Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kaþólska rannsóknarskýrslan ekki birt almenningi Í fréttatilkynningu frá Pétri Bürcher, biskupi kaþólsku kirkjunnar hér á landi, kemur fram að rannsóknarskýrsla, um kynferðisbrot starfsmanna kirkjunnar, verði ekki birt almenningi, heldur aðeins helstu niðurstöður og tillögur til úrbóta. 28.6.2011 12:50
Blóðlítill Blóðbanki Yfirlæknir Blóðbankans segir öryggisbirgðir bankans í lægra lagi og hvetur virka gjafa til þess að gefa blóð. Hann segir bíl blóðbankans einungis starfa að meðaltali tvo daga í viku vegna fjárskorts. Á Íslandi eru um tíu þúsund virkir blóðgjafar og hafa margir þeirra fengið sms skilaboð og tölvupóst að undanförnu þar sem þeir eru hvattir til þess að gefa blóð. Öryggisbirgðir bankans eru skilgreindar þannig að í honum eru á milli fimm og sex hundruð einingar með rauðkornum en Sveinn segist helst vilja hafa þær nær 700. Til þess að svo geti verið þarf um 70 blóðgjafa á dag. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, segir íslenska blóðgjafa ávallt bregðast vel við en þeir séu á ferð og flugi yfir sumartímann eins og aðrir. Hægt er að gefa blóð í Blóðbankanum við Snorrabraut en einnig er útstöð á Akureyri. Bíll blóðbankans er einnig starfræktur en þó aðeins í tvo virka daga í viku að meðaltali yfir sumartímann. 28.6.2011 12:20
Fimmtán ára piltur stakk af meðferðarheimili á stolnum bíl Lögreglustjórinn á Sauðárkróki hefur höfðað mál gegn fimmtán ára gömul pilti fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot. 28.6.2011 12:20
180 íslenskir strandaglópar á grískri eyju Um 180 ferðalangar á vegum íslensku ferðaskrifstofunnar Vita eru nú strandaglópar á eyjunni Korfú undan ströndum Grikklands vegna alsherjarverkfallsins. Einn ferðalanganna segir þó fína stemmningu í hópnum og gerir ráð fyrir að komast heim á fimmtudag. 28.6.2011 12:12
Dagur rabarbarans haldinn hátíðlegur Dagur rabarbarans verður haldinn hátíðlegur á fimmtudag með örráðstefnu og bökukeppni á Árbæjarsafni. Dagur tileinkaður rabarbaranum er haldinn til að minna á mikilvægi þess að viðhalda ræktun rabarbarans og nýtingu hans sem hefur verið samofinn sögu Íslendinga og menningu í 130 ár. Dagskráin hefst klukkan þrjú á fimmtudag að Lækjargötu 4 á Árbæjarsafni og er sem hér segir: Kl: 15:00 Erfðaauðlindir og gildi þeirra - Áslaug Helgadóttir Kl: 15:20 Saga rabarbarans - Vilmundur Hansen Kl: 15:40 Nýting rabarbarabans - Brynhildur Bergþórsdóttir Kl: 16:00 Bökukeppni - Allir hvattir til að koma með böku - besta rabarbarabakan valin Dagur rabarbarans er á Facebook. 28.6.2011 12:00
Peningum stolið úr íþróttatösku Brotist var inn í bifreið sem stóð við Vilberg-kökuhús í Vestmannaeyjum aðfararnótt laugardagsins og stolið um 17 þúsund krónum úr íþróttatösku sem var í bifreiðinni. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki en þeir sem telja sig geta gefið upplýsingar um þá eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum. Þar sem Goslokahelgin er um næstu helgi vill lögreglan í Vestmannaeyjum minna foreldra á að fara eftir útivistareglum en þær eru í gildi alla daga ársins. Frá 1. maí mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. 28.6.2011 11:57
Biskupinn biður fórnarlömb afsökunar Biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi Pétur Bürcher biður alla þá sem kunna að hafa orðið fyrir kynferðislegum brotum af hálfu presta eða starfsmanna kirkjunnar, afsökunar og fyrirgefningar. Biskupinn segist með þessari yfirlýsingu vera að feta í fótspor Benedikts páfa sem gerði slíkt hið sama fyrir nokkru. Mikið hefur verið rætt og ritað um kynferðisbrot innan kirkjunnar síðustu daga og hefur biskupinn tekið þá ákvörðun að setja á fót óháða rannsóknarnefnd sem ætlað er að rannsaka þær ásakanir sem þar koma fram. 28.6.2011 11:07
