Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill ljúka aðildarviðræðum við ESB Kristbjörg Þórisdóttir var kjörin formaður Landssambands Framsóknarkvenna á nýafstöðnu landsþingi en aðeins munaði einu atkvæði á henni og Þuríði Bernódusdóttur. Þuríði og Kristbjörgu greindi á um á um næstu skref í ESB viðræðum Íslands. 5.9.2011 11:53
Segir ótrúlegt að Geir hafi ekki fengið að sjá málsgögnin Verjandi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, krafðist þess í morgun fyrir Landsdómi að málinu gegn honum verið vísað frá og sagði ótrúlegt að Geir hefði ekki enn séð málsgögn. 5.9.2011 11:27
Frestun reglugerðar blaut tuska í andlit neytenda Samtök lífrænna neytenda og Slow Food Reykjavík gagnrýna Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, harðlega fyrir frestun gildistöku á reglugerð um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs sem átti að taka gildi 1. september. Ráðherra hefur frestað gildistökunni til 1. janúar 2012. 5.9.2011 11:02
Mótmæla harðlega niðurskurði í velferðarmálum Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu mótmæla harðlega frekari niðurskurði í velferðarmálum á fjárlögum næsta árs samkvæmt tilkynningu frá aðildarfélögunum en félagsfundur samtakanna var haldinn á Hrafnistu í Kópavogi um helgina. 5.9.2011 10:45
Ríkisstjórnarfundir verða hljóðritaðir Ríkisstjórnarfundir verða hljóðritaðir en frumvarp um Stjórnarráð Íslands var samþykkt úr allsherjarnefnd Alþingis í morgun. 5.9.2011 10:28
Ikea notaði pólítíska fanga í sófasmíði Ikea notaðist við vinnuafl fanga á áttunda áratugnum, þetta kemur fram í gögnum Stasí. Þýska ríkissjónvarpið segir frá því að upp hafi komist um samstarfið við rannsóknir á gögnum frá austur-þýsku leyniþjónustunni Stasí. 5.9.2011 10:09
Lýst eftir vitnum á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að árekstri sem átti sér stað á bifreiðastæði við Brunngötu á Ísafirði. En þá var ekið utan í mannlausa Subaru Legacy bifreið, rauða að lit. Sá er árekstrinum olli keyrði af vettvangi án þess að gera hreint fyrir sínum dyrum. Talið er að áreksturinn hafi átt sér stað á milli kl.03:00 til 15:00 föstudaginn 26. ágúst sl. Sími lögreglunnar er 450 3730. 5.9.2011 10:00
Fagna áformum kínverska kaupsýslumannsins Framsýn - stéttarfélag hvetur stjórnvöld og aðra til þess að vinna þétt og styðjandi við þá aðila sem vinni að því að styrkja- og bæta atvinnu- og mannlíf í Þingeyjarsýslum. Á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsis í gær voru fyrirhuguð kaup kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum rædd. 5.9.2011 08:44
Sjö tilkynningar hjá söfnuði Votta Jehóva Öldungaráð Votta Jehóva hefur fengið sjö tilkynningar um kynferðisbrot inn á borð til sín síðan árið 1960. Eitt málið var kært til lögreglu, en var vísað frá. 5.9.2011 07:00
Frávísunarkrafa Geirs tekin fyrir í landsdómi Landsdómur kemur saman nú fyrir hádegi þar sem frávísunarkrafa verjanda Geirs Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verður tekin fyrir. Þetta er önnur frávísunarkrafan í málinu en í fyrra skiptið hafnaði landsdómur þeirri kröfu verjandans að vísa bæri málinu frá á grundvelli þess að dómurinn væri ekki rétt skipaður. 5.9.2011 06:48
Hillary hrífur Cheney Dick Cheney, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, lofar framgöngu Hillary Clinton í embætti utanríkisráðherra í Bandaríkjanna í hástert. Hann segir að áhugavert yrði að vita hvernig forseti hún yrði. 5.9.2011 06:30
