Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungir sjálfstæðismenn verja skattaupplýsingar Ungir Sjálfstæðismenn reyndu að koma í veg fyrir að fólk skoðaði skattskrána á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í dag, þegar álagning skatta á landsmenn var gerð opinber. Í ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi frá sér í dag er talað um opinberun gagnanna sem ósóma. 28.7.2006 17:15
Ægisdyr vilja frekari rannsóknir á jarðgöngum til Vestmannaeyja Ný skýrsla á vegum Ægisdyra metur kostnað við göng milli lands og Eyja tugum milljörðum lægra en nefnd samgönguráðuneytisins. Formaður Ægisdyra vill að jarðgöngum verði haldið uppi á borðinu þar til frekari rannsóknir hafa verið framkvæmdar. 28.7.2006 17:00
Íslensk stjórnvöld vilja tafarlaust vopnahlé í Líbanon Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur í dag ritað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hún segir það viðhorf íslenskra stjórnvalda að gerð verði tafarlaus krafa um vopnahlé og eyðileggingu Líbanons hætt. 28.7.2006 15:49
Tveir bifhjólamenn teknir á yfir 140 km hraða Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í þeim hópi hafi verið tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þurfi að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem sé stórhættulegur. Bifhjólamenn héldu baráttufund í Laugardalshöll í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Lögreglan segir það því kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk. Lögreglan tekur þó fram að meginþorri bifhjólamanna sé til fyrirmyndar og virði umferðarlög. En eins og oft vilji vera sé misjafn sauður í mörgu fé og þeir setji blett á allan hópinn. 28.7.2006 15:00
Hæsta íbúðarhús á Íslandi mun rísa í vetur Framkvæmdir eru hafnar við hæsta íbúðarhús landsins við Skúlagötu í Reykjavík. Jarðvegsvinna er hafin við annan áfanga Skuggahverfisins, en fimm fjölbýlishús verða byggð í þessum áfanga. Það hæsta verður 62 metrar á hæð og 20 hæðir. Húsin verða svipuð þeim sem þegar hafa risið í Skuggahverfinu. Á hverri hæð verða um tvær stórar íbúðir með mikilli lofthæð. Útsýni úr íbúðunum verður með því besta sem gerist hér á landi. Sala á íbúðum þessa áfanga hefst ekki fyrr en á næsta ári en þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga á þeim. Félagið 101 Skuggahverfi áætlar einnig að hefjast handa við þriðja áfanga Skuggahverfisins innan næstu tveggja ára. 28.7.2006 13:00
Samgönguráðherra mun skoða nýja skýrslu um jarðgöng til Eyja Samgönguráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu um jarðgöng til Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, og var birt í gær. Samgönguráðuneytið vill taka fram að unnið sé að framtíðarlausnum í samgöngumálum Vestmannaeyja o skýrsla Ægisdyra verði skoðuð. 28.7.2006 12:49
Vinstri grænir skora á stjórnvöld Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon. 28.7.2006 12:30
Fjármálaráðherra ætlar að leiðrétta vaxtabætur Árni Matthiesen, fjármálaráðherra, sagði í samtali við NFS rétt fyrir hádegi, að hann myndi leggja fram frumvarp á Alþingi í haust, til að leiðrétta þær skerðingar sem orðið hafa á vaxtabótum. 28.7.2006 12:06
