Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reyna að vekja dódó-fuglinn til lífsins Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu vilja vekja hinn útdauða dódó-fugl aftur til lífs en tegundin dó út á 17. öld. Með nýjum aðferðum við raðgreiningu erfðaefnis og nýjungum í genabreytingartækni telja vísindamennirnir að hægt sé að koma aftur upp stofni af dódó-fuglum. 31.1.2023 23:50
49 börn drukknuðu í skólaferð 51 manns létu lífið er bát hvolfdi á Tanda Dam-vatninu nærri borginni Kohat í Pakistan, þar af 49 börn. Börnin voru ásamt kennurum og skipstjóra í skólaferð á vatninu. 31.1.2023 23:08
Eldsvoði í Nuuk rannsakaður sem manndráp Lögreglan í Nuuk á Grænlandi hefur til rannsóknar andlát konu sem lét lífið í eldsvoða snemma í morgun. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. 31.1.2023 22:34
Býr í miðri leikmynd True Detective á Dalvík Það stendur mikið til á Dalvík þessa dagana þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective eru að fara að hefjast. Búið er að klæða aðalgötu bæjarins í bandarískan búning. Fyrrverandi bæjarstjóri bæjarins býr í miðri leikmyndinni. 31.1.2023 22:31
Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. 31.1.2023 21:46
Móðir fíkils: „Við færum ekki svona illa með dýrin okkar“ Móðir manns sem berst við eiturlyfjafíkn hefur undanfarna daga keyrt út um allan bæ og fengið lyf hjá ókunnugu fólki við fráhvörfum sonar síns. Hún gagnrýnir heilbrigðiskerfið harkalega og segir engan grípa þá sem eru tilbúnir að þiggja hjálp. 31.1.2023 21:02
Árásarmaður Pelosi: „Ég hefði átt að vera betur undirbúinn“ Maðurinn sem kærður hefur verið fyrir að hafa ráðist á Paul Pelosi í október síðastliðnum hringdi í fjölmiðla eftir birtingu myndbanda af árásinni. Í símtalinu virðist hann biðjast afsökunar á að hafa ekki staðið sig betur við verknaðinn. 31.1.2023 20:48
Segja það ólögmætt að fara í verkfall sé tillagan ekki felld Samtök atvinnulífsins segja ekki löglegt að boða til vinnustöðvunar eða hefja verkfallsaðgerðir áður en að minnsta kosti annar deiluaðila hafi fellt miðlunartillögu frá ríkissáttasemjara. 31.1.2023 20:09
Víðtækari aðgerðir Eflingar munu hafa lamandi áhrif Víðtækar aðgerðir sem Efling boðaði til í dag munu lama starfsemi flestra stærstu hótela borgarinnar, dreifingu eldsneytis um landið og hafa mikil áhrif á dreifingu Samskipa á vörum. Félagsdómur tók fyrir í dag stefnu Samtaka atvinnulífsins gegn Eflingu vegna boðun verkfalla sem eiga að hefjast á þriðjudag. 31.1.2023 19:55
„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag. 31.1.2023 19:44
Pracownicy hoteli gotowi do strajku Pracownicy sieci hoteli Íslandsshótel zadecydowali o strajku w wyniku głosowania elektronicznego, które rozpoczęło się w zeszły wtorek w południe, a zakończyło się wczoraj wieczorem. 31.1.2023 19:29
Íslendingurinn sem var stunginn í Noregi kominn til meðvitundar Íslensk kona sem var stungin af fyrrverandi eiginmanni sínum í Noregi fyrr í mánuðinum er komin til meðvitundar. Maðurinn, sem einnig er Íslendingur, er grunaður um tilraun til manndráps og hefur játað á sig árásina. 31.1.2023 19:07
Ograniczona obsługa przy odprawie Na lotnisku w Keflaviku rozpoczęła się dziś, 31 stycznia, budowa nowych taśm do transportu bagaży, które znajdują się za stanowiskiem odpraw w hali odlotów. 31.1.2023 18:33
Efling í leit að ófriði þegar friður er í boði Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir allar aðgerðir Eflingar vera líkt og forystan sé á harðahlaupum undan félagsfólki sínu. Þá sé stéttarfélagið einungis að leita að ófriði þegar friður er í boði. Hann á von á því að félagsdómur dæmi SA í vil í máli samtakanna gegn Eflingu. 31.1.2023 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Víðtækar aðgerðir sem Efling boðaði til í dag munu lama starfsemi flestra stærstu hótela borgarinnar, dreifingu eldsneytis um landið og hafa mikil áhrif á dreifingu Samskipa á vörum. Félagsdómur tók fyrir í dag stefnu Samtaka atvinnulífsins gegn Eflingu vegna boðunar verkfalla sem eiga að hefjast á þriðjudag. 31.1.2023 17:46
