Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Betra að einbeita sér að fjármálum Byggðastofnunar en skipan stjórnar Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist afskaplega leið yfir þeirri gagnrýni sem hún fær frá þingflokki VG vegna skipunar nýrrar stjórnar Byggðastofnunar. Hún vill að menn einbeiti sér að því að bæta fjárhag stofnunarinnar frekar en skipan stjórnarinnar. 24.8.2011 10:52
Áframhaldandi átök á Gaza Árásir héldu áfram á landamærum Gaza-svæðisins og Ísrael í dag. Ísrael gerðu loftárásir á Gaza og Palestínumenn skutu sprengjum til baka. Hamas samtökin segja einn Palestínumann látinn eftir árásirnar. 24.8.2011 10:14
Nakin Nigella hneykslar nágranna sína Nágrannar stjörnukokksins Nigellu Lawson kvarta nú undan því að þeir geta séð þessa kynþokkafullu konu ganga um nakta í íbúð sinni. 24.8.2011 10:04
Borgarstjóri á metsölulista Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, blandar sér í toppbaráttuna um mest seldu bók vikunnar í Eymundsson þessa vikuna. 24.8.2011 10:01
Ríkisstjórn Ástralíu í hættu vegna kynlífshneykslis Ástralskur þingmaður er sakaður um að hafa notað kreditkort stéttafélags hjúkrunarfræðinga til að greiða fyrir þjónustu vændiskvenna. Ástralska lögreglan rannsakar nú málið. 24.8.2011 09:51
Segja frekari niðurskurð bitna á þjónustu Hjúkrunarráð Landspítalans varar eindregið við frekari niðurskurði á fjárveitingum til Landspítalans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hjúkrunarráðið sendi frá sér í morgun. Halli á fjárlögum var sem kunnugt er um helmingi meiri en lagt var upp með og þykir líklegt að bregðast verði við því með auknum álögum og meiri niðurskurði á næsta ári. 24.8.2011 09:36
Fundur með Frakklandsforseta Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu, Mahmoud Jibril, er á leið til Frakklands. Í kvöld mun hann eiga viðræður við Nicolas Sarkozy, frakklandsforseta. Viðræðurnar munu helst snúast um ástandið í Líbíu og framlag alþjóða samfélagsins til umskiptanna þar í landi. 24.8.2011 09:27
Sex handteknir á Selfossi Sex voru handteknir á Selfossi í gær þegar lögregla gerði húsleit í bænum. Málið hófst á því að bifreið var stöðvuð þar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fannst eitthvað að marijúana í neysluskömmtum. 24.8.2011 09:02
Þingflokkur VG gagnrýnir ákvörðun Katrínar Þingflokkur Vinstrihreyfingar - græns framboðs gagnrýnir harðlega þá ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG. Þá lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórnni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf. 24.8.2011 08:50
Írena nálgast Bandaríkin Fellibylurinn Írena fór yfir Bahama-eyjar og aðrar minni eyjar á Karabískahafinu í nótt en ekki er vitað um tjón eða mannfall. 24.8.2011 08:36
Átta börn fórust í eldsvoða Ellefu fórust, þar á meðal átta börn, þegar eldur kom upp í tveggja hæða húsi bænum Logan í Ástralíu á miðnætti. Fjölmiðlar á svæðinu segja að tvær fjölskyldur hafi búið í húsinu en þrír náðu að flýja út úr húsinu. Börnin er sem brunnu inni eru á aldrinum ellefu til sautján ára en ríkisstjóri Queensland-héraðsins hefur sent sérstaka ráðgjafa í skóla barnanna til að huga að bekkjarsystkinum og vinum þeirra. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir. 24.8.2011 08:33
Eru ekki að skilja Bandaríski leikarinn Will Smith og eiginkona hans Jada Pinkett-Smith neita sögusögnum um skilnað. Í sameiginlegri yfirlýsingu segjast þau vera hamingjusöm og hjónabandið sé óskaddað. 24.8.2011 08:09
