Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rafmagnslaust í Kjósinni, unnið að viðgerðum Um kl. 19 fór rafmagn af sunnan Skarðsheiðar og í Kjós, vegna bilunar í aðveitustöðinni Brennimel, vinnuflokkur fór strax að leita að bilun og gera við, rafmagn komst á aftur sunnan Skarðsheiðar um kl 21 en hluti af Kjósinni er enn án rafmagns, unnið er að viðgerð og vonast er til að rafmagn komist fljótlega á aftur. 31.10.2006 21:48
Halldór ætlar að auka norræna samvinnu og styrkja Norðurlöndin Halldór Ásgrímsson segir það mikilvægt að auka norræna samvinnu til að gera Norðurlöndin sterkari á tímum alþjóðavæðingar. Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í morgun var Halldór valinn næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. 31.10.2006 20:30
628 ár tekur að jafna launamun kynjanna með þessu áframhaldi Með sama áframhaldi mun taka meira en 600 ár að jafna launamun íslenskra karla og kvenna. Í sameiginlegu frumvarpi leggur stórnarandstaðan til að réttindi Jafnréttisstofu verði stórefld, með það í huga að jafna stöðu kynjanna. 31.10.2006 20:20
Opinber gjöld Alcan hærri en fram kemur í álagningarskrá Opinber gjöld Alcan í Straumsvík námu á síðasta ári rúmum 14,2 milljónum Bandaríkjadala og eru því mun hærri en fram kemur í gögnum skattayfirvalda. Þar er Alcan í 8. sæti en samkvæmt sérstökum samningi milli fyrirtækisins og íslenska ríkisisins greiðir Alcan meginþorra sinna skatta beint til fjármálaráðuneytisins og í erlendum gjaldmiðli. 31.10.2006 19:23
Sjö þegar yfirheyrðir vegna hlerana Rannsókn sýslumannsins á Akranesi í hlerunarmálinu er langt komin en skýrslur hafa verið teknar af sjö mönnum vegna málsins. Rannsóknin snýr að meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins Hannibalssonar og starfsmanns hans í utanríkisráðuneytinu. Maðurinn sem á að hafa hlerað Jón Baldvin hefur verið nafngreindur og upplýsingar um hann eru í höndum sýslumanns. 31.10.2006 19:15
Pólverjar vinna mál gegn starfsmannaleigu Tólf Pólverjar sem störfuðu við Kárahnjúka unnu í dag dómsmál gegn starfsmannaleigu og fengu viðurkennt að þeir voru hlunnfarnir um á annað hundrað þúsund krónur á mánuði. Þetta er afar mikilvægur dómur, að mati verkalýðshreyfingarinnar. 31.10.2006 19:09
25 ríki mótmæla hvalveiðum Íslendinga 25 ríki mótmæla á morgun hvalveiðum Íslendinga í atvinnuskyni með formlegum hætti. Alp Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, mun afhenda mótmælaskjal fyrir hönd ríkjanna í utanríkisráðuneytinu klukkan 10 í fyrramálið. 31.10.2006 18:30
Eldri borgarar í Reykjavík ósáttir við hækkun gjalda Félag eldri borgara í Reykjavík lýsir miklum vonbrigðum yfir 9% gjaldskrárhækkun á heimaþjónustu, félagsstarfi, fæði og þjónustugjöldum í þjónustuíbúðum eldri borgara í Reykjavík. Segir í tilkynningu frá félaginu að hækkunin muni éta upp leiðréttingu á kjörum eldri borgara vegna verðbólgu sem samþykkt var þann 1. júlí síðastliðinn. 31.10.2006 18:00
Veik tengsl milli pólskra innflytjenda Ný íslensk rannsókn sýnir að dæmi eru um að Pólverjum sé boðin vinna á lægra kaupi eingöngu á grundvelli þjóðernis. Sömuleiðis bendir hún til þess að pólskir innflytjendur hafi lítil samskipti sín á milli. 31.10.2006 17:53
KB banki borgar 7 milljarða í skatta Kaupþing banki greiðir nú í fyrsta skipti meira í opinber gjöld en Fjársýsla ríkisins. Bankinn greiðir langhæstu opinberu gjöldin á þessu ári - nærri sjö milljarða króna, rúmum fimm milljörðum meira en í fyrra. Tekjuskattur lögaðila hefur hækkað um 46% frá síðasta ári. 31.10.2006 17:48