Fjögur flug felld niður í dag: Algjörlega óviðunandi ástand Vegna yfirvinnubanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur Icelandair orðið að fella niður 4 flug á þessum sólarhring: Flug til og frá Kaupmannahöfn í nótt sem leið og flug til og frá Berlín síðdegis í dag. Alls eru um 600 farþegar á þessum flugum. 28.6.2011 11:07
Gallaðir Hummer-bílar Neytendastofa vekur athygli á innköllun frá General Motors framleiðanda Hummer H3. Um er að ræða bifreiðar framleiddar á árunum milli 2006 og 2010, módel e13*2001/116*0209*00, týpu GM345. Ástæða innköllunarinnar er sú að öryggiskrækja sem heldur húddinu niðri getur brotnað, eða í hana komið sprunga, sem getur valdið því að hún losni á meðan bifreið er á ferð. Engin umboðsaðili er fyrir Hummer bifreiðar hér á landi en Neytendastofa bendir eigendum á að snúa sér til bifreiðaverkstæða til að láta laga krækjuna til að tryggja að hún losni ekki. Sjá tilkynningu frá Rapex http://ec.europa.eu/consumers/dyna/rapex/rapex_search_print_en.cfm?zoek=0484/11 28.6.2011 10:37
Tæpir þrír dagar til stefnu vegna 110% leiðarinnar Vakin er athygli á því að þeir sem vilja óska eftir niðurfærslu veðskulda af íbúðalánum samkvæmt svokallaðri 110% leið þurfa að sækja um það fyrir 1. júlí næstkomandi. Frestur til að sækja um niðurfærslu veðskulda samkvæmt samkomulagi lánveitenda <http://www.efnahagsraduneyti.is/Forsida_IVR/nr/3196> á íbúðalánamarkaði rennur út 30. júní næstkomandi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið vekur athygli á þessu í tilkynningu. Í samkomulaginu sem stjórnvöld, Íbúðalánasjóður, Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamtök lífeyrissjóða og Drómi hf. gerðu með sér og undirritað var 15. janúar á þessu ári er kveðið á um niðurfærslu veðskulda sem eru umfram 110% af verðmæti fasteignar að gefnum ákveðnum skilyrðum. Niðurfærsla skulda getur numið allt að 4 milljónum króna hjá einstaklingi og allt að 7 milljónum króna hjá einstæðum foreldrum, sambýlisfólki og hjónum. Lántakar sem eru með veðsetningu umfram 110% af verðmæti fasteignar, þrátt fyrir lækkun veðskulda um 4 eða 7 milljónir króna geta óskað eftir frekari niðurfærslu. Niðurfærslan getur í heild numið allt að 15 milljónum króna hjá einstaklingum og 30 milljónum króna hjá einstæðum foreldrum, sambýlisfólki og hjónum. Mörk niðurfellingar ráðast af 110% veðsetningarhlutfalli af verðmæti eigna og að greiðslubyrði umsækjanda af lánum, sem samkomulagið tekur til, fari ekki niðurfyrir 18% af brúttótekjum. Allir sem uppfylla skilyrði samkomulagsins eiga rétt á niðurfærslu veðskulda. 28.6.2011 10:35
Hjólaleiðsögn um Viðey Þriðjudagsgangan í Viðey er í dag farin með Íslenska fjallahjólaklúbbnum. Þarna er um að ræða árvissa hjólaferð Fjallahjólaklúbbsins til Viðeyjar. Hjólað verður um eyna og sagan skoðuð, hús og minjar. Hjólaleiðin er hvorki löng eða strembin og því geta allir notið ferðarinnar, - hjólagarpar og byrjendur. Leiðsögnin er ókeypis og öllum heimil og fá göngumenn og -konur Kristal í boði Ölgerðarinnar til að svala þorstanum. Leiðsögnin hefst við Viðeyjarstofu klukkan 19.30 og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Siglt er frá Skarfabakka klukkan 18.15 og 19.15, og aftur til baka klukkan 22.00. Gjald í ferjuna fer eftir hefðbundinni gjaldskrá. 28.6.2011 10:29
Billy The Kid var dýrseldur Eina ljósmyndin sem staðfest er að sé af byssubófanum Billy The Kid hefur verið seld á uppboði í Colorado fyrir 267 milljónir króna. Myndin var tekin árið 1879 eða 1880 í Fort Sumner í Nýju Mexíkó. 28.6.2011 10:19