Fundu skreyttan kamb frá sturlungaöld Skreyttur kambur frá sturlungaöld fannst við fornleifauppgröft í Kolkuósi í Skagafirði í gær. Kamburinn er afar heillegur, tvöfaldur og settur saman með bronsnöglum en að öðru leyti gerður úr beini. Á honum er hringlaga skreyting sem er dæmigerð fyrir skreytilist 13. aldar. 28.7.2006 12:04
Greiða yfir 40 milljónir króna í opinber gjöld Tuttugu og þrír Reykvíkingar greiða yfir 40 milljónir króna hver í opinber gjöld. Mest greiðir Ármann Ármannsson útgerðarmaður Helgu RE, rúmar 160 milljónir, sem að meðstu mun mega rekja til söluhagnaðar af skipi og kvóta. 28.7.2006 11:18
Belle and Sebastian og Emilíana Torrini á Nasa Skoska gleðisveitin Belle and Sebastian og íslenska söngkonan Emilíana Torrini skemmtu gestum á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll í gærkvöldi. 28.7.2006 10:43
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla Samtök herstöðvaandstæðinga efna til mótmælastöðu fyrir framan bandaríska sendiráðið vegna stríðsins í Líbanon, föstudaginn 28. júlí kl. 17:30. 28.7.2006 09:45
Hreindýrshaus fannst í ruslatunnu Hreindýrshaus, skinn og lappir fundust í ruslatunnu við Freysnes í Öræfum á miðvikudagsmorgun. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að reglur Umhverfisstofnunar banni stranglega að farið sé með úrgang hreindýra yfir í Öræfin, en Jökulsá á Breiðamerkursandi myndar sauðfjárveikivarnarlínu og skal fella þau dýr sem yfir ána fara. 28.7.2006 08:45
Falsaðar Evrur Lögreglan í Reykjavík varar við útlendingi sem virðist reyna að koma fölsuðum evrum í umferð. Þetta er lágvaxinn karlmaður sem talar bjagaða ensku. Hann er dökkur yfirlitum og er líklega með gleraugu. 28.7.2006 08:36
Ók á tré Ökumaður og farþegi hans slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði á tré á mótum Suðurgötu og Hringbrautar, við hornið á gamla kirkjugarðinum í nótt. Hvorugur er alvarlega slasaður, en ökumaðurinn, sem var á vestuleið eftir Hringbraut, ók fyrst upp á miðju hringtorgsins, þaðan sem bíllinn kastaðist á tréð. 28.7.2006 08:30
Gengi lækkar hjá Landsbankanum og KB banka Þrátt fyrir mjög góð hálfsársuppgjör KB banka og Landsbankans, hafa báðir bankarnir lækkað í verði síðan tölurnar voru birtar. Gengi á bréfum í KB banka hefur lækkað um 3% og um 1% í Landsbankanum. 28.7.2006 08:15
Tíu þúsund fá engar bætur Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu fá tíu þúsund færri einstaklingar vaxtabætur þetta árið. Greiðslur vaxtabóta lækka jafnframt um sjö hundruð milljónir vegna tekna árið 2005. Þessa skerðingu má meðal annars rekja til hækkunar á fasteignamati um 35 prósent á milli ára. 28.7.2006 08:00
Segir að uppeldi sé ekki í verkahring lögreglunnar Erfitt er að sporna gegn straumi unglinga á útihátíðir. Á sumum stöðum er aldurstakmark á tjaldstæði og treyst á eftirlit lögreglu. Ekki hlutverk lögreglunnar að ala upp börn, segir lögreglustjórinn á Akureyri. 28.7.2006 08:00
Mældist á 165 km hraða Vélhjólamaður mældist á 165 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Hann virti stöðvunarmerki Kópavogslögreglunnar að vettugi, sem reyndi ekki einu sinni að veita honum eftirför, heldur hafði samband við lögregluna í Hanfarfirði um að gera honum fyrirsát. 28.7.2006 07:56
