Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vísitala fasteignaverðs hækkar enn Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,8 prósentustig í maí og heldur því áfram að hækka. 16.6.2005 00:01
Miklar framkvæmdir í Leifsstöð Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu og í dag var opnuð ný komuverslun Fríhafnarinnar. 16.6.2005 00:01
Mótmælendur enn í haldi Þrír eru enn í haldi lögreglunnar vegna mótmælaaðgerða á Nordica-hóteli í gær. Mótmælendurnir ruddust inn á alþjóðlega ráðstefnu um álframleiðslu sem haldin var á hótelinu og skvettu grænleitum vökva yfir ráðstefnugestu. Vökvinn fór einnig á innréttingar og tölvubúnað. Tveir mótmælendanna eru Íslendingar, en sá þriðji Englendingur. Þau verða yfirheyrð frekar með morgninum. 15.6.2005 00:01
Talinn hafa ekið drukkinn á stöð Það fór líklega öðruvísi en til stóð hjá ökumanni sem kom á lögreglustöðina í Keflavík í gærkvöldi. Hann mætti á stöðina í þeim tilgangi að láta geyma fyrir sig bíllyklana væntanlega af því að hann hefur metið stöðuna sem svo að hann ætti ekki að aka. Lögreglan virðist hafa verið á sama máli því umræddur maður var handtekinn grunaður um að hafa ekið bíl sínum á stöðina undir áhrifum áfengis. 15.6.2005 00:01
Ungmenni fá rétt til nefndarsetu Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að veita ungmennum rétt til nefndarsetu á vegum bæjarins. Bæjarstjórnin samþykkti að fulltrúi Ungmennaráðs Hafnarfjarðar ætti rétt til setu á fundum íþrótta- og tómstundanefndar bæjarins. Sá verður áheyrnarfulltrúi en með tillögurétt og málfrelsi. 15.6.2005 00:01
Ármann tekur við af Gunnsteini Ármann Kr. Ólafsson var kosinn forseti bæjarstjórnar Kópavogs í gærkvöldi og tekur hann við embættinu af Gunnsteini Sigurðssyni. Aðrir í bæjarráði þessa næststærsta bæjar landsins eru Gunnar I. Birgisson, Halla Halldórsdóttir, Hansína Björgvinsdóttir, Ómar Stefánsson og Flosi Eiríksson. 15.6.2005 00:01
Vinnuvél stórskemmdist í bruna Vinnuvél stórskemmdist eða eyðilagðist í bruna í Kópavogi í gær. Tilkynnt var um eldinn seint í gærkvöldi en vinnuvélin var við Vatnsenda. Engan sakaði. 15.6.2005 00:01
Réðst á tólf ára dreng 44 ára vörubílsstjóri, Hreggviður Heiðarsson, réðst á tvo unga drengi, tólf og þrettán ára síðasta laugardagskvöld. Hluti árásarinnar var tekin upp á GSM síma og hefur DV myndskeiðið undir höndum. Ennfremur má sjá myndskeiðið hér á Vísi. 15.6.2005 00:01
Mótmæla virkjun áa fyrir álbræðslu Náttúruverndarsamtök Íslands mótæla harðlega áformum um virkjun Jökulsánna í Skagafirði og Skjálfandafljóts í þágu álbræðslu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Þar segir einnig að álver á Norðurlandi krefjist gífurlegrar orku og sé hætt við að horft verði til virkjunar Jökulsár á Fjöllum þrátt fyrir gefin fyrirheit um að hún ásamt tilheyrandi vatnasviði verði friðlýst innan þjóðgarðs. 15.6.2005 00:01
Víkurfréttavefur tíu ára í dag Vefur <em>Víkurfrétta</em> er tíu ára í dag en þetta er líklegasta elsti fréttavefur landsins af þessu tagi. <em>Víkurfréttir</em> voru fyrsti íslenski fréttamiðillinn sem bauð lesendum ókeypis aðgang að fréttaefni á Netinu. Á upphafsárunum var efni sett vikulega á vefinn en fyrir rúmum fimm árum var byrjað að setja efni inn á hann daglega og oft á dag. 15.6.2005 00:01
Rússi enn á gjörgæsludeild Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans. 15.6.2005 00:01
Sunny Jane á leið til Kalíngrad Flutningaskipið Sunny Jane, sem tók við afla úr svokölluðum sjóræningjaskipum suður af Íslandi, er nú á leið til Kalíngrad sem tilheyrir Rússlandi með aflann. Skipinu var neitað um löndun í Hollandi. Síðasta föstudag tók skipið olíu og kost í Hollandi og lét úr höfn áleiðis til Kalíngrad. 15.6.2005 00:01
