Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi ráðherra hafi nauðgað eiginkonu sinni ítrekað Andrew Griffiths, fyrrverandi ráðherra og þingmaður breska íhaldsflokksins, nauðgaði fyrrverandi eiginkonu sinni, þingmanninum Kate Griffiths, ítrekað. Þetta segir í niðurstöðum forræðismáls sem hann höfðaði á hendur Kate. 10.12.2021 20:38
Blaðamannafélag Íslands gagnrýnir átta milljóna króna lækkun styrkja Blaðamannafélag Íslands hefur sent inn umsögn um fjárlagafrumvarpið sem nú er í meðferð Alþingis. Þar hvetur félagið fjárlaganefnd til að endurskoða fyrirætlanir um tveggja prósenta lækkun framlags til styrkja til einkarekinna fjölmiðla. 10.12.2021 19:44
Fjölskyldufaðir á Vesturlandi hreppti milljónirnar 110 Stærsti vinningur í sögu Happdrættis Háskóla Íslands gekk út í kvöld, heilar hundrað og tíu milljónir króna. Sá heppni er fjölskyldufaðir á Vesturlandi sem hefur verið áskrifandi að happdrættismiðum til fjölda ára. 10.12.2021 19:31
Fleiri kærur í undirbúningi á hendur Skúla Tómasi Fleiri kærur eru í undirbúningi á hendur lækni á Landspítalanum, sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á dauðsföllum fjölda sjúklinga sinna, að sögn lögmanns. Ellefu mál eru nú þegar til rannsóknar hjá lögreglu. Heilbrigðisráðherra segist ekki ætla að leggja mat á það hvort eðlilegt sé að læknirinn sé enn við störf á spítalanum. Landspítalinn hyggst senda frá sér yfirlýsingu eftir helgi. 10.12.2021 19:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fleiri kærur eru í undirbúningi á hendur lækni á Landspítalanum, sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á dauðsföllum fjölda sjúklinga sinna, að sögn lögmanns. Ellefu mál eru nú þegar til rannsóknar hjá lögreglu. Heilbrigðisráðherra segist ekki ætla að leggja mat á það hvort eðlilegt sé að læknirinn sé enn við störf á spítalanum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 10.12.2021 18:10
Hús Norðurslóðar rísi á Sturlugötu 9 Borgarráð hefur samþykkt viljayfirlýsingu milli Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar um ráðstöfun lóðarinnar á Sturlugötu 9 til Norðurslóðar, húss Stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar. 10.12.2021 17:41
Niðurstaðan hræðileg og nöturlegt að hana beri upp í dag Dómstóll í Bretlandi úrskurðaði í dag að framselja megi Julian Assange stofnanda Wikileaks til Bandaríkjanna. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks segir niðurstöðuna hræðilega og hálf nöturlegt að hún skuli koma út á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna. Málinu verði mætt í héraði með nýrri áfrýjun og sé því alls ekki lokið. 10.12.2021 17:13
Fulltrúi Kanye þrýsti á kosningastarfsmann um að játa á sig kosningasvindl Trevian Kutti, sem starfar fyrir tónlistarmanninn, frumkvöðulinn og forsetaframbjóðandann fyrrverandi, Kanye West, þrýsti á kosningastarfsmenn í Georgíu um að játa kosningasvindl skömmu eftir forsetakosningarnar vestanhafs í fyrra. 10.12.2021 16:13
Bergsveinn segir svör dr. Ásgeirs og dr. Sverris hryggileg Bergsveinn Birgisson rithöfundur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann svarar Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og dr. Sverri Jakobssyni. 10.12.2021 15:58
Umboðsmaður segir notkun gulra herbergja helst bundna við börn með sérþarfir Umboðsmaður Alþingis skrifar í bréfi sem sent var á mennta- og barnamálaráðherra á miðvikudag að notkun svokallaðra gulra herbergja í grunnskólum sé í yfirgnæfandi fjölda tilvika bundin við börn með sérþarfir. Almennir grunnskólar telji sig þá standa frammi fyrir óleysanlegum vanda gagnvart nemendum með sérþarfir og alvarlegan hegðunarvanda. 10.12.2021 15:47
Hraunbergi lokað vegna myglu Starfsemi Hraunbergs hefur verið flutt vegna myglu sem fundist hefur í húsnæði þess. Samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg stendur til að flytja starfsemina í varanlegt húsnæði á næstu mánuðum. 10.12.2021 15:18
Karlmaður á þrítugsaldri ákærður fyrir manndráp af gáleysi Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af rúmensku bergi brotinn, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa ekki komið Daníel Eiríkssyni til bjargar, sem lést í kjölfarið. 10.12.2021 15:10
Nowy system podatkowy dla „zielonych” samochodów Minister finansów Bjarni Benediktsson przyznał, że konieczne jest wdrożenie nowego systemu podatkowego dla samochodów, które nie będą zasilane paliwami kopalnymi. 10.12.2021 14:20