Íhugar þingframboð Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sest á skólabekk í Háskóla Íslands í haust. 28.7.2006 07:45
Mannskaði ef eldur brýst út Gríðarlega erfitt yrði að forða fólki úr Hvalfjarðargöngum ef kviknaði í olíuflutningabíl inni í þeim, að sögn slökkviliðsstjóra í Borgarnesi. 28.7.2006 07:45
Geðfatlaðir sagðir sviknir um sambýli Árið 2004 var gert ráð fyrir opnun tveggja nýrra heimila fyrir geðfatlaða í Reykjavík og tveimur á Reykjanesi. Þessi heimili voru aldrei opnuð og segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tíð skipti á ráðherrum tefja framkvæmdir. 28.7.2006 07:45
Landsvirkjun sögð raska Eyjabökkum Samtökin Íslandsvinir saka Landsvirkjun um að ganga gegn umhverfismati við byggingu lóns á Eyjabökkum og þurrka að auki upp fossa í Jökulsá á Fljótsdal. Landsvirkjun vísar ásökununum á bug og segir mótmælendur illa upplýsta. 28.7.2006 07:30
Tafir á aðstöðu fyrir áhætturannsóknir Aðstaða fyir áhætturannsóknir sem byggja átti upp á Keldum fyrir 1. febrúar verður ekki tilbúin í tæka tíð. Ástæðan er stöðvun sem stjórnvöld settu á útboð allra opinberra framkvæmda, að sögn Helga Helgasonar framkvæmdastjóra. 28.7.2006 07:30
Átta ára börn send til einkaþjálfara Dæmi eru um að foreldrar sendi átta ára börn í einkaþjálfun. Einkaþjálfari segir foreldra oft gera óraunhæfar kröfur. Eigandi World Class segir strangar reglur gilda um einkaþjálfun. Almennt sé miðað við sextán ára aldur. 28.7.2006 07:30
Orkuboltarnir á Reykhólum Það er sólskin og blíða þegar Jón Sigurður Eyjólfsson kemur akandi að Reykhólum. Þar búa kraftmiklir og sjálfsöruggir sveitungar enda fá þeir auka orku úr þanginu og vissuna úr völunni hans Dalla. 28.7.2006 07:30
Engin lagastoð fyrir birtingu Samkvæmt skattalögum ber skattstjórum að leggja fram álagningarskrár almenningi til sýnis í hverju sveitarfélagi, þar sem skattar á hvern gjaldanda eru tilgreindir. En hvergi er kveðið á um í lögum að taka skuli saman lista yfir hæstu gjaldendur til birtingar. 28.7.2006 07:30
Heimilt að blása framkvæmdina af Esso fær takmarkað byggingarleyfi fyrir bensínstöð við Hringbraut, en fundargerð frá byggingarfulltrúa varðandi þetta var staðfest á borgarráðsfundi í gær. 28.7.2006 07:15
Veiddu yfir 500 laxa á einni viku í sumar hefur enn sem komið er ekki alveg staðið undir þeim væntingum sem veiðimenn gerðu sér í vor. Víðast hvar er veiðin nokkru minni en hún var á sama tíma í fyrra en þess ber þó að geta að sumarið 2005 var eitt besta laxveiðisumar sem um getur og samanburðurinn því ekki að öllu leyti sanngjarn. 28.7.2006 07:15
Tíu sérsveitarmenn verða ráðnir í haust Eignakaup embættis ríkislögreglustjóra jukust um 57 prósent milli áranna 2004 og 2005. 14 milljónir fóru í stækkun sérsveitarinnar sem skýrir helst aukninguna, að sögn yfirlögregluþjóns. Sértekjur embættisins lækkuðu um 44 prósent. 28.7.2006 07:00
Fljúga beint til Bandaríkjanna Flugfélag Íslands mun að líkindum missa spón úr aski sínum á næsta ári þegar Grænlandsflug mun hefja reglubundin áætlunarflug milli Grænlands og Bandaríkjanna. 28.7.2006 07:00