Landsbankinn gæti tapað 25 milljörðum Landsbankinn lýsir yfir miklum áhyggjum af frumvarpi um stjórn fiskveiða og segir að ef frumvarpið verði samþykkt geti tap bankans numið 25 milljörðum króna. 24.8.2011 07:55
Gaddafí segist vera í Trípólí Tvær loftárásir voru gerðar í Trípólí, höfuðborg Líbíu, í nótt en talið er að Atlantshafsbandalagið beri ábyrgð á árásinni. Engar fréttir hafa borist á manntjóni. 24.8.2011 07:17
Barnið átti grunlausan blóðföður á Íslandi Niðurstöður DNA rannsóknar hafa leitt í ljós að sveinbarn sem litháísk móðir skildi eftir nýfætt og andvana í ruslageymslu við Hótel Frón í júlí í sumar átti blóðföður hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 24.8.2011 07:00
Fundu hafstraum sem gæti breytt loftslagskenningum Uppgötvun tveggja íslenskra haffræðinga hefur vakið alþjóðlega athygli þar sem hún er talin skipta máli í samhengi við loftlagsbreytingar og hlýnun jarðar. Um er að ræða djúpstraum sem mælst hefur yfir landsgrunnshlíðinni norðan Íslands. Þessi straumur var rannsakaður fyrst og honum lýst af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunarinnar, þeim Steingrími Jónssyni, sem jafnframt er prófessor við Háskólann á Akureyri, og Héðni Valdimarssyni. 24.8.2011 06:00
Lokkar hrefnuna af leið Svo virðist sem hrefnan hafi breytt matarvenjum sínum. Það kemur hrefnuveiðimönnum í bobba, en þeir finna hana ekki lengur á þeim slóðum þar sem hún hefur haldið sig síðustu ár. 24.8.2011 06:00
Endanleg ákvörðun eftir áralangt þjark „Loksins nú, eftir margra ára og áratuga biðstöðu og þjark, liggur fyrir endanleg ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að reisa nýtt fangelsi,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. 24.8.2011 06:00
Opna í Háskólanum í Reykjavík Líkamsræktarstöðin World Class mun opna í húsnæði Háskólans í Reykjavík í byrjun september. Í staðinn hefur stöðinni í Orkuveituhúsinu verið lokað. 24.8.2011 05:00
Rétt viðbrögð vinnufélaga skiptu sköpum Starfsmaður löndunarþjónustu var hætt kominn í gærmorgun þegar hann var við vinnu í uppsjávarveiðiskipinu Álsey VE. Hann missti meðvitund í lest skipsins en skjót viðbrögð vinnufélaga mannsins, skipverja og björgunarfólks skiptu sköpum. 24.8.2011 04:00
Vilja auka jöfnuð meðal nemenda Á komandi skólaári munu fimm framhaldsskólar styðjast nær eingöngu við frjálsan hugbúnað í starfi sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Menntaskólinn í Reykjavík mun frá upphafi nýs skólaárs nota nánast eingöngu frjálsan hugbúnað og stefnir Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum á að fara sömu leið frá og með áramótum. 24.8.2011 03:00
Saksóknari trúir ekki þernunni Dominque Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, er laus allra mála í New York og gekk frjáls maður út úr dómhúsi í gær. 24.8.2011 00:45
Höfuðstöðvarnar á valdi uppreisnarliðs Uppreisnarmenn í Líbíu náðu höfuðstöðvum Múammars Gaddafí í Trípolí á sitt vald í gær eftir harða skotbardaga við stuðningsmenn Gaddafís klukkustundum saman. Höfuðstöðvarnar eru nokkur hús, herskálar og tjöld inni á rammgirtri lóð. Þar eru bæði skrifstofur Gaddafís og vistarverur hans og fjölskyldu hans. Hann sjálfur sást hvergi og var ekki vitað hvar hann væri niðurkominn. 24.8.2011 00:00