Slíta öllu samstarfi við ráðherra Kennarasambandið hefur slitið öllu samstarfi við menntamálaráðherra um að stytta námstíma til stúdentsprófs. Formaður Kennarasambandsins segir að með þessu sé verið að mótmæla afskiptaleysi ráðherra sem hvorki ræði við kennara né svari ósk þeirra um viðræður vegna áformanna. 15.6.2005 00:01
Sakfelldir fyrir skattsvik Fjórir menn voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir fyrir að standa ekki skil á tugmilljónum króna í virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Þrír menn úr Landssímamálinu voru sakfelldir en einn þeirra, Sveinbjörn Kristjánsson, var sýknaður af ákærum. 15.6.2005 00:01
Þvær hendur sínar af mótmælanda Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, sem er einn þriggja mótmælenda, sem skvettu grænleitum vökva á ráðstefnugesti á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir voru enn í haldi lögreglu skömmu fyrir hádegisfréttir. 15.6.2005 00:01
Ætlar ekki að selja flugvallarland Samgönguráðherra ætlar ekki að selja land ríkisins sem Reykjavíkurflugvöllur er á og byggja nýja flugvöll verða þar með við áskorun flokksbræðra sinna á Akureyri. Þá telur hann ekki tímabært að gera hálendisveg á meðan enn er margt óunnið við hringveginn. 15.6.2005 00:01
Vísar ásökunum kennara á bug Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vísar því á bug að hún hafi hvorki viljað tala við kennara né hlustað á sjónarmið þeirra vegna áforma um að stytta nám til stúdentsprófs. Hún segir það slæmt ef forysta kennara vilji ekki vera með í því umfangsmikla ferli að endurskoða öll skólastigin því um sé að ræða mikla hagsmuni til framtíðar. 15.6.2005 00:01
Farið fram á gæsluvarðhald Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir Paul Gill, breska atvinnumótmælandanum, sem var einn þremenninganna sem mótmæltu á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, einum mótmælendanna, þrátt fyrir að fram komi á heimasíðu samtakanna að þegar hún varð að fullgildum samtökum í október síðastliðnum gegndi Ólafur Páll Sigurðsson starfi framkvæmdastjóra þar. 15.6.2005 00:01
Vilja styrkja háskóla enn frekar Tímamót urðu í sögu háskólastigsins í morgun þegar rektorar allra háskóla landsins undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um að styrkja háskólana enn frekar og standa vörð um akademískt frelsi. 15.6.2005 00:01
Samið um vátryggingavernd Fulltrúar Hrafnistu, Sjómannadagsráð og fleiri aðilar þeim tengdir hafa skrifað undir samning við Tryggingamiðstöðina hf. um víðtæka vátryggingavernd. Nær hún til ábyrgðartrygginga, eignatrygginga, slysatrygginga og ökutækjatrygginga og er m.a. samið um tryggingar á yfir tuttugu þúsund fermetrum af fasteignum og tryggingar fleiri en eitt þúsund starfsmanna. 15.6.2005 00:01
95% sóttu um framhaldsskólavist 95 prósent nemenda úr 10. bekk, eða 4.231 nemandi, sóttu um framhaldsskólavist í ár en aldrei hafa hlutfallslega jafnmargir sótt um skólavist í framhaldsskólum úr einum árgangi. Rafrænni innritun í framhaldsskóla lauk á miðnætti í nótt en þetta var í fyrsta sinn sem nemendum 10. bekkjar gafst færi á að sækja um á Netinu. 15.6.2005 00:01
Kanna auglýsingar Ego Áfengis- og vímuvarnadeild Lýðheilsustofnunnar hyggst kanna hvort auglýsingar þær sem uppi hafa verið á bensínstöðvum Ego síðustu daga brjóti í bága við áfengis- og tóbaksvarnarlög. 15.6.2005 00:01
Hlakka til að byrja að ganga Á mánudag hefst Íslandsganga þeirra Bjarka Birgissonar og Guðbrands Einarssonar hringinn í kringum landið. Þeir félagar ganga undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan, til betra lífs" og vilja þeir vekja athygli á aðstæðum fatlaðra á Íslandi. 15.6.2005 00:01