„Það kom tiltölulega fljótt í ljós að það var enginn hjartsláttur“ „Sorg, allvega eins og ég upplifi hana, fer svo mikið í að hugsa um hvað hefði orðið. Hvað tækifæri við áttum varðandi framtíðina. Og þó við hefðum aldrei fengið að halda á honum lifandi, þá vorum við byrjuð að plana, við vorum búin að sjá fyrir okkur í höfðinu hvernig lífið yrði. Alls konar væntingar og vonir, sem urðu svo ekki,“ segir Jón Þór Sturluson. 31.1.2023 17:44
Stór flugeldur sprengdur innan veggja Hlíðaskóla Stór flugeldur var sprengdur inni á salerni í Hlíðaskóla í Reykjavík rétt eftir klukkan eitt í dag. Skólastjórn skólans hefur óskað eftir ábendingum frá foreldrum með frekari upplýsingar um málið. 31.1.2023 17:33
Undrast að Efling beini spjótum bara að einu flutningafyrirtæki Forsvarsmenn Samskipa lýsa yfir furðu yfir því að Efling skuli aðeins beina verkfallsaðgerðum sínum að einu fyrirtæki á flutningamarkaði. Efling tilkynnti í morgun verkfallsboð hjá Samskipum í annarri lotu verkfallsboða. 31.1.2023 16:19
BÍ segir skilið við Alþjóðasamband blaðamanna Blaðamannafélag Íslands hefur tilkynnt úrsögn sína úr Alþjóðasambandi blaðamanna, IFJ. BÍ stígur þetta stóra skref á sama tíma og systurfélög þess í Noregi, Danmörku og Finnlandi. Svíar hafa þá úrsögn til skoðunar. 31.1.2023 15:41
Móður sem misþyrmdi þremur af fjórum dætrum hafnað af Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni móður sem sakfelld var fyrir að misþyrma þremur af fjórum dætrum hennar. 31.1.2023 15:29
Hertha Wendel fallin frá Hertha Wendel Jónsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Barnaspítala Hringsins, lést 26. janúar síðastliðinn á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, 86 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. 31.1.2023 14:38
Hart sótt að Katrínu vegna verðbólgunnar Hart var sótt að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem ríkisstjórn hennar var ýmist sökuð um að bera töluverða ábyrgð á hækkun verðbólgu í upphafi árs eða skort á aðgerðum gegn henni. 31.1.2023 14:37
Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við. 31.1.2023 14:36
Skoða hvers vegna farþegum var vísað út í óveðrið Farþegar Strætó, sem voru á ferð með leið 18 í átt að Spönginni í gærkvöldi, lentu í því leiðinlega atviki að vera vísað út úr vagninum við Ingunnarskóla í Grafarholti vegna ófærðar. Farþegunum var ekki boðið að fara með vagninum í skjól og þurftu þeir að fá aðstoð björgunarsveita til að komast leiðar sinnar. 31.1.2023 13:52
Sólveig Anna vonar að SA komist niður á jörðina Formaður Eflingar vonar að niðurstaða atkvæðagreiðslu um verkföll á sjö hótelum sem og nýboðaðar viðbótaraðgerðir verði til þess að koma Samtökum atvinnulífsins niður á jörðina. Eflingarfólki sé alvara með að samið verði við það á þeirra forsendum en því ekki gert að þiggja mylsnu af borði annarra. 31.1.2023 13:41
Takmörkuð þjónusta við hluta innritunarborða næstu mánuði Framkvæmdir við töskufæribönd aftan við innritunarborð í brottfararsal flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli hefjast í dag, 31. janúar, og standa fram í apríl. Þjónusta verður því takmörkuð á hluta innritunarborða þar til að framkvæmdum er lokið. 31.1.2023 12:37
Miðlunartillagan stenst að mati forsætisráðherra Forsætisráðherra metur það svo að miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins standist. Hún segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara, þrátt fyrir að hann hafi verið harðlega gagnrýndur fyrir að vilja leggja miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu. 31.1.2023 12:33
