Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill skaðabætur frá unnustunni sem yfirgaf hann Maður einn í Malasíu hefur farið í mál við unnustu sína fyrrverandi og vill fá rúmar 45 milljónir króna frá henni í skaðabætur. Konan yfirgaf hann nefnilega, aðeins sex tímum fyrir fyrirhugað brúðkaup hjónaleysanna. 9.8.2011 09:06
Gafst upp á Kúbusundinu Hin 61 árs gamla Diana Nyad, sem ætlaði sér að synda frá Kúbu til Flórída þurfti að gefast upp í nótt þegar hún var hálfnuð með sundið en þá hafði hún verið í sjónum í 29 klukkutíma. Hún var orðin sjóveik og þurfti því að hætta. Hefði henni tekist ætlunarverk sitt hefði hún verið fyrsta allra til þess að synda þessa leið án þess að notast við hákarlabúr, en hákarlar eru mjög algengir á þessum slóðum. Nyad hafði áður reynt við sama afrek árið 1978 en þá þurfti hún einnig frá að hverfa. 9.8.2011 09:04
Spennuþrungið andrúmsloft Ástandið í borginni utan átakasvæðanna einkennist af spennu, segir Lundúnabúinn Ásgeir Helgi Þrastarson í samtali við Fréttablaðið. Ásgeir býr með kærustu sinni á stúdentagarði skammt suður af Tottenham og segir ófremdarástand ríkja í hverfunum allt um kring. 9.8.2011 09:00
Tvær vikur í leikskólaverkfall Virkja þarf verkfallsnefnd leikskólakennara því að öðru óbreyttu eru tæpar tvær vikur uns þeir leggja niður vinnu, eftir að fundi í kjaradeilu kennaranna og sveitarfélaganna lauk í Karphúsinu í gær, án samkomulags. 9.8.2011 08:45
Enn logar London - óöldin breiðist út Þriðju nóttina í röð loguðu eldar í Lundúnum og heimili og fyrirtæki voru eyðilögð í mestu óeirðum í borginni í áraraðir. 9.8.2011 08:12
Dularfullt hitamál í Laugardalnum Dularfullur reykur fór að stíga upp úr jörðinni skammt frá nýju Laugardalshöllinni laust fyrir miðnætti og kallaði lögregla út starfsmann frá Orkuveitunni, ef heitavatnsleiðsla væri ef til vill farin að leka. 9.8.2011 07:55
Nemendur í Kvikmyndaskólanum skora á Jóhönnu Hópur nemenda úr Kvikmyndaskóla Íslands ætlar að mæta á tröppur stjórnarráðsins klukkan hálf níu til að afhenda forsætisráðherra áskorun um að gera tafarlaust viðunandi samning við skólann og tryggja þannig rekstur hans. 9.8.2011 07:48
Ekki lagt til að hækka matarskattinn Ekki var tilkynnt um hækkun á virðisaukaskatti á matvæli, að loknum sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna í gærkvöldi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur meðal annars skoðað þann möguleika til að stoppa upp í fyrirsjáanlegt fjárlagagat á næsta ári. 9.8.2011 07:46
Kæra útgáfu leyfis frá Orkustofnun Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sent iðnaðarráðuneytinu kæru vegna útgáfu rannsóknarleyfa í Grændal í Ölfusi. Leyfið var gefið út 10. maí og hefur sætt mikilli gagnrýni, þar með talið frá iðnaðarráðherra sem fór fram á munnlegan rökstuðning fyrir veitingunni. 9.8.2011 07:00
Óeirðir breiðast út fyrir höfuðborgina Óeirðir halda enn áfram í London og hafa breiðst út um borgina. Meira en tvö hundruð manns hafa verið handteknir vegna óeirðanna og 35 lögreglumenn eru særðir. 9.8.2011 06:30
Hækkun vasksins í skoðun Meðal þeirra leiða sem eru til skoðunar til að auka tekjuöflun ríkisins er að koma á einu virðisaukaskattþrepi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur skoðað hvaða leiðir séu færar í aukinni tekjuöflun. Hún hefur meðal annars tekið vaskinn til skoðunar. Nefndin hefur fundað undanfarna daga og seinnipartinn í gær var haldinn fundur með formönnum stjórnarflokkanna. Að því loknu var haldinn sameiginlegur þingflokksfundur stjórnarflokkanna. 9.8.2011 06:00
Jarðvarmi nýttur við saltgerð Hópur frumkvöðla hefur endurvakið aldagamla framleiðsluaðferð í nýstofnuðu saltvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. „Við notum jarðvarma. Aðferðin er sú umhverfisvænsta sem völ er á því aðrir nota gas eða brenna eldiviði,“ segir Garðar Stefánsson, sem er einn eigenda fyrirtækisins Saltverk Reykjaness. 9.8.2011 06:00
