Fleiri fréttir

Vopnaði ræninginn gengur enn laus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki enn fundið ræningjann, sem rændi 30 þúsund krónum úr söluturni við Grundarstíg í Reykjavík á föstudagskvöldið, ef marka má skeyti frá lögreglunni í morgun.

Hjúkrunarfræðingar efna til mótmæla við Landspítalann

Aðgerðarhópur hjúkrunarfræðinga við Landspítalann ætlar að efna til mótmæla þegar fulltrúar þeirra mæta á fund með forstjóra spítalans og velferðarráðherra í dag, en fundarstaðnum hefur verið haldið leyndum til þessa, að því er segir í tilkynningu frá hjúkrunarfræðingum.

Borut Pahor kjörinn forseti Slóveníu

Borut Pahor var kjörinn forseti Slóveníu í gærdag. Þegar nær öll atkvæði höfðu verið talin hafði hann hlotið 67% atkvæða en keppinautur hans, Danilo Turk fráfarandi forseti, hlaut 33%.

Minna eytt en áætlað var og tekjur hærri

Ríkissjóður eyddi 35 milljörðum króna meira en hann aflaði á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er þó umtalsvert betri staða en reiknað hafði verið með, eða sem nemur 19,1 milljarði króna. Þetta kemur fram í mánaðarhlutauppgjöri A-hluta ríkissjóðs í október.

Breið sátt um minni álögur

Fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir árið 2013 var samþykkt í bæjarstjórn í síðustu viku. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknarflokks segir aðhald í rekstri einkenna fjárhagsáætlunina en á sama tíma sé haldið uppi öflugu þjónustustigi með hag barnafjölskyldna að leiðarljósi. Fulltrúar Samfylkingar og VG segja álögur á fjölskyldufólk í bænum hækka.

Nýr Landspítali verði í ríkisframkvæmd

Lagt er til að bygging nýs Landspítala við Hringbraut verði hefðbundin opinber ríkisframkvæmd og horfið verði frá svokallaðri leiguleið sem fyrirhugað var að fara, að því er fram kemur í minnisblaði sem Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra lögðu fram á ríkisstjórnarfundi á föstudag.

Fannfergið tekur í budduna

Fannfergi er víða norðanlands og þá ekki síst í Fjallabyggð; á Siglufirði og Ólafsfirði þarf að leita nokkuð langt aftur til að finna jafnmikinn snjó. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að haustið hafi verið um margt sérstakt. Skemmst sé að minnast jarðskjálftahrinu norðanlands sem var leyst af með hörkuvetri. Hins vegar gangi daglegt líf sinn vanagang.

Tugir smábáta vilja á makríl

Landssambandi smábátaeigenda (LS) hafa borist yfir 70 tilkynningar frá útgerðarmönnum smábáta um að þeir stefni á makrílveiðar í sumar komanda. Í sumar sem leið stunduðu 17 bátar makrílveiðar með handfærum og veiddu samtals 1.100 tonn.

Klæddust flotgöllum til öryggis

Um 30 gráða slagsíða kom á Þórunni Sveinsdóttur VE þegar verið var að hífa veiðarfæri skipsins úr festu út af Vestfjörðum. Lítil hætta er talin hafa verið á ferðum en talsverð bræla var á miðunum þegar atvikið átti sér stað. Skipverjar höfðu þó varann á og klæddust flotgöllum til öryggis, eins og Slysavarnaskóli sjómanna leggur áherslu á að sé gert.

Ívar byggir gistihús í Stöðvarfirði

Ívar Ingimarsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, hefur ákveðið að snúa sér að ferðaþjónustu á Austfjörðum og er að hefja smíði gistihúss í botni Stöðvarfjarðar.

Um allt land: Stöðvarfjörður sóttur heim

Kristján Már Unnarsson og Friðrik Þór Halldórsson, kvikmyndatökumaður, fóru á Austfirði og hittu þar fyrir kunnan knattspyrnukappa og fleira áhugavert fólk.

Óttaðist um líf sitt

Ungur maður sem var ógnað af ræningja með byssu í söluturni í fyrrakvöld segist hafa óttast um líf sitt. Hann hélt í fyrstu að um grín væri að ræða. Lögregla leitar ræningjans ennþá.

Guðmundur Kristjánsson í Klinkinu

Forstjóri Brims óttast annað efnahagshrun nái hugmyndir ríkisstjórnarinnar um að gjörbylta sjávarútvegi fram að ganga. ann segist upplifa ástandið eins og árið 2007

Einmana Georg var ekki einn

Í ljós er komið að ein tegund af risaskjaldbökum dó sennilega ekki út í sumar þegar hin yfir 100 ára gamla risaskjaldbaka Einmanna George drapst á Galapagos eyjum. Vísindamenn hafa nú fundið 17 slíkar skjaldbökur á lífi á einni af eyjunum.

Ljós tendruð á Óslóartré

Ljós voru tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli á fimmta tímanum í dag. Það var sex ára gamall norsk-íslenskur piltur, Jörundur Ísak Stefánsson, sem fékk þann heiður að tendra ljósin.

