Fleiri fréttir

Strætóbílstjóri talaði í símann undir stýri

Forsvarsmenn Strætó bs. hafa veitt vagnstjóra hjá fyrirtækinu tiltal vegna farsímanotkunar við akstur eftir að ljósmynd barst af bílstjóranum þar sem hann sást tala í símann á sama tíma og hann ók strætisvagni. Ljósmyndin barst til fréttastofu sem síðan kom henni áleiðis til Strætó bs. Upplýsingar frá ljósmyndara um tíma og staðsetningu vagns þegar myndin var tekin leiddi til þess að starfsfólk Strætó bs. gat haft uppi á vagnstjóranum. Gert er ráð fyrir að vagnstjórum verði sent tilkynning á allra næstu dögum þar sem ítrekaðar eru upplýsingar um starfsreglur, þar á meðal að ólöglegt sé að tala í síma við akstur. "Lögbrot og brot á starfsreglum vagnstjóra eru litin alvarlegum augum hjá Strætó bs. og farsímanotkun í akstri án handfrjálss búnaðar er ekki einungis lögbrot heldur er það einnig brot á starfsreglum vagnstjóra að tala í síma í akstri - með eða án handfrjáls búnaðar," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Brot á lögum og starfsreglum fara eftir ákveðnum ferlum innan fyrirtækisins og kunna að leiða til áminningar og ef til vill síðar til brottreksturs ef svo ber undir. "Þetta er allt skráð," segir Reynir. Hann leggur áherslu á að fyrirtækið reyni eftir fremsta megni að vinna með sínu starfsfólki og aðstoða það við að bæta ráð sitt þegar þörf krefur, frekar en að segja upp góði fólki sem verður á að gera mistök í starfi. Ef um endurtekin brot sé að ræða er þó engin þolinmæði fyrir því. "Flestir taka ábendingum vel og brjóta ekki af sér aftur," segir Reynir. Þó hann geti ekki gefið upplýsingar um einstaka starfsmenn segir Reynir aðspurður að sá sem á myndinni sést tala í símann við akstur er ekki þekktur hjá fyrirtækinu nema af góðu einu. Reynir bindur því vonir við að eitt tiltal sé allt sem til þurfi. Reynir segir ekki algengt að ábendingar berist vegna þess að vagnstjórar tali í síma á meðan á akstri stendur, en það komi þó fyrir. Hann beinir því til viðskiptavina Strætó bs. að hafa sjálfir samband við fyrirtækið ef þeir vilja koma með athugasemdir, og segir þar fullum trúnaði heitið.

Transfólk fordæmir orðaval þulu í Eurovision

"Bleiki hnefinn fordæmir niðrandi ummæli Hrafnhildar Halldórsdóttur Eurovision-þulu og krefst þess að hún, ásamt Ásgrími Angantýssyni málfarsráðunaut RÚV og Páli Magnússyni útvarpsstjóra, biðjist afsökunar vegna fordómafullra ummæla Hrafnhildar frá því í gær um keppanda Eurovision sem farið hefur í aðgerð til leiðréttingar á kyni." Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bleika hnefanum, aðgerðahópi róttækra kynvillinga. Áður en ísraelska söngkonan Dana International steig á svið í fyundankeppninni á þriðjudag, sagði Hrafnhildur: "Dana heitir í raun Yaron Cohen og er tæplega fertugur karlmaður. Eftir kynskiptingu heitir hún Sharon Cohen, þetta vita auðvitað allir því Dana sigraði Eurovision keppnina árið 1998 í Birmingham," Krafa Bleika hnefans er að Hrafnhildur biðji almenning, sérstaklega transfólk, afsökunar á ummælunum í beinni útsendingu frá Eurovision-söngvakeppninni á morgun 14. maí. Jafnframt skorar hópurinn á Pál og Ásgrím að biðjast afsökunar skriflega. Dana International er ekki karlmaður - hún er kona sem fæddist í karlmannslíkama og fór í aðgerð til leiðréttingar á kyni. Hún heitir ekki Yaron Cohen heldur Sharon Cohen, hið rétta er að hún hét Yaron. "Ummæli Hrafnhildar bæði einkennast af og ýta undir skilningsleysi og fáfræði gagnvart transfólki. Það er sérlega alvarlegt í ljósi þess að leitandi er að öðrum hópi í íslensku samfélagi sem verður fyrir álíka miklum fordómum. Félagsleg og lagaleg réttindi hópsins eru í óvissu og andlegt álag mikið. Það er því mjög alvarlegt þegar sjónvarp allra landsmanna ýtir undir fordóma með þeim hætti sem gert var í beinni útsendingu frá Eurovision á fimmtudaginn sl.,“ segir í tilkynningunni.