Þór Jónsson lætur af störfum sem varafréttastjóri NFS Þór Jónsson varafréttastjóri NFS hefur látið af störfum. Hann sagði í bréfi til starfsmanna að hann hefði ákveðið að halda á önnur mið eftir áralangt starf við fréttamennsku, enda hefði honum boðist starf sem veiti honum tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn. 31.10.2006 17:30
Leigubílar geta ekið á sérakreinum Strætó Leigubílum verður innan skamms heimilt að aka á sérakreinum Strætó. Framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila leigubílstjórum akstur á þessum akreinum. Sett er sem skilyrði að leigubílar nýti eingöngu akreinarnar þegar um farþegaflutninga gegn gjaldi er að ræða. 31.10.2006 16:30
Djúpstraumur sem "hikstaði" Hafrannsóknarstofnun segir að það hafi ekki verið Golfstraumurinn sem slíkur, sem stoppaði í tíu daga í nóvember árið 2004, heldur djúpstraumur sem hefur engin svipuð áhrif og Golfstraumurinn. 31.10.2006 16:25
Aðeins á eftir að veiða tvær langreyðar Hvalur 9 er nú á leið í land með tvær sextíu feta langreyðar. Búið er að skjóta sjö langreyðar af þeim níu sem heimild fékkst til að veiða. Af dýrunum sem hafa verið veidd eru fjórar kýr og þrír tarfar. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals, segir að ef veðrið haldist áfram eins og það er nú þá klári þeir kvótann. 31.10.2006 15:50
Sniglarnir vilja losna við ný vegrið Bifhjólasamtökin Sniglarnir hafa hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla uppsetningu nýrrar tegundar vegriða. Um er að ræða svokölluð víravegrið og segja Sniglarnir þau stórhættuleg bifhjólafólki. Samtökin skora á Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra að taka nýju vegriðin strax niður. 31.10.2006 15:39
Framsóknarmönnum fjölgaði eftir að póstkosning var ákveðin Framsóknarmönnum í Norðvesturkjördæmi hefur fjölgað um fjórðung frá því að ákveðið var að efna til póstkosningar um skipan framboðslista flokksins í kjördæminu. Frá þessu er greint á fréttavef Skessuhorns. 31.10.2006 15:01
Stór hluti fiskafla á Sri Lanka spillist Talið er að 30 til 40% af fiskafla sem veiðist á Sri Lanka spillist frá því fiskurinn er veiddur þar til hann er kominn á borð neytenda. Rýrnun gæða fisks er vandamál í fiskiðnaði á Sri Lanka og er það eitt af þeim verkefnum sem fiskiðnaðurinn tekst nú á við. 31.10.2006 14:37
Bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi Haldin verður bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi annað kvöld klukkan átta. Biðja á fyrir vegfarendum sem keyra um Óshlíð og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur á vegasamgöngum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. 31.10.2006 14:20
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. 31.10.2006 13:21
Hafa kært árásir til lögreglu Hjónin sem lentu í árás á veitingastað í miðborginni um helgina, þar sem fyrrverandi lögreglumaður réðst að hópi manna sem gerðu tilraun til að nauðga konu hans, hafa kært málið til lögreglu. 31.10.2006 13:00
Fyrsta hrefnan veidd eftir að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar Skipverjar á bátnum Halldóri Sigurðurssyni veiddu í dag fyrstu hrefnuna frá því að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar fyrir tveimur vikum. Að sögn Konráðs Eggertssonar skipstjóra veidist hrefnan á Ísafjarðardjúpi um klukkan hálftólf og verður komið með kjötið af henni til Ísafjarðar síðar í dag, en fyrst þarf að taka sýni úr hrefnunni og sinna ýmsum rannsóknarstörfum eins og Konráð orðar það. 31.10.2006 12:55
KB banki greiðir langhæstu opinberu gjöldin Kaupþing banki greiðir langhæstu opinberu gjöld allra lögaðila, samkvæmt álagningaskrá Skattstjórans í Reykjavík fyrir þetta ár. Reykjavíkurborg er komin niður í sjötta sæti, en Kópavogsbær er hins vegar hæsti greiðandi í Reykjanesumdæmi. 31.10.2006 12:45
