Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Matvælastofnun ráðleggur fólki að sjóða spírur Matvælastofnun ráðleggur neytendum að skola baunaspírur vel og sjóða þær í varúðarskyni auk þess sem ráðlegt sé að hugsa vel um handþvott til að forðast smit. Tilefnið er nú hópsýking sem upp kom í Frakklandi, sem hægt er að tengja við neyslu á spírum. 27.6.2011 16:10
12 ára stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Landlæknisembættið hefur gert kaupsamning við lyfjafyrirtækið GSK um kaup á bóluefni gegn leghálskrabbameini og HPV-sýkingum. Um er að ræða bóluefnið Cervarix sem notað verður í almennum bólusetningum hjá stúlkum hér á landi. Bólusetningin hefst í september næstkomandi en á komendi vetri verða tveir árgangar stúlkna bólusettur, þær sem fæddar eru 1998 og 1999. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega. Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar. Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að full bólusetning felur í sér þrjár sprautur og er áætlað að bólusett verði í skólum landsins en framkvæmd bólusetningarinnar er á ábyrgð heilsugæslunnar. Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011. Þar sem leghálskrabbamein myndast um 20-30 árum eftir HPV sýkingu þá mun líða langur tími þar til að árangur bólusetningarinnar kemur í ljós. Því er mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit. 27.6.2011 16:06
Hálendisvegir opna síðar nú en undanfarin ár Opnun hálendisvega er nú um tveimur til þremur vikum á eftir því sem verið hefur undanfarin ár, en allur akstur er enn bannaður á fjölmörgum vegum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum. 27.6.2011 15:45
Hefur ekið strætó í fjörutíu ár Jónas Engilbertsson strætóbílstjóri náði þeim áfanga í síðustu viku að hafa ekið strætisvagni í 40 ár. Ögmundur Jónasson ráðherra samgöngumála, heiðraði Jónas af því tilefni en einnig var hann heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. 27.6.2011 15:37
Hetjulundur krabbameinssjúkra barna vígður Hvíldarheimilið Hetjulundur var vígt í gær af Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna en heimilið er fyrst og fremst hugsað sem athvarf fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra á meðan á erfiðleikum þeirra stendur. Auk vígslunnar var heimilið formlega tekið í notkun í gær. 27.6.2011 15:00
Bachmann lýsir yfir framboði Michele Bachmann, öldungardeildarþingkona frá Minnesota lýsti í dag yfir framboði til forvals repúblikana fyrir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Bachmann er vinsæl innan teboðshreyfingarinnar svokölluðu, sem eru íhaldssamir repúblikanar en hún tilkynnti um framboð sitt í Iowa hvaðan hún er ættuð. 27.6.2011 14:51
Palestína sækist eftir viðurkenningu SÞ Palestínsk yfirvöld hyggjast sækjast eftir viðurkenningu Sameinuðu Þjóðanna sem sjálfstætt ríki. Það var Yasser Abed Rabbo, aðalritari Framkvæmdarnefndar palestínsku frelsissamtakanna, sem las upp tilkynninguna í gærkvöld, en bæði Ísrael og Bandaríkin eru mótfallin því að Palestína öðlist sjálfstæði. 27.6.2011 14:38
Grindvíkingar passa hver annan - bærinn miðlar upplýsingum "Íbúar hér eru mjög vakandi og hringja sig saman þegar eitthvað svona kemur upp," segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík. 27.6.2011 14:21
Kanna áhuga fólks á skiltun fyrir puttalinga Félag íslenskra bifreiðaeigenda stendur nú fyrir könnun á vef sínum þar sem fólk er spurt um álit á því hvort rétt sé að setja upp skilti á þéttbýlis- og ferðamannastöðum fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, sem óska eftir bílfari. Þar sem stutt er síðan könnun var útbúin hafa heldur fáir tekið þátt enn sem komið er, eða 169. Flestir taka vel í þetta og segja 55,4% þátttakenda "Já, endilega". Þá segja 14,2% "Alls ekki." Ný tegund þjónustuskilta skaut upp kollinum í vor utan Bolungarvíkur og Súðavíkur, þar sem umferð fer hjá til Ísafjarðar. Skiltið er ætlað gangandi vegfarendum sem óska sér ferðar með bílum sem eiga leið fram hjá. Með því að standa við skiltið gefur fólk til kynna að það óski eftir fari. Það eru samtökin Leið ehf. sem standa fyrir verkefninu. Tilraunin er gerð meðal annars vegna þess að kostnaður við rekstur bifreiða færist sífellt í aukana og talsverður fjárhagslegur ávinningur sé að því að samnýta ferðir. Þá sé einnig mikilvægt að huga að umhverfissjónarmiðum. 27.6.2011 13:44