Kínverji vill reisa risahótel á Grímsstöðum á Fjöllum Kínverskur auðjöfur hefur kynnt sveitarstjórnarmönnum á Norðausturlandi áform um milljarða fjárfestingu í ferðaþjónustu á svæðinu, sem fela meðal annars í sér byggingu stór hótels á Grímsstöðum á Fjöllum. 23.8.2011 20:30
Hluti af heila fjarlægður Breskur maður krefst skaðabóta vegna þess að hluti af heila hans var fjarlægður fyrir mistök í skurðaðgerð. Maðurinn, John Tunney að nafni, hefur og farið fram á að gerð verði rannsókn vegna mistakanna. 23.8.2011 17:01
Hlaut grunsamlegar greiðslur Andy Coulson, fyrrverandi ritstjóri News of the World, fékk áfram greitt frá News Corp eftir hann var ráðinn sem talsmaður David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Kosninganefnd mun nú yfirfara hvort þær hafi verið lögleg eður ei. 23.8.2011 16:39
Óska RÚV til hamingju með Emmy tilnefningu Stjórn Blaðamannafélag Íslands samþykkti ályktun í dag þar sem fréttastofu RÚV er óskað til hamingju með þá miklu viðurkenningu sem fólgin er í því fyrir fréttamenn og fréttamyndatökumenn fréttastofunnar að fréttaflutningur af eldgosinu í Eyjafjallajökli hafi verið tilnefndur til Emmyu verðlauna. Segir stjórn Blaðamannafélagsins að þetta sé glæsilegur árangur af starfi frétta- og fréttamyndatökumanna fréttastofunnar um árabil. 23.8.2011 16:02
Nemendur krefjast þess að ráðuneytið hlusti 40 nemendur úr Kvikmyndaskóla Íslands sitja nú fyrir utan skrifstofur menntamálaráðuneytisins. Þeir krefjast þess að ráðuneytið hlusti á skólann og tilboð frá honum. 23.8.2011 15:58
Amy dó ekki úr ofneyslu eiturlyfja Ofneysla eiturlyfja var ekki það sem olli andláti Amy Winehouse. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem fjölskylda Winehouse sendi fjölmiðlum í dag. 23.8.2011 15:43
Polli er týndur Dísarpáfagaukurinn okkar, Polli, er týndur. Hann flaug frá Gullsmára 8 í Kópavogi um klukkan 13:00 í dag og sást seinast þegar hann flaug í átt að Garðabæ. Hann er býsna hávær og ef einhver sér hann þá er hann beðinn um að hafa samband við Hrafn Oddsson í síma 8942131 eða lögregluna Meðfylgjandi er mynd af gauknum með einum af eigendum sínum. 23.8.2011 15:29
Inn fyrir varnarmúrinn Uppreisnarmenn í Líbíu hafa brotið niður varnarmúrinn kringum vígvarðar höfuðstöðvar Gaddafi í miðborg Tripoli. 23.8.2011 15:13
Síminn stoppar ekki hjá Guðmundi Steingríms Undanfarin sólarhring hefur síminn ekki stoppað og pósti rignir inn. Þetta segir Guðmundur Steingrimsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í pistli á vefsíðu sinni þar sem hann útskýrir úrsögn sína úr Framsóknarflokknum. 23.8.2011 15:12
Setumótmæli í menntamálaráðuneytinu Nemendur við Kvikmyndaskóla Íslands mættu í menntamálaráðuneytið í dag og tóku sér þar stöðu í svokölluðum setumótmælum. 23.8.2011 15:11
Irene nálgast Bahamaeyjar Fellibylurinn Irene nálgast nú óðum eyjar í karabíska hafinu. Búist er við því að hann muni ná Bahamas í nótt, eftir því sem fram kemur á BBC. Vindstyrkur fellibylsins nær upp í allt að 160 kílómetrum á klukkustund. Irene hefur þegar farið yfir Púrtó Rikó og Dóminíska lýðveldið með miklum vindhviðum og úrhellisrigningu. Veðurfræðingar búast við því að fellibylurinn muni magnast enn meira og ná suðausturhluta Bandaríkjanna um helgina. 23.8.2011 14:36
Breskir hermenn aðstoða uppreisnarmenn Uppreisnarmenn í Líbíu njóta leiðsagnar sérþjálfaðra breskra hermanna. Þetta kemur fram í frétt Guardian. Nærveru þeirra er opinberlega vísað á bug af yfirvöldum. 23.8.2011 14:33