Norðmenn í leynilegum flóttamannaflutningum

Norðmenn hafa leynilega í tvö ár hjálpað stjórnarandstæðingum að komast frá Sri Lanka og veitt þeim pólitískt hæli í Noregi. Tvö ár eru liðin frá því blóðugu borgarastríði lauk í landinu.

Sletta úr klaufunum í Eyjafjarðarsveit

Ábúendur á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit bjóða gestum og gangandi að fylgjast með þegar kúnum á bænum verður hleypt út eftir vetrarinnistöðu, á komandi sunnudag klukkan tólf á hádegi. "Kýrnar fagna því vel og innilega þegar þeim er hleypt úr fjósi og má fastlega búast við að hraustlega verði slett úr klaufum," segir á vef Landssambands kúabænda um viðburðinn. Ytri-Tjarnir eru við Eyjafjarðarbraut eystri, 13 kílómetra sunnan Akureyrar. Þar er rekið kúabú með 50

Vill bregðast við hugsanlegri mengun við Íslandsstrendur

Þörf er á auknu eftirliti með skipaumferð og viðbúnaði við hugsanlegri mengun vegna aukinna umsvifa og siglinga á Norðurslóðum, að mati umhverfisráðuneytisins. Ráðherra kynnti á dögunum tillögur að auknu samstarfi stofnana og ráðuneyta vegna þessa fyrir ríkisstjórninni.

Breytt flugáætlun Icelandair vegna vinnudeilu

Tilkynning ISAVIA þess efnis að aðeins verði heimilað neyðarflug um Keflavíkurflugvöll frá kl. 20.00 í dag, föstudag, til kl. 07.00 á morgun, laugardag, vegna aðgerða flugumferðarstjóra mun hafa töluverð áhrif á áætlunarflug Icelandair næsta sólarhringinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair þar sem einnig má finna upplýsingar um breytingar á áætlunarflugi vegna þessa næstu daga. Þar segir að flugi FI-212 frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar í dag verður flýtt um 30 mínútur og verður brottför kl. 12.45. Þá verður flugi FI-213 frá Kaupmannahöfn í kvöld flýtt um 45 mínútur og verður brottför kl. 19.00 að staðartíma og mun sú vél lenda á Keflavíkurflugvelli kl. 20.00. Flug FI-455 frá London í kvöld mun lenda á Akureyrarflugvelli kl. 22.50 og verða farþegar fluttir til Reykjavíkur með rútum. Þá má búast við því að eins til tveggja klukkustunda seinkun verði á öllu flugi Icelandair í fyrramálið vegna áðurnefndra takmarkana. Viðskiptavinir Icelandair eru hvattir til þess að fylgjast vel með upplýsingum um komu- og brottfarartíma því breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara. "Vinnudeila ISAVIA og flugumferðastjóra er Icelandair óviðkomandi, en hún veldur okkur og viðskiptavinum okkar óþægindum og fjárhagstjóni. Við óttumst að þetta sé aðeins upphafið að frekari aðgerðum og skorum á deiluaðila að leysa úr ágreiningi sínum svo ekki komi til alvarlegra afleiðinga fyrir ferðaþjónustuna nú í upphafi sumars", segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring

Tveir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að þeir voru handteknir í Hafnarfirði á miðvikudag vegna líkamsárásar á karlmann á þrítugsaldri.