200 lítrum af dísilolíu og fartölvu stolið Fyrir um viku síðan var 200 lítrum af dísilolíu stolið af kranabifreið og skotbómulyftara sem voru við Kuldabola í Þorlákshöfn. Sömu nótt var brotist inn í kaffiskúr á gámasvæðinu við höfnina. Þar var mikið rótað til, kaffi og pappír dreyft um skúrinn og fartölvu var stolið. Þá var jafnframt gerð tilraun til að fara inn í gáma á svæðinu. 27.6.2011 13:42
Vilja handtaka Gaddafí Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipun á Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Gaddafí er sakaður um glæpi gegn mannkyni og er hann grunaður um að hafa fyrirskipað árásir á óbreytta borgara á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru frá því uppreisn gegn honum hófst. Dómstóllinn gaf einnig út handtökuskipanir á tvo nánustu samstarfsmenn Gaddafís, son hans Saif al-Islam og yfirmann leyniþjónustunnar, Abdullah al-Sanussi. 27.6.2011 13:31
Loftsteinsins vænst klukkan fimm í dag Loftsteinninn 2011 MD mun koma næst jörðu um klukkan fimm í dag að sögn Sævars Helga Bragasonar, formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Loftsteinninn, sem stjörnuskoðunarmenn uppgötvuðu í síðustu viku, er um tuttugu metrar að lengd og verður í um 12 þúsund kílómetra fjarlægð frá jörðu í dag. 27.6.2011 12:20
Ekkert hræðir ferðamenn meira en að komast ekki aftur heim Mörg fyrirtæki í ferðaþjónustunni hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna yfirvinnubanns flugmanna Icelandair en félagið hefur nú aflýst fimmtán flugum. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir ekkert hræða ferðamenn meira en tilhugsunin að komast ekki aftur heim. Viðræðum verður haldið áfram í Karphúsinu í dag. 27.6.2011 12:07
Aðeins sjö deildarlæknar - eiga að vera tuttugu og tveir Aðeins sjö deildarlæknar verða að störfum á lyflækningadeild Landspítalans á tímabili í júlí en þeir eiga að lágmarki að vera tuttugu og tveir. Formaður félags almennra lækna segir starfsmenn kvíða sumrinu og að dæmi séu um að einhverjir hafi leitað að vinnu annars staðar vegna ástandsins. 27.6.2011 12:03
Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur endurvakin Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur hefur verið endurvakin frá gömlum glæðum og verður haldin laugardaginn 9. júlí á Hvolsvelli. 27.6.2011 11:56
Aðildarviðræður við ESB hafnar Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust í dag þegar fyrstu fjórir kaflar viðræðnanna voru teknir fyrir, en samkvæmt fréttatilkynningu á síðu sambandsins hefur yfirferð á tveimur þessara kafla verið lokað til bráðabirgða. 27.6.2011 11:34
Norrænir ráðherrar ræddu mænuskaða í Finnlandi Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði á fundi velferðaráðherra Norðurlandanna í Finnlandi síðustu viku að umferðarslys væru ein höfuðorsök meiðsla, sér í lagi hjá ungu fólki. 27.6.2011 11:31
Minningarleiftur úr Eyjafirði - keppni Sögufélagsins Sögufélag Eyfirðinga fagnar á þessu ári 40 ára afmæli. Af því tilefni stendur félagið fyrir samkeppni um athyglisverðar minningar. Skorað er á alla, unga sem aldna, konur og karla, að hugleiða hvað á dagana hefur drifið og setja á blað minningaleiftur. Viðkomandi þarf ekki að vera Eyfirðingur í neinum skilningi þess orðs en atburðurinn sem hann rifjar upp verður að hafa gerst á 20. öldinni og í Eyjafirði - en þar er talinn með Siglufjörður að vestanverðu og Gjögrar að austan. „Og, svo það sé undirstrikað rækilega, frásögnin verður að vera byggð á persónulegri reynslu - þetta var það sem ég upplifði og sá, mínar tilfinningar og minn sjónarhóll,“ segir í tilkynningu. „Það skal tekið fram að ef einhver á í fórum sínum