Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hoppaði á þaki bifreiða og olli skemmdum Einstaklingur var handtekinn skömmu fyrir tvö í nótt eftir að hafa hoppað á þaki tveggja bifreiða í miðbæ Reykjavíkur og valdið skemmdum. Einstaklingurinn er sagður hafa verið í annarlegu ástandi og var hann vistaður í fangaklefa. 21.8.2021 08:41
Tveir menn veittust að leigubílstjóra Tveir menn er sagðir hafa veist að leigubílstjóra í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi eftir að hann neitaði þeim um far. 21.8.2021 08:30
Óviðunandi staða í málefnum Fossvogsskóla Menntamálaráðherra segir að stöðuna í málefnum Fossvogsskóla vera óviðunandi. Óvissa ríkir enn um tilhögun skólahalds á næstu vikum en kennsla á að hefjast næsta mánudag. 21.8.2021 08:12
Bongó á Norður- og Austurlandi í næstu viku Spáð er allhvassri austanátt syðst á landinu í dag en annars mun hægari vindi. Bjart veður verður norðaustan- og austanlands með hita að 18 til 20 stigum, en skýjað í öðrum landshlutum og fer að rigna seinni partinn, fyrst sunnantil. 21.8.2021 07:30
Fjöldi fasteignapappíra inniheldur enn rasísk ákvæði Yfirvöld og samtök víðsvegar í Bandaríkjunum vinna nú að því að auðvelda einstaklingum að fá rasískar klásúlur í fasteignapappírum numdar brott. 21.8.2021 07:04
Bretar gefa leyfi fyrir mótefnalyfi gegn Covid sem á að létta álag á spítölum Lyfjastofnun Bretlands hefur veitt leyfi fyrir notkun mótefnalyfsins Ronapreve í meðferð við Covid-19. Lyfið er það fyrsta sinnar tegundar sem fær leyfi í Evrópu en Japanir samþykktu notkun þess fyrir rúmum mánuði. Menn binda vonir við að lyfið geti létt álag á breskum spítölum. 21.8.2021 07:00
Kia EV6 dregur 528 km Kia EV6 rafbíll mun hafa allt að 528 km drægni samkvæmt WLTP staðli. Þetta er enn meiri drægni en búist var við en upphaflega átti rafbíllinn að draga 510 km á rafhlöðunni. Nú er ljóst að það bætist við drægnina sem eru sannarlega góðar fréttir fyrir væntanlega kaupendur sem búast má við að verði margir enda er mikil eftirvænting eftir bílnum sem er þegar kominn í forsölu hjá Bílaumboðinu Öskju. 21.8.2021 07:00
Vill að almannavarnir biðji foreldra afsökunar Faðir stúlku á leikskóla, sem lenti í sóttkví eftir að smit kom upp hjá starfsmanni skólans, segir að almannavarnir hafi ranglega sent fullbólusetta foreldra barna skólans í sóttkví. Hann áttaði sig á því í gær að það stangaðist á við leiðbeiningar sóttvarnalæknis og þegar hann benti almannavörnum á það var honum sagt að hann þyrfti aðeins að vera í svokallaðri smitgát. 20.8.2021 23:36
Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu. 20.8.2021 22:22
Leita leiða til að hafa opið lengur í bænum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra fundaði í dag með Samtökum fyrirtækja í veitingarekstri (SVEIT), sem hafa lýst yfir mikilli óánægju með framtíðarsýn sóttvarnalæknis. Hún ætlar að ræða hugmyndir að lausnum við ríkisstjórnina sem komu fram á fundinum til að hafa opið lengur í bænum. 20.8.2021 21:51
Færu á hausinn ef klámið yrði í alvöru bannað Íslendingar sem framleiða klámefni á vefþjónustunni OnlyFans taka fregnum af klámbanni miðilsins með jafnaðargeði. Þeir telja tilkynninguna sölubrellu frekar en grundvallarbreytingu á starfseminni. 20.8.2021 21:24