Dótturfyrirtæki Össurar fær bætur Bandaríska stoðtækjafyrirtækið Bledsoe Brace Systems hefur verið dæmt af alríkisdómstól í Seattle í Washington-ríki til að greiða dótturfélagi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, Generation Orthotics, tæplega sjö milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 455 milljóna íslenskra króna í bætur, fyrir brot á einkaleyfum fyrirtækisins. 15.6.2005 00:01
Slegist um garðsláttinn Samkeppnin í garðslættinum er hörð og heyrst hefur af undirboðum á markaðnum. Á meðan sumir óttast ástandið eru aðrir rólegir og benda á að nóg sé af görðum. </font /></b /> 15.6.2005 00:01
Vigfús veiðir lúðu Vigfús Vigfússon á Dögg SF landað 2-3 tonnum af lúðu á þriðjudag, að því er fram kemur á fréttavefnum horn.is. Lúðurnar ku vera af öllum stærðum og mældust þær stærstu um tveir metrar að lengd. Samkvæmt horn.is lagði Vigfús lúðulínuna við Ingólfshöfðann og verður aflinn seldur ferskur til Englands. 15.6.2005 00:01
Í gæsluvarðhaldi fram á mánudag Paul Gill, breski atvinnumótmælandinn, sem var einn þremenninganna, sem mótmæltu álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni fram á mánudag. Hinum tveimur mótmælendunum var sleppt eftir yfirheyrslur í dag. 15.6.2005 00:01
Allt að 42 daga bið eftir einkunn Þrátt fyrir reglur Háskóla Íslands um að kennarar hafi að hámarki þrjár vikur til að fara yfir prófin og skila einkunnum eru dæmi um allt að 42 dagar líði frá prófdegi, eða einn og hálfur mánuður án þess að einkunn hafi verið skilað. Flestum einkunnum hefur þegar verið skilað en sjö áfangar eru nú í vanskilum að því er greint er frá á vefnum prof.is. 15.6.2005 00:01
Markús og Guðmundur halda utan Utanríkisráðuneytið hefur í dag staðfest að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, taki við sendiherrastöðum - eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar greindi frá fyrir þremur vikum. Þá könnuðust hvorki Guðmundur Árni né Markús við að þetta stæði til og sögðust „koma af fjöllum“. 15.6.2005 00:01
Fá ekki greiðslur úr ríkissjóði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum bænda á bænum Hjallalandi í Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu, en þeir vildu að viðurkennt yrði með dómi að þeir ættu rétt á greiðslum úr ríkissjóði sem handhafar beingreiðslna sauðfjárbúsins á bænum. Þeir töldu sig eiga rétt á skaðabótagreiðslum úr ríkissjóði vegna breytinga á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á landbúnaðarafurðum sem tóku gildi árið 2000. 15.6.2005 00:01
Vifta bilar á Grundartanga Mikinn reyk leggur þessa stundina frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Að sögn Ingimundar Birnis framleiðslustjóra bilaði ein vifta fyrir filter í ofni þrjú í verksmiðjunni en ekki er vitað hvað olli biluninni. Hann segir að unnið sé að því að koma viftunni í lag. 15.6.2005 00:01
Grunaður um kynferðislegt ofbeldi Reykvíkingur á fertugsaldri er grunaður um að hafa beitt fjórar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi. Á heimili mannsins fundust tugir barnaklámsmynda í tölvu hans. 15.6.2005 00:01
Býr sig undir herskáar aðgerðir Landsvirkjun býr sig undir herskáar mótmælaaðgerðir við Kárahnjúka í næstu viku eftir uppákomuna á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir sem ruddust inn á álráðstefnu á hótelinu og slettu grænu gumsi gætu átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi. 15.6.2005 00:01
Gagnrýnd fyrir að nýta þotu Baugs Þingmenn gagnrýna að Dorrit Moussaieff, forsetafrú, hafi þegið boð um að ferðast með einkaþotu Baugs til að vera við tískusýningu Mosaic Fashion Group. 15.6.2005 00:01
