Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Endurskoðun á reglum um eldsneytisflutninga í gangi Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Umferðarstofu að skoða möguleika á breytingum á fyrirkomulagi eldsneytisflutninga um Hvalfjarðargöng. Hann gerir ráð fyrir að einnig verði farið í almenna endurskoðun á eldsneytisflutningum um þjóðvegi landsins. 27.7.2006 12:30
Tilviljanir að ekki hafi orðið stórslys Tilviljanir virðast hafa ráðið því að undanförnu að ekki hafa orðið stórslys þegar vöruflutningabílum hefur hlekkst á á þjóðvegum landsins. Slíkum slysum hefur fjölgað talsvert frá því í fyrra. 27.7.2006 11:56
Minniháttar meiðsl eftir bílveltu Ökumaður fólksbíls hlaut minniháttar meiðsl í bílveltu við Hólmavík í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar í bænum fór bíllinn að minnsta kosti eina veltu og er hann talinn ónýtur. 27.7.2006 11:22
Pólverjinn fundinn Pólverji, sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær og hafði verið týndur í viku, fannst á hótelherbergi í Reykjavík í nótt, heill á húfi. 27.7.2006 09:35
Um 1.500 laxar komnir á land úr Norðurá Tæplega 1.500 laxar hafa veiðst í Norðurá það sem af er sumri samkvæmt fréttavefnum Skessuhorn.is. Í fyrradag voru komnir fjórtán 1488 laxar á land af efra og neðra svæði árinnar. 27.7.2006 09:00
Hólmavík í Financial times Í nýjasta tölublaði hins virta blaðs Financial Times er umfjöllun um nýlega könnun á hamingju þjóða þar sem Ísland var í fyrsta sæti. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í umfjölluninni er sagt að Hólmavík sé sá staður á landinu þar sem hamingja ríki í mestum mæli. 27.7.2006 08:45
Minni veiði í Laxá í Ásum en áður Mun minni veiði hefur verið í Laxá á Ásum, framan af sumri en í fyrrasumar, þótt veiðin hafi glæðast upp á síðkastið, að sögn Fréttablaðsins. Laxá á Ásum hefur oft státað af mestu veiði á hverja stöng, af öllum ám á landinu og kostar veiðileyfið þar 250 þúsund krónur á stöng á dag. 27.7.2006 08:30
Skattgreiðendum fjölgar um 7.000 Sjö þúsund fleiri einstaklingar greiða hátekjuskatt í ár en í fyrra, eða samtals tuttugu og fjögur þúsund manns. Þrátt fyrir það nemur innheimta Ríkissjóðs af hátekjusklatti hátt í hálfum örðum milljarði lægri upphæð en í fyrra, sem skýrist af skattalækkuninni, sem nú kemur til framkvæmdar. Þá eru framteljendur í ár hátt í sjö þúsund fleiri en í fyrra, sem skýrist að verulegu leiti af fjölgun erlendra framteljenda hér. 27.7.2006 08:15
Skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma stríðsátökin í Líbanon Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust. Í tilkyningu frá samtökunum segir að Bandaríkjastjórn hafi komið í veg fyrir að fjölþjóðleg ráðstefna í Róm í gær krefðist þess að tafarlausu vopnahlé yrði komið á, og Bretland og Þýskaland hafi komið í veg fyrir að Evrópusambandið beitti sér í málinu. 27.7.2006 08:08
Mikill hafís við strendur landsins Að sögn Þórs Jakobssonar hjá Veðurstofu Íslands er mun meiri hafís við Íslandsstrendur um þessar mundir en mörg undanfarin ár. 27.7.2006 08:00
Sumarbústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður í landi Galtarholts, norðan við Borgarnes, brann til grunna í gærkvöldi. Bústaðurinn var mannlaus, en einn maður hafði verið í honum fyrr um kvöldið. Slökkviliðið í Borgarnesi kom á vettvang og kom í veg fyrir að verr færi því gaskútar og annar eldsmaðtur voru í grennd við bústaðinn. Nærliggjandi sumarbústaðir voru ekki í hættu.Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá sjónvarpstæki. 27.7.2006 07:53