Tekur ekki í mál að kenna frammi á gangi Kennari í þriðja bekk í Fossvogsskóla tekur það ekki í mál að kenna börnum frammi á gangi í tengibyggingu Víkingsheimilisins. Hún kveðst þó meira en tilbúin til að kenna í húsnæði Hjálpræðishersins, sem bauð Reykjavíkurborg afnot af byggingunni undir skólastarfið í dag, og er bjartsýn á næstu vikur. 20.8.2021 20:44
Hjálpar fólki að flýja Afganistan: „Ég veit ekkert hvort ég næ fólki út“ Mikið öngþveiti hefur ríkt á alþjóðaflugvellinum í Kabúl undanfarna daga þar sem Talibanar standa vörð til að koma í veg fyrir að Afgönum takist að smygla sér inn á flugvöllinn. Íslendingur sem starfar í Kabúl vinnur nú að því að hjálpa Afgönum að flýja landið. 20.8.2021 20:40
„Við vonum að þessir fundir gefi tóninn“ Fyrsti upplýsingafundur ungra umhverfissinna um stöðu loftslagsmála var haldin í Norræna húsinu í dag. Kallað er eftir því að gripið verði til víðtækra aðgerða strax og að yfirvöld lýsi yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. 20.8.2021 19:46
Um tíu konur kvarta til landlæknis og krefjast bóta Lögmaður hefur kvartað til landlæknis og gert bótakröfu fyrir hönd hátt í tíu kvenna sem telja sig hafa orðið fyrir vanrækslu í tengslum við skimun eða sérskoðun á brjóstum. Einni konunni var synjað um læknisþjónustu vegna Covid og greindist síðar með brjóstakrabbamein og meinvörp, að sögn lögmanns. 20.8.2021 19:11
Foreldrar fá þrjá valkosti frá borginni Reykjavíkurborg hefur gefið foreldrum barna í 2. til 4. bekk í Fossvogsskóla þrjá valmöguleika í von um að leysa þann húsnæðisvanda sem þar er kominn upp. Foreldrar lýstu í gær yfir óánægju sinni með borgina eftir að í ljós kom að kenna átti börnunum í tengibyggingu Víkingsheimilisins, meðal annars frammi á gangi, fyrstu vikur skólaársins. Þeim þótti þetta með öllu ótæk ráðstöfun. 20.8.2021 18:50
Ísland gefur 60 milljónir til mannúðaraðstoðar í Afganistan Utanríkisráðuneyti Íslands hefur tilkynnt um sextíu milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar íAfganistan. Framlaginu verður skipt jafnt má milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaráðs Rauða Krossins. 20.8.2021 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögmaður hefur kvartað til landlæknis og gert bótakröfu fyrir hönd hátt í tíu kvenna sem telja sig hafa orðið fyrir vanrækslu í tengslum við skimun eða sérskoðun á brjóstum. Einni konunni var synjað um læknisþjónustu vegna Covid og greindist síðar með brjóstakrabbamein og meinvörp, að sögn lögmanns. 20.8.2021 18:01
Eldur kviknaði í bíl á Kringlumýrarbraut Eldur kviknaði í bíl á Kringlumýrarbraut fyrir utan Suðurver rétt um klukkan hálf sex. Slökkvilið er á staðnum og hefur tekist að slökkva í bílnum. 20.8.2021 17:49
Almannavarnanefnd vill ganga lengra en ráðuneytið Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins mælist til að ekki verði fleiri en hundrað nemendur í hverju rými grunnskóla, félagsmiðstöðva og tónlistarskóla. Gengur nefndin þar með lengra en menntamálaráðuneytið sem miðar í sínum tilmælum við 200 í hverju hólfi. 20.8.2021 17:09
Flóttamannanefnd skilar tillögum um móttöku Afgana til ráðherra í dag Flóttamannanefnd mun skila tillögum sínum, um hvernig taka skuli á móti afgönsku flóttafólki, til ráðherra í dag. Þetta staðfestir Stefán Vagn Stefánsson, formaður nefndarinnar, í samtali við fréttastofu. 20.8.2021 16:34
