.2007 13:46
Ráðuneytin fara fram úr fjárhagsáætlun Á fundi fjárlaganefndar Alþingis í morgun var tekin fyrir framkvæmd fjárlaga fyrstu sex mánuði ársins. Þar kom fram að 134 liðir af 434 eru komnir fram úr áætlun. Gunnar Svavarsson, formaður nefndarinnar, segir þetta aukningu frá því í fyrra þegar 106 liðir voru komnir fram úr á sama tíma. 19.9.2007 13:37
Fleiri láta fjarlægja tattoo Fjöldi þeirra sem láta fjarlægja húðflúr hér á landi hefur aukist töluvert síðustu ár og er búist við frekari aukningu á næstu árum. Yfirleitt er laser aðferðum beitt en þær geta verið bæði sársaukafullar, kostnaðarsamar og tímafrekar. Þetta er svipuð þróun og Í Bandaríkjunum þar sem aukningin hefur orðið gífurleg. 19.9.2007 12:49
Segir Kompás þátt ósmekklegan Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður mannsins sem Kompás fjallaði um í þætti sínum í gær, segir að umbjóðandi sinn kannist ekki við tvær þeirra stúlkna sem fjallað var um í þættinum. 19.9.2007 12:31
Lífetanólstöðin ekki opin almenningi strax Lífetanólstöðin sem opnuð var fyrir tveimur dögum verður ekki opin almenningi fyrr en eftir nokkrar vikur. Forstjóri Brimborgar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða og eftir eigi að að kanna, tollafyrirkomulag á tvíorkubílum og etanóli, áhuga almennings og ekki síður áhuga olíufélaganna. 19.9.2007 12:16
Töf á skráningu hlutafjár Straums í evrum Töf verður á fyrirhugaðri skráningu hlutafjár Straums í evrum vegna lögfræðilega athugasemda sem Seðlabankinn gerði um framkvæmdina. Forsvarsmenn Straums vísa því alfarið á bug að Seðlabankinn reyni að setja félaginu hömlur í þessum efnum. 19.9.2007 12:14
Mótvægisaðgerðirnar brandari Mótvægisaðgerðir ríkistjórnarinnar eru brandari, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen. Hann segir ekki samræmi í aðgerðunum og óeðlilegt að taka Vestfirði fram yfir aðrar sjávarbyggðir. 19.9.2007 12:00
Breyttu hóruhúsi í bænahús Í Ármúla 23 eru nú reglulega haldnar fjölmennar samkomur fólks sem hefur frelsast til guðstrúar. Flestir eiga safnaðarmeðlimirnir það sameiginlegt að hafa lent upp á kant við lögin fyrr á lífsleiðinni. Húsnæðið sem hýsir bænahúsið var mikið í fréttum fyrir nokkru þegar því var slegið upp að þar væri rekið vændishús. 19.9.2007 11:00
Vilja reka Friðarstofnun Reykjavíkur Samtök hernaðarandstæðinga ætla að bjóða fulltrúum borgarstjórnar til formlegra viðræðna á næstu dögum, með það að markmiði að samtökin taki að sér að reka Friðarstofnun Reykjavíkur. 19.9.2007 10:53
25.000 fm miðborgarkjarni í bígerð Á morgunverðarfundi í morgun um fyrirhugaðann miðborgarkjarna á Barónsreit kom fram að gert er ráð fyrir um 25.000 fermetra rými undir verslanir og þjónustu þar sem m.a. verður stór matvöruverslun, alþjóðlegar verslanir með þekktum vörumerkjum, kvikmyndahús og veitingastaðir. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara á fjórum hæðum. 19.9.2007 10:42
Varað við íslensku leiðinni Framkvæmdastjóri samtaka veiðimanna á Grænlandi (KNAPK) varar í viðtali við grænlenska útvarpið sterklega við fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins. Það muni leiða til ástands eins og á Íslandi þar sem nokkrir barónar eigi allan kvótann. 19.9.2007 10:33
GSM allan Hringveginn Stöðugt bætast við nýir sendar fyrir GSM-farsímaþjónustuna á Hringveginum. Samgönguráðuneytið áætlar að í árslok verði boðið uppá GSM-þjónustu á öllum Hringveginum. 19.9.2007 10:28
Ristu upp blaðaböggla Margir borgarbúar fengu ekki dagblöðin sín í morgun því einhverjir spellvirkjar tóku sig til í nótt, fóru víða um borgina og ristu upp blaðaböggla, sem biðu blaðburðarfólksins. 19.9.2007 08:44
Bifhjólamaður á gjörgæslu Bifhjólamaður slasaðist á Fáskrúðsfirði í dag þegar hann féll af hjóli sínu á Skólavegi laust fyrir klukkan fimm í dag. Maðurinn, sem er um þrítugt, var fluttur með sjúkrabíl til Egilsstaða og þaðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Fossvogi. Hann er nú á gjörgæslu en er ekki talinn alvarlega slasaður. 18.9.2007 21:11