Séríslenskt vandamál Fólk stundar að bragða á vínberjunum áður en það kaupir þau, þetta er að sjálfsögðu ekki leyfilegt en þetta virðist vera séríslenskt vandamál, segir Sigurður Reinaldsson, innkaupastjóri matvöru hjá Hagkaupum. 27.7.2006 07:45
Lyfið Glivec getur valdið hjartabilun Nýleg rannsókn hefur leitt í ljós að lyf sem notað er við hvítblæði getur leitt til hjartabilunar. Ekkert er að finna um þetta á íslenskum fylgiseðli lyfsins. Markaðsstjóri Novartis sér ekki ástæðu til að bregðast við að svo stöddu. 27.7.2006 07:30
SMS-ruslsendingar vandamál Hanna Charlotta Jónsdóttir hjá Símanum segir að afar erfitt sé fyrir fyrirtækið að fyrirbyggja að SMS-ruslsendingar berist íslenskum farsímanotendum. Hún segir Símann nota búnað til að skynja óeðlilegan fjölda SMS-sendinga frá erlendum símafyrirtækjum. 27.7.2006 07:30
Evran ekki lausn á hagstjórnarvanda Viðskiptaráðherra og formaður Samfylkingarinnar segja upptöku evru á Íslandi raunhæfan möguleika sem leysi þó ekki hagstjórnarvandann nú. Fulltrúar Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins eru alfarið á móti upptöku evru. 27.7.2006 07:30
Ein milljón fer í útflutning Á yfirstandandi framleiðsluári, sem stendur frá 1. september til 31. ágúst, er greiðslumark mjólkur um 111 milljónir lítra. Þessi tala er það magn sem talið er að fari á innlendan markað. 27.7.2006 07:30
Þrjátíu þúsund króna hækkun Gróa Valdimarsdóttir, fyrrverandi formaður nemendaráðs Listaháskóla Íslands, segir skólagjöld LHÍ ekki mega hækka meira, en undanfarin ár hafa þau hækkað um þrjátíu þúsund á milli ára. Gróa segir suma nemendur skólans ekki gera ráð fyrir slíkri hækkun í upphafi náms. Ég var í tónlistarnámi í LHÍ og fyrir utan tæpar tvö hundruð þúsund krónur sem ég greiddi fyrir síðasta skólaár þurfti ég að borga fyrir nótur og hljóðfæri sjálf. 27.7.2006 07:30
Farið verði eftir tillögunum „Forsætisráðherra hafnar í raun tillögum sem koma fram í skýrslu formanns nefndar um hátt matvælaverð og ég velti fyrir mér til hvers þessi nefnd var stofnuð,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. 27.7.2006 07:15
Tjón metið á um tíu milljónir Maður um tvítugt kveikti í tveimur BMW-bifreiðum á plani bílasölunnar Bill.is við Malarhöfða í fyrrinótt. Starfsmaður bílasölunnar metur tjónið á ríflega tíu milljónir króna. 27.7.2006 07:15
Vilja að skoðun Íslands heyrist Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að gripið verði til aðgerða til að stöðva það sem í ályktuninni er kallað mannréttindabrot Ísraelshers í Líbanon. 27.7.2006 07:00
Fasteignasalar stefna eigin eftirlitsnefnd Félag fasteignasala hefur stefnt eftirlitsnefnd félagsins fyrir dóm vegna þess að því þykir nefndin ekki taka nógu hart á brotum fasteignasala í starfi og að hún hafi ekki sinnt fjölda verkefna sem til hennar hafi verið beint. 27.7.2006 07:00
Ekkert eftirlit yfir veturinn Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta, mun standa mannlaus næstkomandi vetur. Að sögn Valdimars Halldórssonar staðarhaldara verður enginn búsettur á staðnum til að hafa eftirlit yfir vetrarmánuðina. „Hér var áður vetrarmaður, sem passaði rollur fyrir fyrrverandi staðarhaldara, en svo verður ekki næsta vetur,“ segir Valdimar. 27.7.2006 07:00
Nær þrefaldast á þremur árum Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga árið 2006 nemur 12,2 milljörðum króna og hækkar um liðlega 60 prósent frá síðasta ári. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru tæplega 85 þúsund og fjölgar þeim um nálægt 10 prósent milli ára. 27.7.2006 07:00