Samstaða um Halldór meðal ráðherra Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, verður næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna sammæltust um þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn í morgun. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að samstaða hafi orðið um hann, meðal annars vegna þess að Íslendingur hafi aldrei áður gegnt starfinu. 31.10.2006 12:30
Leita manns sem reyndi að lokka unga stúlku upp í bíl sinn Lögreglan í Reykjavík leitar að manni, sem er grunaður um að hafa ætlað að beita átta ára stúlku kynferðislegu ofbeldi. Hann lokkaði hana upp í bíl sinn skammt frá Rauðavatni á sunnudag. 31.10.2006 12:15
Fjallað um Jón Ásgeir og Björgólfsfeðga í Ekstra Bladet Danska Ekstra Bladet birtir í dag skjal sem Pálmi Haraldsson undirritar þar sem hann staðfestir að tilfærslur á fjármagni hafi ekki neitt með peningaþvætti að gera. Á þriðja degi umfjöllunar blaðsins er röðin kominað íslenskum athafnamönnum, því blaðið fjallar um Jón Ásgeir Jóhannesson og Björgólfsfeðga í dag. 31.10.2006 11:58
Guðfríður Lilja sækist eftir 2. sæti í prófkjöri VG Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, gefur kost á sér í 2. sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi. 31.10.2006 11:55
Golfstraumurinn stoppaði í tíu daga árið 2004 Golfstraumurinn stöðvaðist í tíu daga í nóvember árið 2004, og enginn veit hvers vegna. Þetta kom fram á ráðstefnu sem haldin var í Bretlandi, í síðustu viku. Lengri stöðvun myndi hafa skelfilegar afleiðingar fyrir Ísland. 31.10.2006 11:16
Olíufélagið og EGO lækka verð á eldsneyti Olíufélagið og EGO hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti. Ástæðurnar fyrir lækkuninni eru sagðar vera lækkandi heimsmarkaðsverð og styrkari staða krónunnar. 31.10.2006 11:16
Dæmdur fyrir alvarlegt kynferðisbrot Maður á fimmtugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðdsómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa samfarir við 32 ára þroskahefta konu. Maðurinn starfaði sem stuðningsfulltrúi hennar á þeim tíma sem brotið átti sér stað. 31.10.2006 10:59
Valgerður fundar með norrænum starfsbræðrum sínum Valgerður Sverrisdóttir situr fund utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra norrænu ríkjanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem hefst í Kaupmannahöfn í dag og stendur fram á fimmtudag. 31.10.2006 10:48
Dýrkeypt gleymska í Víkurskarði Karlmaður á Norðurlandi komst að því í gær að það getur verið dýrt að vera gleyminn. Lögreglan á Akureyri ók fram á hann í Víkurskarði í gær en þar var hann á gangi með hagalabyssu. 31.10.2006 10:36
Erfitt að fá starfsfólk í sláturhúsið í Búðardal Erfitt hefur reynst að fá fólk til vinnu í sláturhúsinu í Búðardal. Kaupfélag Skagfirðinga hyggst hefja þar sögun á lambakjöti fyrir jólin og jafnvel annars konar vinnslu, svo sem sultun og súrsun. Aðeins einn heimamaður fékkst til starfa á sláturtíðinni þannig að 8 Pólverjar voru ráðnir til að svíða hausa. Fréttavefurinn skessuhorn.is segir frá þessu. 30.10.2006 22:52
Skipasmíðastöðvar hérlendis eiga undir högg að sækja Íslenskar skipasmíðastöðvar hafa ítrekað þurft að lúta í gras gagnvart Pólverjum. Kunnar eru deilur eftir að varðskipin voru send út til Póllands vegna breytinga. Svo litlu munaði á tilboði Slippstöðvarinnar sálugu á Akureyri og pólsku tilboðunum að sumir töldu óráð að sigla með skipin út. 30.10.2006 21:15
Avion Group hagnast um 10,5 milljarða á sölu Avion Group hefur selt eignir fyrir 34 milljarða króna og losað tíu og hálfan milljarð í hagnað. Leiguflugs- og ferðaþjónustuhluti félagsins var seldur í heild sinni. Þá keypti Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Atlanta, og fleiri ríflega helminginn í því félagi sem sá um kaup og sölu flugvéla. 30.10.2006 21:00