Forsetafrúin setur fjölmiðlabann á börnin sín Carla Bruni, eiginkona Nicolas Sarkozy forseta Frakklands, segir að hún muni gera hvað sem er til þess að hindra það að barnið sem hún ber undir belti komist í kastljós fjölmiðla. Í samtali við TF1 sjónvarpsstöðina í Frakklandi sagði hún að hún myndi gera hvað sem í hennar valid stæði til þess að koma í veg fyrir að myndir af barninu kæmust í fjölmiðla. Bruni sagðist hafa gert alvarleg mistök í það eina skipti sem hún leyfði myndatökumönnum að taka myndir af tíu ára gömlum syni sínum, sem hún átti áður en hún kynntist Sarkozy. Bruni sagði líka að hún hefði ekki hugmynd um hvort hún ætti von á strák eða stelpu. 5.9.2011 06:30
Fyrrverandi Frakklandsforseti ákærður Jacques Chirac, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið ákærður fyrir að hafa fjármagnað kosningasjóði sína með ólögmætum hætti þegar hann var borgarstjóri í París. Fréttavefur BBC segir hins vegar að óvíst sé hvort réttarhöld yfir forsetanum fyrrverandi geti farið fram því hann sé orðinn 78 ára gamall og berjist við minnisleysi. Ef réttarhöldin fara fram þykir næstum alveg víst að Chirac verði ekki viðstaddur þau. Chirac var borgarstjóri í París á árunum 1977 til 1995. BBC segir að viðurlögin við þeim brotum sem hann er ákærður fyrir geti verið allt að 10 ára fangelsi og sekt sem nemur um 25 milljónum króna. 5.9.2011 06:30
Þrír merkir minnisvarðar skemmdir Þrír sögufrægir minnisvarðar hafa verið skemmdir í Róm, höfuðborg Ítalíu að undanförnu. Í einu tilfellinu náðust myndir á öryggismyndavél af manni sem hjó tvö stykki úr gosbrunni í Piazza Navona. Nokkrum klukkustundum síðar sást maður henda steini í hinn fræga Trevi gosbrunn í miðborg Rómar. Lögreglan segist síðan hafa séð námsmann klífa upp vegg á Colosseum hringleikahúsinu fræga til þess að höggva af marmarastykki. BBC segir að lögreglan gruni að í einhverjum fyrrgreindra tilfella hafi getað verið um sama einstakling að ræða. Þrátt fyrir að bæði öryggismyndavélum og lögreglumönnum hafi verið fjölgað segir lögreglann það verða æ erfiðara að vernda ævaforn minnismerki í borginni. 5.9.2011 06:30
Mengun gæti breytt ásýnd Þingvallavatns Aukin bílaumferð um Þingvelli í kjölfar vegabóta á Lyngdalsheiði getur haft aukna mengun í för með sér í þjóðgarðinum. Auka þarf eftirlit með mengun frá veginum segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. 5.9.2011 06:00
Innflytjendamálin ekki lengur málið Skoðanakannanir sýna enn yfirburði vinstri flokkanna í Danmörku, nú þegar rétt rúm vika er eftir til kosninga, eftir þriggja kjörtímabila samfellda stjórnartíð hægri manna. Efnahagsvandi ríkisins yfirgnæfir önnur kosningamál. 5.9.2011 06:00
Fylgistap hjá flokki Merkel Flokkur Angelu Merkel kanslara Þýskalands tapaði verulegu fylgi í kosningum í sambandsríkinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Útgönguspár bentu til þess að Kristilegi demókrataflokkurinn, flokkur Merkel, hlyti 24 prósent atkvæða. Það er tæpum fimm prósentum minna en í síðustu kosningum. 5.9.2011 04:00
Mikið mannfall í Sýrlandi síðustu daga Fjöldi fólks lét lífið í mótmælum í Sýrlandi um helgina og margir til viðbótar voru handteknir. Alþjóðanefnd Rauða krossins er í höfuðborginni til að skoða aðbúnað særðra og aðgang að þeim sem eru í haldi lögreglu. 5.9.2011 04:00
