Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Myndband sýnir ráðgjafa grínast með hina meintu jólaveislu skömmu eftir að hún á að hafa verið haldin Myndband sem breska sjónvarpsstöðin ITV birti í kvöld sýnir háttsetta ráðgjafa Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, grínast með meinta jólaveislu fjórum dögum eftir að hún á að hafa verið haldin. 7.12.2021 23:30
Dýrasta vara Góða hirðisins frá upphafi er slitinn stóll Danskur hönnunarstóll er orðin dýrasta vara sem Góði hirðirinn hefur sett á sölu frá upphafi. Gersemin barst nytjavörumarkaðnum óvænt í gám frá Sorpu og gerir rekstrarstjóri hennar ráð fyrir að eigandi stólsins hafi ekki áttað sig á hverju hann væri að henda. 7.12.2021 22:41
Fá ekki krónu þrátt fyrir mistök lögmanns Íslenska ríkið og fyrrverandi lögmaður hjóna hafa verið sýknuð af kröfu hjónanna um að ríkinu og lögmanninum bæri að greiða þeim 25,8 milljónir króna vegna mistaka lögmannsins og meintrar ólögmætrar nauðungarsölu sýslumanns á íbúð í þeirra eigu. 7.12.2021 21:47
Segir sorglegt að loðnubræðslur þurfi að skipta úr raforku í olíu Fulltrúi fiskimjölsiðnaðarins segir það áfall og sorglegt að loðnubræðslur þurfi núna að skipta yfir í olíu í stað rafmagns. Málið var rætt í ríkisstjórn í morgun. 7.12.2021 21:41
Sextán greinst með omíkron hér á landi Alls hafa sextán einstaklingar greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. 7.12.2021 21:28
Hjalteyrarmálið: Reiknar með að starfshópurinn skili af sér í janúar Vigdís Häsler Sveinsdóttir, formaður nýskipaðs starfshóps um Hjalteyrarmálið, reiknar með að hópurinn geti lokið sinni vinnu undir lok næsta mánaðar. 7.12.2021 21:11
Endurskoða þurfi prófafyrirkomulag í Covid fyrir næsta misseri Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að endurskoða þurfi fyrirkomulag staðprófa í háskólanum á tímum heimsfaraldurs eftir að upp kom smit í prófi við HÍ. 7.12.2021 20:46
Mótmæltu bólusetningum á Austurvelli Tugir manna voru samankomin á Austurvelli á sjöunda tímanum í kvöld til að mótmæla bólusetningarstefnu stjórnvalda. Beindust mótmælin einna helst gegn bólusetningum barna við Covid-19. 7.12.2021 20:26
Veiran varð nær 30-falt útbreiddari hjá börnum Heilbrigðisráðherra vonast til að geta slakað til í samkomutakmörkunum á næstu tveimur vikum en breytir engu að sinni. Bólusetning barna fimm til ellefu ára gæti slegið á útbreiðslu faraldursins í heild, að sögn barnalæknis. 7.12.2021 19:46
Segir úttektina á KSÍ vera gaslýsingu á þolendur Þórhildur Gyða Arnarsdóttir segir að skýrsla úttektarnefndar vegna viðbragða KSÍ við kynferðisbrotamálum sé opinber gaslýsing á þolendur. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennar segir skýrsluna hafa verið „pínu svekk“. 7.12.2021 19:29
Talinn hafa myrt fjölskyldu sína eftir að hann falsaði bólusetningarvottorð Lík þriggja barna og tveggja fullorðinna fundust á heimili í þýska sambandslandinu Brandenborg á laugardag. Grunar lögreglu að fjölskyldufaðirinn hafi orðið eiginkonu sinni og þremur börnum að bana áður en hann tók eigið líf. 7.12.2021 19:02
Ráðherrar sagðir hafa friðað og deilt út fé án aðkomu Alþingis Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega í dag að umhverfisráðherra hefði friðað jörð í Árneshreppi kvöldið áður en hann lét af embætti sem og fjárútlát margra ráðherra í aðdraganda kosninga. Alþingi hefði ekki getað sinnt eftirlitshlutverki sínu á sama tíma. 7.12.2021 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Knattspyrnusamband Íslands vissi af fjórum frásögnum um kynbundið eða kynferðislegt ofbeldi innan sambandsins, samkvæmt niðurstöðum úttektarnefndar. 7.12.2021 18:01
Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2021 Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2021 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 7.12.2021 16:56
Hættir á þingi til að stýra fyrirtæki Trumps Devin Nunes, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Kaliforníu, ætlar að hætta á þingi í lok mánaðarins til að taka að sér stjórn nýs fjölmiðlafyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Fyrirtækið heitir Trump Media & Technology Group og mun Nunes taka við stjórn þess í byrjun næsta árs. 7.12.2021 15:03