Cameron beitir sér í máli Madeleine

Lundúnalögreglan ætlar nú að beita sérþekkingu sinni við að rannsaka hvarfið á Madeleine McCann. Á dögunum voru átta ár liðin frá fæðingu stúlkunnar en hún hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007 þá þriggja ára gömul.

Skemmtanastjóri á eigin heimili - stofnaði viðburðavef

"Það má segja að ég hafi verið skemmtanastjóri á eigin heimili. Við hjónin höfum samtals haft sex börn með lögheimili hjá okkur í gegn um árin," Sif Sigfúsdóttir sem heldur úti síðunni Gerumeitthvad.is, viðburðavef fyrir alla fjölskylduna, sem hún opnaði í lok mars. "Mér fannst sárvanta síðu sem ég gat opnað á laugardagsmorgni og fundið út allt það helsta sem væri að gerast þann daginn. Í stað þess að opna margar netsíður fyrirtækja og stofnana er hægt að finna þetta allt á einum stað," segir Sif hefur gengið með hugmyndina að síðunni í maganum í tvö ár. Meðal þess sem nú ber hæst á viðburðavefnum Gerumeitthvad.is er Barnavagnavika Ferðafélags Íslands, útskriftartónleikar úr Listaháskóla íslands, fjöruganga við Bessastaðakirkju og nytjamarkaður í Súðavogi í Reykjavík þar sem allur ágóðinn rennur til ABC barnahjálpar. Vefsíðan er nýsköpunarverkefni Sifjar á námskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,Brautargengi, sem er sérsniðið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Hún hafði gengið með hugmyndina í maganum í tvö ár þegar hún loksins varð að veruleika. Sif sér alfarið sjálf um síðuna, og notar til þess lausan tíma á kvöldin og um helgar. Þá vinnur hún aðsendar myndir af á þarf að halda og skrifar texta. "Ég sé um að setja inn auglýsingar og er með góða aðila af öllu landinu sem hafa sýnt síðunni áhuga og senda á mig viðburði. Þetta er auðvitað vinna en á móti kemur að þetta er mín ástríða og mér finnst þetta gaman," segir Sif. Hún hefur alltaf verið virki í öllu félagsstarfi og hefur margvíslega reynslu að baki. Hún sat í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur árin 2008 til 2010, er með meistaragráðu úr viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og með kennsluréttindi fyrir grunn- og menntaskóla. "Ég ákvað að vinna síðuna út frá fræðum markaðsfræðingsins og frumkvöðulsins Guy Kawasaki en hans mottó er meðal annars viðskiptahugmyndin eigi að auka lífsgæði fólks, hún eigi að uppfylla þörf og ennfremur að þörfin fyrir að koma skilaboðunum áleiðis til fólksins sé sterkari en skammtíma gróðasjónarmið. Þessu vinn ég eftir," segir Sif. Öllum er frjálst að senda inn upplýsingar um viðburði og myndir. Sif segir að henni finnist sérstaklega gaman að geta komið á framfæri grasrótarviðburðum sem höfða til allra, og eru án aðgangseyris.

Hefnt fyrir dauða Bin Ladens

Sjötíu og þrír létust þegar tvær sprengjur sprungu í herskóla í Norðvestur Pakistan í gærkvöldi. Tugir slösuðust að auki í sprengingunum en talíbanar hafa lýst ábyrgð ódæðisins á hendur sér. Þeir segjast hafa verið að hefna fyrir drápið á Osama bin Laden í byrjun mánaðarins. Sprengjurnar sprungu þegar hópur nýliða var að stíga upp í rútur á leið í frí eftir að hafa lokið fyrstu önn við skólann.

Keflavíkurflugvelli lokað í kvöld og fram á morgun

Keflavíkurflugvelli verður lokað klukkan átta í kvöld til klukkan sjö í fyrramálið vegna manneklu við flugumferðarstjórn. Veikindi hafa verið boðuð og þar sem yfirvinnubann er í gildi á flugumferðarstjórum er ekki hægt að kalla út mannskap í staðinn. Einhver röskun getur orðið á flugi Icelandair vegna þessa, en lokun vallarins hefur ekki áhrif á flug Iceland Express.