Evrópuráðsþingið hvetur til kynjakvóta - Ísland er fyrirmynd Evrópuráðsþingið samþykkti, á fundi sínum í Strassborg í síðustu viku, ályktun þar sem aðildarríki ráðsins eru hvött til að fylgja meðal annars fordæmi Noregs og Íslands og innleiða að lágmarki 40% kynjakvóta í stjórnum og stjórnunarstöðum opinberra stofnana og stærri fyrirtækja. Í framsögu skýrsluhöfundarins, franska þingmannsins Gisèle Gautier, um málið kom fram að hún hefði upprunalega haft efasemdir um að kynjakvótar væru líklegir til að ná þeim árangri sem að væri stefnt. Hún hefði hins vegar skipt um skoðun í ljósi þess að löggjöf, sem sett var í Frakklandi til að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum, hefði leitt til þess að hlutfall kvenna í öldungadeild franska þingsins hefði fjórfaldast – úr 6% í 24%. Í umræðum um ályktunartillöguna sagði Lilja Mósesdóttir, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, að efnahagskreppan á Íslandi hefði verið ákveðið tækifæri til að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum og ákvarðanatöku. Samstaða hefði m.a. náðst á þingi um að innleiða í lög 40% kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn á árinu 2013. Hún harmaði hins vegar að vegna niðurskurðar á fjárlögum hefði jafnframt þurft að lækka hámarksupphæð fæðingarorlofsgreiðslna verulega sem dregið hefði úr nýtingu feðra á fæðingarorlofi. Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sátu fundinn Lilja Mósesdóttir, Mörður Árnason og Birkir Jón Jónsson. 28.6.2011 10:09
Vilja siðareglur kjörinna fulltrúa í Ísafjarðarbæ Meirihlutinn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur til að settar verði siðareglur kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn og nefndum. Eiríkur Finnur Greipsson, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðismanna, og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, oddviti Framsóknarmanna, lögðu fram minnisblað þess efnis á fundi bæjarráðs í gær. þar kemur fram að nokkur sveitarfélög hafa farið þessa leið, þar á meðal Reykjavík og Hafnarfjörður. Bæjarráð samþykkti að áfram verði haldið með undirbúning að siðareglum. 28.6.2011 09:41
Gerir heimildarmynd um Gauja Þórðar „Ég vinn þetta bara í hjáverkum, ég gríp í þetta þegar tækifæri gefst til," segir Trausti Salvar Kristjánsson, knattspyrnuáhugamaður með meiru. Hann vinnur að heimildarmynd um Guðjón Þórðarson, núverandi þjálfara BÍ/Bolungarvíkur. 28.6.2011 09:00
Flugið ódýrara en rútuferð Töluvert dýrara er að ferðast á milli Akureyrar og Reykjavíkur með rútu en með Flugfélagi Íslands. Ódýrasta flugfargjaldið á milli bæjarfélaganna er 7.990 krónur en rútuferðin með fyrirtækinu Sterna, sem er eina hópferðafyrirtækið sem sinnir þessum leiðum, kostar 11.000 krónur. Flugtími á milli er um 45 mínútur en rútuferðin tekur um sex klukkustundir. 28.6.2011 08:30
Fréttaskýring: Samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög Umsagnarferli um tillögur mannréttindaráðs Reykjavíkur um samskipti trúfélaga og skóla er lokið. Endanlegar tillögur bíða nú afgreiðslu borgarráðs. Ólíklegt er talið að borgarráð geri frekari breytingar. Mannréttindaskrifstofa mun framfylgja nýjum reglum. 28.6.2011 08:00
Efnameiri fá betri lögfræðiaðstoð en aðrir landsmenn Lögmannafélag Íslands kom áhyggjum sínum af stöðu réttarríkisins á framfæri við ESB. Gagnrýnir skerta möguleika á gjafsókn og stöðu fangelsismála. Skoðað er af fullri alvöru að koma á þremur dómstigum. 28.6.2011 08:00
Hörð gagnrýni á prinsessunámskeið fyrir börn „Þetta tengist bersýnilega kynlífsvæðingu barna,“ segir Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, um nýtt námskeið á vegum Útlit.is, Prinsessuskólann. Hún segir námskeiðið ala á undirgefni ungra stúlkna. 28.6.2011 08:00