Neyðarástand ríkir á Haítí Að mati UNICEF hefur hálf milljón haítískra barna lítinn sem engan aðgang að húsaskjóli, læknisaðstoð, vatni eða næringu. 20.8.2021 15:56
Telur ótímabært að ræða langtíma takmarkanir innanlands Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ekki sé tímabært að ræða langtímatakmarkanir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins. Það sé hins vegar tímabært að endurskoða reglur um sóttkví. 20.8.2021 15:47
Fordæmalaus rigning efst á Grænlandsjökli Rigning féll á hæsta punkti Grænlandsjökuls í nokkrar klukkustundir um síðustu helgi en það eru fyrstu heimildirnar um regn þar. Úrkoman fylgdi hlýindum og mikilli bráðnun á jöklinum. 20.8.2021 15:44
Ever Given siglir aftur um Súes-skurðinn en með dráttarbáta með sér Gámaflutningaskipið Ever Given er nú á leið sinni í Rauðahaf, sem leið liggur um Súes-skurðinn. Vel er fylgst með skipinu, þar sem það komst í heimsfréttirnar fyrir að festast í skurðinum fyrr á þessu ári. 20.8.2021 14:33
Búist við röskunum í London vegna loftslagsmótmæla Lögreglan í London varar við því að raskanir verði á daglegu lífi í borginni næstu tvær vikurnar vegna boðaðra loftslagsmótmælum sem eiga að hefjast á mánudag. Boðað hefur verið til setuverkfalla og mótmælagangna. 20.8.2021 13:22
Bein útsending: Upplýsingafundur loftslagsverkfallsins Loftslagsverkfallið blæs til þriggja upplýsingafunda í ljósi stöðu loftslagsmála í heiminum. Sá fyrsti er í Norræna húsinu í dag og hefst klukkan 13:30. 20.8.2021 13:15
Veitingamenn segja framtíðarsýn Þórólfs „blauta tusku“ í andlitið Framtíðarýn sóttvarnalæknis er „blaut tuska“ framan í stóran hluta veitingamarkaðarins, sem hefur verið meira og minna óstarfhæfur frá því að kórónuveirufaraldurinn barst hingað til lands. 20.8.2021 12:45
Telur ólíklegt að bólusetningum barna verði mótmælt í Laugardalshöll Á Íslandi hafa nú 262.291 verið fullbólusettir gegn veirunni en örvunarbólusetningar hafa staðið yfir í vikunni hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen fyrr í sumar. Aðeins um helmingur þeirra sem fékk boð í örvunarbólusetningu þáði það boð. 20.8.2021 12:24
Biðst afsökunar á að hafa brotið reglu um grímuskyldu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist hafa gert mistök sem henni þyki mjög leiðinlegt. Katrín var ekki með grímu á Meistaravöllum í gær þar sem hún fylgdist með KR bursta Víking 6-0 í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu. 20.8.2021 12:20
Meðal hugmynda að skipa sérstakan ráðherra fyrir eldri borgara Nauðsynlegt er að skipuleggja og samþætta þjónustu við eldra fólk að mati höfundar tillagna um breytingar til heilbrigðisráðherra. Meðal hugmynda er að skipaður verði sérstakur ráðherra fyrir málefni aldraðra. 20.8.2021 11:47
Græða upp tugþúsundir ferkílómetra til að ná loftslagsmarkmiði Kínversk stjórnvöld stefna að því að gróðursetja tré á um 36.000 ferkílómetrum lands á ári fram til ársins 2025 í því skyni að færast nær markmiði sínu um að ná kolefnishlutleysi síðar á þessari öld og bæta vistkerfi. 20.8.2021 11:42
Foreldrar barna þurfi ekki endilega að fara í sóttkví Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir smíðar nú tillögur að breyttum reglum er varða meðal annars sóttkví foreldra skólabarna. Þannig þyrftu foreldrar barna sem þurfa að fara í sóttkví ekki endilega að fara í sóttkví með börnum sínum. 20.8.2021 11:41