Munu krefjast þess að plastið fari í réttan farveg Úrvinnslusjóður mun fara fram á það við sænska fyrirtækið Swerec að íslenskt plast sem Stundin greinir frá að hafi legið óhreyft undanfarin ár í vöruskemmu verði sett í réttan farveg. 10.12.2021 13:30
Meiri skjátími, minni hreyfing og lítið grænmeti í faraldrinum Skjátími barna jókst, þau hreyfðu sig minna og borðuðu minna grænmeti eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst en fyrir hann. Þá voru menntaskólanemar meira einmana en áður. Þetta sýna niðurstöður nýrrar úttektar á heilsu og líðan borgarbúa í faraldrinum. 10.12.2021 13:01
Reiðir yfir því að fá ekki boð á lýðræðisfund Bidens Joe Biden mun í dag loka tveggja daga stafrænum lýðræðisfundi sínum með því að beina athygli að mikilvægi þess að standa í hárinu á harðræðisstjórnum og einræðisherrum og það að tryggja sjálfstæða fjölmiðla. 10.12.2021 13:01
Hyggjast bólusetja alla óbólusetta við komuna til Gana Stjórnvöld í Gana hyggjast bólusetja alla borgara og íbúa landsins við komuna á flugvöllum frá og með mánudegi, ef þeir hafa ekki þegar þegið bóluefni. Þá verður þeim sem yfirgefa landið gert að framvísa sönnun um bólusetningu. 10.12.2021 12:11
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um nýja úttekt á heilsu og líðan borgarbúa í faraldrinum. 10.12.2021 11:36
Ekkert benti til refsiverðrar háttsemi lögreglu Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á viðbrögðum lögreglu við skotárás í Dalseli á Egilsstöðum þann 26. ágúst í fyrra. Saksóknari segir ekkert hafa komið fram sem gefið hafi til kynna refsiverða háttsemi af hálfu lögreglu. 10.12.2021 11:31
Leggja til brottrekstur tilkynni leikmenn ekki ofbeldismál Starfshópur KSÍ, sem vann að endurskoðun á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur skilað af sér skýrslu og tillögur um endurbætur á þeim málum. Meðal tillaga er að leikmönnum sambandsins verði gert að skrifa undir skilmála að þeim beri að tilkynna ofbeldismál sem þeir tengjast, viðurlög varði brottrekstri. 10.12.2021 11:26
„Ég hef aldrei áður verið vændur um stuld“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur brugðist við fréttaflutningi af meintum hugverkastuldi og ásökunum Bergsveins Birgissonar, segist hafa lesið Leitina að svarta víkingnum en hún sé ekki hefðbundin sagnfræði. 10.12.2021 10:46
Geta framselt Assange til Bandaríkjanna Dómstóll í London sneri í dag við fyrri úrskurði undirréttar þar sem framsalsbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna Julian Assange, stofnanda Wikileaks, var hafnað. 10.12.2021 10:45
Sektuð um 180 þúsund krónur vegna hópárekstursins Dómstóll í Frakklandi hefur dæmt konu til að greiða 1.200 evru sekt, um 180 þúsund krónur, fyrir að hafa valdið fjölmennum árekstri í Frakklandshjólreiðunum síðasta sumar. 10.12.2021 10:12
101 greindist innanlands 101 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 54 af þeim 101 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 54 prósent. 47 voru utan sóttkvíar, eða um 47 prósent. 10.12.2021 09:15
Fjölskyldufaðirinn grunaður um morð og íkveikju Lögregla í Noregi rannsakar nú eldsvoða í húsi í bænum Berger í Svelvik aðfararnótt mánudags, þar sem fjögurra manna fjölskylda fannst látin, sem manndráp, sjálfsvíg og íkveikju. 10.12.2021 08:52
Bein útsending: Eru íþróttir leikvangur karlmennskunnar? Eru íþróttir leikvangur karlmennskunnar er yfirskrift málstofu um jafnrétti í íþróttum sem haldin verður í dag, á alþjóðlegum degi mannréttinda, milli klukkan 9 og 10:30. 10.12.2021 08:31
Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. 10.12.2021 07:55
Smollett fundinn sekur um að hafa logið til um árás Bandaríski leikarinn Jussie Smollett laug að lögreglu þegar hann fullyrti að hann hafi verið fórnarlamb árásar sem hann sagði hafa grundvallast á hatri árásarmanna á samkynhneigðum og svörtum. 10.12.2021 07:48
53 látnir eftir umferðarslys í Mexíkó Að minnsta kosti 53 eru látnir og tugir slasaðir eftir að flutningabíll fór á hliðina í Mexíkó. Svo virðist sem bíllinn hafi verið að flytja ólöglega farendur frá Mið-Ameríku og væntanlega á leið til Bandaríkjanna. 10.12.2021 07:34
Einstakt samband Magnúsar Hlyns og skemmtilegra frétta Einstakt samband krumma og hundar, kind sem heldur að hún sé hundur og gamalt fólk sem stendur á höndum. Fréttirnar þurfa ekki alltaf að vera stórar til þess að vera merkilegar og það veit fréttamaður okkar á Suðurlandi. 10.12.2021 07:21
