Fleiri fréttir

Nýjar upplýsingar breyti engu

Ríkisendurskoðandi hefur lokið athugun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna og segir að nýjar upplýsingar sem lagðar hafi verið fram á fundi fjárlaganefndar breyti engu, Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um bankasöluna. Lögfræðingi félagsins Skinney-Þinganes hafði sést yfir hlut venslafólks Halldórs í öðru fyrirtæki, sem átti um 18 prósent í Skinney-Þinganesi. Forsætisráðherra sjálfur átti þó ekkert í því.

Dómur héraðsdóms staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi.

Sprengjugabb í Íslandsbanka

Lögregla var kölluð í útibú Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær vegna miða sem starfsmenn bankans töldu vera sprengjuhótun. Reyndist um gabb eða misheppnað spaug að ræða.

Greenpeace kemur í heimsókn

Í dag 17. júní hefst vikuheimsókn skips náttúrverndarsamtakanna Greenpeace, MV Arctic Sunrise, hingað til lands þegar skipið leggur að við Ægisgarð í Reykjavík. Gestum og gangandi er boðið að skoða skipið í dag.

Safnaðarformaður veldur usla

Þetta er í sjálfu sér ekkert fréttnæmt því þetta er bara eins og gengur og gerist," segir Matthías G. Pétursson, formaður hestamannafélagsins Andvara í Garðabæ en tveir stjórnarmenn af fimm hafa sagt sig úr stjórninni á þessu ári og neita báðir að tjá sig um hvort ósætti við formanninn sé ástæða úrsagnarinnar. 

Hriktir í stoðum R-listans

Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarfélagnna í Reykjavík á miðvikudag var almenn sátt meðal fundarmanna um að leggja til að haldið yrði prófkjör meðal flokkanna þriggja, sem standa að R-listanum, þar sem borgarbúar fengju að koma að ákvörðun um vægi einstaklinga og flokka á listanum.

Sat fastur undir Höfðabakkabrú

Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór.

Sömu fargjöld hjá flugfélögunum

Bandaríska flugfélagið Delta hækkaði þann 15. júní flest fargjöld í flugi yfir Atlantshafið. Þotueldsneyti hefur hækkað töluvert í verði síðustu mánuði og gætu fleiri fargjöld átt eftir að hækka. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni.

Ummæli Jóns Baldvins ómerkt

Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Stærra hótel í Stykkishólmi

Hótel Stykkishólmur stækkar um rúmlega helming þegar nýbygging hótelsins verður tilbúin á næstu dögum. Nýja byggingin verður alls þrjár hæðir en þegar hefur neðsta hæðin verið opnuð en eftir stækkunina verða alls áttatíu herbergi á hótelinu en voru fyrir hana rúmlega þrjátíu.

Sjö og hálft ár fyrir axarárás

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum.

Vilja breska mótmælandann lausan

Efnt var til mótmæla fyrir framan Dómsmálaráðuneytið vegna gæsluvarðhaldsúrskurðarins sem Bretinn Paul Gill fékk. Paul var einn þremenninganna sem tók þátt í slettumótmælunum í Nordica-hóteli fyrr í vikunni. Íslendingunum tveimur var sleppt, en Paul var á miðvikudaginn dæmdur í sex daga gæsluvarðhald á Litla-Hrauni.

Ómálefnalegur dómur segir lögmaður

Tveir erlendir starfsmenn ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo við Kárahnjúka voru dæmdir í gær í Héraðsdómi Austurlands til greiðslu 50 þúsund króna sektar auk sakarkostnaðar hvor fyrir að hafa starfað hér að löggiltri iðngrein án viðurkenningar á starfsréttindum. Annar var verkstjóri smíðaverkstæðis og hinn verkstjóri í rafmagnsdeild.

Sýknuð þrátt fyrir ölvun

Héraðsdómur Reykjaness sýknaði gær konu af ölvunarakstri. Konan hafði ekið á gangandi vegfaranda hjá Fjörukránni í Hafnarfirði. Áfengismagn í blóði hennar var 1,58 prómill.

Baugur stofnar styrktarsjóð

Baugur ákvað í síðustu viku að verja þrjú hundruð milljónum króna á árinu í stofnun sjóðs sem á að styrkja líknar- og velferðarmál barna en einnig menningar- og listalíf. Gert er ráð fyrir að heildarframlög sjóðsins verði 40-60 milljónir króna á ári.