Alþingi að ljúka olíuumræðu Frumvarp iðnaðarráðherra um leit, rannsóknir og vinnslu kolefnis verður til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í dag. Þá verða einnig rædd tvö frumvörp fjármálaráðherra um skattlagningu á kolvetnisvinnslu, en þau eru til annarrar umræðu. 5.9.2011 03:15
Friðarviðræður í Líbíu fóru út um þúfur Samningaviðræður uppreisnarmanna í Líbíu um að fylgjendur Gaddafis í borginni Bani Walid gæfust upp hafa farið út um þúfur. Í morgun vonuðust uppreisnarmennirnir hins vegar til þess að þeir gætu tekið borgina yfir án þess að til bardaga þyrfti að koma. 4.9.2011 21:47
Eldandi fjölskyldumaður í London Sálar popparinn og eitísgoðið Paul Young heldur tónleika í Hörpu í byrjun október. Kjartan Guðmundsson sló á þráðinn til söngvarans í London, fræddist um smellina, röddina og átrúnaðargoðin og náði að kría út úr honum uppskrift að dýrindis pastasósu. 4.9.2011 20:18
Segir vændisstarfsemi viðgangast á stefnumótasíðu Verkefnastýra hjá Stígamótum segir vændisstarfsemi viðgangast á íslenskri stefnumótasíðu þar sem fólk selur meðal annars kynlífsmyndbönd af sjálfu sér. Eigandi síðunnar þvertekur fyrir að um vændi sé að ræða, síðan sé ætluð fólki sem aðhyllist svokölluð djörf stefnumót. 4.9.2011 19:17
Indverskir læknar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa nú nokkrir indverskir læknar. Framkvæmdastjóri lækninga segir sjúkrahúsið leita til útlanda eftir starfskröftum þegar engar umsóknir berist frá íslenskum læknum. 4.9.2011 19:05
Setti bílrúðuvökva í drykk starfsmanns Starfsmaður á meðferðarheimilinu Geldingalæk þurfti að leita sér aðhlynningar á spítala eftir að unglingur á heimilinu laumaði eitruðum vökva í glas hjá honum. 4.9.2011 18:30
Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur Sesselja Ómarsdóttir dósent lærði að kafa á síðasta ári. Ástæðan fyrir því var áhugi hennar á lífverum undirdjúpanna sem mögulega er hægt að nýta í lyf framtíðarinnar. Sesselja sagði Sigríði B. Tómasdóttur frá því hvað getur leynst á hafsbotninum. 4.9.2011 17:50
Bjarni Benediktsson hefur efasemdir um jarðarkaup Nubos Það þarf að fara mjög vandlega yfir það hvaða skilyrðum það á að vera háð þegar aðilar ytan Evrópska efnahagssvæðisins sækjast eftir því að kaupa jarðir og lönd á Íslandi, segir Bjarni Bendiktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Bjarni segir það alls ekki vera sjálfgefið að fallast eigi á slíkt í öllum tilvikum. Kínverski auðjöfurinn Huang Nubo hefur, sem kunnugt er, sóst eftir að kaupa 300 ferkílómetra á Grímsstöðum á Fjöllum. 4.9.2011 17:35
Flugvél hvolfdi á Hellu Flugvél hvolfdi eftir að henni hlekktist á í flugtaki á Helluflugvelli í gærkvöld. Tveir voru í flugvélinni þegar atvikið átti sér stað en þá sakaði ekki. Lögreglan á Hvolsvelli og Rannsóknarnefnd flugslysa rannsaka málið. 4.9.2011 16:28
Lúðvík tekur sæti á Alþingi Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að taka sæti Þórunnar Sveinbjarnardóttur á Alþingi á morgun. Þórunn tilkynnti óvænt á þingfundi á föstudaginn að hún hygðist láta af þingstörfum og setjast á skólabekk í Háskóla Íslands. 4.9.2011 16:22
Dýrbítar drápu þrettán kindur Að minnsta kosti þrettán kindur hafa drepist á tveimur vikum vegna dýrbíta sem ganga lausir í Rangárvallasýslu. Allt bendir til þess að dýrbítarnir séu hundar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Sjö kindur fundust dauðar í Vestur-Landeyjum aðfararnótt laugardagsins ásamt þremur særðum lömbum. Í vikunni áður var búið að drepa þrjú lömb í Vestur - Landeyjum. Þá fundust jafnframt þrjú dauð lömb í Fljótshlíðinni. 4.9.2011 16:12