Kennarar vilja endurskoða samninga Kennarafélag Reykjavíkur segir launanefnd sveitarfélaga ekki hafa vilja eða skilning til að endurskoða kjarasamninga þó að efnahagsaðstæður hafi breyst. Heimild var fyrir því í kjarasamningum að endurskoða samninginn frá og með 1. september en fjórir fundir um samninginn hafa hingað til reynst árangurslausir. 30.10.2006 20:00
Þrír karlmenn í fjórum efstu hjá Samfylkingu í NV Guðbjartur Hannesson, skólastjóri á Akranesi, og séra Karl V. Matthíasson, fyrrverandi þingmaður, eru sigurvegarar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Þrír karlmenn eru í fjórum efstu sætum listans og eina þingkona flokksins í kjördæminu á ekki víst þingsæti eftir næstu kosningar. 30.10.2006 20:00
Prófkjörið kostaði 80-90 milljónir Kostnaður, vegna prófkjörs frambjóðenda í nýloknu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, er talinn nema áttatíu til níutíu milljónum króna. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur ekki síður ríkari ástæðu til þess að beina sjónum sínum að prófkjörskostnaði en fjármálum stjórnmálaflokkanna. 30.10.2006 19:13
Framkvæmdastjóri valinn á morgun Tilkynnt verður á morgun hver verði næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Fastlega er búist við að það verði Halldór Ásgrímsson. Talið er að endanleg niðurstaða liggi fyrir eftir fund forsætisráðherra Norðurlandanna sem hefst í Kaupmannahöfn klukkan sjö í fyrramálið að íslenskum tíma en Norðurlandaráðsþing er nú haldið þar í borg. 30.10.2006 18:45
Fjármálaeftirlitið höfðar dómsmál Stjórn Fjármálaeftirlitsins ætlar að höfða dómsmál til að fá úrskurði kærunefndar hnekkt. Kærunefndin taldi að Fjármálaeftirlitinu hefði verið óheimilt að takmarka rétt ákveðinna stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar við fimm prósent. 30.10.2006 18:32
Níu tennur fórnarkostnaður nauðgunar Níu tennur voru brotnar í fyrrverandi lögreglumanni sem reyndi að bjarga eiginkonu sinni þegar hópur manna gerði tilraun til að nauðga henni inni á salerni skemmtistaðar í miðborginni aðfaranótt sunnudags. Mönnunum var sleppt eftir yfirheyrslur. Veitingastjóri staðarins segir að efla þurfi sýnilega löggæslu í miðbænum um helgar til að sporna gegn ofbeldi. 30.10.2006 17:57
Smábörn verða ekki bólusett fyrir flensu Ekki stendur til að bólusetja smábörn hér á landi gegn inflúensu en stór bandarísk rannsókn sýnir að þeim verður ekki meint af því. 30.10.2006 17:51
Karlmaður varð úti við Nesjavallaveg Rúmlega fertugur karlmaður fannst látinn vestan við Nesjavallarvirkjun í nótt. Talið er að hann hafi orðið úti. 30.10.2006 17:46
Metur KB banka á 578 milljarða króna Greiningardeild Landsbankans metur virði KB banka á 578 milljarða króna og mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í bankanum. Þetta kemur fram Fókusi sem Landsbankinn hefur gefið út vegna afkomutalna KB banka á þriðja ársfjórðungi. 30.10.2006 17:19
Lést í sundlaug á Selfossi Maðurinn sem fannst látinn í sundlaug Sundhallar Selfoss þann 26. október síðastliðinn hét Ólafur Þór Ólafsson, til heimilis að Vallholti 12 á Selfossi. Hann var 42 ára, ókvæntur og barnlaus. Dánarorsök liggur ekki fyrir og er beðið niðurstöðu réttarkrufningar. 30.10.2006 16:48
Spá áframhaldandi vexti á Norðurlöndunum Verg þjóðarframleiðsla á Norðulöndum eykst um 3,4 prósent á þessu ári og þrjú prósent á árinu 2007 sem er meira en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þetta kom fram á fundi fjármálaráðherra norrænu ríkjanna sem haldinn var í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Kaupmannahöfn sem hófst í dag. 30.10.2006 16:44