Braut glas á andliti annars

31 árs gamall maður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að brjóta glas á andliti manns inni á skemmtistaðnum Glaumbar í apríllok 2001. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár, en að auki þarf hann að greiða fórnarlambi sínu, sem missti fimm tennur, tæpar 370.000 krónur.

Urðu bensínlausir eftir innbrot

Tveir menn, 22 og 25 ára gamlir, voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdir í mánaðarfangelsi hvor, en báðir eru dómarnir skilorðsbundnir í tvö ár. Þá er þeim gert að greiða hvor um sig Olíuverslun Íslands hf. 51.790 krónur með vöxtum.

Geymdi þýfi fyrir litla bróður

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár.

Baugur stofnar styrktarsjóð

Baugur Group hefur ákveðið að verja 300 milljónum króna til að stofna sérstakan styrktarsjóð. Gert er ráð fyrir að framlög úr sjóðnum verði 40 til 60 milljónir króna á ári og verður það til að styðja margvísleg líknar- og velferðarmál barna auk menningar og listar.

Sameining dæmd lögleg

Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild.

Samherji styrkir Stöðvarfjörð

Samherji hefur ákveðið að leggja tuttugu milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Fyrsta september næstkomandi munu 32 Stöðfirðingar missa vinnu sína hjá Samherja þegar fyrirtækið lokar frystihúsi sínu á staðnum.

Brutu lögin í góðri trú

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í gær Humarvinnsluna í Þorlákshöfn fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa brotið lögin fyrir mistök, en hann hefði verið nýbyrjaður í útgerð. Átti brotið sér stað sumarið 2003.

Eignin 34 en ekki 25 prósent

Ríkisendurskoðandi gat ekki veitt fullnægjandi svör um eignarhald venslamanna forsætisráðherra í Ketillaugu ehf. og eign félagsins í Skinney Þinganesi á fundi fjárlaganefndar í gær.

Þungur rekstur skóla og sendiráða

Ráðuneyti utanríkismála og landbúnaðarmála fóru um og yfir tíu prósent fram úr fjárheimildum á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðayfirliti fjármálaráðuneytisins, samtals um 550 milljónir króna.

Ríkisendurskoðandi lauk rannsókn

Ríkisendurskoðandi lauk nú undir kvöld endurskoðun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna eftir að hafa fengið enn eitt atriðið til úrlausnar í dag. Nýjar upplýsingar, sem lagðar voru fram á fundi fjárlaganefndar Alþingis, bentu til að eignarhlutur Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans í fyrirtækjum, sem tengdust bankasölunni, væri stærri en gert var ráð fyrir í fyrri könnun Ríkisendurskoðanda.

Holræsagjald ekki lagt niður

Dælustöðin í Gufunesi er tilbúin og þar með lýkur hreinsun strandlengju borgarinnar af skólpi. Holræsagjaldið verður samt ekki fellt niður, en því var ætlað að standa straum af þessum framkvæmdum.

Fáir mótmæltu varðhaldi yfir Gill

Fáir sinntu því kalli að mótmæla gæsluvarðahaldi yfir Paul Gill við dómsmálaráðuneytið í dag. Gill er einn þremenninganna sem skvettu grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli og sá eini sem situr í gæsluvarðhaldi vegna verknaðarins.

Fjárdráttur kærður til lögreglu

Lögreglu verður sent fjárdráttarmál starfsmanns Reykjavíkurborgar til rannsóknar komi í ljós við athugun að hann hafi dregið sér fé frá geðsjúkum.

Gerð Kárahnjúkastíflu hálfnuð

Gerð Kárahnjúkastíflu, stærsta mannvirkis Íslands, er nú hálfnuð og er endanleg mynd komin á hluta stíflunnar. Eftirlitsaðilar segja verktakann kominn yfir erfiðasta hjallan og fram undan sé beinn og breiður vegur.

Gott veður á þjóðhátíðardaginn

Það er þjóðsaga á Íslandi að það sé alltaf rigning á 17. júní en þann dag árið 1911 var glampandi sól um allt land og hiti 8-15 stig, hlýjast í höfuðborginni. Þannig verður það einnig á morgun.

Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu?

Munum við aftur upplifa síldarævintýri eins og í gamla daga þar sem ungar stúlkur og piltar flykktust þúsundum saman til Norður- og Austurlands til að vinna í síld? Endurkoma norsk-íslensku síldarinnar inn í íslenska lögsögu vekur slíkar spurningar.

Mikil vatnsnotkun í Reykjavík

Meðalvatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið gríðarlega að undanförnu vegna þurrka, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur hún farið upp í 85.630 þúsund tonn á sólarhring en er í eðlilegu árferði 47.520 þúsund tonn á sólarhring.