Utanríkisþjónustan vex enn Utanríkisþjónustan vex og vex. Tveir uppgjafapólitíkusar bættust í dag í hóp sendiherra og virðist sem nægt rúm sé innan þjónustunnar til að finna fleiri samastað. 15.6.2005 00:01
Fulltrúa Samfylkingar vanti enn Nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi hefur ekki tekið til starfa þar sem Samfylkingin hefur enn ekki tilnefnt fulltrúa í hana. Forsætisráðuneytið segir í svari við fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2 að aðrir stjórnmálaflokkar hafi tilnefnt fulltrúa sína áður en fresturinn til þess rann út fyrir rúmum mánuði. Ítrekað hafi verið við Samfylkinguna að hún tilnefni tvo menn í nefndina. 15.6.2005 00:01
Ung kona kærði kynferðisbrot Lögreglan í Keflavík rannsakar kynferðisbrot sem átti sér þar stað í heimahúsi um helgina. Kona um tvítugt hefur kært mann á svipuðum aldri fyrir að nýta sér ölvunarástand hennar eftir gleðskap sem stóð á laugardagskvöld og fram á aðfaranótt sunnudags. 15.6.2005 00:01
Vatn lak inn í kjallara Vatnstjón varð í húsi við Fríkirkjuveg í Reykjavík seint á þriðjudagskvöld, en þar hafði garðslanga verið látin ofan í kjallaratröppur þar sem niðurfall var stíflað. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hlaust af þessu nokkuð tjón þegar vatnsyfirborð hækkaði og vatn lak inn í kjallarann. 15.6.2005 00:01
Handteknir fengu bætur Sættir náðust fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í máli þriggja ungra manna sem sæta máttu handtöku þegar þeir mótmæltu sumarið 2002 við heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, framgöngu kínverskra stjórnvalda í garð Falun Gong hreyfingarinnar. 15.6.2005 00:01
Viðbót við psoriasismeðferð Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa Lónsins, afhjúpuðu við opnun lækningalinda Bláa lónsins á föstudag áletraða hraunhellu sem tákna á upphaf framkvæmda við lindina. 15.6.2005 00:01
Sektir upp á tæpar 100 milljónir Fjórir forsvarsmenn Lífsstíls ehf. og dótturfyrirtækja voru í gær dæmdir til greiðslu sekta upp á samtals 96,6 milljónir króna. Til vara voru þeim gerðir fangelsisdómar frá 3 upp í 12 mánuði. Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var fundinn sýkn saka. Dómar þriggja eru til refsiauka í Landssímamálinu. 15.6.2005 00:01
Ráðuneyti og lögregla semja Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Böðvar Bragason lögreglustjóri skrifuðu síðdegis í gær undir samning um árangursstjórnum og markmið lögreglunnar í Reykjavík. Lögregluembættið kynnti einnig stefnumótun ársins og kynnt var ársskýrsla lögreglunnar fyrir árið 2004. 15.6.2005 00:01
Dæmdir fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag þrjá af fjórum sakborningum í Landssímamálinu fyrir stórfelld skattsvik. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalféhirðir Landssímans, var sýknaður. 15.6.2005 00:01
Glímt við verðbólguna Alþjóðlegar stofnanir á borð við OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa undanfarið varað við því að hagkerfi Íslands sé að ofhitna. Einkaneysla landsmanna eykst jafnt og þétt, þó svo að launin okkar hækki ekki að sama skapi, krónan er sterk í samanburði við aðra gjaldmiðla og Seðlabankinn keppist við að hækka stýrivexti til að sporna við verðbólgu. 15.6.2005 00:01
Guðmundur Árni til Svíþjóðar Aðspurður hvort hann hlakki ekki til að taka við nýju starfi segir Guðmundur Árni: "Mér líst prýðilega á Svíþjóð og það er heilmikil tilhlökkun í mér en auðvitað dálítill tregi líka. Ég er búinn að vera í pólitísku vafstri nú í 25 ár þannig að þetta er auðvitað mikil breyting. 15.6.2005 00:01