Brotist inn á þremur stöðum

Tilkynnt var um þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu undir morgun. Brotist var inn í skóla í Breiðholti og í Hafnarfirði, en ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið þar. Svo var brotist inn í verslun í vestuborginni og þaðan stolið tóbaki og ef til vill einhverju fleiru. Þjófarnir komust undan í öllum tilvikum og er þeira nú leitað.

Kjötframleiðsla gæti aukist um fimmtung

"Bændur segjast á næstu fimm árum treysta sér til að auka framleiðsluna um tíu til tuttugu prósent," segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Vegna horfa á auknum útflutningi segir hann möguleika til aukinnar framleiðslu hafa verið til umræðu á fundum með bændum.

Leif Magnús flytur til Íslands í sumar

"Þetta eru mjög góð tíðindi. Það er þungu fargi af okkur öllum létt,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi hins átta ára gamla Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland. Norskur dómstóll hefur samþykkt að veita Grétari, föður Leifs, fullt forræði yfir honum og er von á Leif til Íslands í byrjun júní þegar skólahaldi lýkur í bænum Mandal í Noregi.

Fólkið er ekki talið í lífshættu

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann og konu á bráðamóttöku Landspítalans eftir harðan árekstur á þjóðveginum við Skriðuland, nærri Búðardal, á fimmta tímanum í gær.

Gæti bætt lánshæfismatið

"Það er fylgni á milli þess þegar Seðlabankinn kaupir aftur erlend skuldabréf ríkissjóðs og þess að álagið lækkar,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur á greiningardeild Íslandsbanka.

Rannsaka vinnubrögð siðanefndar HÍ í máli Vantrúar

Háskólaráð Íslands hefur skipað þriggja manna sérfræðinganefnd til að rannsaka vinnubrögð siðanefndar skólans þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann. Formaður nefndarinnar er meðal annars sakaður um að leka trúnaðarupplýsingum um málið til formanns Vantrúar og eiga við hann náin samskipti.

Karlmanni dæmdar bætur í kjölfar mansalsmáls

Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða íslenskum karlmanni 600 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í um það bil tvo sólarhringa vegna rannsóknar lögreglu á mansalsmáli og hafði krafist sjö milljóna í bætur.

Hagstjórnarmistök gætu leitt til hruns

Röng skattastefna vinstristjórnarinnar í dýpsta samdráttarskeiði landsins í tæp hundrað ár án hagvaxtar gæti valdið því að ríkið yrði gjaldþrota eftir þrjú til fjögur ár. Þetta fullyrðir Ragnar Árnason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands.

Tilskipun kallaði á könnun

Hvorki er að finna salmonellu né E. coli sýkingu í nautgripabúum hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matvælastofnunar.

37 umsóknir hafa borist um sérfræðiaðstoð

Alls höfðu 37 umsóknir um sérfræðiaðstoð verið sendar stofnunum Evrópusambandsins (ESB) í lok mars, frá því að svokölluð TAIEX-aðstoð var gerð Íslendingum aðgengileg síðasta sumar. Umsóknirnar fela flestar í sér aðstoð við upplýsingaöflun og kynningu á regluverki ESB.

Var með 1.100 lítra af bruggi

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir landabrugg. Manninum er gefið að sök að hafa á heimili sínu í Skólagerði í Kópavogi framleitt í söluskyni 850 lítra af gambra.

Handriðin í Hörpu slysagildra

Handriðin á svölunum í Eldborgarsal Hörpunnar eru slysagildra og hafa tónleikagestir kvartað til tryggingafélaga. Tónlistarstjóri hússins ráðleggur lofthræddu fólki að kaupa sér ekki miða á svölunum.

Formaður Lögmannafélagsins segir ákæru óskýra

Formaður Lögmannafélagsins telur miklar líkur á að ákærunni gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði vísað frá Landsdómi. Hún uppfylli ekki nútímakröfur um skýrleika í ákæruskjölum. Hann segir pólitískt uppgjör ekki eiga heima í réttarsölum.

