Öryggismál hjá Samskipun í endurskoðun 2. desember 2012 16:24 MYND/SAMSKIP
Öryggismál hjá Samskipum eru í endurskoðun eftir að tveimur ungum hælisleitendum tókst að laumast um borð í flutningaskipið Helgafell og sigla til Englands. Ekki er ljóst hvort Samskip verði sektað af yfirvöldum þar ytra. Við sögðum frá því í fyrir helgi að þeim Adam Aamer og Alhawari Agukourchi, sem voru handteknir þar sem þeir reyndu að smygla sér um borð í þotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli í júlí, hefði tekist að flýja land sitt skömmu síðar og því væri ákæra gegn þeim í uppnámi. Mönnunum tókst að smygla sér um borð í flutningaskip Samskipa, Ms Helgafell, sem var á leið til Evrópu og þeir komu ekki í leitirnar fyrr en við komuna til Immingham þar sem þarlend lögregluyfirvöld handtóku þá. Anna Guðný Aradóttir upplýsingafulltrúi Samskipa, segir að í kjölfarið af þessum atburði hafi verið ákveðið að taka öryggismálin á svæði Samskipa í Sundahöfn í endurskoðun enda taki fyrirtækið uppákomu sem þessa mjög alvarlega. Að sögn Önnu Guðnýjar er ekki ljóst hvort málið hafi einhverjar afleiðingar fyrir Samskip á Englandi, en hún segir að sér sé ekki kunnugt um hvort sekt vegna þessa hafi borist. Í viðtali við fréttastofu skömmu eftir flóttatilraunina í júlí sögðust mennirnir oftsinnis hafa gert misheppnaðar tilraunir til að komast úr landi með þessum hætti. Þetta mun þó vera í fyrsta sinn sem laumufarþegum tekst að komast úr landi með skipum Samskipa en Anna Guðný segir að á síðustu árum hafi öryggisgæsla verið efld gríðarlega á svæðinu með tilheyrandi kostnaði en í ljósi þess að mönnunum hafi tekist ætlunarverk sitt hafi verið ákveðið að fara á ný yfir öryggisreglurnar. Eins og áður sagði voru tvímenningarnir handteknir af lögreglu í Immingham og samkvæmt ríkislögreglustjóra hafa engar frekari upplýsingar borist frá breskum yfirvöldum vegna málsins. Ríkissaksóknari hafði birt ákært mennina fyrir að fara um borð í þotuna og fyrir að brjótast inn á flugvallarsvæðið en þegar upp komst um að þeir hefðu flúið land var málið endursent úr dómi og er það nú í bið. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknara hefur ekki verið ákveðið hvort ákæran gegn þeim verði send til meðferðar í Englandi, en slíkt kemur til greina.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira