Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líkamsárás eftir skólaball FB - Óskað eftir vitnum Ráðist var á 17 ára gamlan pilt með grófum hætti fyrir framan skemmtistaðinn Rubin í Öskjuhlíð aðfaranótt föstudagsins 4. nóvembersíðastliðinn. Pilturinn var að koma af dansleik á vegum Fjölbrautaskólans í Breiðholti þegar árásin átti sér stað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að árásinni og eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um málið vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 10.11.2011 09:42
Drukku orkudrykk og enduðu á spítala Tveir unglingsdrengir hafa verið lagðir inn á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á síðustu dögum eftir að hafa drukkið orkudrykki. Sextán ára drengur, Tryggvi Þór Pétursson, var sendur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna á þriðjudaginn eftir að hafa drukkið nær einn lítra af orkudrykknum Red Rooster. Hann fór heim samdægurs. Annar drengur kom á spítalann í síðustu viku og þurfti að dvelja þar yfir nótt sökum hjartsláttartruflana. 10.11.2011 09:00
Vangaveltur um að Kate Middleton sé ólétt Töluverðar vangaveltur hafa verið í alþjóðlegum fjölmiðlum undanfarið um að Kate Middleton eiginkona Vilhjálms Bretaprins sé ólétt. 10.11.2011 07:48
Stór jarðskjálfti í Mýrdalsjökli Jarðskjálfti upp á 3,1 á Richter varð á Öskjusvæðinu í Mýrdalsjökli laust fyrir klukkan þrjú í nótt, nánar til tekið sjö og hálfan kílómetra norð-norðaustur af Hábungu. Síðan hefur verið rólegt á svæðinu. 10.11.2011 07:46
Líklegt að Mario Monti taki við af Berlusconi Talið er að Mario Monti verði forsætisráðherra Ítalíu þegar Silvio Berlusconi segir af sér á næstu dögum. 10.11.2011 07:45
Jarðskjálfti leggur hótel í rúst í Tyrklandi Björgunarsveitir leita nú að tugum manna sem grafnir eru undir húsrústum eftir öflugann jarðskjálfta í austurhluta Tyrklands í gærkvöldi. Að minnsta kosti sjö manns fórust í skjálftanum sem mældist 5,6 á Richter. 10.11.2011 07:41
Losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu Í birtingu verður farið að losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu, sem var dregin til Fáskrúðsfjarðar um helgina eftir að hún missti stýrið út af Hornafilrði. 10.11.2011 07:40
Ekkert bólar á nýrri stjórn í Grikklandi Enn bólar ekkert á nýrri þjóðstjórn í Grikklandi og raunar hefur einn af minni stjórnmálaflokkum landsins þegar gengið á dyr í samningaviðræðunum sem nú standa yfir. 10.11.2011 07:38
Brotist inn í söluturn Brotist var inn í söluturn við Melabraut í Hafnarfirði í nótt og þaðan stolið tóbaki og skiptimynt úr peningakössum. 10.11.2011 07:37
Svarti nashyrningurinn útdauður í Vestur-Afríku Talið er að svarti nashyrningurinn í vesturhluta Afríku sé nú útdauður þar í landi. Nokkrir slíkir finnast þó enn í dýragörðum. 10.11.2011 07:29
Rosabaugur yfir Reykjanesbæ Rosabaugur um tunglið sást yfir Reykjanesbæ í gærkvöldi, en samkvæmt gamalli hjátrú á síkt fyrirbæri að boða váleg tíðindi. 10.11.2011 07:26
Fjölmenn leit að ferðamanni á Fimmvörðuhálsi Á annað hundrað björgunarsveitarmenn Landsbjargar leita nú að erlendum ferðamani á Fimmvörðuhálsi og á Mýrdalsjökli, eftir að hann hringdi í neyðarlínuna um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. 10.11.2011 07:06
Stjórnarflokkarnir deila um gangagerð Fresta þurfti fundi fjárlaganefndar í gær vegna andstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar við fjárheimild vegna Vaðlaheiðarganga. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi flokksins í gær og loks náðist sátt um það seinnipartinn. 10.11.2011 07:00
Tíminn til að hemja hlýnun að renna út „Við erum að stefna í ranga átt varðandi loftslagsbreytingar,“ segir Fatih Birol, aðalhagfræðingur Alþjóðlegu orkustofnunarinnar. Hann segist ekki bjartsýnn á að leiðtogar ríkja heims verði tilbúnir til að færa þær fórnir, sem þarf til að breyta um stefnu. 10.11.2011 05:30
Erfið myndun þjóðstjórnar Viðræður um myndun þjóðstjórnar í Grikklandi standa enn yfir. Um miðjan dag í gær gengu fulltrúar litla hægriflokksins Laos á dyr og var þá gert hlé á viðræðunum, sem hafa staðið yfir frá því á sunnudag. Þeim verður þó haldið áfram í dag. 10.11.2011 05:00
Leikjatölvum stolið Brotist var inn í félagsmiðstöð unglinga í Garði um síðustu helgi og þaðan stolið þremur leikjatölvum ásamt fylgihlutum og leikjum. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. 10.11.2011 05:00
Teigsskógur og Hálsaleið ekki gerleg Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að lagning Vestfjarðavegar um Teigsskóg sé ekki á borðinu. Það muni skapa miklar deilur og málssóknir sem líklegt sé að tapist fyrir dómsstólum. Þá verði svokölluð Hálsaleið ekki farin, enda séu heimamenn mótfallnir henni. 10.11.2011 04:30
Ekki um tvo erlenda menn að ræða Ekki var um tvo erlenda karlmenn að ræða þegar ráðist var á tæplega tvítuga konu í Vestmannaeyjum á sunnudagsmorgninum síðastliðnum. Konan hefur dregið vitnisburð sinn til baka en hefur ekki viljað upplýsa hver eða hverjir það voru sem réðust á hana. 10.11.2011 04:00
Árni Johnsen neitar að lúta niðurstöðunni Húsafriðunarnefnd ákvað í gær að skyndifriða Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfi. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður nefndarinnar, segir þetta þýða að hætta verði byggingu Þorláksbúðar. 10.11.2011 04:00
Prufuskoti flýtt til ársins 2014 Geimferðastofnun Bandaríkjanna, hefur ákveðið að flýta fyrsta reynsluflugi Orion-geimfarsins. 10.11.2011 03:00
Vill útskýringar á frávísun máls Eygló Harðardóttir þingkona hefur óskað eftir fundi í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis vegna frávísunar Héraðsdóms á máli Milestone gegn Karli Wernerssyni. Rökstuðningur við frávísunina er að lagabreytingar Alþingis á gjaldþrotalögum hafi ekki verið nægilega skýrar. 10.11.2011 03:00
Slær á vonir um að ný eyja sé að verða til Útlit er fyrir að jarðhræringum og gosvirkni á hafsbotni rétt sunnan við eyjuna El Hierro, sem er hluti af Kanaríeyjaklasanum, sé lokið eftir margra mánaða óróa. 10.11.2011 01:30
14 ára stúlku haldið í eitt ár sem kynlífsþræl Grunur leikur á að 14 ára stúlku hafi verið haldið sem kynlífsþræl í íbúð í Gautaborg í eitt ár. Stúlkan, sem lögreglan frelsaði fyrir um viku, segist hafa búið við hótanir, ofbeldi eða nauðganir á hverjum degi. Þrír karlar og ein kona eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þau neita öll sök. 10.11.2011 01:00
Símastarfsmaður er grunaður um hlerun Póst- og fjarskiptastofnun hefur nú til rannsóknar mál sem varðar meinta símhlerun starfsmanns símafyrirtækis. Þetta staðfestir Hrafnkell Gíslason, forstjóri PFS, við Fréttablaðið. Hann segir þetta mál það fyrsta sinnar tegundar sem stofnunin hafi fengið til athugunar. Því sé ekki lokið en muni ljúka í þessum mánuði. 10.11.2011 00:01
NASA birtir myndir af smástirni Smástirnið 2005 YU55 skaust framhjá jörðinni á rúmlega 48.000 kílómetra hraða í gær. YU55 var í einungis 324.600 kílómetra fjarlægð frá jörðinni - smástirnið var þannig nær jörðinni en tunglið. 9.11.2011 22:57
Ekið á ungan pilt í Kópavogi Ekið var á ungan pilt í Kópavogi rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Slysið varð á Fífuhvammsvegi þar sem beygt er út á Hafnarfjarðarveg. Pilturinn var fluttur á slysadeild en lögregla hefur ekki upplýsingar um meiðsli hans. 9.11.2011 22:46
Fékk röddina og sagðist elska pabba sinn Fyrirburinn Bronte Cassell, nú tveggja ára, sagði sín fyrstu orð eftir að læknar fjarlægðu slöngu úr barka hennar. Hún sagðist elska pabba sinn. 9.11.2011 22:30
Pedro og Buddy aðskildir Forboðnar ástir finnast ekki einungis hjá mannfólkinu. Gæslumenn í dýragarðinum í Toronto uppgötvuðu fyrir nokkru að tvær karlkyns mörgæsir, þeir Pedro og Buddy, hefðu fellt hugi saman og ruglað reitum. 9.11.2011 21:30
Var 150 kíló - sá ljósmynd og fékk nóg Ljósmynd sem tekin var í kvennafélagsferð varð til þess að kona, sem orðin var tæp hundrað og fimmtíu kíló, ákvað að tímabært væri að gera eitthvað í sínum málum. 9.11.2011 19:10
Tom Cruise fær sumarvinnu á Íslandi Kvikmyndastjarnan Tom Cruise mun að öllum líkindum dvelja á Íslandi í nokkrar vikur næsta sumar við upptökur á tólf milljarða króna Hollywood-stórmynd. Búist er við að tvöhundruð manna kvikmyndalið frá Universal fylgi honum til landsins. 9.11.2011 19:00
