Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill ræða fulla aðild Færeyinga Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlar að óska eftir fundi með forsætisráðherrum Norðurlanda um fulla aðild Færeyinga að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin ræddi óskir Færeyinga um fulla aðild í dag og Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, segir að þær hafi fengið mjög góðar undirtektir eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Norðurlandaráði. 22.9.2005 00:01
Gagnrýnir Ríkislögreglustjóra hart Það liggur fyrir að hjá Ríkislögrelgustjóraembættinu eru stunduð óvönduð og óheiðarleg vinnubrögð sem nú hitta fyrir yfirmenn stofnunarinnar og þeir kveinka sér undan í fjölmiðlum. Þetta segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í harðorðri yfirlýsingu sem barst fjölmiðlum fyrir stundu. 22.9.2005 00:01
Belti og loftpúðar björguðu miklu Öryggisbelti og til þess búnir loftpúðar eru taldir hafa bjargað ökumönnum tveggja bíla sem lentu saman á gatnamótum Dragháls og Bitruháls laust eftir hádegi í dag. Ekki er ljóst með hvaða hætti slysið varð en bílarnir voru að mætast þegar þeir lentu harkalega saman á gatnamótunum. 22.9.2005 00:01
Furða sig á seinagangi nefndar Fulltrúar Alþýðusambands Íslands furða sig á því að nefnd sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra skipaði og átti að kanna hugsanlega lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga hér á landi skuli enn ekki hafa lokið störfum. 22.9.2005 00:01
Uppskipting Burðaráss var jákvæð Ingimar Ísak Bjargarson er þrettán ára nemi í Laugarlækjaskóla. Auk þess að spila íshokkí, æfa sig á gítar og leika sér með fjarstýrða bílinn sinn fylgist hann með gengi hlutabréfa í Landsbankanum og Straumi. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Vill ekki tjá sig um stefnu ÖBÍ Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki tjá sig um fyrirhugaða stefnu Öryrkjabandalags Íslands á hendur ríkisstjórninni vegna vanefnda á samningum um hækkun lífeyris frá árinu 2003. 22.9.2005 00:01
Fann ekki Íbúðalánasjóð Sophus Klein Jóhannsson er ósáttur vegna merkingaleysis. "Ég ók fram og til baka um Borgartúnið og marga hringi kringum hringtorgin tvö," segir Sophus Klein sem átti erindi í Íbúðalánasjóð á dögunum. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Tíu mánuðir fyrir fjölda brota Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tæplega tvítugan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir bílþjófnaði, innbrot, þjófnaði og fyrir að aka bifreið í ein tíu skipti án ökuréttinda. Maðurinn játaði brot sín sem hann framdi að hluta til í félagi við annan mann á þrítugsaldri. Mál eldri mannsins voru hins vegar aðskilin frá máli þess yngri og því verður dæmt í því máli síðar. 22.9.2005 00:01
Funda um val fulltrúa á landsfund Heimdallur, félagsskapur ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mun í dag funda sérstaklega um val á fulltrúum á landsfund ungra sjálfstæðismanna. Fundurinn sem hefst klukkan 16:30 og er haldinn af kröfu 50 félagsmanna í Heimdalli sem telja fram hjá sér og öðrum félagsmönnum gengið með vali stjórnar Heimdallar á fulltrúum á landsfundinn fyrr í mánuðinum. 22.9.2005 00:01
Vernda þarf kóral við Íslandsmið Gera þarf ráðstafanir til þess vernda kóral á hafsbotninum við Íslandsmið. Þetta er niðurstaða skýrslu sem skilað var til sjávarútvegsráðherra í dag. Í henni er lagt til að þrjú hafsvæði, sem eru um það bil 73 ferkílómetrar að stærð, verði friðuð til þess að vernda kóralinn. Í skýrslunni er jafnframt lagt til að gert verði sérstakt átak í að kortleggja hafstbotninn á Íslandsmiðum. 22.9.2005 00:01