Níu ára piltur gerði viðvart Níu ára drengur var einn í bústaðnum að horfa á sjónvarp, sem var með innbyggðan DVD-spilara, þegar kviknaði í tækinu. Hann tók þá til fótanna og gerði foreldrum sínum sem voru á svæðinu viðvart. 28.7.2006 07:00
Hlutabréf ekki lægri á árinu Landsbankinn og Bakkavör birtu í gær uppgjör sín. Bæði félög skiluðu afkomu sem var í efri hluta meðaltalsvæntinga greiningardeilda bankanna. 28.7.2006 07:00
Ellefu tegundir ánamaðka Um fimmtíu vísindamenn eru staddir á ráðstefnu um dýralíf í jarðvegi sem haldin er á Akureyri. Bjarni E. Guðleifsson náttúrufræðingur segir að hér kunni að finnast smádýrategundir sem ekki finnist annars staðar. 28.7.2006 07:00
Vill ekki tengivagna Þetta hefur ekki verið neitt að bögga mig. En svo náttúrulega þegar maður heyrir af svona hlutum eins og slysinu þegar flutningabíllinn hellti niður olíu fyrir norðan fer maður að pæla í þessu. 28.7.2006 06:45
Allir þurfa meðmæli Dorrit Moussaieff forsetafrú fær íslenskan ríkisborgararétt næsta mánudag. Meðmælendur hennar voru Karl Sigurbjörnsson biskup og Rannveig Rist, forstjóri Alcan. Hjalti Zóphóníasson er skrifstofustjóri dómsmálaráðurneytisins. 28.7.2006 06:45
Ökumaðurinn útskrifaður Maðurinn sem slasaðist þegar hann ók flutningabíl með brotajárnsfarm fram af veginum efst á Bessastaðafjalli í Fljótsdal í fyrradag hefur verið útskrifaður af Heilsugæslunni á Egilsstöðum. 28.7.2006 06:45
Samgöngur til Vestmannaeyja Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa lagt fram tillögur að úrbótum í samgöngumálum. 28.7.2006 06:45
Dreifa fimmtán þúsund smokkum Læknanemar á vegum Ástráðs sem er forvarnarstarf læknanema ætla ekki að láta sig vanta um Verslunarmannahelgina og ætla að dreifa út um fimmtán þúsund smokkum. 27.7.2006 22:32
Minntust látinna bifhjólamanna Bifhjólafólk hittist í Laugardalshöllinni í kvöld til að ræða bætta umferðarmenningu. Tveggja látinna bifhjólamanna var minnst á fundinum. 27.7.2006 22:25
Framkvæmanleg og kosta 20 - 22 miljarða Ægisdyr, áhugafélag um jarðgöng til Vestmannaeyja, kynntu í dag skýrslu sem norska ráðgjafafyrirtækið Multiconsult gerði um framkvæmd ganga til Eyja. Þar kemur fram að göngin muni kosta á bilinu 20 -22 miljarða króna. 27.7.2006 19:33
Kjósa í fyrsta sinn 25 milljónir íbúa Austur-Kongó fá nú um helgina að kjósa sér forseta í fyrsta sinn. Fyrir fáeinum árum geisaði styrjöld í landinu sem kostaði tæpar fjórar milljónir mannslífa. 27.7.2006 19:11
Sex hundruð látnir í Líbanon Ísraelska ríkisstjórnin túlkar niðurstöðu ráðstefnunnar um stríðið í Líbanon, sem fram fór í Róm í gær, sem samþykki alþjóðasamfélagsins fyrir áframhaldandi hernaði. Líbönsk yfirvöld telja að sex hundruð manns liggi í valnum eftir árásirnar. 27.7.2006 19:05
Vill banna tengivagna Formaður samgöngunefndar Alþingis vill að flutningabílum verði bannað að aka með tengivagna. Hann segir að strandflutningar hafi lagst af áður en vegirnir voru tilbúnir fyrir aukna þungaflutninga. Nauðsynlegt sé að fara yfir gjaldskrár hafna til að reyna að ná hluta flutninganna aftur í skipin. 27.7.2006 18:59
Zeppelin fundið Pólski sjóherinn hefur fundið þýska flugvélamóðurskipið Graf Zeppelin á sjávarbotni. Það hefur verið týnt í tæp sextíu ár og hafa örlög þess verið hjúpuð leyndardómi. 27.7.2006 17:13