Michele Bachmann líkti sér við raðmorðingja Bandaríski þingmaðurinn Michele Bachmann hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér í forkosningum Repúblikanaflokksins um væntanlegt forsetaefni flokksins. Við tilkynninguna líkti hún sér óvart við þekktan raðmorðingja. 28.6.2011 07:47
Mun færri erlendar seglskútur í ár en venjulega Mun færri erlendar seglskútur hafa heimsótt landið það sem af er sumri, samanborið við sama tíma undanfarin ár. 28.6.2011 07:43
Ferðamenn flýja kuldann fyrir norðan Þegar lögreglan á Akureyri stöðvaði bíl í grennd við bæinn, við venjulegt eftirlit í nótt, reyndist hann fullur af útlendingum, sem sögðust vera á flótta suður og vestur á bóginn, undan kuldanum. 28.6.2011 07:38
Flóttamannastraumurinn frá Sómalíu aldrei verið meiri Flóttamannastraumurinn frá Sómalíu og yfir til Keníu hefur aldrei verið meiri í sögunni. 28.6.2011 07:36
Dánartíðni hér með því hæsta Ísland er meðal fjögurra þjóða Evrópu þar sem dánartíðni af völdum fíkniefna er hvað hæst, að því er fram kemur í árlegri skýrslu Fíkniefna- og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni í heiminum sem gerð var opinber í lok síðustu viku. 28.6.2011 07:30
Verkfall hjá opinberum starfsmönnum í Bretlandi Búist er við að yfir 700 þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi muni taka þátt í eins dags verkfalli sem stéttarfélög þeirra hafa boðað til á fimmtudag. 28.6.2011 07:25
Allsherjarverkfall lamar Grikkland Grikkland er meira og minna lamað í dag eftir að verkalýðsfélög landsins hófu tveggja sólarhringa allsherjarverkfall í landinu síðdegis í gær. 28.6.2011 07:23
Tólf stunda samningafundi lauk án árangurs Tólf klukkustunda samningafundi flugmanna Icelandair við viðsemjendur lauk upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi hjá Ríkissáttasemjara , án árangurs. 28.6.2011 07:17
Njósnarinn sem afhjúpaði Önnu Chapman dæmdur Herdómstóll í Moskvu hefur dæmt rússneskan ofursta í 25 ára fangelsi fyrir að hafa komið upp um njósnahóp hinnar kynþokkafullu Önnu Chapman og félaga í Bandaríkjunum í fyrra. 28.6.2011 07:13
Banaslys í Kverkfjöllum Erlendur karlmaður á sextugsaldri beið bana þegar hann varð undir íshröngli sem féll á hann í munna íshellis í Kverkfjöllum í gærdag. 28.6.2011 07:07
Níddist á telpu og myndaði athæfið Karlmaður á fimmtugsaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rökstudds gruns að hann hafði níðst kynferðislega á stúlkubarni svo mánuðum skipti. 28.6.2011 07:00
Lögreglan býr sig undir átök Grísk stjórnvöld bjuggu sig í gær undir tveggja sólarhringa allsherjarverkfall, sem mun lama þjóðlífið í dag og á morgun. 28.6.2011 06:00
Segja fáar ferðir til Ísafjarðar Íbúasamtökin Átak í Dýrafirði hafa enn á ný mótmælt niðurskurði í almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Telja þau núverandi þjónustu í lágmarki og frekari niðurskurð ekki verjandi. Frá þessu er sagt á vef Bæjarins besta. Samtökin segja að tvær ferðir seinnipart dags á milli Þingeyrar, Flateyrar og Ísafjarðar séu lágmark, þar sem svæðið sé eitt atvinnusvæði. 28.6.2011 06:00
Stappaði fæti á höfði manns Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært rúmlega fertugan karlmann fyrir líkamsárás á Reyðarfirði aðfaranótt sunnudagsins 26. september 2010. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands. Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Cafe Kósý. 28.6.2011 06:00
Íslenskir sjóliðar á norsku seglskipi? Íslendingar geta krækt sér í vinnu um borð í stærsta þrístefnda seglskipi heims, norska seglskipinu Statsraad Lehmkuhl, sem kemur til Reykjavíkur þann 9. júlí næstkomandi. Hér er þó ekki um að ræða góða leið fyrir félitla Íslendinga að sækja sér vasapeninga og fría ferð til Noregs, því það mun kosta rúmar 174 þúsund krónur að fá pláss á skipinu. 27.6.2011 22:00