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum förum við yfir stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en sextíu og einn greindist með veiruna innanlands í gær, þar af rétt rúmlega helmingur utan sóttkvíar. 20.8.2021 11:30
55 í sóttkví vegna smita tengdum Heilsustofnun Starfsemi Heilsustofnunar er komin af stað aftur eftir tveggja daga meðferðahlé á meðan unnið var að smitrakningu eftir að skjólstæðingur greindist með kórónuveiruna síðastliðinn þriðjudag. Alls eru nú 55 í sóttkví vegna tveggja einstaklinga sem hafa dvalið hjá Heilsustofnun og greinst með veiruna. 20.8.2021 10:58
61 greindist með veiruna innanlands í gær Að minnsta kosti 61 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrjátíu af þeim eru fullbólusettir, bólusetning er hafin hjá þremur og óbólusettir eru 28. 20.8.2021 10:46
Talibanar sagðir hafa myrt og pyntað þjóðernisminnihluta Vígamenn talibana frömdu fjöldamorð og pyntuðu fólk af þjóð hazara í Afganistan í síðasta mánuði, að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty International. Vitni segja að þrír menn hafi verið pyntaðir til bana. 20.8.2021 10:44
Börn bera mestan skaða af hamfarahlýnun Hamfarahlýnun grefur undan réttindum barna á hverjum einasta degi. 20.8.2021 10:30
Þúsundir freista þess að flýja Talibana Bandaríkjamenn reyna hvað þeir geta til að hraða flutningi á löndum sínum og flóttamönnum frá Afganistan áður en allt bandarískt herlið á að vera að fullu farið frá landinu hinn 31. ágúst. 20.8.2021 10:19
Efast um þörfina á örvunarskömmtum Efasemdaraddir eru uppi á meðal heilbrigðisvísindamanna um þörfina á því að gefa fólki örvunarskammta af bóluefni gegn kórónuveirunni. Ekki sé ljóst að virkni efnanna gegn alvarlegum veikindum minnki með tímanum og þá sé brýnna að bólusetja þá sem hafa enn ekki verið bólusettir víðsvegar um heim. 20.8.2021 08:58
Bein útsending: Heilbrigðisþing um framtíðarsýn um heilbrigðisþjónustu við aldraða Heilbrigðisþingið um framtíðarsýn um heilbrigðisþjónustu við aldraða hefst klukkan 9 í dag og stendur til klukkan 16. 20.8.2021 08:30
Delta mallar og breiðist hratt út í Flórída Delta afbrigði kórónuveirunnar er í mikilli og vaxandi útbreiðslu í Flórída í Bandaríkjunum. Þannig voru 532 Covid-sjúklingar á Babtista sjúkrahúsum í ríkinu á miðvikudag, tvöfalt fleiri en þegar veiran fór á flug í júlímánuði. 20.8.2021 08:09
Segir umræðuna um leghálskrabbamein hafa snúist um hræðsluáróður Konur sem koma í leghálsskimun þurfa nú að bíða í sex vikur, jafnvel fjórar, eftir niðurstöðum. Þetta segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Fréttablaðið. 20.8.2021 07:52
Segja þúsundir heilbrigðisstarfsmanna starfa utan heilbrigðiskerfisins Það skortir mjög á jákvæða hvata til að sækja sér menntun í heilbrigðisvísindum og til að starfa innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi. Aðeins 64 prósent hjúkrunarfræðinga starfa innan heilbrigðiskerfisins. 20.8.2021 07:28
Að mestu skýjað og lítilsháttar rigning eða súld Veðurstofan spáir suðlægum eða breytilegum áttum á landinu í dag, yfirleitt á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu en syðst á landinu má þó reikna með dálitlum suðaustanstreng. Að mestu skýjað og lítilsháttar rigning eða súld í öllum landshlutum. 20.8.2021 07:24