Gasleki í Hörpunni - húsið rýmt

Gasleki varð í veitingastaðnum Munnhörpunni tónlistarhúsinu Hörpunni. Að minnsta kosti tveir hafa fundið til óþæginda vegna lekans en lögregla og slökkvilið eru að rýma húsið.

Tveggja ára dómur fyrir brot gegn ölvaðri stúlku

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóm Vesturlands yfir manni sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var sakfelldur að hafa haft samræði við 17 ára stúlku gegn vilja hennar. Karlmaðurinn notfærði sér ástand stúlkunnar sem gat ekki spornað við samræðinu sökum ölvunar og svefndrunga. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands kom fram að brotið hafi verið til þess fallið að valda henni sálrænum erfiðleikum til lengri tíma. Manninum var jafnframt gert að greiða konunni 800 þúsund krónur í bætur.

Egill og Gerplustúlkurnar árita Símaskrána

Egill Einarsson og Gerplustúlkurnar munu árita Símaskrána þegar hún kemur út á laugardaginn. Sérstök útgáfuhátíð verður haldin fyrir framan Hagkaup í Smáralind þegar símaskráin kemur út.

Var endurlífgaður á slysstað

Maðurinn sem ók bílnum sem valt á hliðina á Sæbraut í dag var í hjartastoppi þegar sjúkraflutningamenn komu að honum. Hann var endurlífgaður af sjúkraflutningamönnum á vettvangi og er í aðgæslu á Landspítalanum vegna þess, segir læknir á slysadeild Landspítalans. Maðurinn er ekki með alvarlega áverka af völdum bílveltunnar.

Börnin fengu sippubönd og sundkort frá ÍBR

Af gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur sumarkomunni og gefur börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir. Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 þegar nemendur í 2.bekk fengu sippuband. Það hefur síðan verið endurtekið ár hvert og hafa þrír árgangar bæst við í hóp þeirra sem fá gjafir frá Íþróttabandalaginu. Börn í öðrum bekk fengu sippuband ásamt litlum bæklingi með hugmyndum af leikjum og æfingum. Allir þriðju bekkir fengu þrjá bolta til að nota í frímínútum. Þá fengu fimmtu bekkingar sundkort sem gildir í þrjú skipti í sundlaugar Reykjavíkur ásamt bækling með hugmyndum að sundleikjum og upplýsingum um opnunartíma sundlauganna í Reykjavík. Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt. Starfsmenn og nemendur skólanna taka ávalt vel á móti gjöfunum og eru þakklát fyrir framtakið eins og sjá má í pósti frá einum skólastjóranum: „Kærar þakkir frá okkur. Gjafirnar eru vorboðar eins og lóan." Alls fengu 1350 börn sippubönd, 1438 börn sundkort og 74 bekkjadeildir (1343 nemendur) bolta frá ÍBR þetta árið. Sumargjöfunum var dreift til skólanna í byrjun maí. 4.bekkingar fengu líka gjöf á þessu skólaári því í tengslum við fyrsta vetrardag í október síðastliðnum voru þeim afhendir boðsmiðar á skauta, samtals 1.365 nemendur.

Undirrita alþjóðasamning gegn heimilisofbeldi

Ísland var í gær á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að samningurinn er fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum. Samningurinn er lagarammi um vernd kvenna gegn ofbeldi, forvarnarstarf, saksókn á hendur gerendum og útrýmingu ofbeldis gegn konum og heimilisofbeldis. Eftirfylgni með innleiðingu samningsins í hverju landi fyrir sig er einnig hluti hans. Fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd á ráðherrafundi Evrópuráðsins, sem nú stendur yfir í Istanbúl í Tyrklandi. Auk Íslands undirrituðu Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svartfjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland samninginn.