Kjarnorkuárása á Japan minnst Kertum verður fleytt í kvöld til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárása Bandaríkjanna á japönsku borgirnarHiroshima og Nagasaki. Í Reykjavík fer athöfnin fram við Tjörnina og hefst klukkan 22.30. Borgarstjóri mun flytja ávarp. Á Akureyri verður kertum fleytt á tjörninni við Minjasafnið. Áki Sebastian Frostason flytur ávarp. 9.8.2011 06:00
Töpuðu tugum hrossa á afrétt „Það er mjög slæmt ef verið er að hamast í stóðhrossum á afrétti.“ 9.8.2011 05:15
Í Póllandi eru fæstir erlendir Einungis 0,1% íbúa Póllands eru útlendingar. Þetta er lægsta hlutfall allra EES-ríkja sem hafa viðlíka tölur á takteinum fyrir árið 2010. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá Hagstofu ESB. 9.8.2011 04:00
Pyntingarbúðir setja strik í reikning ESB Hugmyndir Evrópusambandsins (ESB) um að heimila innflutning á demöntum frá Simbabve, með skilyrðum, gætu verið í uppnámi eftir að upplýst var um pyntingarbúðir á demantaekrum landsins. 9.8.2011 03:00
Tveir grunaðir um laxveiði í sjó Fiskistofa hefur á undanförnum vikum lagt hald á að minnsta kosti ellefu ólögleg net í sjó. Þar af að minnsta kosti fjögur laxanet sem tekin voru upp í Skagafirði í síðustu viku. Það mál er til rannsóknar, að sögn lögreglu, en tveir menn liggja undir grun um notkun þeirra. Laxanet eru ólögleg og liggur há sekt við notkun þeirra. 9.8.2011 03:00
Þernan kærir Strauss-Kahn Hótelþernan sem Dominique Strauss-Kahn er grunaður um að hafa nauðgað hefur höfðað einkamál á hendur honum. Hún krefst skaðabóta en upphæðin sem hún krefst hefur ekki verið gefin upp. 9.8.2011 00:00
Kyssti Elvis og gaf sig fram rúmlega 50 árum síðar Búið er að bera kennsl á stúlkuna sem sést kyssa Elvis Presley baksvið í Stairwell leikhúsinu í Richmond árið 1956 en myndin af kossinum er fyrir löngu orðin þekkt. Aldrei hefur verið vitað hver stúlkan er - þar til nú. 8.8.2011 23:27
Nubia Silva fundin Nubia Silva sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir um helgina er fundin og er heil á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 8.8.2011 21:21
Sigmundur Davíð: Ríkisstjórnin ræðir að hækka matarskatt "Í dag fékk ég staðfest eftir mjög áreiðanlegum heimildum að það sé raunverulega til umræðu í fullri alvöru innan ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvæli," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins, í pistli sem birtist á heimasíðu hans í kvöld. 8.8.2011 21:10
Björguðu hnúfubakskálfi Brimbrettakappar og starfsmenn sædýrasafns tóku höndum saman í Ástralíu til að bjarga hnúfubakskálfi sem hafði synt í strand á Gullströndinni svokölluðu. 8.8.2011 21:00
Mótmæla á náttfötunum Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands, bæði núverandi og fyrrverandi, nýnemar, kennarar, starfsfólk og velunnarar skólans ætla að mæta í náttfötum og „snooz-a" alla virka daga milli klukkan 14 og 16 þar til málefni skólans hafa verið leyst. 8.8.2011 19:50
Fundu stél af flugvélasprengju á botni Kleifarvatns Kafarar hjá sprengjudeild Landhelgisgæslunnar fundu í dag stél af flugvélasprengju í Kleifarvatni eftir að ábending frá köfurum barst um heldur torkennilegan hlut í vatninu. 8.8.2011 19:28
Óeirðir í London: Skildu scart-tengin eftir Hart var barist í Lundúnum í gær aðra nóttina í röð. Lögregluhundar voru óspart notaðir til þess að elta uppi þjófagengi sem fóru hamförum í höfuðborginni. 8.8.2011 19:14
Enn hætta á verkfalli Enn er hætta á verkfalli meðal leikskólakennara mánudaginn 22. ágúst næstkomandi. Fulltrúar leikskólakennara og sveitarfélaga funduðu síðdegis í dag í húsnæði ríkissáttasemjara. 8.8.2011 18:53