Sjóræningjaskip á karfaslóð

Nokkur skip sáust í eftirlitsflugi TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, á karfaslóð á Reykjaneshrygg utan íslenskrar lögsögu í gær.

Miklar framkvæmdir í Leifsstöð

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu og í dag var opnuð ný komuverslun Fríhafnarinnar.

Mótmælendur enn í haldi

Þrír eru enn í haldi lögreglunnar vegna mótmælaaðgerða á Nordica-hóteli í gær. Mótmælendurnir ruddust inn á alþjóðlega ráðstefnu um álframleiðslu sem haldin var á hótelinu og skvettu grænleitum vökva yfir ráðstefnugestu. Vökvinn fór einnig á innréttingar og tölvubúnað. Tveir mótmælendanna eru Íslendingar, en sá þriðji Englendingur. Þau verða yfirheyrð frekar með morgninum.

Talinn hafa ekið drukkinn á stöð

Það fór líklega öðruvísi en til stóð hjá ökumanni sem kom á lögreglustöðina í Keflavík í gærkvöldi. Hann mætti á stöðina í þeim tilgangi að láta geyma fyrir sig bíllyklana væntanlega af því að hann hefur metið stöðuna sem svo að hann ætti ekki að aka. Lögreglan virðist hafa verið á sama máli því umræddur maður var handtekinn grunaður um að hafa ekið bíl sínum á stöðina undir áhrifum áfengis.

Ungmenni fá rétt til nefndarsetu

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að veita ungmennum rétt til nefndarsetu á vegum bæjarins. Bæjarstjórnin samþykkti að fulltrúi Ungmennaráðs Hafnarfjarðar ætti rétt til setu á fundum íþrótta- og tómstundanefndar bæjarins. Sá verður áheyrnarfulltrúi en með tillögurétt og málfrelsi.

Ármann tekur við af Gunnsteini

Ármann Kr. Ólafsson var kosinn forseti bæjarstjórnar Kópavogs í gærkvöldi og tekur hann við embættinu af Gunnsteini Sigurðssyni. Aðrir í bæjarráði þessa næststærsta bæjar landsins eru Gunnar I. Birgisson, Halla Halldórsdóttir, Hansína Björgvinsdóttir, Ómar Stefánsson og Flosi Eiríksson.

Vinnuvél stórskemmdist í bruna

Vinnuvél stórskemmdist eða eyðilagðist í bruna í Kópavogi í gær. Tilkynnt var um eldinn seint í gærkvöldi en vinnuvélin var við Vatnsenda. Engan sakaði.

Réðst á tólf ára dreng

44 ára vörubílsstjóri, Hreggviður Heiðarsson, réðst á tvo unga drengi, tólf og þrettán ára síðasta laugardagskvöld. Hluti árásarinnar var tekin upp á GSM síma og hefur DV myndskeiðið undir höndum. Ennfremur má sjá myndskeiðið hér á Vísi.

Mótmæla virkjun áa fyrir álbræðslu

Náttúruverndarsamtök Íslands mótæla harðlega áformum um virkjun Jökulsánna í Skagafirði og Skjálfandafljóts í þágu álbræðslu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Þar segir einnig að álver á Norðurlandi krefjist gífurlegrar orku og sé hætt við að horft verði til virkjunar Jökulsár á Fjöllum þrátt fyrir gefin fyrirheit um að hún ásamt tilheyrandi vatnasviði verði friðlýst innan þjóðgarðs.

Víkurfréttavefur tíu ára í dag

Vefur <em>Víkurfrétta</em> er tíu ára í dag en þetta er líklegasta elsti fréttavefur landsins af þessu tagi. <em>Víkurfréttir</em> voru fyrsti íslenski fréttamiðillinn sem bauð lesendum ókeypis aðgang að fréttaefni á Netinu. Á upphafsárunum var efni sett vikulega á vefinn en fyrir rúmum fimm árum var byrjað að setja efni inn á hann daglega og oft á dag.

Rússi enn á gjörgæsludeild

Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans.

Sunny Jane á leið til Kalíngrad

Flutningaskipið Sunny Jane, sem tók við afla úr svokölluðum sjóræningjaskipum suður af Íslandi, er nú á leið til Kalíngrad sem tilheyrir Rússlandi með aflann. Skipinu var neitað um löndun í Hollandi. Síðasta föstudag tók skipið olíu og kost í Hollandi og lét úr höfn áleiðis til Kalíngrad.

Sjá næstu 50 fréttir