Greiði bætur fyrir naugðun Stúlka sem sakaði þrjá menn um nauðgun fékk í dag dæmdar 1,1 milljón í miskabætur í Hæstarétti. Mennirnir eru taldir hafa brotið gegn kynfrelsi hennar með því að hafa samfarir við hana gegn hennar vilja. Talið var nægilega sannað að mennirnir þrír hefðu með athöfnum sínum brotið sameiginlega gegn frelsi og persónu stúlkunnar. Þeir eru dæmdir til að greiða henni bætur, en verður ekki refsað fyrir sjálfa nauðgunina. 22.9.2005 00:01
Efling ósátt við viðbrögð FL Efling-stéttarfélag er ósátt við viðbrögð Félags leikskólakennara í umræðunni um kjör leikskólakennara undanfarið. Í yfirlýsingu frá Eflingu-stéttarfélagi segir að almennir starfsmenn leikskólanna haldi uppi starfsemi þeirra í ríkum mæli og ef krafta þeirra nyti ekki við væri starfsemin meira og minna lömuð. 22.9.2005 00:01
Vill ræða um uppsagnir á Blönduósi Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, fór í dag fram á það við Sturlu Böðvarsson, fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis og samgönguráðherra, að hann kalli þingmenn kjördæmisins saman til fundar. Ástæðan er lokun starfstöðvar Símans og uppsagnir þriggja starfsmanna þeim samfara á Blönduósi sem kynntar voru starfsmönnunum í gær. 22.9.2005 00:01
Boðið upp á stöðupróf í tungumálum Háskólinn í Reykjavík hyggst á morgun bjóða upp á stöðupróf í tungumálum fyrir alla í tilefni af tungumála degi Evrópu. Gefst fólki kostur á að þreyta prófin frá klukkan 15 til 18 í húsakynnum Háskólans að Reykjavík að Ofanleiti 2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum 22.9.2005 00:01
Skiptar skoðanir um sænsku leiðina Vonast er til að nefnd um mismunandi löggjöf um vændi, klámiðnað og mansal í Evrópu muni skila af sér niðurstöðum fyrir lok mánaðarins. Líklegt þykir að nefndin skili af sér fleiri en einu áliti þar sem skiptar skoðanir eru innan hennar um ágæti sænsku leiðarinnar um að gera kaup á vændi refsiverð. 22.9.2005 00:01
Borgin fer fram á 151 milljón Á fundi borgarráðs í gær var kynnt krafa Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum vegna samráðs í útboði árið 1996. Krafist er rúmlega 150 milljóna auk dráttarvaxta og innheimtukostnaðar. 22.9.2005 00:01
Um viðhorf foreldrar fyrirbura Foreldrar fyrirbura með fæðingarþyngd minni en 1000 grömm við fæðingu vilja sjálfir vera þátttakendur í ákvörðun um það hvort hætta beri meðferð á barninu eða ekki en börn sem fæðast svo lítil verður að meðhöndla sérstaklega eigi þau að halda lífi og hætta er á að fatlanir eða alvarleg veikindi hráji þau sem lifa af. 22.9.2005 00:01
Ráðherrar fóru gegn ráðgjöf HSBC Ráðgjafi einkavæðingarnefndar í sölu ríkisbankanna 2002, HSBC, vildi að skilyrði yrðu sett um verðtilboð Samson í Landsbankann svo tryggja mætti hæsta verðið. HSBC mælti einnig gegn því að farið yrði í viðræður við Samson svo snemma í söluferlinu. Ráðherranefndin hunsaði ráðin. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Ekki refsað fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt konu, sem var fórnarlamb hópnauðgunar, 1,1 milljón króna í bætur. Nauðgararnir ganga samt lausir og þurfa ekki að óttast að fara í fangelsi. 22.9.2005 00:01
Málaferli ef olíufélög borgi ekki Reykjavíkurborg krefur olíufélögin um 150 milljónir króna í bætur vegna verðsamráðs olíufélaganna við útboð á olíuviðskiptum borgarinnar árið 1996. Borgarstjóri hótar málaferlum ef þau borga ekki. 22.9.2005 00:01
Ógnuðu starfsfólki með hnífum Vopnað rán var framið í Laugarnesapóteki um klukkan tvö í dag. Tveir menn vopnaðir hnífum ógnuðu starfsfólki og vitorðsmaður þeirra beið í bíl skammt frá og komst hann tímabundið undan. 22.9.2005 00:01