Fartölvu stolið í innbroti í Grafarholti Tilkynnt var um innbrot í íbúðarhús í Grafarholti rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Þjófarnir höfðu spennt upp svalahurð og farið inn í íbúðina. Þeir höfðu á brott með sér fartölvu. Þjófanna er nú leitað. 9.11.2011 22:31
Fágætt eintak af smásögu eftir Hemingway boðið upp á Íslandi Næstkomandi laugardag verður blásið til bókauppboðs á vefnum uppboð.is. Að uppboðinu standa Gallerí Fold og Bókin Klapparstíg. 9.11.2011 22:00
Hótel hrundi í 5.7 stiga jarðskjálfta í Tyrklandi Sex hæða hótel og nokkrar aðrar byggingar hrundu í 5.7 stiga jarðskjálfta sem reið yfir austur-Tyrkland nú fyrir stuttu. 9.11.2011 21:30
FIFA lúffar fyrir Englendingum og leyfir valmúann Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur dregið í land og ákveðið að leyfa Enska landsliðinu að bera valmúamerki á keppnistreyjum sínum í landsleik á móti Spáni um næstu helgi. Valmúamerkið nota Bretar í ákveðinn tíma á hverju ári til þess að minnast fallinna hermanna. 9.11.2011 21:30
Stúdentar mótmæla í Lundúnum Þúsundir stúdenta mótmæltu í Lundúnum í dag. Mótmælendurnir gengu í gegnum miðbæ Lundúna og í átt að Dómkirkju Páls Postula, en þar hafa mótmæli gegn auðvaldi og fjármálakerfinu farið fram síðustu vikur. 9.11.2011 21:30
Hélt hún væri með flensu en missti fæturna Fyrst var talið að um hefðbundna flensu væri að ræða, stuttu síðar var hún flutt í skyndi á spítala og um morguninn vaknaði hún án fóta. Í Íslandi í dag heyrum sögu þriggja barna einstæðrar móður sem venst nú algjörlega nýju lífi. 9.11.2011 21:00
Íslensku menntaverðlaunin afhent við fjölmenna athöfn Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2011 við fjölmenna athöfn í Sjálandsskóla í Garðabæ í kvöld. 9.11.2011 20:47
Margt bendir til þess að sjúkur brennuvargur sé á ferli Brennuvargar ollu milljónatjóni í Vestmannaeyjum í gær þegar kveikt var í síldarnót. Þetta er ein af mörgum óupplýstum íkveikjum í eyjum á undanförnum árum. Bæjarstjórinn segir sjúkan einstakling ganga lausan. 9.11.2011 19:45
Samverustundir í Hafnarfirði Boðað hefur verið til samverustunda í Hafnarfirði í kvöld vegna sviplegs fráfalls karlmanns á fertugsaldri sem lést í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. 9.11.2011 15:59
Fannst látinn í Hafnarfirði Karlmaður fannst látinn á opnu svæði í Hafnarfirði í gærkvöld. Þetta staðfestir lögreglan í samtali við Vísi. Hún segir að maðurinn hafi látist af völdum veikinda og vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málavexti. 9.11.2011 12:03
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9.11.2011 18:56
Vilja að lántaka vegna Vaðlaheiðarganga verði heimiluð Fjárlaganefnd Alþingis veitir fjármálaðherra heimild til þess að taka lán upp á einn milljarð króna vegna Vaðlaheiðarganganna, samkvæmt samþykkt meirihluta fjárlaganefndar. Þetta kom fram í útvarpsfréttum ríkisútvarpsins. 9.11.2011 18:00
Fær milljón eftir hjartastopp við Fylkisheimilið Íþróttafélagið Fylkir var í dag dæmt til að greiða karlmanni rúmlega eina milljón króna í bætur vegna slyss sem hann varð fyrir við félagsheimili liðsins í Árbæ í september árið 2005. 9.11.2011 16:05
Jólageitin risin á fætur Sænska jólageitin við Ikea er risin á fætur aftur með aðstoð kranabíls eftir óvæntan skell sem hún fékk í rokinu aðfaranótt þriðjudagsins. Hún hefur verið kirfilega fest á sinn stað í Kauptúninu og miklar vonir eru bundnar við það að hún standi af sér það óveður sem hugsanlega kann að koma á næstunni. 9.11.2011 15:57
Þór heimsækir Ísfirðinga Nýja varðskipið Þór er nú komið á Ísafjörð en þar var tekið á móti fleyinu með pompi og pragt í dag. Fulltrúar frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, björgunarsveitum og lögreglu og slökkviliði fóru fyrst um borð og skoðuðu skipið sem er allt hið glæsilegasta. Skipið var síðan opnað almenningi og verður það til klukkan sex í dag. Stanslaus straumur fólks hefur legið í skipið. 9.11.2011 15:37