frásögn t.d. afa eða ömmu, sem uppfyllir framantalin skilyrði, þá á hún heima í þessari samkeppni sem er ekki síst hugsuð sem tækifæri til að forða skemmtilegum og fróðlegum minningum frá gleymsku. Sögufélagið áskilur sér sem sé rétt til að birta innsendar greinar í Súlum, ársriti félagsins, sér að kostnaðarlausu Ágætt er að miða við þrjár blaðsíður, greinin má þó vera styttri eða lengri ef efnið krefst þess. Nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi, þrjár viðurkenningar verða veittar en seinasti skiladagur er 22. október 2011," kemur fram í tilkynningunni. Ritgerðir sendist til ritstjóra Súlna: Hauks Ágústssonar Galtalæk 600 Akureyri 27.6.2011 11:27
Skipverjar keppa í planki - Alltaf eitthvað að bauka Allir átján skipverjar á fjölveiðiskipinu Hugin VE slógu til og ákváðu að taka þátt í plankakeppni. Guðmundur Ingi Guðmundsson, fyrsti stýrimaður, hafði aldrei heyrt um plank fyrr en félagar hans á skipinu fóru að tala um þessa nýstárlegu afþreyingu. "Ég kom bara af fjöllum,“ segir hann. Fyrsta plank Guðmundar hefur nú verið fest á filmu, ásamt planki hinna skipverjanna, og stendur yfir kosning um besta plankið. Þeim sem þekkja til þeirra félaga á Hugin kemur uppátækið ekki mikið á óvart enda segir Guðmundur Ingi þá heldur uppátækjasama. "Við erum alltaf að bauka eitthvað, segir hann. Myndirnar af planki skipverjanna má sjá hér að neðan. Þær er einnig að finna á heimasíðu Hugins VE þar sem nafn hvers plankara er við myndina og þar er auk þess hægt að kjósa um besta plankið. 27.6.2011 11:04
Starfsmaður Lyfja og heilsu dró að sér fé Starfsmanni í útibúi Lyfja og Heilsu á Suðurlandi hefur verið vísað úr starfi eftir að upp komst að hann hafi stolið umtalsverðri fjárhæð af fyrirtækinu. Eftir því sem næst verður komist stal starfsmaðurinn að minnsta kosti tveimur milljónum króna. 27.6.2011 10:45
Bandaríska skipið Eagle leggst að höfn í Reykjavík Bandaríska strandgæsluskipið Eagle mun leggjast að Miðbakka í Reykjarvíkurhöfn klukkan tíu á morgun, þriðjudaginn 28. júní. Skipið, sem er þrímastra seglskip, hefur hér viðkomu á siglingu sinni til að minnast þess að 75 ár eru liðin frá því það var smíðað. 27.6.2011 10:37
Þrjú stutt viðvörunarmerki fyrir hverja sprengingu Þrjú stutt hljóðmerki verða gefin fyrir hverja sprenignu við gerð snjóflóðavarnargarðinn í Bolungarvík til að gera íbúum viðvart. Sprengingar verða áfram á sama tíma og verið hefur, klukkan 12.00, 15.30 eða 18.00. Viðvörunarhljóðið er liður í ferli sem hrint var af stað vegna óhapps við sprengingar fyrir helgina þar sem miklar skemmdir urðu á nærliggjandi húsum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigurði Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Ósafls hf. sem sér um framkvæmdirnar. Lögregla og Vinnueftirlit rannsaka nú tildrög óhappsins, og munu starfsmenn og öryggisfullrúi Ósafls fara yfir verklag. "Þegar ástæður óhappsins liggja fyrir munum við endurbæta vinnulag sem tryggir að óhapp sem þetta endurtaki sig ekki," segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að sprengingar hefjist ekki að nýju fyrr en ástæður óhapps liggja fyrir og verklag hefur verið endurbætt. 27.6.2011 10:36
Bjarnargreiði við brotakonur - kynjamisrétti í refsidómum "Fyrstu viðbrögð þeirra sem ég tala við er að þetta sé brjálað ójafnrétti gagnvart körlum,“ segir Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur, um niðurstöðu meistaraverkefnis síns að réttarkerfið tekur vægar á konum en körlum. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagðist hún telja þetta vera bjarnargreiða þar sem konurnar eru jafnvel komnar í verri stöðu en karlmenn þegar þær eru loks stoppaðar af í brotastarfsemi sinni. Helga Vala segist hafa farið að velta fyrir sér hvort þarna væri um einhvers konar misskilning að ræða innan réttarkerfisins. "... að það væri verið að gera konunum greiða, innan gæsalappa, með því að gefa þeim endalaust þessa sjensa. Því að einhvers staðar hefur þú líka, hvort sem þú gerist brotlegur við lögin eða ekki, þá hefur þú gott af því að fá þetta gula spjald, eða jafnvel rauða," segir hún. Lokaverkefni Helgu Völu ber heitið "Misskilin mannúð - rannsókn á meðferð réttarkerfisins á brotakonum" en hún útskrifaðist á dögunum með meistaragráðu frá Háskólnanum í Reykjavík. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun fór hún yfir niðurstöður verkefnisins og viðbrögð við þeim. Meðal þess sem þar kom fram er að vegna vægari dóma yfir konum sem teknar eru fyrir fíkniefnasmygl hefur orðið til eins konar launamisrétti meðal burðardýra í fíkniefnaheiminum. Hlusta má á viðtalið í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan. 27.6.2011 10:01
Alls engin yfirlýsing - Svör ráðherra oftúlkuð Iðnaðarráðherra sendi aldrei frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að til greina kæmi að lögbann yrði sett á verkfall flugmanna. "Það mátti skilja það þannig af fréttum en það er nú ekki rétt, ég gerði það ekki," sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna talaði um það í fjölmiðlum um helgina að "yfirlýsing" ráðherra hefði snert flugmenn illa og að hún hefði komið á viðkvæmum tíma. Fréttir af þessu voru fluttar í ýmsum fjölmiðlum þar sem fjallað var um kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair. Hið rétta er hins vegar að fréttamaður Stöðvar 2 spurði ráðherra á föstudag hvort hægt væri að útiloka að lögmann yrði sett á verkfallið og sagði ráðherra aldrei hægt að útiloka slíkt. "Það er náttúrulega aldrei hægt að útiloka slíka möguleika þegar kjaradeilur eiga sér stað. Ég held að það geti ekki nokkur maður gert það," sagði Katrín Í bítinu en tók fram að mikið þyrfti að ganga á áður en gripið væri til slíkra aðgerða. "Það er nú ekki komið að því á þessari stundu og töluvert í land með það þannig að þessi orð mín voru nú eitthvað oftúlkuð," sagði hún. Meðal annars sagði Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í viðtali við RÚV á sunnudag: "Það er skelfilega ófaglegt af iðnaðarráðherra að hóta lögbanni." Í bítinu var Katrín spurð hvort túlkun á svari hennar hefði verið tekin of langt. "Já, það má segja það. En það kannski hefur hentað einhverjum. Það er bara eins og það er," sagði hún. Hægt er að hlusta á viðtalið við Katrínu Í bítinu í morgun með því að smella á tengilinn hér að ofan. Með því að smella hér má horfa á viðtal Stöðvar 2 við ráðherra á föstudag þar sem hún segist aðspurð ekki útiloka lögmann. http://visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV67736FBF-CA9B-4BEC-9096-CB65633EA060 27.6.2011 09:12
Í fimm daga gæsluvarðhald vegna líkamsárásar Karlmaður, sem braust inn í íbúð annars manns á Akranesi undir morgun í gær og veitti honum alvarlega áverka með barefli, var seint í gærkvöldi úrskurðaður í allt að fimm daga gæsluvarðhald. 27.6.2011 08:56
Þyrla sótti alvarlega veikan sjómann í nótt Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi djúpt vestur af Reykjanesi í nótt og var óskað eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar myndi sækja hann. 27.6.2011 07:28
Undirskriftavél Bandaríkjaforseta afhjúpuð Eitt helsta leyndarmál Hvíta hússins í Washington er komið fram í sviðsljósið. Um er að ræða sérútbúna skrifvél sem notar vélmennisarm til þess að undirrita nöfn forseta landsins á ýmis opinber og óopinber skjöl og bréf sem forsetinn sendir frá sér. 27.6.2011 07:21
Þung umferð til höfuðborgarsvæðisins Þung umferð var til höfuðborgarsvæðisins undir kvöld í gær og á tímabilinu frá klukkan fimm og fram á sjöunda tímann má segja að það hafi veri bíll við bíl alveg frá Litlu kaffistofunni og inn í borgina. 27.6.2011 07:20
Nýr fundur boðaður í deilu flugmanna í dag Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttafundar með flugmönnum Icelandair og samningamönnum félagsins, klukkan hálf tvö í dag, eftir árangurslausan samningafund á laugardag. 27.6.2011 07:17
Hóta að stoppa áætlunarflug milli Ísraels og Danmerkur Stjórnvöld í Ísrael hafa hótað Dönum því að stoppa allt áætlunarflug milli Danmerkur og Ísraels. 27.6.2011 07:13