Lyf með kódíni úr lausasölu Parkódín og önnur lyf með kódíni verða tekin úr lausasölu eftir rúma viku eða þann 1.október. Læknar og lyfjaverslanir hafa fæstar verið látnar vita hvað dag bannið tekur gildi. 22.9.2005 00:01
Vill að ákæruvald verði þrískipt Ríkissaksóknari vill að ákæruvald verði þrískipt en ekki tvískipt, og að stofnað verði embætti héraðssaksóknara. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður telur að taka verði ákæruvaldið af lögreglustjórunum svo að girt sé fyrir að sömu menn bæði rannsaki og ákæri í málum. 22.9.2005 00:01
Hafi misst stjórn á sér augnablik Aðalmeðferð hófst í morgun í máli Scotts Ramseys sem ákærður er fyrir stórfellda líkamsárás. Ramsey er gefið að sök að hafa aðfaranótt 13. nóvember í fyrra á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík, slegið danskan hermann í hálsinn, með þeim afleiðingum að hann lést. Ramsey bar fyrir dómi að hann hafi misst stjórn á skapi sínu eitt augnablik þegar hann sló hermanninn. 22.9.2005 00:01
Lögregla bregst við innbrotum Lögregla í Kópavogi hefur tekið upp sérstakt eftirlit í Hvarfa- og Kórahverfi vegna hrinu innbrota í nýbyggingar og vinnuskúra þar að undanförnu. "Talsverðum verðmætum hefur verið stolið, aðallega verkfærum," segir Friðrik S. Björgvinsson yfirlögregluþjónn. 22.9.2005 00:01
Svikapar laug til nafns í fyrstu Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni mál pars sem með ávísanafalsi sveik tæpa milljón króna út úr Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og tæpar 60.000 krónur út úr KB banka í Reykjavík. 22.9.2005 00:01
Bíll valt við Ingólfshvol Farþegi bílaleigubíls var fluttur á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík eftir að ökumaður bifreiðarinnar missti stjórn á henni í hálku á Suðurlandsvegi við Ingólfshvol, milli Hveragerði og Selfoss, rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun. 22.9.2005 00:01
Sat einn eftir í draugabæ "Ég er mjög hræddur," sagði Aron Pálmi Ágústsson þar sem hann var einn eftir á heimili sínu í Baumont í Texas í gærmorgun, en flestir íbúar voru þegar flúnir vegna fellibylsins Ritu sem þá var yfirvofandi. 22.9.2005 00:01
Ræningjar gripnir á tíu mínútum Tveir menn vopnaðir hnífum rændu Laugarnesapótek við Kirkjuteig í Reykjavík eftir hádegið í gær. Mennirnir, sem huldu andlit sitt með hettum, ruddust inn í apótekið og ógnuðu starfsfólki, án þess þó að meiða nokkurn og höfðu á brott með sér bæði bæði peninga og lyf. 22.9.2005 00:01
Bílar skemmdir í Keflavík Lögreglan í Keflavík leitar vitna að skemmdum sem unnar voru á tveimur bílum í bænum í fyrrinótt og biður þá sem eitthvað vita að hafa samband í síma 420-2400. 22.9.2005 00:01
Ferðamenn veltu bíl og fóru Tveir erlendir ferðamenn voru farnir ómeiddir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði þar sem þeir höfðu velt bílaleigubíl sínum í mikilli hálku á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg um skömmu fyrir klukkan hálffimm í gærmorgun. 22.9.2005 00:01
Kona fær bætur eftir nauðgun Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í apríl þar sem þrír menn voru dæmdir til að greiða konu 1,1 milljón króna í bætur fyrir að hafa brotið gegn kynfrelsi hennar og nauðgað henni. Konan höfðaði sjálf mál á hendur mönnunum eftir að ríkissaksóknari ákvað í ársbyrjun 2003 að falla frá saksókn á hendur mönnunum. 22.9.2005 00:01
Rekinn tollari fær ekki bætur Hæstiréttur féllst ekki á 27 milljóna króna bótakröfu deildarstjóra tollgæslunnar á Selfossi sem vikið hafði verið frá störfum vegna gruns um aðild að tolla- og hegningarlagabrotum við tollafgreiðslu á bílum til landsins. Hann þarf í staðinn að reiða fram 400.000 krónur í málskostnað til ríkisins. 22.9.2005 00:01