Kína vill engin afskipti af Sýrlandi Kínverjar eru óánægðir með hinn alþjóðlega þrýsting sem hlaðist hefur á forseta Sýrlands, Bashar al-Assad. Síðustu daga hafa þjóðhöfðingjar hinna ýmsu landa krafist þess að Assad láti af völdum í Sýrlandi. 23.8.2011 14:09
Velferðarráðuneytið áfrýjar í Sólheimamáli Velferðarráðherra hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sólheima í Grímsnesi gegn íslenska ríkinu til Hæstaréttar. Ráðherra kynnti ákvörðunina á fundi ríkisstjórnar í dag. Ákvörðun ríkislögmanns er tekin á grundvelli tilmæla frá Ríkislögmanni 23.8.2011 14:00
Hersveitir Gaddafís skutu frá sér Hið minnsta tveir fórust og fjölmargir særðust eftir að hersveitir Gaddafis, leiðtoga Líbíu, sendu skotflaugar frá aðsetri hans í Trípolí höfuðborg Líbíu. Þar hefur verið hart barist í allan dag, einkum eftir að í ljós kom að sonur Gaddafís er alls ekki í haldi uppreisnarmanna eins og áður var talið. Atlantshafsbandalagið hefur brugðist við með því að senda herþotur yfir Trípoli, eftir því sem Sky fréttastofan greinir frá. Fréttir hafa borist af því að þotur Atlantshafsbandalagsins hafi skotið á húsnæði Gaddafis, en það hefur ekki fengist staðfest. 23.8.2011 13:53
Árásir í Sýrlandi halda áfram Sjö manns létu lífið þegar öryggissveitir í Sýrlandi skutu á mótmælendur í gær. Fréttir berast af því að árásir hafi haldið áfram í dag, öryggissveitir hafi ráðist inn í þorp og handtekið marga. 23.8.2011 13:50
Stytta af Martin Luther King Hátt á 10 metra granít-stytta af Martin Luther King hefur verið afhjúpuð suður af Hvíta Húsinu í Washington borg. Barack Obama mun vígja styttuna 28. ágúst næstkomandi, og markar sú athöfn afmæli ræðunnar ódauðlegu „I have a dream," þar sem Martin krafðist jafnréttis kynþátta. 23.8.2011 13:22
Óvíst hvernig nýja fangelsið verður fjármagnað Fangelsið á Hólmsheiði í Reykjavík verður gæsluvarðhalds- og afplánunarfangelsi fyrir 56 fanga. Aðspurður um hvort fangelsið verði reist með einkaframkvæmd eða ekki segir Ögmundur Jónasson það ekki afráðið. Það sé þó alveg víst að á endanum greiði skattborgararnir fyrir byggingu þess. 23.8.2011 13:17
Fornleifar í Skagafirði Fornleifafræðingar Byggðasafns Skagafjarðar fundu nýverið ævafornt kirkjustæði og skeyttu þar með einum 500 árum framan við kirkjusögu á bænum Óslandi í austanverðum Skagafirði. 23.8.2011 13:06
Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um byggingu fangelsis Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að tillögu innanríkisráðherra að hefja byggingu nýs gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsis á Hólmsheiði, ofan Grafarholts í Reykjavík. Stefnt er að verklokum innan þriggja ára. Kostnaðaráætlun nemur um 2,1 milljarði króna, samkvæmt tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. 23.8.2011 12:21
Bakland Guðmundar óánægðir Evrópusinnar í Framsókn Bakland Guðmundar Steingrímssonar við stofnun hins nýja stjórnmálaflokks á miðju stjórnmálanna eru Evrópusinnaðir framsóknarmenn sem yfirgefið hafa flokkinn á síðustu dögum. Guðmundur segist ekki vita hvort hann hafi sterkt bakland til að stofna nýjan flokk en segir miðjusækin frjálslyndan flokk vanta sárlega og því verði hann að láta á það reyna. 23.8.2011 12:00
Þjóðverjar týndir í Afghanistan Utanríkisráðherra Þýskalands segir tvo Þjóðverja týnda í Afghanistan. Einhverjar líkur eru til þess að um mannrán sé að ræða. Ráðherrann segir að yfir standi „ofsafengin leit" að mönnunum. Hann neitaði að veita frekari upplýsingar. 23.8.2011 11:55