Sakfelldur fyrir að hafa sent myndir af íbúa sambýlis handleika kynfæri sín Starfsmaður sambýlis hefur verið sakfelldur fyrir að hafa gerst sekur um kynferðisbrot með því að hafa tekið upp Snapchat-myndband af vistmanni handleika ber kynfæri sín. 7.12.2021 14:14
Eftirvagn með gámi valt á Snæfellsnesvegi Snæfellsnesvegi var lokað um tíma í dag eftir að eftirvagn með gámi fór á hliðina. Kranabíl þurfti til að reisa gáminn og vagninn við en engin slys urðu á fólki. 7.12.2021 14:09
Sér fyrir sér að fólk með örvunarskammt sleppi við fjöldatakmarkanir og hraðpróf Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra að viðhalda óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum í nokkrar vikur frá og með 9. desember. Ráðherra ákvað að framlengja núverandi aðgerðir um tvær vikur. 7.12.2021 13:59
Nowy minister zdrowia przedłużył dotychczasowe obostrzenia Obowiązujące obecnie obostrzenia zostaną przedłużone o kolejne dwa tygodnie. Wynika to z tego, że pojawił się nowy wariant wirusa - Omicron, który został już zdiagnozowany w Islandii. 7.12.2021 13:28
Danski heilbrigðisráðherrann með Covid-19 Danski heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindist með Covid-19 í dag. Hann dvelur nú í belgísku höfuðborginni Brussel þar sem hann er í einangrun á hóteli. 7.12.2021 13:27
Hyggjast gera foreldrum kleift að fylgjast með Instagram-notkun barna Stjórnendur Instagram hafa greint frá því að í mars á næsta ári verði kynntir til sögunnar valmöguleikar fyrir foreldra til að stjórna notkun barna sinna á samfélagsmiðlinum. Munu þeir meðal annars geta séð hversu löngum tíma barnið hefur varið í smáforritinu og sett notkuninni mörk. 7.12.2021 12:23
Markmiðið að grípa sem flesta og koma til móts við Landspítala Ný Covid deild verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir síðar í dag. Deildin getur tekið á móti allt að tíu öldruðum einstaklingum sem eru með væg einkenni. Framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs Eirar segir að um sé að ræða nauðsynlegt úrræði sem muni meðal annars létta undir með Landspítala. 7.12.2021 12:18
Reynir að samræma þingstörfin embætti forseta bæjarstjórnar Nýkjörinn þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi ætlar að láta reyna á hvort hann geti jafnframt haldið áfram að gegna embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Fimm mánuðir eru til sveitarstjórnarkosninga á næsta ári. 7.12.2021 12:12
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá ákvörðun heilbrigðisráðherra með nýjar reglur í sóttvörnum hér innanlands, að því gefnu að ríkisstjórnarfundi ljúki fyrir lok frétta. 7.12.2021 11:38
44 prósent boðaðra í desember hafa þegar þegið örvunarskammt 85 prósent þeirra sem áttu kost á því að mæta í örvunarbólusetningu fyrir nóvember hafa þegið þriðja skammtinn og 73 prósent þeirra sem gátu mætt í nóvember. Þá hafa þegar 44 prósent þeirra sem eiga kost á að mæta í desember þegar þegið örvunarskammt. 7.12.2021 11:28
Minnkandi líkur á gosi í Grímsvötnum Veðurstofan hefur fært fluglitakóða fyrir Grímsvötn niður á gult. Í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í gærmorgun, þar sem meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,6 sem er óvenjustór fyrir Grímsvötn, var fluglitakóðinn settur á appelsínugult í gær. 7.12.2021 11:20
Mun stýra starfshópi um barnaheimilið á Hjalteyri Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp undir forystu Vigdísar Häsler Sveinsdóttur lögfræðings til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemi heimilisins á Hjalteyri. 7.12.2021 11:10
Minnst 34 látnir og forsetinn heitir auknum aðgerðum Joko Widodo, forseti Indónesíu, hét því í dag að gefið yrði í þegar kæmi að björgunaraðgerðum og viðgerðum á skemmdum heimilum eftir eldgosið í Semeru-fjalli á Java. Minnst 34 eru látnir, sautján er saknað og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín. 7.12.2021 11:00
116 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær 116 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 53 af þeim 116 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 46 prósent. 63 voru utan sóttkvíar, eða 54 prósent. 7.12.2021 10:36