Ákæra þingfest á morgun - saksóknari fer fram á lokað þinghald Ákæra á hendur manni sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk verður þingfest fyrir Héraðsdómi á morgun. Ríkissaksóknari fer fram á lokað þinghald yfir manninum sem talinn er vera veikur á geði. 8.8.2011 18:39
Larry King aflýst í Hörpunni Hætt hefur verið sýningu þáttastjórnandans heimsfræga Larry King, sem hafði áætlað að heimsækja Ísland föstudaginn 23. september næstkomandi. Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stóð að baki viðburðinum, segir ástæðuna vera dræma miðasölu. 8.8.2011 17:15
Þrettán óku undir áhrifum fíkniefna, sjö undir áhrifum áfengis Þrettán ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Voru tíu þeirra stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi. 8.8.2011 16:37
Friðarsinnar fleyta kertum á Tjörninni Friðarsinnar munu koma saman við Tjörnina í Reykjavík á morgun og fleyta kertum í minningu fórnalamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí, þann 6. og 9. ágúst 1945. 8.8.2011 16:10
Sofnaði undir stýri - Minna slösuð en talið var Bílvelta varð við Baldursheimsveg við sunnanvert Mývatn í morgun. Ein stúlka var í bílnum og var hún flutt á sjúkrahús á Akureyri, en talið er að hún hafi sofnað undir stýri. 8.8.2011 15:41
Arabaríki kalla heim sendiherra frá Damaskus Þrjú arabaríki hafa kallað sendiherra sína í Damaskus heim, til að leggja áherslu á andúð sína á framferði stjórnvalda í Sýrlandi. Talið er að um 2000 mótmælendur hafi fallið í átökum við herinn undanafarnar vikur. 8.8.2011 15:27
Sextán umferðaróhöpp á Selfossi í vikunni Sextán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi í vikunni og urðu slys á fólki í fjórum þeirra. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Selfossi. 8.8.2011 15:15
Breivik vill tala við fangelsisprest Fjöldamorðinginn Anders Breivik hefur óskað eftir að ræða við fangelsisprestinn í Ila fangelsinu þar sem hann situr í einangrun. Fyrstu dagana í fangelsinu var Breivik kotroskinn og gerði hinar og þessar kröfur sem ekki var sinnt. 8.8.2011 14:51
Þingfesting í Heiðmerkurmáli Þingfesting fer fram á morgun í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk. Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna. Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí. Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram. Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður. Þingfestingin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness. 8.8.2011 14:48
Lækkun á heimsmarkaðsverði gæti skilað sér heim á næstu vikum Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, segir mögulegt að bensínverð á Íslandi lækki á næstu vikum, en lækkun hefur orðið á bensíni á heimsmarkaði undanfarna daga auk þess sem verðið á Bandaríkjadalnum hefur lækkað úr um 118 krónum í rúmar 115 krónur á síðustu tveimur vikum. 8.8.2011 14:30
Taka við notuðum reiðfatnaði á Keflavíkurflugvelli Til að auðvelda hestamönnum að uppfylla reglur vegna smitvarna hefur Landssamband hestamannafélaga fyrir hönd félagasamtaka hestamennskunnar, nú samið við Fatahreinsunina Fönn um að taka við notuðum reiðfatnaði í rauða hliðinu á Keflavíkurflugvelli og skila fullhreinsuðum til eiganda fáum dögum síðar. Á síðasta ári kom upp alvarlegur faraldur smitandi hósta í íslenska hrossastofninum af völdum bakteríusýkingu sem ekki er álitinn mikill skaðvaldur erlendis. Sá atburður sýndi glögglega hversu viðkvæmur íslenski hrossastofninn er fyrir smitsjúkdómum. Þrátt fyrir þetta áfall er íslenski hrossastofninn enn laus við alvarlegustu smitsjúkdómana og mikilvægt er að viðhalda þeirri góðu stöðu með öflugum smitvörnum. Samkvæmt gildandi lögum og reglum er óheimilt að flytja inn notaðan reiðfatnað til landsins nema að undangenginni hreinsun og sótthreinsun samkvæmt reglum Matvælastofnunar. 8.8.2011 14:19