Öryggismál hjá Samskipun í endurskoðun

Öryggismál hjá Samskipum eru í endurskoðun eftir að tveimur ungum hælisleitendum tókst að laumast um borð í flutningaskipið Helgafell og sigla til Englands. Ekki er ljóst hvort Samskip verði sektað af yfirvöldum þar ytra.

Styður Guðbjart í formannsslagnum

„Guðbjartur og Árni Páll eru báðir frambærilegir í alla staði. En ég vel þann sem ég tel líklegri til að geta sameinað jafnaðarmenn, og það er Guðbjartur.“

Elva Brá er fundin

Elva Brá Þorsteinsdóttir, sem lögreglan lýsti eftir fyrir helgi, er fundin.

Flughált á fjallvegum

Búist er við því að flughált verið á fjallvegum vestan- og norðvestantil, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þar hefur hlánað í dag og með bleytu ofan í snjó sem fyrir er má reikna með að staðbundið verði flughált og varasamt í hvössum vindinum. Þá er gert ráð fyrir vaxandi hríðarveðri á fjallvegum á Austfjörðum með kvöldinu og vindhviðum í Öræfasveit frá því seint í kvöld.

Hjúkrunarfræðingar fengu ekki fund með forsætisráðherra

"Þetta eru ekki einhverjar skipulagðar hópuppsagnir,“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir, varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. RÚV greindi frá því í hádegisfréttum sínum að tugir hjúkrunarfræðinga hefðu sagt upp störfum á Landspítalanum á föstudaginn. Ragnheiður segir að þessar uppsagnir hafi ekki verið gerðar í samráði við félagið og því viti hún ekki hversu margir hafi sagt upp.

Konan í Kaupmannahöfn útskrifuð af sjúkrahúsi

Íslenska konan sem féll í Peblingevatnið á Nörrebro í Kaupmannahöfn aðfararnótt laugardagsins hefur verið útskrifuð frá Rigshospitalet. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur tilkynnt fjölskyldu hennar um það.

Illskeytt vampíra vekur upp vonir um ferðamannaiðnað

Síðustu daga hafa íbúar í þorpinu Zarozje í vesturhluta Serbíu verið á varðbergi vegna vampíru sem er sögð ganga laus á svæðinu. Ferðamenn hafa hinsvegar tekið annan pól í hæðina og streyma nú í þennan afskekkta hluta landsins.

Höskuldur ánægður með stöðu sína

"Ég er bara mjög ánægður með þá kosningu sem ég fékk í fyrsta sætið. Þetta er töluvert meira en ég gerði mér væntingar um í ljósi þess að ég var að keppa við formann flokksins," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann mun skipa annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, verður í fyrsta sæti.

Dansaði sig til blóðs

Það gekk heldur erfiðlega hjá hinum 29 ára gamla Navid Rezvani í undanúrslitum norsku hæfileikakeppninnar Norske Talenter.

Vilborg dansar við skugga á suðurskautinu

Vilborg Arna Gissurardóttir suðurskautsfari hefur nú gengið tæplega tvöhundruð kílómetra á um hálfum mánuði. Hún heldur í góða skapið þrátt fyrir að hafa glímt við veikindi og óblíða veðurguði og dansaði til að mynda við skuggann sinn í gær.

Ræninginn af erlendu bergi brotinn

Lögreglan leitar að enn að manni sem réðst inn í söluturn í Reyjavík á föstudagskvöldið með byssu og ógnaði starfsmanni.

Ívar Ingimarsson á leið í framboð?

Eftir atvinnumannsferil í ensku knattspyrnunni er Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson fluttur heim til Austurlands og hefur sterkar skoðanir um það hvar tækifæri landsbyggðarinnar liggja og til hvaða aðgerða þurfi að grípa. Hann og eiginkona hans, Hrefna Dagbjört Arnardóttir frá Breiðdalsvík, eru viðmælendur Kristjáns Más Unnarssonar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 að loknum fréttum kl. 18.55 í kvöld.

Ljósin tendruð á Óslóartrénu

Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli klukkan fjögur í dag. Rúm sextíu ár eru síðan að íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf og hefur það ávallt átt sinn stað á Austurvelli. Það verður sex ára gamall norsk-íslenskur piltur, Jörundur Ísak Stefánsson, sem fær þann heiður að tendra ljósin.

Tvíburar rífast í móðurkviði

Meðgöngumiðstöð Lundúna hefur birt ótrúlegt myndband sem sýnir erjur tvíbura í móðurkviði. Systkinin virðast vera heldur pláss og sparka til og frá í von um að koma sér sem best fyrir áður en stóra stundin rennur upp.

CCP færði Taflfélagi Reykjavíkur veglega gjöf

Tölvuleikjafyrirtækið CCP sem framleiðir og rekur fjölspilunarleikinn Eve online færði Taflfélagi Reykjavíkur í gær að gjöf öflugan skjávarpa, fartölvu af nýjustu gerð auk peningastyrks.

Byssumanns enn leitað

Lögreglan leitar að enn að manni sem réðst inn í söluturn í Reykjavík á föstudagskvöldið með byssu og ógnaði starfsmanni.

Sjá næstu 50 fréttir