Ferðum Herjólfs fjölgað um tvær í viku Ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs verður fjölgað um tvær í viku, frá og með næsta miðvikudegi. 27.6.2011 06:53
Kólígerlasmit komið upp í Frakklandi Kólígerasmitið sem kostað hefur 46 manns lífið í Þýskalandi virðist hafa stungið sér niður í Frakklandi. 27.6.2011 06:49
Sofnaði undir stýri og hafnaði út í mýri Ökumaður sofnaði í bíl sínum á ferð eftir Eyjafjarðarbraut-Eystri í nótt og vaknaði við að bíllinn var komin útaf og út í mýri. 27.6.2011 06:47
Uppreisnarmenn sækja í átt að Trípolí Fréttir berast nú af miklum bardögum suður af Trípólí höfuðborg Líbýu milli uppreisnarmanna og hersveita sem eru hliðhollar Muammar Gaddafi leiðtoga landsins. 27.6.2011 06:42
Mega óvænt hefja veiðar á svæði A á miðnætti Strandveiðibátar á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp, mega óvænt hefja veiðar á miðnætti, þótt þeir séu löngu búnir með júníkvótann. 27.6.2011 06:38
722 einbreiðar brýr á þjóðvegum landsins Meirihluta brúa í þjóðvegakerfi landsins er enn einbreiður, en unnið er að fækkun þeirra samkvæmt umferðar-öryggisáætlun. Alls eru 1.206 brýr í þjóðvegakerfi landsins og af þeim eru 722 einbreiðar. Ef aðeins er litið til stofn- og tengivega eru 423 einbreiðar brýr á landinu. Einar Magnús Magnússon, hjá Umferðarstofu, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af einbreiðum brúm. Í kynningarmyndbandi ætluðu erlendum ferðarmönnum er þeim sérstaklega bent á hætturnar samfara akstri um einbreiðar brýr. 27.6.2011 06:30
Besta opnun sem menn muna Opnun Selár í Vopnafirði á laugardag mun fara í sögubækurnar sökum metveiði. Alls veiddust tuttugu laxar á aðeins fjórar stangir sem bætir met síðustu tveggja ára sem menn töldu að væri erfitt. 27.6.2011 06:00
Ögmundur þakklátur bílstjóra fyrir 40 ára þjónustu Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, heiðraði á föstudaginn Jónas Engilbertsson sem ekið hefur strætisvagni í Reykjavík í fjóra áratugi. Einnig var Jónas heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. 27.6.2011 17:46
Ók ofan í skurð og gjöreyðilagði bílinn - ökumaður grunaður um ölvun Karlmaður ók bifreið sinni út af veginum á Kjarnagötu á Akureyri klukkan sex í morgun og hafnaði ofan í skurði samkvæmt lögreglunni á Akureyri. 26.6.2011 16:28
Ölvaður ökumaður og pústrar í Galtalæk Um fjögur hundrað manns mættu á útihátíð á Galtalæk um helgina. Nokkur ölvun var á svæðinu í gær að sögn lögreglu og eitthvað pústra á milli manna. Einn var stöðvaður í morgun grunaður um ölvun við akstur en öðru leyti gekk hátíðin vel. 26.6.2011 11:57
Klósettkafari handtekinn Lögreglan í Colorado í Bandaríkjunum handtóku karlmann um þrítugt í síðustu viku en hann hafði falið sig í rotþró ferðaklósetts á Yoga hátíð sem haldin var í fylkinu. 25.6.2011 23:00
Yoda ljótasti hundur heims Smáhundurinn Yoda var kjörinn ljótasti hundur heims á árlegri hátíð í Norður-Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær. Hundurinn er fjórtán ára gamall og er samblanda af kínverskum smáhundi, sem er vel að merkja sama tegund og hundurinn Lúkas var af, og svo mexíkóska smáhundakyninu Chihuahua, sem kannski fleiri kannast við. 25.6.2011 21:00
Spyr hvort ráðherra ætli að skikka flugmenn til að vinna í frítímanum Allt bendir til þess Icelandair muni aflýsa sex flugferðum til viðbótar á mánudag eftir að upp úr slitnaði í samningaviðræðum flugmanna og Icelandair hjá ríkissáttasemjara í dag. Flugmenn eru ósáttir við yfirlýsingar ráðherra. 25.6.2011 20:00
Vill hækka laun lækna til að sporna við yfirvofandi læknaskorti Þriðjungur þeirra sem hafa íslenskt læknaleyfi starfa erlendis. Fyrrverandi landlæknir og forseti læknadeildar Háskóla Íslands segir mikla þörf á að bæta kaup og kjör lækna til að forðast alvarlegar afleiðingar læknaskorts. 25.6.2011 20:00
"Hálfbúarnir“ kaupa gömlu húsin en búa bara hluta ársins Fólkið í bænum kallar þá hálfbúa, aðkomumennina sem flutt hafa í stríðum straumum til Stykkishólms en búa bara hluta ársins í bænum. 25.6.2011 19:30