Kona verður ríkust í heimi Gina Rinehart er nú þegar ríkasta manneskjan í Ástralíu, en bandaríski bankinn Citigroup metur nú sem svo að Rinehart sé á góðri leið með að taka fram úr ríkustu mönnum heims. 27.6.2011 21:00
Settu bíl úr legó-kubbum í stæði forstjórans Starfsmenn Lególands í Kaliforníu gerðu grín forstjóranum á dögunum þegar þeir fjarlægðu jeppann hans og settu alveg eins bíl úr legó-kubbum í staðinn. 27.6.2011 20:30
Aldurstakmark á tölvuleiki samræmist ekki stjórnarskránni Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu í dag að lög, sem sett voru í Kalíforníu og leggja bann við sölu á ofbeldisfullum tölvuleikjum, samræmist ekki stjórnarskránni. Meirihluti dómara við réttinn voru á þeirri skoðun að ríkjum sé óheimilt að „skerða þær hugmyndir sem börn kunni að komast í snertingu við," eins og það er orðað. Því væri bannið það brot á fyrsta stjórnarskrárviðaukanum. 27.6.2011 20:15
Árlegar uppsagnir Icelandair Icelandair hefur sent 59 flugmönnum og 37 flugstjórum uppsagnarbréf. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er að ræða sumarstarfsmenn sem voru ráðnir undir þessum formerkjum og því er um árlegt fyrirkomulag að ræða. Kjarasamningar flugmanna leyfa ekki tímabundnar ráðningar og af þeim sökum er þessi leið farin. 27.6.2011 19:54
Ristilspeglun í staðinn fyrir koníak í afmælisgjöf Það er betra að fá ristilspeglun í fimmtugsafmælisgjöf en koníaksflösku segir maður sem hefur barist við ristilkrabbamein í tæpan áratug. Minni líkur eru á lækningu ristilkrabba hjá þeim sem fara fyrst í rannsókn þegar einkenni eru komin í ljós. 27.6.2011 19:45
Árni Þór telur brýnt að hraða aðildarferlinu Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segist ánægður með að aðildarviðræðurnar Íslands og Evrópusambandsins gangi hratt fyrir sig. "Ég er eindreginn stuðningsmaður þeirra ákvörðunar Alþingis að fara að fara í viðræður við Evrópusambandið um hugsanlega aðild og leggja málið í dóm kjósenda. Það er það lýðræðislega umboð sem stjórnvöld hafa og Alþingi á að hafa eftirlit með því.“ 27.6.2011 19:30
Mikil reiði innan ferðaþjónustunnar vegna aðgerða flugmanna Fulltrúar flugmanna og Icelandair funda nú í Karphúsinu en fjórum flugferðum var aflýst í dag vegna yfirvinnubanns flugmanna félagsins. Fyrirtæki í ferðaþjónustunni segja yfirvinnubannið hafa alvarleg áhrif á ferðasumarið. Flugmenn hafi atvinnu fleiri stétta í höndum sér. 27.6.2011 19:24
Stækkunarstjóri ESB segir að sjávarútvegsmálin verði erfiðust Utanríkisráðherra lagði til á ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins í morgun að aðildarviðræðum Íslendinga við sambandið verði hraðað, og tekist verði á um alla nauðsynlega kafla samninganna sem fyrst. Ráðamenn í Brussel sögðu daginn sögulegan og lýstu ánægju með að formlegar aðildarviðræður væru hafnar. 27.6.2011 19:05
Norðmenn setja kraft í olíuleit við Jan Mayen Norsk stjórnvöld hafa sett olíuleit við Jan Mayen á fulla ferð og tilkynntu fyrir helgi að eyjan kynni að verða nýtt sem þjónustumiðstöð vegna olíuvinnslu. Skip er nú statt þar við hljóðbylgjumælingar og í næsta mánuði verður fjarstýrður kafbátur þar við botnrannsóknir. 27.6.2011 18:55
Konur haldi áfram að fara í leghálskrabbameinsskoðun Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Sóttvarnarlæknir segir þó mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit. 27.6.2011 18:46
Nokkrir yfirheyrðir vegna hestaníðs í Skagafirði Lögregla hefur yfirheyrt nokkra í tengslum við hestaníðingsmál sem kom upp á einu þekktasta hrossabúi landsins fyrir skömmu. Þá fundust þrjár hryssur með skurði á kynfærum og á snoppu, en skurðirnir eru taldir vera af mannavöldum. 27.6.2011 18:45