Ekið á tíu ára barn Ekið var á tíu ára gamlan dreng á hjóli í Laugardalnum um fimmleytið í dag. Hann var fluttur á slysadeild. Talið er að drengurinn hafi fótbrotnað en ekki er vitað um frekari meiðsl, samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum. Drengurinn var með hjálm á höfðinu þegar óhappið varð. 4.9.2011 16:00
Líðan konunnar stöðug Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi rétt fyrir klukkan tvö í dag með konu sem hafði veikst alvarlega í Hvannagilshnausum, sunnan við Álftavatn, fyrir hádegi í dag. Læknir á bráðamóttöku spítalans segir að ástand konunnar sé stöðugt en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvers eðlis veikindi hennar eru. 4.9.2011 15:03
Hópur fólks handtekinn fyrir að efna til vatnsslags Hópur ungs fólks sem boðaði til vatnsslags í almenningsgarði í Teheran höfuðborg Írans var handtekinn vegna uppátækisins á föstudaginn. Boð voru send út um slaginn á Facebook og var fólk hvatt til að mæta með vatnsbyssur og vatnsblöðrur. Lögreglustjóri staðfestir við írönsku fréttastofuna Mehr að fólkið hafi verið handtekið. Hann segir að fólk sem taki þátt í gjörningi af þessu tagi sé annað hvort heimskt eða beri enga virðingu fyrir lögunum. Hann segir að hart verði tekið á þeim sem efni til slíkra viðburða. 4.9.2011 14:58
Íbúðin í Arnarsmára ónýt Íbúðin við Arnarsmára í Kópavogi sem kviknaði í fyrr í dag er ónýt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Eldurinn kom upp rétt fyrir klukkan ellefu. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að enginn hafi verið í íbúðinni. Slökkvistarfi var að mestu leyti lokið fyrir hádegi en eldur hafði þá kraumað í íbúðinni um stund. 4.9.2011 14:51
Japanir þökkuðu fyrir sig Töluverður fjöldi fólks lagði leið sína á viðburðinn ,,Brosandi börn" í Háskólann í Reykjavík í gær til að njóta japanskrar menningar og styðja börn á hamfarasvæðunum í Japan. Vinir Japans og samtökin Fræið í Háskólanum í Reykjavík stóðu fyrir viðburðinum, en tilgangurinn var meðal annars að þakka Íslendingum stuðning og samhug eftir hamfarirnar í vor. Dagskráin var fjölbreytt og gæddu gestir sér m.a. á sushi, kökum og tei, brutu pappír, teiknuðu, dönsuðu og kepptu í japönskum leikjum. Sýndar voru allar japanskar bardagaíþróttir og er það í fyrsta sinn sem það er gert á Íslandi. 4.9.2011 14:06
Darling segir að Brown hefði átt að hætta fyrr Alistair Darling, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta, segir að hann hefði átt að þrýsta meira á Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra, um að láta af embætti forsætisráðherra. Fjármálaráherrann fyrrverandi sakar Brown um að hafa haldið of fast í völdin á meðan ringulreið og krísa ríkti í ríkisstjórninni. 4.9.2011 14:02
Forsætisráðherra stendur við fyrri yfirlýsingar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra stendur að fullu við yfirlýsingar sínar um að hlutur launa í landsframleiðslu hefði lækkað mikið og aldrei verið lægri. Ummælin lét hún falla í umræðum á Alþingi á föstudaginn. Samtök atvinnulífsins rengja þessar tölur forsætisráðherrans Umrædd hlutföll, 59% og 72%, séu af hugtakinu vergum þáttatekjum, ekki landsframleiðslu. Vergar þáttatekjur eru mun lægri fjárhæð en verg landsframleiðsla, segja Samtök atvinnulífsins. Jóhanna Sigurðardóttir segist hafa stuðst við tölur Hagstofunnar og vísar ásökunum um rangfærslur á bug. 4.9.2011 13:23