Kristjana sigraði í Veðravon Um fimm þúsund Íslendingar tóku þátt Veðravon, veðurleik veðurstofu Stöðvar 2 og Vísis. Sigurvegarinn í leiknum var Kristjana Margrét Harðardóttir, Reykjavík, en hún reyndist ötulasti veðurathugunarmaðurinn enda gerði hún 93 veðurathuganir af 93 mögulegum. 18.9.2007 20:22
Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota. 18.9.2007 18:45
Íslendingar sitja lengi á skólabekk Ástralir og Íslendingar sitja lengst allra á skólabekk og engin þjóð ver jafn miklu af þjóðartekjum í að koma börnunum í gegnum grunn- og framhaldsskóla en Íslendingar. 18.9.2007 18:42
Vilja hætta við smíði Grímseyjarferju Vaxandi stuðningur er innan samgöngunefndar alþingis við að smíði fyrirhugaðrar Grímseyjarferju verði hætt. Grímseyingar segja skipið ekki henta vegna veðurs og ónógrar burðargetu. 18.9.2007 18:39
Vanhæfur? Bæjarstjórn Kópavogs hefur falið bæjarlögmanni að kanna hvort eðlilega hafi verið staðið að ráðningu aðstoðarskólastjóra í bænum. 18.9.2007 18:32
Brú selur Nokia allt hlutafé í Enpocket Nokia er að kaupa allt hlutafé í Enpocket, en Brú, dótturfyrirtæki Straums-Burðaráss er einn stærsti hluthafinn þar. Um það bil fimmtíu Íslendingar eiga hlut í félaginu. 18.9.2007 18:30
Hlíðaskóli fyrirmynd á Norðurlöndum í kennslu fyrir heyrnarskerta Hlíðaskóli hefur unnið markvisst frumkvöðlastarf í skólamálum á Íslandi á þann veg að heyrnarskert, heyrnarlaus og daufblind börn taka þátt í kennslustundum með heyrandi og sjáandi nemendum skólans. 18.9.2007 18:30
Ákært í fjórum líkamsárásarmálum í Reykjanesbæ Fjórar ákærur vegna líkamsárása voru þingfestar í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Allar árásirnar áttu sér stað í Reykjanesbæ. Nokkra athygli vekur að rúm þrjú ár eru liðin frá einni árásinni. 18.9.2007 17:47
Ekið á barn við Lönguhlíð Ekið var á barn á mótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar laust fyrir klukkan fimm í dag. Í fyrstu var óttast að barnið hefði slasast alvarlega. 18.9.2007 17:07
Fáfnisfauti týndur Jón Trausti Lúthersson, sem kenndur er við bifhjólasamtökin Fáfni, átti að mæta fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er hann ákærður fyrir tvær líkamsárásir sem áttu sér stað í Keflavík. 18.9.2007 17:00
Opna Schengen fyrir ríki Austur-Evrópu Stefnt er að því að aðildarríki Evrópusambandsins í Austur-Evrópu fái fullan aðgang að Schengen-samstarfinu á næsta ári. Þetta var meðal annars sem kom fram á ráðherrafundi um Schengen málefni í Brussel í dag. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sat fundinn fyrir hönd Íslands. 18.9.2007 16:59
Jónas: Borga ekki fyrr en ég hef lokið afplánun Jónas Garðarsson, sem Hæstiréttur hefur dæmt í þriggja ára fangelsi og til að greiða 10 milljónir í skaðabætur fyrir að vera valdur að dauða Matthildar Viktoríu Harðardóttur og Friðriks Hermannsonar þegar skemmtibáturinn Harpa sökk í Viðeyjarsundi, segist ekki ætla að greiða krónu í skaðabætur fyrr en hann hafi lokið afplánun sinni. 18.9.2007 16:40
Tölvupóstar frá svikahröppum sífellt grófari Mörg þúsund tilkynningar hafa borist ríkislögreglustjóra það sem af er þessu ári vegna tölvupósta þar sem reynt er að hafa af fólki fé. Bréfin verða sífellt grófari að sögn aðstoðarríkislögreglustjóra og í þeim nýjustu er fólki hótað lífláti. 18.9.2007 16:22
Reyna að forðast reynslulausn barnaníðings Brynjar Níelsson, skipaður verjandi Ágústs Magnússonar, segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dragi að gefa út kæru á hendur Ágústi, dæmdum barnaníðingi, til að koma í veg fyrir að hann fái reynslulausn úr fangelsi. 18.9.2007 15:34
Lögreglan varar við svikapóstum Ríkislögreglustjóri hefur gefið út viðvörun vegna tölvupósta frá svikahröppum sem innihalda morðhótanir. Í póstunum er fólki hótað lífláti greiði það ekki háa upphæð inn á bankareikning erlendis. Nokkuð hefur borið á því að Íslendingar hafi fengið slíkar hótanir í gegnum tölvupóst að sögn lögreglu. Fólk er hvatt til að svara ekki þessum bréfum. 18.9.2007 15:34
Ekkert spurst til brottrekna Rússans Ekkert hefur spurst til rússneska mannsins sem rekinn var úr landi í síðustu viku. Eiginkona hans óttast að hann verði settur í fangelsi í Rússlandi þar sem hann er frá Tjeténíu. Lögreglan meinaði henni að kveðja hann á Leifsstöð. 18.9.2007 14:58