Netsímatæknin veldur titringi Reikna má með því tækninýjungar er tengjast VoIP (Voice over Internet Protocol) netsímatækni ryðji sér í auknum mæli til rúms á markaði í framtíðinni. Reynslan erlendis bendir til þess að netsímatækni sé komin til að vera. 27.7.2006 07:00
Aldraðir neyðast til að búa fjarri heimili Skortur á hjúkrunarrýmum neyðir fjölda eldri borgara til að eyða ævikvöldinu á öldrunarstofnunum fjarri heimabyggð. Vandamálið hefur verið viðvarandi í áratugi. "Ekkert annað en hreppaflutningar," segir fyrrverandi landlæknir. 27.7.2006 07:00
Samningur upp á 45 milljarða Iceland America Energy, dótturfélag íslenska orkunýtingarfélagsins Enex hf., gerði á dögunum samning við Pacific Gas & Electric í Kaliforníu um framleiðslu og sölu á 50 megavöttum af raforku. 27.7.2006 06:45
Segir fyrirtækið Já okra í skjóli einokunarstöðu Framkvæmdastjóri BM ráðgjafar segir Já neita úthringifyrirtækjum um þjónustu og beita einokunarstöðu sinni til að margfalda verðlagningu. Framkvæmdastjóri Já segir fyrirtækið ekki sjá um úthringiþjónustu. 27.7.2006 06:45
Svefnpoki á 3.500 krónur Ekki eru margir hlýir sólarmánuðir á hinu veðurbarða Íslandi en yfir hásumarið ákveða margir að leggja land undir fót í tjaldútilegu yfir helgina til þess að sofa úti í náttúrunni undir berum tjaldhimni. Að mörgu ber að hyggja áður en lagt er í slíka ferð og nokkrir hlutir öðrum fremur sem telja má ómissandi í alvöru útilegu. 27.7.2006 06:45
Ísland geri tvíhliða samninga Guðmundur Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir líklegt að í framtíðinni muni Ísland einblína á tvíhliða viðræður um fríverslunarsamninga, þar sem Doha-viðræðum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar (WTO) hafi verið frestað um ótiltekinn tíma. Hann telur ólíklegt að landbúnaðartollar á Íslandi verði lækkaðir einhliða, heldur verði það gert sem áður í fríverslunarsamningum við önnur ríki. 27.7.2006 06:45
Skítkast í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði skoðar nú myndband sem ungir drengir í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði settu á internetið. Á myndbandinu sjást drengirnir kasta mannaskít í skólabyggingu. 26.7.2006 22:20
Minnir á þjóðarmorðin í Rúanda Amnesty International skorar á alþjóðasamfélagið að binda enda á stríðsglæpi gegn almennum borgurum í Líbanon og Ísrael. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty segir viðbrögð alþjóðasamfélagsins minna á viðbrögðin við þjóðarmorðinu í Rúanda. 26.7.2006 22:15
Atvinnulíf í Grímsey í hættu Líkur eru á að feðgar í Grímsey selji kvóta sinn úr eynni fyrir tæpa tvo milljarða króna. Þar með færi tæpur helmingur kvótans úr eynni og hafa fleiri auglýst kvóta til sölu. Undirstöður atvinnulífs eru í hættu í eynni og þungt hljóð í heimamönnum. 26.7.2006 21:35
Lengja á kennaranámið í fimm ár Lengja á kennaranámið í fimm ár og auka veg og virðingu kennarastarfsins með því að setja á laggirnar svokallað kennsluráð. Þetta er meðal þess kemur fram í skýrslu starfshóps um framtíðarskipan kennaramenntunar sem menntamálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í gær. 26.7.2006 19:15
Lögregla hefur afskipti af mótmælendum Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar lokuðu fyrir alla umferð um veginn að Ufsastíflu um tíma í dag og hótaði lögreglan á Seyðisfirði þeim handtöku færu þeir ekki burt með góðu. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem slær í brýnu milli mótmælenda og lögreglu. 26.7.2006 19:04
Samfylkingin vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir að stöðva mannréttindabrot Ísraelshers Samfylkingin vill að ríkisstórnin beiti sér fyrir að alþjóðasamfélagið grípi til aðgerða til að stöðva mannréttindabrot Ísraelshers í Líbanon. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar segir aðgerðarleysi hrjá ríkisstjórnina. 26.7.2006 18:49
Landsbanki Íslands tekur sambankalán Landsbanki Íslands hefur tekið sambankalán upp á 600 milljónir evra eða 55 komma tvo milljarða íslenskra króna. Segir bankinn þetta líklega vera stærstu viðskipti sinnar tegundar sem íslenskt fjármálafyrirtæki hefur tekið þátt í, en 28 fjármálafyrirtæki í 16 löndum, auk Landsbankans taka þátt í láninu. 26.7.2006 18:45
Hefði komið til rýmingar í þéttbýli Ef bensínflutningabíll ylti í Reykjavík, eins og gerðist í Ljósavatnsskarði í gær, gæti komið til stórtækrar rýmingar. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir það allt fara eftir ytri aðstæðum svo sem þéttleika byggðar, jarðvegi og veðri. 26.7.2006 18:45
Segja þjóðvegina slysagildru Flutningabílstjórar segja þjóðvegina alltof þrönga og dæmi séu um að hliðarspeglar flutningabíla rekist saman þegar þeir mætast. 26.7.2006 18:45
Lögreglan lýsir eftir manni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Michal Piecychna sem er Pólverji fæddur 1975. Hans er saknað frá því þann 20. júlí sl, en þá sást til hans í Skeifunni í Reykjavík. 26.7.2006 18:40
Mun færri fá greiddar vaxtabætur í ár en fyrra Tíu þúsund færri einstaklingar fá greiddar vaxtabætur um næstu mánaðamót, en fengu vaxtabætur í fyrra. Heildar vaxtabótagreiðslur lækka um 700 milljónir króna milli ára, aðallega vegna hækkunar fasteignamats og aukinna tekna einstaklinga. 26.7.2006 18:32
Mótmælendurnir fluttu sig eftir handtökuhótanir Hátt í 40 mótmælendur sem lokuðu veginum upp að Hraunaveitu á Eyjabakkasvæðinu hafa nú yfirgefið svæðið eftir að lögregla hótaði þeim með handtöku ef þeir færðu sig ekki með góðu. Um fjörutíu manns settust á veginn um hádegisbil og neituðu að færa sig fyrr en um fjögurleytið eftir afskipti lögreglu. Þetta er í fyrsta sinn sem slær í brýnu milli lögreglu og mótmælenda á Vesturöræfum þetta árið. 26.7.2006 17:45
Hverfisráð Árbæjar ósátt við botthvarf stofnleiðar Hverfisráð Árbæjar mótmælir ákvörðun Strætó Bs. að leggja niður akstur á stofnleið S5, hraðleiðinni sem þjónaði Árbænum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi hverfisráðsins í morgun og verður send borgarstjórn. Fulltrúar stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðu í borginni voru sammála í afstöðu sinni. 26.7.2006 17:31
Menntamálaráðuneytið leitar allra leiða til að vernda LÍN Eftirlitsstofnun EFTA krefst þess að skilyrði um að Evrópubúar hafi búið á Íslandi í tvö ár, áður en þeir geta fengið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, verði fellt úr gildi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, segir ekki koma til greina að skilja Lánasjóð íslenskra námsmanna eftir galopinn. 26.7.2006 17:15
10 milljónir til hjálparstarfs í Líbanon Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur tilkynnt að ríkið muni veita 10 milljónum króna til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon. 6 milljónum króna verður veitt til Sameinuðu þjóðanna en jafnframt verður Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði kross Íslands styrkt um tvær milljónir hvor samtök. 26.7.2006 16:43
Árni Einarsson tekur við stjórnartaumunum hjá Eddu Árni Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri Eddu útgáfu hf. og hefur þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Árni starfaði í yfir tuttugu ár hjá Máli og menningu, þar af í ellefu ár sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og í sex ár sem sviðsstjóri verslana en hætti störfum þar árið 2001 og sneri sér að eigin hótelrekstri. 26.7.2006 16:20