Costco ber að greiða ferðir starfsmanna utan áætlunartíma strætó Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Costco sé skylt að greiða starfsmönnum fyrir ferðir til og frá vinnu í verslunina við Kauptún í Garðabæ á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, óháð því hvernig starfsmenn haga ferðum til og frá vinnu á öðrum tíma. 10.12.2021 07:06
Hvessir í kvöld vegna ört vaxandi lægðar sem nálgast Landsmenn mega eiga von á fremur hægum vindum í dag og léttir smám saman til. Frost veður víða á bilinu núll til fimm stig. 10.12.2021 07:06
Audi hefur staðfest að arftaki R8 verði hreinn rafbíll Audi hefur staðdest að arftaki R8 ofurbílsins verði hreinn rafbíll. Yfirmaður vörumarkaðssetningar hjá Audi Sport, Linda Kurz, sagði í samtali við Roadshow að nýi R bíllinn myndi ekki notast við brunahreyfil. 10.12.2021 07:01
Lögregla kölluð til vegna þriggja líkamsárása í gærkvöldi og nótt Lögregla sinnti þremur tilkynningum vegna líkamsárása í gærkvöldi og nótt. Ein átti sér stað á hóteli í miðborg Reykjavíkur fyrir miðnætti en árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti á staðinn. 10.12.2021 06:31
Þitt nafn bjargar lífi í 20 ár Þitt nafn bjargar lífi, stærsta mannréttindaherferð í heimi, er 20 ára í dag. Herferðin er í fullum gangi og enn hægt að skrifa undir málefnin á heimasíðu Amnesty. 10.12.2021 06:30
Handtekinn fyrir að leka myndbandi sem sýndi herþotu hrapa örskömmu eftir flugtak Brak F-35 herþotu breska flughersins sem hrapaði í Miðjarðarhafið örfáum andartökum eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið endurheimt. Sjóliði um borð hefur verið handtekinn fyrir að leka myndefni sem sýndi þotuna hrapa. 9.12.2021 23:30
Krabbameinsfélagið greiðir konu með banvænt krabbamein tugi milljóna Kona sem greindist með banvænt krabbamein fær greiddar tugi milljóna króna í bætur frá Krabbameinsfélaginu vegna mistaka við leghálsskimun. Þegar meinið loks uppgötvaðist var það ekki lengur skurðtækt. 9.12.2021 23:00
Ekki margir möguleikar eftir fyrir Trump til að koma í veg fyrir að gögnin verði afhent Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur hafnað beiðni Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghús Bandaríkjanna í janúar fái ekki að sjá tiltekin skjöl frá forsetatíð Trump. 9.12.2021 22:08
Þurfa ekki að borga með skónum sínum þetta árið Starfsmenn Landspítalans geta valið milli sjö mismunandi jólagjafa þetta árið. Mikil umræða skapaðist um val stjórnenda í fyrra þegar um sex þúsund starfsmenn fengu Omnom súkkulaðistykki og sjö þúsund króna gjafabréf í skóbúðina Skechers. 9.12.2021 20:26
Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar tókust á um hugsjónir og mannaveiðar Formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn góðan í mannaveiðum en dregur í efa að margir séu eftir í flokknum sem kenna megi við hugmyndafræði hans. Hann spurði fjármálaráðherra á Alþingi í dag um kostnaðinn við fjölgun ráðuneyta. 9.12.2021 19:30
Samningar á lokametrum um kaup ríkisins á hótel Sögu Samningar eru á lokametrunum milli Bændasamtaka Íslands og Háskóla Íslands um kaup þeirra síðarnefndu á hótel Sögu. Formaður Bændasamtakanna segir söluna þó ekki í höfn fyrr en skrifað verði undir samninga. 9.12.2021 19:20
Ætla að stórefla Konukot: Heimilislausar konur fá glæný smáhýsi Stórefla á starfsemi Konukots og tvær heimilislausar konur flytja brátt í glæný smáhýsi á vegum borgarinnar. 9.12.2021 19:01
Þrettán þúsund börn í sóttkví á þremur mánuðum Þrettán þúsund börn hafa þurft að fara í sóttkví vegna kórónuveirufaraldursins á síðustu þremur mánuðum. Heilbrigðisráðherra segir sóttkví gríðarlega frelsisskerðingu fyrir börnin og er mögulega tilbúinn að skoða aðrar leiðir. 9.12.2021 18:57
Hafa selt mikinn meirihluta eigna HD verks eftir brunann Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar þess efnis að sýslumanni beri að gera kyrrsetningu hjá HD verki ehf, í tengslum við skaðabótakröfur vegna brunans sem varð þegar Bræðraborgarstígur 1 brann síðasta sumar. Félagið hefur selt stóran hluta eignasafns síns. 9.12.2021 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þrettán þúsund börn hafa þurft að fara í sóttkví vegna kórónuveirufaraldursins á síðustu þremur mánuðum. Heilbrigðisráðherra segir sóttkvína gríðarlega frelsisskerðingu fyrir börnin og er tilbúinn að skoða aðrar leiðir. 9.12.2021 18:01