Rekinn tollari fær ekki bætur Hæstiréttur féllst ekki á 27 milljóna króna bótakröfu deildarstjóra tollgæslunnar á Selfossi sem vikið hafði verið frá störfum vegna gruns um aðild að tolla- og hegningarlagabrotum við tollafgreiðslu á bílum til landsins. Hann þarf í staðinn að reiða fram 400.000 krónur í málskostnað til ríkisins. 22.9.2005 00:01
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem réðst á fyrrum sambýliskonu sína á heimili hennar á Akranesi í lok ágúst og barði ítrekað í höfuðið með felgujárnslykli. Hann flúði af vettvangi þegar konan komst upp á aðra hæð hússins, en 14 ára gömul dóttir hennar kallaði til lögreglu. 22.9.2005 00:01
Sektin tæpar 70 milljónir Fyrrum framkvæmdastjóri og stjórnarmaður fuglabúsins Móa, Ólafur Jón Guðjónsson, var í gær dæmdur til að greiða 68 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Þá var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár. 22.9.2005 00:01
Fráleitar ásakanir um dylgjur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir ásakanir starfsmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, dómsmálaráðherra og fleiri um dylgjur af sinni hálfu séu fráleitar. 22.9.2005 00:01
Baugsmálið í Hæstarétt Hæstarétti hefur borist kæra Ríkislögreglustjóra vegna úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag þar sem Baugsmálinu var í heild vísað frá dómi. 22.9.2005 00:01
Nýr og ógeðfelldur tónn Eftir það sem á undan er gengið er sérkennilegt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skuli enn telja það málstað sínum til framdráttar að nota dylgjur til að grafa undan trausti í garð lögreglumanna og annarra, sem starfa á vegum embættis ríkislögreglustjóra," segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. 22.9.2005 00:01
Una ekki ummælum Ingibjargar Starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra una ekki yfirlýsingum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, um Baugsmálið og krefjast þess að hún útskýri mál sitt. 22.9.2005 00:01
Málið fær efnislega meðferð Bogi Nilsson ríkissaksóknari reiknar með því að embætti ríkislögreglustjóra og efnahagsbrotadeild embættisins muni halda áfram rekstri Baugsmálsins sem vísað var frá dómi á þriðjudag. Sá úrskurður hefur verið kærður til Hæstaréttar. 22.9.2005 00:01
Fagmennska hjá RLS? Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, hefur verið sendur út af örkinni af yfirmönnum sínum, þeim Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra og Jóni H. B. Snorrasyni, saksóknara embættisins." 22.9.2005 00:01
Slítur sundur friðinn Stefán Hilmar Hilmarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Baugs, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: "Arnar Jensson lögreglumaður tjáði sig um svokallað Baugsmál í sjónvarpinu í gær. Orðræða hans þar var á köflum með slíkum endemum að maður efaðist um að þessi maður væri staddur á sömu öld og í sama veruleika og við hin." 22.9.2005 00:01
Verklagsreglur vegna hermannaveiki Sýking starfsmanns af hermannaveiki á vinnustað í Reykjavík er tilefni þess að Umhverfisráð Reykjavíkur hyggst nú setja tilteknar verklagsreglur til varnar smiti. Í fyrsta skipti hefur nú tekist að rækta samsvarandi sýni úr sjúklingi og umhverfi hans. 22.9.2005 00:01
Æðstu menn fari frá vegna fúsks Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af. Hann segir á heimasíðu sinni að í kjölfar þess að Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði Baugsmálinu frá í heild sinni, þar sem ákærurnar hafi verið ótæk moðsuða, verði dómsmálaráðhera að taka í taumana því það sé á hans ábyrgð að stofnanir ráðuneytisins séu ekki í höndum fúskara. 21.9.2005 00:01