Nubia enn týnd Stúlkan sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir er enn ófundin. Hún heitir Nubia Silva, er fimmtán ára gömul og búsett á Hvolsvelli. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan að kvöldi 5. ágúst síðastliðinn. Nubia Silva er er tæpir 160 sentimetrar á hæð, grannvaxin með dökkt sítt hár. Ekki vitað með vissu hvernig hún var klædd. Talið er að Nubia Silva sé á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Nubiu Silva, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110. 8.8.2011 13:51
Kanna hvort hægt sé að lyfta rútunni með belgjum Kannað verður hvort hægt sé að lyfta tékkneskri rútu af botni Blautulóna með loftbelgjum, og draga hana svo að landi, en þar hefur hún verið á bóla kafi síðan á föstudag. 8.8.2011 13:05
Yulia Tymoshenko föst í fangelsi Dómstólar í Úkraínu hafa hafnað kröfum um að fá fyrrverandi forsætisráðherra landsins lausa úr fangelsi gegn tryggingu, en réttað er yfir henni vegna ásakana um að hafa misnotað völd í starfi. 8.8.2011 12:34
Össur: Evrópa þarf að eiga stefnumót við veruleikann Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, segir að langvarandi frost á erlendum mörkuðum geti haft áhrif á viðskiptakjör Íslendinga. Ísland sé hins vegar betur í stakk búið en önnur ríki til að takast á við erfiðleika. 8.8.2011 11:58
Valdaskipti í Tíbet - Dalai Lama ekki lengur við stjórnvölinn Hinn 43 ára gamli Lobsang Sangay var í nótt svarinn í embætti forsætisráðherra tíbetsku rikisstjórnarinnar, og tekur þar með við af Dalai Lama sem pólitískur leiðtogi Tíbets. 8.8.2011 11:45
Umboðsmanni Alþingis berst kvörtun vegna aðgerðarleysis FME Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis og beðið embættið að úrskurða um hvort fjármálaráðherra hafi farið að lögum við stofnun, rekstur og niðurlagningu Spkef sparisjóðs og stofnun, rekstur og sölu Byrs banka. 8.8.2011 10:52
Hola myndaðist í jörðinni á Selfossi Hola myndaðist í götunni við Víðivelli á Selfossi í gær. Ekki er útilokað að um sé að ræða síðbúin eftirköst jarðskjálftans sem var á svæðinu árið 2008. "Krakkarnir okkar fundu holuna í gær. Þá var hún miklu minni en stækkaði eftir því leið á daginn," segir Sæunn Ósk Kristinsdóttir, íbúi við Víðivelli 10. Götunni var lokað fyrir umferð í gær og holan girt af til að koma í veg fyrir slys. Fulltrúar frá Árborg komu og skoðuðu holuna í morgun. Gatið í malbikinu er um hálfur meter í þvermál en undir því er stærra holrúm, líklega um tveir fermetrar. Jón Tryggvi Guðmundsson, tæki- og veitustjóri Árborgar, segir að holan verði skoðuð frekar í dag. Þá verður fráveitulögnin við götuna mynduð til að kanna hvort laus jarðefni hafi farið inn í skolplögn. Þó hefur ekki verið orðið vart við neina tregðu í lögnunum. Jón Tryggvi segir of snemmt að fullyrða um ástæður þess að holan myndast. "Það geta verið fleiri en ein ástæða fyrir jarðsiginu," segir hann. Að sögn Sæunnar Óskar er nokkuð langt síðan íbúar við götuna urðu varir við hálfgerða dæld í malbikinu. "Þetta var svona eins og öfug hraðahindrum," segir hún. Jarðskjálftinn 2008 var mjög öflugur og þurfti í kjölfar hans að rífa nokkur hús sem voru gjörónýt. Þar á meðal var húsið við Víðivelli 12 rifið, sem stóð skammt frá þar sem holan myndaðist. Tveir suðurlandsskjálftar riðu yfir samtímis í maí 2008. Þeir voru um 6,3 stig á Richter og fundust svo fjarri upptökunum sem á Ísafirði. 8.8.2011 10:42
Íbúar í hæsta turni heims þurfa að fasta lengur en aðrir Æðsti klerkur múslima í Dubai hefur gefið út tilskipun þess efnis að íbúar Burj Khalifa turnsins í borginni, sem er hæsta bygging heims, 160 hæðir, þurfi að fasta lengur en þeir sem búa á jörðu niðri. 8.8.2011 10:08