Segir borgina hafa gefið olíufélögum níu milljarða Gunnar Smári Egilsson heldur því fram að borgaryfirvöld séu, vísivitandi eða andvaralaus, að mylja undir braskara í höfuðborginni. Þeir maki krókinn. 7.12.2021 10:34
Óbreyttar aðgerðir næstu tvær vikur Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur kynnt sóttvarnaaðgerðir sem taka gildi á morgun. Aðgerðir verða óbreyttar og gildir þetta næstu tvær vikurnar, eða til 22. desember. Heilbrigðisráðherra segir þó vel koma til greina að aflétta fyrir 22. desember verði staðan orðin betri. 7.12.2021 10:33
Töfratálgari í Hveragerði Útskurðarhnífar Andrínu Guðrúnar í Hveragerði hljóta að vera einhverskonar töfrahnífar því fuglarnir, sem hún tálgar verða svo fallegir í höndunum á henni. Mesta áskorun Andrínu er að tálga hrafninn. 7.12.2021 10:08
Þórdís Kolbrún á fundi þróunarmiðstöðvar OECD Á fundinum var sjónum beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins. 7.12.2021 09:05
Hjúkrunardeild fyrir eldri Covid-19 sjúklinga opnuð á Eir Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Deildin er einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun. 7.12.2021 09:00
Mikið tjón í vatnsleka í Ráðhúsi Akureyrar Allt tiltækt lið Slökkviliðs Akureyrar var kallað út í morgun vegna vatnsleka í ráðhúsi bæjarins. Samkvæmt heimildum fréttastofu sprakk lögn í eldhúsi á fjórðu og efstu hæð hússins. 7.12.2021 08:43
Gestum Salalaugar brugðið eftir að flugeldum var kastað yfir girðingu Sundlaugargestum og starfsfólki Salalaugar í Kópavogi var mörgum mjög brugðið eftir að flugeldum var kastað yfir girðingu laugarinnar í gærkvöldi. 7.12.2021 08:35
Ekkert skólahald í Eskifjarðarskóla vegna smits Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Eskifjarðarskóla í dag eftir að starfsmaður skólans greindist með COVID-19 í gær. 7.12.2021 08:20
Atvinnurekendur í New York skikkaðir til að krefjast bólusetningar starfsmanna Borgaryfirvöld í New York hafa ákveðið að allir atvinnurekendur í borginni verði að krefjast þess að starfsmenn þeirra þiggi bólusetningu og séu bólusettir frá og með 27. desember næstkomandi. 7.12.2021 07:56
Braut rúður í þremur verslunum í miðborginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa brotið rúður í þremur verslunum hið minnsta í miðbæ Reykjavíkur. 7.12.2021 07:25
Snjókoma með köflum norðanlands en stöku él sunnantil Landsmenn mega reikna vestan- og suðvestan kalda eða strekkingi í dag og snjókomu með köflum um landið norðanvert, en stöku él sunnanlands. Hægari vindur seinnipartinn og styttir upp fyrir norðan. 7.12.2021 07:07
Bubbatal, kvenlegri Miðflokkur og besta kosningaauglýsingin Lýðræðisveislan bar nafn með rentu í sumar og haust og raunar alveg frá áramótum, þegar frambjóðendur börðust um hylli kjósenda í aðdraganda alþingiskosninga. Kosningabaráttan skall á af fullum þunga síðsumars og lauk svo með langri nótt. 7.12.2021 07:01
Héðinn snýr heim - vonandi í vor Vesturbæingar sakna mjög eins þekktasta minnismerkis hverfisins; styttunnar af Héðni Valdimarssyni verkalýðsforingja. Ekkert hefur sést til hennar í þrjú ár en eigendurnir vonast til að hún verði komin á sinn stað fyrir verkalýðsdaginn 1. maí. 7.12.2021 07:01
Einkaaðilar hafa fengið 240 milljónir króna greiddar fyrir hraðprófin Þeir einkaaðilar sem séð hafa um hraðprófin vegna kórónuveirunnar höfðu fram til 1. desember fengið um 240 milljónir greiddar fyrir þjónustuna. 7.12.2021 06:57
Uppljóstrari lýsir ringulreið og skipulagsleysi af hálfu breskra stjórnvalda Tugþúsundir Afgana sem höfðu aðstoðað Breta og óttuðust um líf sitt þegar Talíbanar tóku aftur völd í Afganistan, náðu ekki í gegn og fengu enga aðstoð vegna skipulags- og sinnuleysis af hálfu breska utanríkisráðuneytisins. 7.12.2021 06:44
Pomarańczowy alert nad Grímsvötn W związku z rosnącą aktywnością wulkanu Grímsvötn, Islandzkie Biuro Meteorologiczne podniosło alarm ostrzegawczy dla lotów międzynarodowych, z żółtego na pomarańczowy. To pokazuje, że rośnie prawdopodobieństwo erupcji wulkanu. 7.12.2021 02:58