Óttast að hér sé "hestaripper" á ferð

Hestamaðurinn sem uppgötvaði skurði á kynfærum hryssu um helgina hefur ritað greinargerð um fyrirbærið "hestaripper“ sem hann ætlar að koma til lögreglunnar á Egilsstöðum, lögreglumönnum til upplýsingar. Þá hefur hann einnig mælst til þess að greinargerðin verði hengd upp í hesthúsum þannig að hestaeigendur séu meðvitaðir um hættuna. Höfundur greinargerðarinnar heitir Ólafur Guðgeirsson og er heila- og taugaskurðlæknir. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. Eftir að Ólafur komst fann skurðina á hryssunni sökkti hann sér í þýskar fræðibækur, en sjálfur var hann við nám í Þýskalandi. Þar í landi gengu menn sem misþyrmdu hrossum á þennan hátt undir heitinu "pferderipper.“ "Þetta glæpsamlega tortímingaræði flokkast undir (zoosadisma) dýraníðingsskap. Í hópnum eru kvennaraðmorðingjar, en við yfirheyrslur margra þeirra í Þýskalandi er oft fyrri saga um dýraníðingsskap, raðáverka eða raðmorð. Einnig játuðu flestir að vera kvennahatarar,“ segir í greinrgerð Ólafs, en þar kemur fram að hann sækir fróðleik sinn til þýskra sérfræðinga. Ólafur segir að þegar í ljós kom að um áverka af mannavöldum var að ræða á hryssunni, eftir því sem komist er næst, hafi hann munað eftir fjölmiðlaumfjöllun um hestarippera frá námsárunum í Þýskalandi. "Þá var ákveðið að í stað þess að hlífa almenningi við þessum staðreyndum þá var fjallað um þetta opinskátt. Þannig væru meiri líkur á að níðingarnir kæmust í viðeigandi meðferð eða á bak við lás og slá,“ segir hann. Ólafur segir það ekki hafa verið tekið út með sældinni að lesa sér til um jafn viðurstyggilega hluti og dýraníð. "Það var hörmulegt að þurfa að vinna þetta. Ég gerði það með miklum stunum. Mér leið mjög illa meðan ég var að vinna úr þessu,“ segir hann.

Sæbrautin lokuð vegna umferðarslyss

Sæbrautin er lokuð milli Kleppsmýrarvegs og Súðarvogs í suðurátt vegna umferðaróhapps. Eftir því sem Vísir kemst næst var bíl ekið á steinvegg og valt síðan eftir það. Einn var í bílnum og hefur sá verið fluttur á slysadeild.

Refsing fyrir mansal verði 12 ár

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi þess efnis að refsing fyrir mansal á Íslandi verði allt að 12 ára fangelsi í stað átta ára.

Lögreglan leitar vitna að umferðarslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö á fimmtudagskvöld fyrir viku. Þar rákust saman svartur Volkswagen Polo og ljósbrún Toyota RAV4 en ökumönnum þeirra ber ekki saman um stöðu umferðaljósa.

Stjórnlagaráð: Ráðherrar víki af þingi og Alþingi styrkt

B-nefnd Stjórnlagaráðs leggur til að ráðherrar víki af þingi, vægi þingforseta verði aukið og að Alþingi verði styrkt sem löggjafi og eftirlitsaðili gagnvart framkvæmdarvaldinu. Þetta eru meðal annars fyrstu tilögur B- nefndarinnar, sem verða kynntar á stjórnlagaráðsfundi klukkan eitt í dag. Þá mun A-nefnd Stjórnlagaráðs leggja fram fyrstu tillögur í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar fram til afgreiðslu inn í áfangaskjal ráðsins.

Annarr fær grænt ljós hjá Mannanafnanefnd

Mannanafnanefnd hefur samþykkt karlmannsnafnið Annarr og hefur nafnið fært á mannanafnaskrá. Þetta kemur fram í úrskurði mannanafnanefndar frá 27. apríl sem birtur var í dag. Þá samþykkti mannanafnanefnd einnig nöfnin Jane og Denis.

Skjálftinn á Spáni fjarri íslendingabyggð

Átta manns létu lífið og um 15 þúsund misstu heimili sín í bænum Lorca á suðaustur Spáni þegar jarðskjálfti að styrkleika 5,2 á Richterskala reið þar yfir í gær. Um 86 þúsund íbúar eru í bænum.

Sjá næstu 50 fréttir