Jóhanna hvergi á förum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er hvergi á leið úr pólitík og mun leiða ríkisstjórnina í gegnum þann pólitíska vetur sem í vændum er, segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar. 4.9.2011 12:51
Má ekki einblína á virkjanagerð og verksmiðjur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að ekki megi einblína eingöngu á stórar fjárfestingar eins og virkjanagerð og verksmiðjuuppbyggingu í því augnamiði að efla atvinnulífið hér á landi. Árangur í hagkerfi tuttugustu og fyrstu aldarinnar felist fyrst og fremst í hugviti og þekkingu. Hann segir mikilvægt að líta til þess þótt það sé ekki alltaf stórt í sniðum. 4.9.2011 12:17
Vonast til þess að ná stjórn á Bani Walid í dag Bráðabirgðastjórnin í Líbíu vonast til þess að ná bænum Bani Waild, sem er eitt síðasta vígi Muammars Gaddafis, á sitt band án bardaga í dag. Uppreisnarmenn telja að Gaddafi hafi verið í felum í borginni ásamt tveimur sona sinna en flúið þaðan í gær. 4.9.2011 12:12
Þyrlan sótti veika konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú fyrir hádegið til að sækja konu sem veiktist alvarlega í Hvannagilshnausum, sunnan við Álftavatn. Von var á því að þyrlan myndi lenda á spítala í Reykjavík um hádegisbil. Ekki er vitað með vissu hvers eðlis veikindi konunnar eru. 4.9.2011 12:02
Miklir vatnavextir í Múlakvísl Rafmagnsmastur sem staðsett var í varnargarðinum við Múlakvísl féll í gærkvöldi en miklir vatnavextir hafa verið í ánni að undanförnu. Örlygur Jónasson starfsmaður hjá Rarik segist hafa fengið fréttir frá Vegagerðinni í gærmorgun um að varnargarðurinn gæti gefið sig og lét þá aftengja rafmagnslínuna, en um svokallaða tengilínu er að ræða sem flytur rafmagn á milli Víkur og Klausturs. Engin truflun varð þó á sambandi enda er um nokkurksonar varalínu að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni stafa vatnavextirnir fyrst og fremst vegna mikilla rigninga síðustu daga sem og bráðnun jökla en farið er að sjatna í ánni nú. 4.9.2011 11:46
Búið að slökkva eldinn í Arnarsmára Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í íbúð í Arnarsmára í Kópavogi nú í morgun. Enginn var í búðinni þegar eldurinn kom upp, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hve miklar skemmdir urðu á íbúðinni. 4.9.2011 11:12
Eldur í Arnarsmára Eldur kom upp í íbúð í Arnarsmára í Kópavogi nú í morgun. Enginn er í íbúðinni, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag þegar meiri upplýsingar hafa borist. 4.9.2011 10:44
Gaddafi flúinn frá Ban Walid Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, er sagður hafa flúið frá bænum Bani Walid eftir að uppreisnarmenn gáfu stuðningsmönnum hans stuttan tíma til að gefast upp í gær. Uppreisnarmenn segja að þeir muni ekki gefast upp fyrr enn Gaddafi náist, lífs eða liðinn. 4.9.2011 10:37
Þúsundir manna á Ljósanótt Talið er að allt að 60 þúsund manns hafi verið á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær, laugardag. Hátíðin náði hámarki með stórglæsilegri flugeldasýningu sem björgunarsveitamenn sáu um. Hátíðin fór að mestu leyti vel fram en þó handleggsbrotnaði níu ára gömul stúlka í gær þegar hún festi hendina í leiktæki í tívolíinu og var hún flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús. Lögreglan segir að fjöldi fólks hafi skemmt sér frameftir nóttu og næturlífið hafi farið vel fram. 4.9.2011 10:12