Fleiri fréttir

Kirkjuþing sett á morgun

Á meðal þeirra mála sem liggja fyrir þinginu eru fjármál þjóðkirkjunnar og endurskoðuð jafnréttisáætlun.

Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi

Aðalmeðferð í máli karlmanns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember, eða þar til dómur fellur.

Réðst á lögreglumenn með öxi að vopni

Lögreglumenn í New York skutu mann til bana í gær sem réðst að þeim vopnaður öxi. Árásin var gerð í verslunargötu í Queens hverfinu á háannatíma og særðist einn lögreglumannanna sem fyrir árásinni varð alvarlega.

Fær bætur vegna gæsluvarðhalds

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karlmanni skaðabætur upp á 1,5 milljón króna vegna gæsluvarðhalds sem hann sat í, grunaður um aðild að skotárás.

Mánuðir í landhernað gegn IS

Þrátt fyrir loftárásir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak, er landhernaður nauðsynlegur til að ná tökum á borgum eins og Mosul, sem féll í hendur IS í júní.

Fundu fíkniefni í þremur bílum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í þremur bílum, sem afskipti voru höfð af í gærkvöldi og í nótt. Fyrst fannst smáræði af efnum í kyrrstæðum bíl og gekkst ökumaðurinn við að eiga það.

Bandarískur læknir í New York smitaður af ebólu

Bandarískur læknir búsettur í New York hefur verið greindur með ebólu. Hinn þrjátíu og þriggja ára gamli Craig Spencer var nýkominn heim til sín frá Gíneu þar sem hann hafði tekið þátt í hjálparstarfi vegna faraldursins skæða sem lagt hefur tæplega fimmþúsund manns að velli í vesturhluta Afríku.

Svíar hættir að leita að kafbátnum í skerjagarðinum

Sænski herinn hefur hætt leitinni í sænska skerjagarðinum en í heila viku hefur her manna leitað torkennilegs hlutar sem sjónarvottar sáu þar á floti. Talið var líklegt að um rússneskan kafbát hefði verið að ræða en leitin bar þó engan árangur.

Tveir bjóða sig fram til forseta

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur fengið mótframboð í embætti forseta, á þingi ASÍ. Það er Ragnar Þór Ingólfsson, VR, sem bíður sig fram gegn Gylfa.

Vöktun á síldinni undirbúin

Hafrannsóknastofnun setti niður súrefnismæli í Kolgrafafirði í gær vegna vöktunarverkefnis þar sem fylgst er með ástandinu í firðinum. Eiginlegar mælingar hefjast þó ekki fyrr en um 10. nóvember næstkomandi.

Telja gagnrýni ekki réttmæta

"Íslandsstofa á sérstaklega gott samstarf við íslenska kvikmyndagerðarmenn í gegnum verkefnið Film in Iceland, sem er ætlað að laða til landsins erlenda kvikmyndagerðamenn,“ segir Jón Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Noregur féllst ekki á hlut Íslands

Norðmenn vildu ekki samþykkja hlut Íslands af heildarafla makríls á árlegum fundi strandríkja um stjórnun makrílveiða í norðaustanverðu Atlantshafi. Samkomulag um skiptingu aflahlutdeildar fyrir næsta ár náðist því ekki en önnur strandríki vildu samþykkja hlut Íslands.

Lögreglan ætlar ekki að borga fyrir vopnin

Samkvæmt kaupsamningi Landhelgisgæslunnar og norska hersins átti að greiða jafnvirði 11,5 milljóna króna fyrir 250 hríðskotabyssur. Ríkislögreglustjóri á von á að fá 150 byssur án endurgjalds. Gæslan segist ekki hafa greitt fyrir byssurnar.

Endurgreiðsla lág og aldraðir koma seint

Vandinn oft mikill þegar aldraðir koma til tannlæknis. Öldruðum með tennur fjölgar. Varaformaður Tannlæknafélags Íslands segir tannlækna nógu marga. Þó sé ekki víst að allir geti nýtt sér þjónustuna þar sem endurgreiðslan sé lág.

Bilaður gasmælir pípir þótt mengun hverfi

Almannavarnanefnd Hornafjarðar segir gasmæli á Höfn vera vanstilltan. „Alla vega er hann ekki að hætta að pípa þó mengunarmælir sýni enga mengun,“ bókaði nefndin sem fundaði í gær og ræddi um gasmengunina sem legið hafði yfir Hornafirði undanfarna daga.

Vill sátt við Val um flugbraut á Hlíðaenda

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, lagði til í borgarráði í gær að strax verði hafnar viðræður við félög tengd uppbyggingu á svæði Vals á Hlíðarenda.

Segja svör um bílafríðindi Dags óljós og spyrja áfram

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja að upplýst verði hvort "bílatengdar starfsgreiðslur“ til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra hafi "verið skertar í ljósi notkunar hans á bifreiðum í eigu borgarinnar“ þegur Dagur var formaður borgarráðs á síðasta kjörtímabili.

Bandaríkin skila fornmunum til Perú

Bandaríkin hafa skilað Perú um 20 stolnum fornmunum sem smyglað hafði verið til landsins. Sumir gripirnir eru meira en 1.800 ára gamlir.

„Bílbeltin bjarga svo sannarlega!“

„Er svo ótrúlega þakklát fyrir það að við Stefán og Arthúr lentum ekki verr í því en það að fá áverka á bak og hendur og Arthúr fékk skurð á höfuðið,“ segir Anita Kristinsdóttir, sem missti stjórn á bílnum sínum rétt fyrir utan Hólmavík með þeim afleiðingum að bíll hennar fór tvær veltur.

„Landspítalinn verður ekki rekinn án lækna“

Stjórn Félags læknanema harmar því að Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélag Íslands sjái sig knúin til þess að boða til verkfalls en þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.

Hælisleitandi í hungurverkfall

Hælisleitandinn Adam Ibramhim Pasha frá Írak hóf hungurverkfall á mánudaginn en síðastliðinn föstudag hafnaði Útlendingastofnun umsókn hans um hæli hér á landi.

„Koma gömlu konurnar, eina ferðina enn!“

Tvær systur ætla sér að ganga allar götur á höfuðborgarsvæðinu og eru komnar vel áleiðis með verkið. Þær fara út í öllum veðrum og stefna jafnvel á að ganga til Ísafjarðar næsta sumar.

Grunur um ebólusmit í New York

Starfsfólk á spítala í New York rannsakar nú hvort læknir í borginni sé smitaður af Ebólu. Þetta kemur fram í frétt hjá Sky News.

Sjá næstu 50 fréttir