Guðni A. Jóhannesson er látinn Dr. Guðni A. Jóhannesson, fyrrverandi orkumálastjóri, lést á Landskotsspítala í gær, 71 árs að aldri. Banamein hans var krabbamein. Hann gegndi embætti orkumálastjóra á árunum 2008 til 2021. 31.1.2023 12:25
Rafmagn fór líklega af í Eyjum vegna bilunar í tengimúffu Vestmannaeyjastrengur 3 bilaði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að rafmagnslaust var í eyjunni í um klukkustund. Þegar ljóst varð að bilunin væri umfangsmeiri en áætlað var var ákveðið að setja Vestmannaeyjastreng 1 í rekstur. 31.1.2023 11:56
Þurftu að losa fjölda fastra bíla Hátt í tvö hundruð björgunarsveitarmenn tóku þátt í tugum verkefna vegna óveðursins í gær. Flest útköllin snérust um fasta bíla sem voru inni á lokunarsvæðum. 31.1.2023 11:24
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins áfram til umfjöllunar. 31.1.2023 11:19
Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar. 31.1.2023 11:13
Skora á íslensk stjórnvöld að banna strax einangrun á börnum Íslensk stjórnvöld fremja mannréttindabrot með óhóflegri beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi, samkvæmt svartri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri samtakanna á Íslandi segir ítrekuð einangrunarvist barna sérstaklega sláandi og skorar á stjórnvöld að banna hana tafarlaust. 31.1.2023 11:05
Lyfjaeftirliti teflt fram gegn veðmálasvindli Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur falið Lyfjaeftirliti Íslands að sinna fræðslu og forvarnarstarfi í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttum. 31.1.2023 11:04
Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól. 31.1.2023 10:31
SA stefna Eflingu fyrir Félagsdóm Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi. 31.1.2023 08:10
Staðfest að 87 hafi látist í sprengingunni í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa nú staðfest að 87 hafi látist í árás sjálfsvígssprengjumanns í mosku í pakistanska héraðinu Peshawar í gær. 31.1.2023 07:52
Ísland stendur í stað á spillingarlista Transparency International hefur birt nýjan árlegan lista sinn um spillingu í ríkjum heims. Ísland stendur þar nokkurn veginn í stað á milli ára, skipar 14.-17 sæti listans, en skipaði 13. til 18. sætið á listanum á síðasta ári. 31.1.2023 07:36
Fleiri en 600 handteknir í aðgerðum gegn heimilisofbeldi Fleiri en 600 einstaklingar hafa verið handteknir og ákærðir eftir fjögurra daga lögregluaðgerð í Ástralíu sem beindist gegn heimilisofbeldi. Meðal handteknu voru 164 einstaklingar sem lögregla segir hafa verið „mest eftirlýstu“ ofbeldismenn landsins. 31.1.2023 07:22
Viðvaranir áfram í gildi fram eftir morgni Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Suðurlandi og verður fram til klukkan 10 samkvæmt vef Veðurstofunnar. 31.1.2023 06:48
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. 31.1.2023 06:38
Íslensk stjórnvöld gerist sek um mannréttindabrot með beitingu einangrunarvistar Ný skýrsla Amnesty International segir íslensk stjórnvöld beita einangrunarvist í gæsluvarðhaldi í of miklum mæli. Framgangur þessi brjóti meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóðanna hvað varðar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu meðal annars. 31.1.2023 00:01
Meira en tíu bílar fastir í Grafarvogi vegna færðar og útköll um allt land Upplýsingafulltrúar Landsbjargar og almannavarna segja daginn hafa gengið vel fyrir sig. Mest sé um lítil verkefni og greinilegt að fólk hafi hlustað á veðurviðvaranir. 30.1.2023 22:20
Hafa samþykkt verkfallsboðun Starfsmenn Íslandshótela hafa samþykkt boðun um verkfallsaðgerðir. Rafræn atkvæðagreiðsla sem hófst á hádegi síðastliðinn þriðjudag lauk nú fyrir stuttu. Verkfall hefst í næstu viku, hafi samningar ekki náðst. 30.1.2023 22:04
Mega ekki skíra barnið sitt Kisu Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum. 30.1.2023 21:22